Morgunblaðið - 19.02.2019, Side 24

Morgunblaðið - 19.02.2019, Side 24
24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRÚAR 2019 Góður vinur og félagi hefur nú kvatt þetta jarðlíf. Þar með eru horfn- ir á braut þrír síðustu formenn Verkamannafélagsins Dagsbrún- ar, sem ég var svo lánsamur að kynnast, Eðvarð Sigurðsson, Guðmundur J. Guðmundsson og Halldór G. Björnsson, yngstur þeirra og síðasti formaður Dags- brúnar. Þegar ég hóf vinnu hjá Verka- mannasambandi Íslands, sem þá var undir forystu Guðmundar J. kynntist ég Halldóri Björnssyni sem þá var varaformaður Dags- brúnar. Tókust fljótt með okkur góð kynni og samstarf er leiddi til vináttu sem varði til hins síðasta dags. Utan hinna daglegu við- fangsefna áttum við hjón margar gleði- og ánægjustundir með Halldóri, bæði við ýmsa viðburði í starfi og eins utan þess við ým- is tækifæri. Halldór var mikið prúðmenni í öllum samskiptum og naut virð- ingar og trausts allra sem hon- um kynntust. Hann var ákaflega farsæll í sínum störfum bæði sem formaður Dagsbrúnar og síðar í forystu ASÍ. Hann naut því óskoraðrar virðingar og trausts sinna samstarfsmanna. Það kom fljótt í ljós þegar Hall- dór kom til formennsku í Dags- brún, að viss kynslóðaskipti voru að eiga sér stað. Ýmsar umræð- ur sem ekki höfðu á þeim tíma náð að þroskast urðu markviss- ari undir forystu Halldórs og fleiri forystumanna á vettvangi hinna almennu verkalýðsfélaga í Reykjavík. Nauðsynlegt væri að þjappa félögum með lík samn- ingssvið saman. Það var ágrein- ingslaust að Halldór leiddi þessa vinnu sem varð til þess að Verkamannafélagið Dagsbrún, Verkakvennafélagið Framsókn og Iðja, félag iðnverkafólks, og svo síðar Starfsstúlknafélagið Sókn og Félag starfsfólks í veit- inga- og gistihúsum sameinuð- ust. Varð Halldór einróma kjör- inn formaður hins nýja félags. Í framhaldi af þessu urðu síðan skipulagsbreytingar á Verkamannasambandi Ísland, enda komin ný félög að málefn- um með ný samningssvið og nýj- ar áherslur. Þetta leiddi af sér að ákveðið var að stofna til nýs landssambands í ljósi þeirra breytinga sem orðnar voru. Nafni VMSÍ var breytt og stofn- sett nýtt samband almennu verkalýðsfélaganna undir nafn- inu Starfsgreinasamband Ís- lands, sem betur þótti eiga við miðað við hin nýju og breyttu samningsvið félaganna. Var Halldór einróma kjörinn formað- ur hins nýja sambands. Með Halldóri Björnssyni er líklega genginn hinn síðasti for- ingi þeirra sem báru fána hreyf- ingarinnar frá því í árdaga henn- ar. Oft þegar fundum okkar bar saman, sem ekki var svo sjaldan, bar málefni og stöðu verkalýðs- hreyfingar á góma. Halldór var þess fullviss að breyttir tímar myndu kalla á nýjar áherslur og ekki væri rétt að óttast breyt- ingar. Nauðsynlegt væri að verkalýðshreyfingin væri tilbúin til átaka í samræmi við þær breytingar sem þjóðfélagið tæki á hverjum tíma. Við sem eftir lifum, samferða- menn Halldórs G. Björnssonar, kveðjum góðan dreng, sem skil- að hafði lífsstarfi sínu með sóma. Halldór Guðjón Björnsson ✝ Halldór Guð-jón Björnsson fæddist 16. ágúst 1928. Hann lést 8. febrúar 2019. Halldór var jarð- sunginn 18. febr- úar 2019. Börnum Halldórs og fjölskyldum þeirra færum við Guðmunda sam- úðarkveðjur. Snær Karlsson. Ævi Halldórs Björnssonar var samofin þróun verkalýðsmála inn- an ASÍ á síðustu öld. Afskipti hans af málum verkafólks hófust þegar hann var kjörinn trúnaðarmaður starfsmanna Olíufélagsins á Gelgjutanga og í framhaldinu var hann kjörinn í stjórn Dags- brúnar 1958. Halldór vann lengst af ævi sinni við hlið for- manna Dagsbrúnar, þeirra Eð- varðs Sigurðssonar og Guð- mundar J. Guðmundssonar fyrst sem ritari Dagsbrúnar en lengst af sem varaformaður Guðmund- ar J. Enginn vafi leikur á því að Halldór var sá einstaki forystu- maður innan ASÍ sem mótaði hvað mest þær miklu breytingar á verkalýðshreyfingunni