Morgunblaðið - 19.02.2019, Page 23

Morgunblaðið - 19.02.2019, Page 23
Nú hnígur sól að sævarbarmi sígur hún í þreytta jörð. Nú blikar dögg á blómahvarmi, blundar fögur fuglahjörð. Í hljóðrar nætur ástarörmum allir fá hvíld frá dagsins hörmum. (Axel Guðmundsson) Axel Guðmundsson, föður- bróðir Guðmundar, orti þetta fallega ljóð og mér finnst vel við hæfi að hafa það sem upp- haf að fáeinum minningarorð- um um frænda og vin frá ung- lingsárum mínum í Aðaldal. Að vísu bendir ljóðið meira til sælla sumardaga en kuldalegs febrúar, en blessað vorið er þó í vændum og færist nær með hækkandi sól og lengri dögum þótt Guðmundur njóti þess ekki. Óvæginn sjúkdómur gekk frá honum á tæpu ári. Það var frændsemi og vin- átta milli Grímshúsa og Ytra- Fjalls. Ég minnist komu Guð- mundar og Þorkels frænda á Aðalbóli í Fjall. Sennilega kom- ið á hjóli eða ef til vill gang- andi. Unglingum á þeim dögum fannst ekki tiltökumál að skokka nokkrar bæjarleiðir. Í gömlu baðstofunni á Fjalli var spilað og sagðar gamansögur, báðir gestirnir höfðu gott auga fyrir slíku. Það var farið í fjár- hús að líta á féð og brugðið á leik á svellinu á Barðhústjörn. Þetta var góður dagur, sem lif- ir í minningunni. Guðmundur ólst upp hjá góðum foreldrum í elskulegum systkinahópi. Hann var hár og vel vaxinn. Glæsi- menni, íþróttamaður, vel verki farinn og tók snemma að sér forsjá heimilisins þegar faðir hans féll frá. Gerðist bóndi í Grímshúsum og bjó þar uns sonur hans tók við, en vann búinu til hins síðasta. Þau Hall- dóra byggðu sér hús í túninu, í stað þess að flytja burt úr sveitinni. Í Grímshúsum vildu þau vera. Guðmundur Hallgrímsson ✝ GuðmundurHallgrímsson fæddist 26. sept- ember 1938. Hann lést 7. febrúar 2019. Útför Guðmundar fór fram 15. febrúar 2019. Fundum okkar Guðmundar bar ekki oft saman eft- ir að ég flutti í fjarlæga sveit. Hittumst samt fyr- ir nokkrum árum. Viðmótið hið sama, fallegt bros og hlýtt handtak. Á kveðjustund þökkum við systk- inin frá Ytra-Fjalli, Indriði, Ása, Birna, Álfur og Ívar, Guðmundi frænda fyrir vináttu og alúð frá því fyrsta og biðjum honum blessunar á nýj- um leiðum. Og að lokum þessar hend- ingar úr erfiljóði um föður hans Hallgrím Guðmundsson sem Ketill á Fjalli flutti við útför hans: Minning góðra, gegnra manna gefur lífi birtu og yl. Ástvinum Guðmundar votta ég innilega samúð. Ása Ketilsdóttir frá Fjalli. Margt ég vildi þakka þér og þess er gott að minnast að þú ert ein af þeim sem mér þótti gott að kynnast. (Guðrún Jóhannsdóttir) Ég tel mig afar heppna að hafa fengið að kynnast Grímsa vini mínum fyrir rúmum þrem áratugum og í framhaldi af því fjölskyldunni í Grímshúsum þar sem mér var tekið opnum örm- um. Ég varð hálfgerður heim- alningur í Grímshúsum um tíma og fékk að njóta þeirrar hlýju og væntumþykju sem ein- kenndi fjölskyldulífið þar á bæ. Þó svo dregið hafi úr heim- sóknum til þeirra heiðurshjóna Gumma og Dóru með árunum hef ég alltaf fundið fyrir vænt- umþykju í minn garð og fengið þétt faðmlag þegar leiðir okkar hafa legið saman. Á kveðju- stund rifjast upp margar minn- ingar sem ég er þakklát fyrir og mun geyma með mér um ókomin ár. Elsku Dóra, Grímsi, Anna og Þórey, ég votta ykkur og fjöl- skyldum ykkar mína dýpstu samúð. Minningin lifir. Sigþrúður (Sísí). MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRÚAR 2019 ✝ Alda Sig-mundsdóttir fæddist í Súðavík 15. janúar 1937. Hún andaðist á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 1. febr- úar 2019. Foreldrar Öldu voru Sigmundur Jó- hannesson, f. 20. september 1913 í Arnardal við Skut- ulsfjörð, d. 18. október 2003, og Lydía Aðalheiður Rósink- arsdóttir, f. 20. júní 2017 í Súða- vík, d. 3. júní 1997. Systur Öldu eru Hrönn Sigmundsdóttir, f. 23. desember 1939, Ásdís Sigmunds- dóttir, f. 11. október 1949, og Sigrún Sigmundsdóttir, f. 9. jan- Sigvaldadóttir, f. 10.10. 