Morgunblaðið - 19.02.2019, Síða 25
um fannst þeir vera að stíga feil-
spor. Hann sagði mér eitt sinn
að það væri ekki endilega hlut-
verk okkar forystumanna að
fara hefðbundnar leiðir eða þær
leiðir sem fljótt á litið virtust
vinsælar. Stundum yrðu forystu-
menn að horfa lengra fram á
veginn og fylgja þeirri sannfær-
ingu sinni eftir og það gerði
Halldór svo sannarlega.
Halldór bauð mér í kaffi til sín
vorið 2001 þegar hann leysti
Grétar Þorsteinsson, þáverandi
forseta ASÍ, af í veikindum og
lagði hart að mér að koma aftur
til starfa sem framkvæmdastjóri
ASÍ. Eins og endnær var hann
ekkert að skafa utan af því og
fullyrti við mig, að ég væri á
rangri hillu í þessu bankastússi
mínu og að mín biðu mín miklu
mikilvægari verkefni innan
verkalýðshreyfingarinnar við að
gera eitthvað sem skipti máli.
Ég er Halldóri afar þakklátur
fyrir að hafa ýtt við mér og feng-
ið mig aftur til starfa og hafði
mikla ánægju af að starfa með
honum. Halldór skilur eftir sig
djúp spor í þróun þeirrar bar-
áttu sem hann helgaði allt sitt líf
og fyrir það getum við verið hon-
um þakklát og vottað honum
virðingu okkar. Ég vil líka votta
börnum Halldórs og fjölskyldum
mína dýpstu samúð.
Farðu í friði, kæri félagi, og
kærar þakkir fyrir langt og
ánægjulegt samstarf.
Gylfi Arnbjörnsson,
fv. forseti ASÍ.
Ég varð þeirrar gæfu aðnjót-
andi að fá á öllum starfsferli
mínum að njóta návistar og sam-
skipta við Halldór Björnsson.
Fyrst í þjónustu fyrir Dagsbrún
en síðar á vettvangi ASÍ. Undir
lok síðustu aldar og í upphafi
þessarar höfðu margir afskrifað
Halldór sem áhrifamann á vett-
vangi ASÍ enda hann kominn um
og yfir sjötugt. Það var mikið
vanmat. Hann beitti sér fyrir
stofnun Starfsgreinasambands
Íslands og kom sem leiðtogi þess
í forystu ASÍ. Það var einmitt
við stofnun Starfsgreinasam-
bandsins sem samstarf okkar
varð hvað nánast en þá hafði ég
nýlega hafið störf hjá ASÍ. Fyrst
við að draga upp hið ytra form
en síðan við að fá allan þann
stóra og ólíka hóp sem myndaði
og stýrði verkalýðsfélögum um
allt land til þess að fallast á hug-
myndina. Við lögðumst í ferða-
lag því Halldór vildi hitta for-
menn allra aðildarfélaga þeirra
sambanda sem sameinuðust
undir merkjum Starfsgreina-
sambandsins. Það ferðalag tók
lungann úr heilu sumri og fram
á haust og það var úr vöndu að
ráða. Halldór játaði nefnilega
fúslega að hann vissi eiginlega
ekki mikið um þessi félög úti á
landi, hann væri og hefði alltaf
verið Reykjavíkurmaður. „Æ
skelltu saman einhverju efni sem
við getum tekið með okkur og
hafðu eitthvað til að setja upp á
vegg“ voru skilaboðin og sam-
viskusamlega varð ég við því. Á
hverjum fundi var efni dreift og
slæðum hent á vegg en Halldór
lét alltaf eins og hann vissi ekki
af því. Þar komu styrkleikar
hans í ljós og hæfileikar til að
lesa fólk og hvern þann fund
sem við héldum og þeir voru
margir. Erindi hans var aldrei
eins þó boðskapurinn væri sá
sami. Það þurfti að tala með öðr-
um hætti inn í stöðu launafólks
og hreyfingar á Flateyri en á
Húsavík og með enn öðrum í
blómlegum landbúnaðarhéruð-
um á Suðurlandi. Þetta kunni
Halldór.