sem urðu í lok tuttugustu aldar. Fyrst með því að gerast ötull talsmaður fyrir sameiningu al- mennu lífeyrissjóðanna hér á höfuðborgarsvæðinu í lífeyris- sjóðinn Framsýn sem var forveri Gildis lífeyrissjóðs. Það var ekki auðvelt verk og þurfti mikla lagni og fortölur til þess að koma því í gegn. Halldór tók við formennsku í Verkamannafélaginu Dagsbrún 1996. Þar hóf hann það mikil- væga verkefni að standa fyrir sameiningu almennu stéttar- félaganna á Reykjavíkursvæðinu þ.e. Dagsbrúnar, Framsóknar, Sóknar, Iðju, og Félags starfs- fólks í veitingahúsum í eitt stétt- arfélag á árunum 1996 til 2000 en Halldór gegndi formennsku í Eflingu- stéttarfélagi á því tíma- bili. Með sameiningu Eflingar hurfu aldargamlar hindranir á fjölmörgum sviðum. Konur og karlar voru sameinuð í eitt stórt öflugt félag með sömu réttindi og sömu skyldur. Með því hvarf stöðugur réttindamissir fé- lagsmanna við flutning milli fé- laga þegar skipt var um vinnu. Réttindi félagsmanna stórefld- ust í gegnum sjúkra-, fræðslu-, orlofssjóð þessa nýja félags auk þess sem öll þjónusta og sam- starf í kjaramálum skilaði aukn- um árangri og ekki síst með samstarfi Flóafélaganna undir forystu Halldórs. Halldór Björnsson gegndi fjölmörgum trúnaðarstörfum innan verkalýðshreyfingarinnar. Hann var formaður stjórnar Ölfusborga meðan á uppbygg- ingu þeirra stóð. Þá stóð Halldór að sameiningu þriggja landsam- banda þ.e. Verkamannasam- bandsins, Landssambands iðn- verkafólks og Þjónustusam- bandsins í eitt samband sem er Starfsgreinasambandið í dag en þar gegndi hann formennsku frá 2000 til 2004. Hann sat í mið- stjórn ASÍ í áratugi og var vara- forseti ASÍ frá 2000 til 2003. Halldór var maður sátta sem leitaði gjarnan eftir lausnum og þá ekki alltaf eftir hefðbundnum leiðum. Hann var hreinskiptinn og talaði oftast tæputungulaust út um hlutina. Líf Halldórs var ekki alltaf dans á rósum en það lýsir Halldóri vel að þegar flestir eru að ljúka sinni starfsævi um 67 ára aldur má segja að þá hafi blómaskeið hans í forystustörf- um verkalýðsfélaganna hafist. Það sést af verkum hans vítt og breitt innan hreyfingarinnar. Halldór var vinamargur maður, góður vinur og einstaklega skemmtilegur ferðafélagi. Með Halldóri er genginn einn af þeim forystumönnum verka- fólks á 20. öldinni sem hafði einna víðtækust áhrif á upp- byggingu þeirrar hreyfingar sem við búum við í dag. Fyrir það vil ég þakka. Sigurður Bessason. Fyrstu kynni mín af Halldóri voru árið 1982 þegar hann réð mig til starfa hjá Verkamanna- félaginu Dagsbrún. Þótt tölu- verður aldursmunur hafi verið á mér og honum tókst strax með okkur góð og trygg vinátta sem varað hefur æ síðan og aldrei borið skugga á. Halldór var litríkur persónu- leiki og aldrei nein lognmolla í kringum hann. Hann var hreinn og beinn og sagði sína meiningu umbúðalaust en virti líka skoð- anir annarra. Hann tókst á við mörg erfið verkefni og afrekaði margt. Hann var vinur vina sinna, ákveðinn, jákvæður, drífandi, góðhjartaður, hjálpsamur, sann- gjarn og raungóður. Halldór var sannur herramað- ur fram í fingurgóma, algjör snyrtipinni og ávallt vel til hafð- ur með sitt gráa hár enda stund- um nefndur silfurrefurinn. Hann var mikill fagurkeri og hafði gaman af að hafa fínt og fallegt í kringum sig. Hann var höfðingi heim að sækja, gestrisinn með eindæmum og hélt margar veg- legar veislur þar sem ekkert var til sparað enda sjálfur hrókur alls fagnaðar. Halldór var prímus mótor í að skipuleggja metnaðarfullar ut- anlandsferðir nokkurra félaga og vina þar sem menning, listir, fróðleikur og skemmtun var allt í hæfilegum skömmtum. Hann var frábær ferðafélagi og lentum við í ýmsum skemmti- legum uppákomum. Mér eru sérstaklega minnis- stæðar tvær ferðir fyrir tíma GPS-tækja. Annars vegar til Ítalíu þar sem við ókum frá Rim- ini til Rómar eftir