1962, og eiga þau tvær dætur, Öldu og Evu, 3) Sigmundur, f. 8.7. 1967, kona hans er Bjarklind Sigurðardóttir, f. 29.3. 1972, og eiga þau tvo syni, Sigurð Jón og Elvar. Langömmubörnin eru fimm. Alda og Bjarni byggðu sér heimili að Faxabraut 40c í Kefla- vík, fluttu þar inn 2. júlí 1960 og bjuggu þar allan sinn búskap. Bjó hún þar áfram eftir andlát maka síns, en flutti í leiguíbúð fyrir aldraða að Nesvöllum 6 í mars 2018. Alda hafði nýlokið námi við Húsmæðraskólann á Ísafirði þegar hún flutti suður, hún vann ýmis verslunar- og þjónustustörf á sínum yngri ár- um og var síðan heimavinnandi á meðan börnin voru að komast á legg. Síðustu tuttugu og þrjú starfsárin vann hún hjá Útvegs- banka Íslands og Íslandsbanka. Útför Öldu fer fram frá Kefla- víkurkirkju í dag, 19. febrúar 2019, klukkan 13. úar 1961, d. 6. des- ember 1963. Alda ólst upp í Súðavík, á Þingeyri og á Ísafirði fyrstu 17 ár ævinnar en flutti þá með fjöl- skyldu sinni til Keflavíkur og bjó þar síðan. 16. júlí 1960 gift- ist Alda Bjarna G. Kristinssyni, f. 19. desember 1934, d. 19. júlí 2010. Þau eignuðust þrjá syni, sem eru: 1) Bragi, f. 9.8. 1959, kona hans er Anna Klara Hreins- dóttir, f. 4.9. 1960, og eiga þau þrjá syni, Sigurð Arnar, Bjarna og Jóhann Baldur, 2) Kristinn, f. 2.7. 1961, kona hans er Sigrún Þá er komið að kveðjustund. Alda amma mín skipaði mikil- vægan sess í lífi mínu. Það var alltaf svo gott að koma til hennar í kaffi og spjall. Það var hægt að ræða við hana um hvað sem er, hún var alltaf með á nótunum. Ömmu var afar umhugað um fólkið sitt og fylgdist vel með okkur öllum. Hún hélt ótal mörg fjölskyldu- boð í gegnum tíðina og var alltaf höfðingi heim að sækja. Ég á sérstaklega margar góðar minn- ingar frá gamlárskvöldunum hjá ömmu og afa. Amma var einstaklega glæsi- leg kona, alltaf vel til höfð og í fallegum flíkum. Skókaup voru okkar sameiginlega áhugamál og höfðum við alltaf jafn gaman af því að sýna hvor annarri nýjustu kaupin. Amma var líka mikill fagur- keri, hún hafði gaman af því að hafa fallegt í kringum sig og halda fallegt heimili. Ömmu var margt til lista lagt og var hún hæfileikarík saumakona. Hún naut þess einnig að fara í leikhús og á listsýningar og bauð okkur barnabörnunum oft með. Ég er svo ótrúlega þakklát fyrir allar samverustundirnar með ömmu. Þær voru yndislegar og oft var mikið hlegið. Hún var alltaf til staðar fyrir mig og studdi mig í einu og öllu. Hún er og mun alltaf verða ein af mínum helstu fyrirmyndum. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Ég kveð elsku Öldu ömmu mína með söknuði en veit að afi tekur vel á móti henni. Eva Kristinsdóttir. Við höfði lútum í sorg og harmi og hrygg við strjúkum burt tárin af hvarmi. Nú stórt er skarð í líf okkar sorfið því fegursta blómið er frá okkur horfið. Með ástúð og kærleik þú allt að þér vafðir og ætíð tíma fyrir okkur þú hafðir þótt móðuna miklu þú farin sért yfir þá alltaf í huga okkar myndin þín lifir. Við kveðjum þig, amma, með söknuð í hjarta, en minning um faðmlag og brosið þitt bjarta. Allar liðnar stundir um þig okkur dreymi og algóður Guð á himnum þig geymi. (Sigfríður Sigurjónsdóttir) Takk fyrir allt, elsku langamma, hvíl í friði. Bjarki Már og Ingólfur. Þegar við systkinin ólumst upp á Faxabrautinni, þar sem við áttum heima nær öll æskuárin, nutum við þess að búa í næstu íbúð við Öldu og Bjarna og syni þeirra, þá Braga, Kidda og Simma. Foreldrar okkar fluttu á Faxabraut 40c og d um svipað leyti og samgangur var mikill á milli þessara heimila og ekki langt að sækja