Morgunblaðið - 19.02.2019, Síða 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRÚAR 2019
Lesið vandlega upplýsingarnar á umbúðumog fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til
læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum umáhættuog aukaverkanir.
Sjá nánari upplýsingar um lyfið áwww.serlyfjaskra.is
Ibuprofen Bril
Reykjavíkurvegur 62 | Sími 527 0640 | 220Hafnarfjörður | www.wh.is
Á hreint brilliant verði!
Bólgueyðandi og verkjastillandi
400mg töflur - 30 stk og 50 stk
Hundruð karla og kvenna í litríkum búningum skreyttum
með apahauskúpum, svonefndir tatungar, héldu um helgina
svonefnda Cap Go Meh hátíð í Singkawang á Borneó í Indóne-
síu til að fagna nýju ári samkvæmt kínverska tímatalinu.
Fólkið hafði stungið teinum gegnum kinnarnar, sló sig með
sveðjum og gekk á nöglum án þess að á því sæi. Sumir virtust
falla í trans á göngunni. Þessi hátíð byggist á langri hefð en
tatungarnir eru taldir búa yfir yfirnáttúrulegum kröftum og
lækningamætti sem erfist milli kynslóða.
Litrík áramótahátíð á Borneó
AFP
Stjórnendur japanska bílaframleið-
andans Honda eru sagðir hafa
ákveðið að loka verksmiðju fyrirtæk-
isins í Swindon á Englandi árið 2022.
Við það munu 3500 störf tapast.
Breska sjónvarpsstöðin Sky News
sagði, að tilkynnt yrði formlega um
þessa ákvörðun í dag. Evrópskar
höfuðstöðvar Honda verði þó áfram í
Bracknell, skammt frá Swindon.
Breski þingmaðurinn Justin
Tomlinson fullyrti í gær, að ákvörð-
un Honda tengdist ekki Brexit held-
ur hefði fyrirtækið ákveðið að fram-
leiða alla bíla fyrir Evrópumarkað í
Japan. Honda hefur framleitt Civic
bíla í Swindon í 24 ár en þar er eina
verksmiðja fyrirtækisins í Evrópu.
Aðrir bílaframleiðendur, þar á
meðal Nissan og Ford, hafa gefið til
kynna að dregið verði úr starfsemi á
Bretlandi í kjölfar þess að landið
gangi úr Evrópusambandinu. Niss-
an tilkynnti nýlega, að hætt hefði
verið við áform um að smíða X-Trail
sportjeppa á norðausturhluta Eng-
lands og ástæðan væri sú óvissa, sem
skapast hefði vegna Brexit.
Þá hefur Jaguar Land Rover var-
að við hugsanlegum innflutningstoll-
um á breskar útflutningsvörur,
gangi Bretland úr ESB án samnings.
Honda ætlar að loka
verksmiðju í Swindon
3500 störf í hættu vegna lokunarinnar
AFP
Bílar Honda hóf að framleiða Jazz í
verksmiðjunni í Swindon árið 2009.
Dómstóll í París mun á morgun úr-
skurða hvort svissneski bankinn
UBS hafi með ólöglegum hætti
reynt að fá franska viðskiptavini
sína til að fela milljarða evra í Sviss
fyrir frönskum skattayfirvöldum.
Málareksturinn hófst sl. haust eft-
ir rannsókn, sem hófst sjö árum fyrr
þegar fyrrverandi starfsmenn bank-
ans komu fram og fullyrtu, að lög
hefðu verið brotin. Þessar ásakanir
og rannsóknin leiddu til þess, að
svissnesk stjórnvöld neyddust til að
breyta reglum landsins um skilyrð-
islausa bankaleynd og taka þátt í
samstarfi yfir 90 ríkja um aukna
upplýsingagjöf.
Franskir saksóknarar halda því
fram, að fjöldi viðskiptavina UBS
hafi leynt 10 milljörðum evra fyrir
franska skattinum á árunum 2004 til
2012. Krefjast þeir þess að sviss-
neski bankinn verði dæmdur til að
greiða 3,7 milljarða evra í sekt á
þeirri forsendu, að stjórnendur UBS
hafi gert sér fulla grein fyrir því að
þeir væru að brjóta frönsk lög með
því að aðstoða franska viðskiptavini
sína við að svíkja undan skatti.
Krefjast 3,7 millj-
arða evra í sekt
AFP
UBS Útibú UBS bankans í Zürich.