óskiljanlegum vegakortum þar sem sérstaklega var tekið fram að enginn Íslend- ingur ætti að reyna að aka í Róm. En viti menn, þegar stopp- að var í miðborg Rómar var hót- elið okkar hinum megin við hornið. Er við heimsóttum Páfa- garð var heitt í veðri, allir í stuttbuxum og hlýrabol en þó með viðeigandi fatnað meðferðis. Þegar átti að skipta í síðbuxur og skyrtu að við töldum í skjóli fyrir umheiminum, birtist þá ekki fjöldi manna með alvæpni vegna óviðeigandi hegðunar. Einnig er minnisstæð ferð til Spánar þar sem við vorum tekin föst fyrir að reyna að svindla okkur í lestina án þess að greiða fargjaldið. Málið var hins vegar að sjálfsalinn var bilaður en ör- yggismyndavélin ekki. Þó að samskipti og samvera hafi eðlilega breyst með árunum er það mér mikils virði að hafa náð að heimsækja Halldór fyrir skömmu. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Með hlýju og virðingu kveð ég góðan vin með þakklæti fyrir dýrmætar og skemmtilegar stundir. Börnum hans, tengdabörnum og fjölskyldunni allri sendi ég mína dýpstu samúðarkveðju. Kristjana. Þegar kvisaðist um höfuð- stöðvar ASÍ að Halldór Björns- son væri kominn í hús var kaffi- stofan fljót að fyllast enda „Dóri Björns að detta inn í kaffi“. Þá mátti ganga að því vísu að Hall- dór sæti þar glaðbeittur og vel til hafður með sterkar skoðanir á mönnum og málefnum sem hann rakti með slíkri orðkynngi að starfsmenn og aðrir viðstadd- ir veltust um af hlátri. Þannig var foringinn Halldór Björnsson. Hann laðaði fólk að sér með hlýju sinni og kímni- gáfu. Hann var laginn í sam- skiptum og átti auðvelt með að fá fólk til að vinna með sér. Sem verkalýðsforingi kunni hann að hlusta og var þeirrar gerðar að ná sínu fram með lagni og sann- girni en vissi einnig hvenær og hvernig þurfti að höggva á hnúta. Það var einmitt þannig sem hann náði að sameina fimm verkalýðsfélög í Reykjavík undir merkjum hins nýja félags Efl- ingar í lok síðustu aldar. Þar varð Halldór fyrsti formaður. Hann var líka drifkrafturinn að stofnun Starfsgreinasambands Íslands árið 2000 en Starfs- greinasambandið er í dag fjöl- mennasta landssamband verka- fólks á Íslandi og stærsta sambandið innan ASÍ, með um 60 þúsund félagsmenn. Í því ferli sýndi hann framsýni þegar hann hvatti til sameiningar verkalýð- félaga í því augnamiði að stækka og styrkja einingarnar. Þetta er arfleið þessa kraftmikla verka- lýðsforingja. Skrifstofa Alþýðusambands Íslands fékk að njóta krafta Halldórs Björnssonar í byrjun aldarinnar þegar hann, sem varaforseti ASÍ, hljóp í skarðið fyrir starfandi forseta um skeið. Á þeim tíma gustaði talsvert inn- anbúðar í hreyfingunni og átti Halldór þátt í að lægja þær öld- ur. Sem staðgengill forseta ASÍ stóð Halldór Björnsson sig með miklum sóma. Starfsfólk ASÍ mun sakna heimsókna Halldórs Björnsson- ar á kaffistofuna. Þær voru svo sannarlega ferskur andblær í erli dagsins. Við og Alþýðusam- band Íslands þökkum góðum dreng samfylgdina og vottum fjölskyldu og vinum Halldórs okkar innilegustu samúð. Fyrir hönd starfsfólks ASÍ, Ástríður Andrésdóttir. Í dag kveðjum við í hinsta sinn góðan félaga og vin, Halldór Björnsson. Halldór helgaði nán- ast allan sinn starfsferil baráttu launafólks fyrir betra samfélagi og bættum kjörum. Það eru mik- il forréttindi að hafa fengið að kynnast Halldóri og starfa með honum innan verkalýðshreyfing- arinnar. Hann var fyrst kosinn í stjórn Dagsbrúnar í Reykjavík u.