leikfélaga. Þau voru mörg ævintýrin sem við upplifðum í heimi án nútíma netmiðla og snjallsíma. Við höfð- um ofan af fyrir okkur m.a. með leikjum, prakkarastrikum og könnunarleiðöngrum um ná- grennið. Áður en íslenska sjónvarpið hélt innreið sína nutum við þess að horfa á Kanasjónvarpið inn um stofuglugga nágranna sem dró gluggatjöldin frá svo við fengjum notið þessara dásemda. Þetta var bakgrunnurinn að kynnum okkar systkinanna af fjölskyldu Öldu. Alda var hús- móðir af gamla skólanum og við krakkarnir borðuðum gjarnan þeim megin sem okkur leist bet- ur á matinn. Þar tíðkaðist ekki að banka á dyrnar, heldur var haldið formálalaust inn og kallað hvort ekki væri einhver heima. Við systkinin héldum þessum sið fram á fullorðinsár og komum gjarnan við hjá Öldu og Bjarna um leið og við heimsóttum for- eldra okkar sem bjuggu við hlið þeirra stærstan hluta ævinnar. Alda og fjölskylda hennar er stór hluti af æskuminningum okkar og uppeldi. Það var æv- inlega hægt að treysta á að ein- hver liti eftir okkur og gætti þess að við færum okkur ekki að voða. Alda var glaðlynd og hafði smit- andi hlátur sem við urðum oft að- njótandi þegar hún kom auga á spaugilegar hliðar tilverunnar og uppátækja okkar krakkanna. Á fullorðinsárum héldum við systkinin og fjölskyldur okkar góðu sambandi við Öldu og Bjarna á meðan hans naut við. Það var föst venja að koma við hjá þeim og taka stöðuna á lífinu og tilverunni auk þess að fá frétt- ir af fjölskyldunni. Síðustu árin barðist Alda við krabbamein í hálsi en aldrei lét hún bilbug á sér finna og gerði gjarnan lítið úr krankleika sínum. Hún tókst á við sjúkdóm sinn af miklu æðru- leysi eins og henni var svo lagið. Við systkinin og fjölskyldur okkar erum afar þakklát fyrir kynnin af Öldu og vottum fjöl- skyldu hennar okkar innilegustu samúð. Þorkell Vilhelm Þor- steinsson, Kristinn Ársæll Þorsteinsson, Elín Þuríður Þorsteinsdóttir. Látin er í Keflavík systir okk- ar í Soroptimistaklúbbi Kefla- víkur, Alda Sigmundsdóttir. Alda var ein af stofnendum klúbbsins og starfaði í klúbbnum í rúm 40 ár, frá 1975 til dauða- dags. Alda var kjarnakona og flott í öllu sem hún tók sér fyrir hendur. Hún var hjartahlý með góða nærveru. Þannig minnast Öldu systur sem störfuðu lengst með henni í klúbbnum. Við sem áttum styttri samleið með henni getum tekið undir þessi orð. Þrátt fyrir erfið veikindi mætti Alda vel á fundi. Hún tók veik- indum sínum af æðruleysi, barm- aði sér aldrei, heldur mætti með hlýju og bros á vör og gaf það sem hún hafði að gefa. Fyrir það erum við þakklátar. Á sínum yngri árum sá Alda um að halda konum í Keflavík fínum í tauinu. Hún saumaði kjóla og dragtir sem systur hennar í klúbbnum nutu meðal annarra góðs af. Seinna fór Alda í viðskiptatengt nám og starfaði í Útvegsbankanum fram að eftir- launaárum. Í október sl. var Alda gerð að heiðursfélaga í Soroptimista- klúbbi Keflavíkur. Það var ein af síðustu stundum Öldu í klúbbn- um, að fá þakkir frá systrum fyr- ir vel unnin störf. Hvíl í friði. Fyrir hönd Soroptimista- klúbbs Keflavíkur, Svanhildur Eiríksdóttir, varaformaður. Alda Sigmundsdóttir Það var fyrir nokkrum árum að lítill sönghópur var stofnaður sem nefndur var Tjaldur. Hópurinn var stofnaður af Gúnda og tveimur konum sem öll voru félagar Rauða krossins í Hveragerði. Sungið var hálfs- mánaðarlega fyrir og með heim- ilismönnum að Ási í Hveragerði. Með árunum fjölgaði í hópnum, nú eru félagarnir liðlega 10. Gúnda var margt til lista lagt, eitt af því fyrsta sem hann keypti sér ungur eða um 18 ára gamall var píanó sem fylgdi honum þar til hann flutti að Ási fyrir fáum árum en þá prófaði hann að læra á gítar en fann fljótt að spila á bassa passaði betur. Hann hóf að