Morgunblaðið - 19.02.2019, Side 10

Morgunblaðið - 19.02.2019, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRÚAR 2019 Ársfundur Lífeyrissjóðs verzlunarmanna verður haldinn þriðjudaginn 26. mars kl. 18:00 á Grand Hótel Reykjavík. Dagskrá fundarins • Venjuleg ársfundarstörf • Kynning á samþykktabreytingum • Önnur mál Sjóðfélagar eiga rétt til setu á ársfundinum. Fundargögn verða afhent á fundarstað. Reykjavík, 24. janúar 2019 Stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna Ársfundur 2019 Lífeyrissjóður verzlunarmanna — live.is Íbúar í Siglufirði og á Ólafsfirði hafa upplifað sannkallaða ófærð síðustu daga, þar sem kyngt hef- ur niður snjó og verið leiðinda norðan fræsingur. Vegum út úr Fjallabyggð hefur verið lokað og gerðist þetta m.a. á þeim tíma þegar íbúar horfðu á næstsíðasta þáttinn af Ófærð á RÚV í fyrra- kvöld. Ólafsfjarðarvegi var lokað vegna snjóflóðahættu og ófært var um Siglufjarðarveg. Einnig var ófærð í Héðinsfirði á milli gangamunna. En eftir því sem leið á daginn í gær þá náði Vega- gerðin að opna þessar leiðir. Leiðindafærð hefur verið á veg- um norðan- og austanlands. Þann- ig var Víkurskarð lokað í gær en þá komu Vaðlaheiðargöng sér vel fyrir vegfarendur. Skafrenningur og þæfingur hefur verið á vegum, éljagangur og lélegt skyggni. Ófærð á Siglufirði á meðan íbúar horfðu á næstsíðasta þáttinn af Ófærð Vegum lok- að vegna flóðahættu Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Arnar Þór Ingólfsson arnarth@mbl.is Ýmsar rangfærslur eru í yfirlýsingunni sem stjórn Procar ehf. sendi út á fjölmiðla síðasta þriðjudagskvöld, eftir að fréttaskýringarþátt- urinn Kveikur opinberaði að bílaleigan hafði átt við ökumæla í bifreiðum sínum, til þess að gera þá auðseljanlegri. Í yfirlýsingu bílaleigunnar sagði meðal ann- ars að fyrirtækið hefði hætt að fikta í kíló- metrastöðu bílanna árið 2015 og að málið varð- aði einungis bifreiðar sem seldar hefðu verið á árunum 2013-2016, en gögn sem mbl.is hefur undir höndum og blaðamaður hefur borið sam- an við upplýsingar úr ökutækjaskrá Sam- göngustofu sýna að bílar sem átt var við árið 2016 voru seldir á árunum 2017 og 2018, bæði til fyrirtækja og einstaklinga. þeirra voru seldir árið 2017 og þrír til viðbótar árið 2018, sá síðasti í nóvember síðastliðnum. Þar var um að ræða Nissan Pathfinder-jeppa, sem í mars árið 2016 var „spólaður til baka“ um rúmlega 33 þúsund kílómetra. Pathfinder-eigandi svekktur „Nei, er það?“ sagði svekkt Guðríð Helena Petersen, sem keypti umræddan bíl af Procar fyrir aðeins fjórum mánuðum, þegar blaða- maður tjáði henni tíðindin. Hún sagðist ekki vita hvert hún ætti að snúa sér núna í fram- haldinu, en veltir því fyrir sér að fara með mál- ið til lögreglu. „Þetta er bara hræðilegt. Bíllinn er allur á láni og lánið væri örugglega lægra ef ég hefði vitað hversu marga kílómetra þessi bíll er keyrður. Ég er bara alveg í sjokki,“ segir Guð- ríð. Bæði Stundin og RÚV höfðu áður greint frá því að yfirlýsing Procar stæðist ekki skoðun og að átt hefði verið við bíla á árinu 2016. Gögnin sem mbl.is fékk frá manni sem vann eitt sinn hjá bílaleigunni staðfesta það og einnig það að fullyrðingar bílaleigunnar um að í flestum til- fellum hafi kílómetrafjöldinn einungis verið skrúfaður niður um 15-30 þúsund kílómetra virðist vera afar hæpnar. Önnur bílaleiga keypti níu bíla Rekstraraðilar bílaleigu sem keypti a.m.k. níu Suzuki Jimny-jeppa af Procar árið 2017 voru slegnir og ætla að skoða réttarstöðu sína, eftir að blaðamaður sagði þeim að búið væri að eiga við kílómetrastöðu bíla sem eru skráðir í þeirra eigu. Tveir bílanna höfðu verið „skrúf- aðir niður“ um u.þ.b. 105.000 km hvor, úr u.þ.b. 170.000 km niður í u.þ.b. 65.000 km. Seldu niðurfærða bíla 2017 og 2018 Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Procar Bílaleigan fór með rangt mál í afsök- unarbeiðni sinni í kjölfar þáttar Kveiks.  Stjórn bílaleigunnar Procar fór með rangt mál í afsökunarbeiðni sinni eftir fréttaflutning Kveiks Hér er um að ræða að minnsta kosti 19 bíla, samkvæmt þeim gögnum úr bókunarkerfi bíla- leigunnar sem blaðamaður hefur skoðað. 16 Íslenskir dansarar unnu fjórfaldan sigur í Boston í Bandaríkjunum um helgina. Daníel Sverrir Guðbjörns- son og Sóley Ósk Hilmarsdóttir úr Dansíþróttafélagi Hafnarfjarðar (DÍH) höfðu sigur í tveimur flokk- um; í U-21 ballroom dönsum og í flokki rísandi stjarna í ballroom. Þá voru þau í sjötta sæti í flokki ball- room-áhugadansara. Kristinn Þór Sigurðsson og Lilja Rún Gísladóttir, einnig úr DÍH), unnu í tveimur flokkum í latin döns- um, meðal áhugadansara og í flokki dansara undir 21 árs aldri. Tristan Guðmundsson og Svandís Ósk í DÍH voru í 5. sæti í U-19 og 6. sæti í U-21 latin dönsum. Bragi Geir Bjarnason og Magdalena Eyjólfs- dóttir úr Dansíþróttafélagi Kópa- vogs (DÍK) voru í 6. sæti í U-19 latin dönsum og í 8. sæti í U-19 ballroom dönsum. Íslenska landsliðið var svo í 6. sæti í liðakeppninni í Boston. Íslenskir dansarar hafa verið sig- ursælir á árinu en Kristinn Þór og Lilja unnu einnig stóra danskeppni í Englandi og Milano Grand á Ítalíu. Þá kepptu Axel Kvaran og Darya Kochkina nýverið í stærstu dans- keppni sem haldin er í Kænugarði í Úkraínu og urðu þar í 1. sæti í tveimur flokkum. Fleiri dansfréttir má lesa á vefnum vinna.dsi.is. Fjórfaldur danssigur í Boston um helgina Danspör Íslenskir dansarar stóðu sig vel í Boston um helgina.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.