Fjölmennustu fundina sóttu
nokkrir tugir og þann fámenn-
asta á Drangsnesi, einn. Það
skipti engu, sama virðing í orð-
um, æði og klæðaburði var öllum
sýnd. Þetta voru góðir dagar og
margt spjallað á löngum leiðum.
Í minningunni finnst mér að alla
daga hafi skinið á okkur sól.
Leiðbeinandi, fyrirmynd og
vinur hefur kvatt. Að leiðarlok-
um þakka ég fyrir samfylgdina,
bið vini mínum blessunar og
sendi fjölskyldu hans mínar inni-
legustu samúðarkveðjur.
Magnús M. Norðdahl,
lögfræðingur ASÍ.
Ó, þessi maður, svo flottur og
elegant. Við hittumst oft á vett-
vangi kjaramálanna en byrjuð-
um að vinna saman í stjórn SAL,
sambands almennra lífeyris-
sjóða, árið 1987, þá var ég fyrsta
konan til að taka þátt í þessu
karlaneti sem þá var. Svo liðu
árin og alltaf hittumst við á
fundum og í miðstjórn ASÍ. Því-
líkir tímar, fólk var sko alls ekki
sammála um alla hluti þá frekar
en nú til dags. Svo liðu árin með
þjóðarsátt og því sem því fylgdi.
Upp úr þeim tíma fóru menn
og konur að huga að meiri hag-
kvæmni enda oft bent á það á
ársfundum SAL að alltof margir
lífeyrissjóðir væru til staðar, það
vantaði meiri hagkvæmni. Þetti
leiddi til þess að fólk fór að tala
saman um sameiningu lífeyris-
sjóða og þar vorum við Halldór í
lykilstöðu þar sem lífeyrissjóður
Sóknar var lítill og með mikla
örorkubyrði, einnig lífeyrissjóð-
ur Iðju. Það varð úr að þessir
sjóðir sameinuðust árið 1995.
Við það urðu straumhvörf í sam-
einingu lífeyrissjóða. Þvílíkt
þrekvirki sem þarna var unnið.
Og svo kom framhaldið, við unn-
um meira og meira saman og úr
því varð að Dagsbrún og Fram-
sókn sameinuðust í nýtt félag,
Dagsbrún & Framsókn, ári
seinna fórum við í meiri samein-
ingar s.s. með starfsfólki í veit-
ingahúsum og þannig varð Efl-
ing til en að ári liðnu kom Iðja
með í hópinn. Þvílík snilld. Gíf-
urleg vinna og endalausir fundir
og alltaf aftur og aftur nýjar
stjórnir með óvenjulegum fjölda
tímabundið. Þarna urðum við
Halldór formaður og varformað-
ur í nýju og öflugu stéttarfélagi.
Þvílík vinna og þvílíkt fjör því
Halldór var ekki maður logn-
mollu. Við unnum líka saman á
fleiri stöðum s.s. í SL lífeyris-
sjóði, en þar var Halldór í stjórn
í 16 ár og minnast margir hans
þaðan sem einstaklega geðugs
og raunsæs manns. Aftur að
okkar samstarfi í Eflingu og í
aðdraganda sameiningarinnar
þar lá mikil vinna, en líka gæða-
stundir. Til að kynnast okkur í
stjórn Sóknar fór Halldór í ferð
til Færeyja með Sókn og þvílíkt
fjör og mikil gleði. Halldór kunni
sig, fór á milli borða til að kynn-
ast fólkinu og hlusta á viðhorf
þess. Hans mikla reynsla frá
Dagsbrúnarárunum kom þarna
vel fram. Við það að stýra nýju
stéttarfélagi og samræma alla
hluti var gífurleg vinna, þess
vegna lögðum við saman starfs-
krafta okkar til að fá inn í kjara-
samninga starfsmenntasjóði.
Þetta kunnum við í Sókn og tók-
um forystu í málinu og við náð-
um að semja árið 2000 um
starfsmenntasjóði fyrir alla fé-
laga Eflingar. Þvílík snilld og
uppreisn æru fyrir svo marga,
jarðlagatæknanám, nám fyrir
fólk á bensínstöðvum og svo
héldu öll Sóknarnámskeiðin
áfram og uxu og döfnuðu.