læra á bassa hjá Guðmundur Einarsson ✝ GuðmundurEinarsson, Gúndi, fæddist 21. ágúst 1925. Hann lést 6. febrúar 2019. Útför Guð- mundar fór fram 18. febrúar 2019. Bassa, þá á tíræðis- aldri og fór fljótlega að spila á bassann með hópnum. Gúndi gaf mikið til okkar, síðast söng hann og lék á bassann sinn með hópnum skömmu fyrir jól. Hann Gúndi var mikill listamaður, skar út í tré, þar naut hann fyrir handverk sitt hinnar góðu að- stöðu sem er í Ási. Hann málaði, m.a. myndir af íslenska skjaldarmerkinu og gaf margar slíkar til ýmissa félaga og samtaka, ótrúlegt hve handstyrk- ur hann var, allt var vel útmælt hjá honum, og beinar línur var hann ekki í vanda með. Ótaldir eru þeir kórar sem hann tók þátt í og starfa hér í Hveragerði, auk sönghópsins okkar Tjaldar, söng hann í Hverafuglum, kór Félags eldri- borgara í Hveragerði og Karla- kór Hveragerðis sem hann hlakk- aði mjög til að fara með í söngferð til Ítalíu næstkomandi haust. Það var alltaf stutt í grínið hjá honum, hann sagði gjarna „Já, ég er nú bara átján ennþá“. Einnig sagði hann oft, ef ein- hver rétti honum hjálparhönd „Já, hann er nú svo barngóður“. Við þökkum góð kynni og gott samstarf. Hópurinn vottar aðstandend- um öllum dýpstu samúð. Fyrir hönd sönghópsins Tjaldar, Örn Guðmundsson. Þegar Guðmundur Einarsson hætti að syngja í bassa fór hann að læra á bassa. Svona gera bara snillingar. Þessi félagi okkar, fyrst í Karlakór Reykjavíkur og síðar í kór eldri félaga kórsins, var um margt sérstakur maður. Líklega munum við ekki síst hans einstöku kímnigáfu. Það mætti gefa út heila bók með öll- um þeim útúrsnúningum og orð- tökum sem komu svo fyrirhafn- arlaust og öllum til skemm- tunar. Það er víst orðið of seint. En það er ljúflingurinn Gúndi sem lifir með okkur í minning- unni og sem glæddi hverja sam- verustund. Frá hausti 1973 til vors 2013 lágu leiðirnar saman í söngnum, eða í 40 ár. Lengi vel í öðrum ten- ór en síðan í fyrsta bassa þegar Gúndi færði sig yfir í kór eldri fé- laga. En það var ekki bara sung- ið. Til að halda lífi í kórum þarf að halda utan um félagsstarfið og ekki síst að afla fjár. Þá kom bíla- málaranum og fagmanninum snjalla ráð í hug – láta gera upp bíla, mála þá og selja og skila söluverðinu í oftast tóman sjóð Karlakórs Reykjavíkur. Þetta var á við góða vertíð. Þær voru svo margar stundirnar sem fóru í umsjón félagsheimilis, söfnun styrktarfélaga, stjórnarfundi o.s.frv. Ef vantaði að vinna verk- in, voru hendur þessa félaga okk- ar oftast fyrstar á loft. Að gefa lífinu lit gætu hafa ver- ið einkunnarorð Guðmundar Einarssonar í starfi og leik. Það er gæfa hvers og eins að eiga samleið með einstaklingum sem gera litróf lífsins gjöfulla. Þessa nutum við ríkulega sem vorum að syngja saman gegnum lífið með Gúnda í fjóra áratugi. Listamenn hafa löngum sett svip á mannlífið í Hveragerði. Þar átti Gúndi góð sín síðustu ár, lærði á bassa á tíræðisaldri, söng í kórum, skar út listagripi og ylj- aði í kringum sig – sannur lista- maður. Svona heiðursmanns er gott að minnast. Reynir Ingibjartsson, félagi í Karlakór Reykja- víkur – eldri félagar. Virðing, reynsla & þjónusta Allan sólarhringinn 571 8222 Svafar: 82o 3939 Hermann: 82o 3938 Ingibjörg: 82o 3937 www.kvedja.is svafar & hermann Elsku móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, JÓHANNA H. SCHEVING TAYLOR, Haddý, lést mánudaginn 11. febrúar á lungnadeild Landspítalans Fossvogi. Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólki lungnadeildar. Útför hinnar látnu hefur farið fram í kyrrþey. Anna Scheving Jóhannesd. Jón Davíðsson Guðrún S. Guðmundsdóttir Linda Björk Bjarnadóttir Högni Guðmundsson barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.