Morgunblaðið - 19.02.2019, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 19.02.2019, Qupperneq 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRÚAR 2019 Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is Knoll International PILOT Hönnun: Barber & Osgerby Fjölbreytt úrval af gæða viftum frá Vent-Axia fyrir eldhúsið, baðherbergið, skrifstofuna, verkstæðið eða hesthúsið. Við aðstoðum ykkur við rétta valið. Lo-Carbon Silhouette 125 Centrif-duo Silent 12in Wall fan Hi-line Sabre Plate DALVEGI 10-14 | 201 KÓPAVOGI | SÍMI 540 7000 | FALKINN.IS Hreint loft og vellíðan Það borgar sig að nota það besta VENT–AXIA VIFTUR Breyta þarf hegningarlögum hvað varðar umboðssvik. Dómar Hæsta- réttar eru enda víti til varnaðar. Þetta er meðal niðurstaðna Jóns Steinars Gunnlaugssonar, fv. hæsta- réttardómara, í greininni Umboðs- svik í háttíðarriti Orators, tímariti laganema við Háskóla Íslands. Tilefnið sé dómar sem felldir voru við Hæstarétt í „eftirhrunsmálum“. Hefur Jón Steinar haldið því fram að margir sakborningar í slíkum mál- um hafi verið ranglega dæmdir. Hæstiréttur hafi látið undan þrýst- ingi og dæmt menn að ósekju. Saklaus þar til sekt er sönnuð Jón Steinar rifjar upp 69. grein stjórnarskrárinnar um að engum skuli gert að sæta refsingu nema hann hafi gerst sekur um háttsemi sem hafi verið refsiverð samkvæmt lögum á þeim tíma þegar hún átti sér stað eða megi fullkomlega jafna til slíkrar háttsemi. Þá sé í 70. grein stjórnarskrár að finna ákvæði um réttláta málsmeðferð fyrir dómi og að hver sá sem borinn sé sökum um refsiverða hátt- semi skuli talinn saklaus þar til sekt er sönnuð. Jón Steinar rifj- ar jafnframt upp 18. grein hegning- arlaga. Þar sé kveðið á um að verknaður, sem refsing sé lögð við í lögum, sé ekki saknæmur nema hann sé unninn af ásetningi eða gáleysi. Fyrir gáleysis- brot skuli því aðeins refsa að sérstök heimild sé til þess í lögum. Þá rifjar hann upp XXVI. kafla hegningarlaga um auðgunarbrot. Meðal brota kafl- ans séu þjófnaður, gripdeildir, fjár- dráttur, fjársvik og umboðssvik. Í upphafi kaflans (243. gr.) sé kveðið á um að aðeins skuli refsa fyrir brotin ef þau hafa verið framin í auðgunar- skyni. „Til þess að brot geti talist hafa verið framið í auðgunarskyni þarf til- gangur brotamanns með háttsemi sinni að hafa verið að hafa fé af einum (brotaþola) sjálfum sér eða öðrum til auðgunar. Augljóst er að þetta þarf að hafa beinlínis vakað fyrir brotamanni. Að öðrum kosti getur brot ekki talist framið í auðgunarskyni,“ skrifar Jón Steinar og víkur að Hæstarétti. Hæstiréttur vék frá skilyrðum „Hæstiréttur Íslands hefur síðustu misseri kveðið upp allmarga dóma, þar sem fyrirsvarsmenn banka hafa verið sakfelldir fyrir umboðssvik og eiga brotin þá að hafa verið framin í aðdraganda þess að bankarnir urðu gjaldþrota 2008 … Mér þykir ljóst að Hæstiréttur hafi í flestum þessara dóma hreinlega vikið til hliðar um- ræddu skilyrði 243. gr. almennra hegningarlaga og í þess stað byggt dóma sína á því að veruleg áhætta á fjártjóni banka hafi falist í meintu broti,“ skrifar hann. Þó kunni umræddu skilyrði að hafa verið fullnægt í dómi Hæstaréttar í Exeter-málinu (442/2011). „Með því að umbreyta skilyrði lag- anna eru dómstólar búnir að taka sér í hendur vald til að meta áhættu og leggja hana að jöfnu við auðgunartil- gang ef hún er mikil, þó að ekkert bendi til þess að fyrir ákærða hafi vakað að auðga sjálfan sig eða aðra. Hæstiréttur hefur meira að segja hafnað rétti sakborninga til að láta sérfróða menn meta áhættu sem í við- komandi viðskiptum á að hafa falist,“ skrifar Jón Steinar sem telur fram- kvæmd Hæstaréttar á 249. gr. al- mennra hegningarlaga, varðandi fjár- tjónsáhættu, ekki fá staðist. „Til að fullnægja skilyrðinu um auðgunartilgang hlýtur að þurfa að komast að þeirri niðurstöðu að mark- mið (tilgangur) viðkomandi fjármála- gjörnings hafi verið að hafa fé af bankanum og fá það öðrum,“ skrifar Jón Steinar sem telur það „forkast- anlegt [af Hæstarétti] að meina sak- borningi að koma að sönnunarfærslu um áhættuna sem geti talist hafa fylgt viðkomandi viðskiptum“. „Í þeim málum sem hér hafa verið gerð að umtalsefni verður ekki betur séð en æðsta dómstól þjóðarinnar hafi gengið eitthvað sérstakt til með því að, ekki bara túlka lög sakborningum til bölvunar, heldur einnig beinlínis að breyta merkingu lagaákvæða til að geta komið áfellisdómum fram,“ skrifar Jón Steinar. Þá spyr hann hvort ástæða þess að ekki var ákært fyrir brot gegn 261. gr. hegningar- laga, er varðar fjárréttindi, hafi verið sú að brot samkvæmt þessu ákvæði fyrnist á tveimur árum. Varðar það brot á 248.-250. gr. laga án þess að auðgunartilgangur þyki sannaður. Leggur til breytingar Spyrja megi hvort komin séu for- dæmi um að ekki þurfi að sanna auðg- unartilgang þegar um umboðssvik er að ræða þrátt fyrir bein lagafyrirmæli um það. Þrír kostir séu í stöðunni. Að aðhafast ekki og sjá hvernig dóma- framkvæmdin verður í framtíðinni. Að sameina ákvæði 249. og 261. gr. al- mennra hegningarlaga, „þannig að háttsemi með verknaðarlýsingu 249. gr. yrði refsiverð án þess að sannaður væri auðgunartilgangur“. Að kveða skýrar á um það í lögum að ekki verði refsað fyrir umboðssvik skv. 249. gr. nema auðgunartilgangur sé sannað- ur. baldura@mbl.is Hæstiréttur lét undan þrýstingi  Fyrrverandi hæstaréttardómari telur dóma Hæstaréttar í umboðssvikamálum ekki standast skoðun  Hæstiréttur hafi neitað sakborningum um álitsgerðir  Leggur til breytingar á hegningarlögum Jón Steinar Gunnlaugsson Fiskikóngurinn afhenti Fjölskylduhjálp Íslands nýlega hálft tonn af ýsu handa skjólstæðingum samtakanna og verður fisknum úthlutað við næstu úthlutanir dagana 19., 20. og 21. febrúar. Á myndinni eru fulltrúar Fiski- kóngsins og Fjölskylduhjálpar Íslands við fiskikassana. Fengu hálft tonn af ýsu til úthlutunar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.