þ.b. sem ég fæddist vorið 1958, hóf störf á skrifstofu félagsins um 1962 og varð síðar varafor- maður félagsins með Guðmundi J. Guðmundssyni og var síðan kosinn formaður félagsins 1996. Það var ávallt ánægjulegt að starfa með Halldóri bæði sem formanni stéttarfélags, sem for- manni Starfsgreinasambandsins og síðar sem varaforseta ASÍ og fáa þekki þekki ég sem eru jafn- miklar félagsverur og Halldór. Djúpstæður skilningu hans á stöðu og kjörum verkafólks og þörf þeirra fyrir bæði sterka samstöðu og vel skipulagða hreyfingu var mikilvægur visku- brunnur í störfum hans og okkar sem með honum störfuðu. Hall- dór beitti sér mikið fyrir nútíma- væðingu og endurskipulagningu verkalýðshreyfingarinnar og líf- eyrissjóðakerfisins eftir að hann tók við sem formaður Dags- brúnar. Beitti hann sér fyrir sameiningu allra þeirra verka- lýðsfélaga sem störfuðu í þágu verkafólks í höfuðborginni í stéttarfélagið Eflingu, sameinaði þrjú landssambönd verkafólks í Starfsgreinasambandið og hvatti félaga sína víða um land til að sameinast í stærri og öflugri stéttarfélög. Í störfum sínum að skipulags- málum eða uppstillingu í for- ystusveit hreyfingarinnar fór Halldór ekki alltaf troðnar slóðir og ögraði félögum sínum ef hon- Fallinn er frá tengdafaðir minn, Ingvar Þorsteins- son. Kynni okkar hófust á árinu 1972 er ég tók saman við dóttur hans Ástu og sló aldrei skugga á þau kynni. Ingvar var með eindæmum duglegur maður. Frá því að ég kynntist honum og þar til að þrek hans þraut þá var hann sí- vinnandi, alla daga, jafnt virka sem og um helgar. Ef hann frétti um einhverjar fram- kvæmdir, sem til stóðu hjá ein- hverju barna hans mætti hann á staðinn til að leggja hönd á plóg. Þegar ég stóð að fram- kvæmdum við mín húsakynni gegnum árin tók Ingvar, óum- beðinn, þátt í þeim fram- kvæmdum. Ósjaldan mætti hann á svæðið með hamar í hönd og spurði hvað hann gæti gert. Hann reyndar gat allt og var ávallt með lausnir ef upp komu vandamál. Ingvar var af þeirri kynslóð sem taldi vinnusemi til dyggða. Ingvar var mjög lánsamur Ingvar Þorsteinsson ✝ Ingvar Þor-steinsson fædd- ist 28. maí 1929. Hann andaðist 31. janúar 2019. Ingvar var jarð- sunginn 15. febrúar 2019. maður að hafa átt Lillý sér við hlið, allt frá tánings- aldri þeirra. Hefur hún veitt honum styrk í blíðu og stríðu. Þeim varð fimm barna auðið, en urðu fyrir þeirri skelfilegu lífs- reynzlu að missa tvær dætur með mánaðar millibili í byrjun árs 2008. Er Ingvar var um sextugt urðu aðstæður þess valdandi að hann missti nánast allar sínar eigur, þar á meðal trésmíða- verkstæði. Hann mætti þessu áfalli af æðruleysi og dugnaði þannig að innan nokkurra ára hafði hann byggt heilt raðhús fyrir sig og Lillý, keypt tré- smíðavélar og verkfæri og opn- að trésmíðaverkstæði í eigin húsnæði. Ingvar hafði ávallt úr næg- um verkefnum að velja enda var hann þekktur sem mjög góður og vandvirkur smiður og virtist una sér bezt ef um krefj- andi verkefni var að ræða. Ég ætla öðrum að fjalla um lífshlaup Ingvars en kveð þenn- an öðling, sem hefur átt svo stóran þátt í lífi mínu, með miklum söknuði. Við Soffía sendum öllum ætt- ingjum Ingvars hugheilar sam- úðarkveðjur. Brynjólfur Eyvindsson. Kæru vinir og fjölskylda, við þökkum hlýjar kveðjur og auðsýnda samúð vegna fráfalls og útfarar okkar ástkæru móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, SIGURHELGU STEFÁNSDÓTTUR, Helgu. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki HSN í Fjallabyggð fyrir frábæra umönnun. Kristín Bogadóttir Kristján Björnsson Sigurbjörn Bogason Kristrún Snjólfsdóttir ömmu- og langömmubörn Elskulegur bróðir minn, mágur og frændi, GUÐMUNDUR HEIÐAR ERLENDSSON, Hljóðalind 6, Kópavogi, lést 13. febrúar. Útförin fer fram frá Kópavogskirkju föstudaginn 22. febrúar klukkan 11. Sólveig Erlendsdóttir Sigurjón Geir Þórðarson Dagur Árni og Jökull Logi Sigurjónssynir Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber- ist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri grein- ar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstand- endur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýs- ingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minning- argreinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.