Starfsafl varð til og þá fór ný
menntunarhrina af stað, stuðn-
ingur við lesblinda, íslensku-
kennsla fyrir nýbúa og margt
fleira. Með þessu bötnuðu kjör
fjölda fólks og það rétti líka úr
bakinu. Eimskip og Samskip
fengu nám til sín. Halldór treysti
sínu fólki.
Það var gaman að vinna með
honum. Við áttum samleið í líf-
eyrismálum, svo sem í Framsýn
sem varð til við sameiningu
margra sjóða. Vinátta og
skemmtanir í ferðalögum settu
svo punktinn yfir okkar góða
samstarf, hafðu þökk fyrir vin-
áttu.
Þórunn Sveinbjörnsdóttir,
1. varaformaður Eflingar
stéttarfélags.
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRÚAR 2019 25
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
660 0230 og 561 1122.
Bátar
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Stofnað 1986 • Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Húsviðhald
FLÍSALAGNIR - MÚRVERK
FLOTUN - SANDSPARSL
MÁLUN - TRÉVERK
Ásamt öllu almennu viðhaldi
fasteigna
Áratuga reynsla og þekking
skilar fagmennsku og gæðum
Tímavinna eða tilboð
Strúctor
byggingaþjónusta ehf.
S. 893 6994
Tek að mér
ýmiskonar
húsaviðhald,
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
Raðauglýsingar
Fundir/Mannfagnaðir
ses.xd.is
Samtök eldri
sjálfstæðismanna, SES
Hádegisfundur SES
Eyþór L. Arnalds, oddviti borgarstjórnarhóps
Sjálfstæðisflokksins, verður gestur á hádeg-
isfundi SES á morgun, miðvikudaginn 20.
febrúar kl. 12:00, í Valhöll, Háaleitisbraut 1.
Húsið opnað kl. 11:30.
Boðið verður upp á
súpu gegn vægu
gjaldi, 1000 krónur.
Allir velkomnir.
Stjórnin
Félagsstarf eldri borgara
Árskógar Smíðar, útskurður, pappamódel með leiðbeinanda kl. 9-16.
Botsía með Guðmundi kl. 10. Opið hús, t.d. vist og brids kl. 13-16.
Bónusbíllinn fer frá Árskógum 6-8 kl. 12.30. Handavinna með leið-
beinanda kl. 12.30-16. Kóræfing, Kátir karlar kl. 13. MS fræðslu- og
félagsstarf kl. 14-16. Opið fyrir innipútt. Hádegismatur kl. 11.40-12.45.
Kaffisala kl. 15-15.45. Heitt á könnunni, allir velkomnir. S. 535-2700.
Boðinn Botsía kl. 10.30. Brids og kanasta kl. 13.
Dalbraut 18-20 Félagsvist kl.14.
Fella- og Hólakirkja Kyrrðarstund kl. 12 í umsjá Kristínar djákna og
Arnhildar organista. Súpa og brauð eftir stundina. Hefbundið starf,
við spilum, spjöllun, prjónum og eigum góða stund saman. Verið
hjartanlega velkomin.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Við hringborðið kl. 8.50, kaffi og
blöðin liggja frammi. Myndlistarnámskeið hjá Margréti Zóphaníasd.
kl. 9-12. Thai chi kl. 9-10. Leikfimi kl. 10-10.45. Hádegismatur kl. 11.30.
Enskunámskeið kl. 12.30-15. Kríurnar myndlistarhópur kl. 13. Brids kl.
13-16. Leiðbeiningar á tölvu kl. 13.10. Síðdegiskaffi kl. 14.30. U3A kl.
16.30. Allir velkomnir óháð aldri. Nánari upplýsingar í síma 411-2790.
Félagsmiðstöðin Lönguhlíð 3 Opin handverksstofa kl. 13. Landið
skoðað með nútímatækni kl. 13.50. Kaffiveitingar kl.14.30. Velkomin!
Garðabær Vatnsleikfimi Sjálandi kl. 7.30/15. Qi gong Sjálandi kl. 9.
Karlaleikfimi Ásgarði kl. 12. Botsía Ásgarði kl. 12.45. Gönguhópur fer
frá Jónshúsi kl. 10. Bónusrúta fer frá Jónshúsi kl. 14.45. Línudans í
Kirkjuhvoli kl. 13.30/14.30. Tréskurður/smíði í Smiðju kl. 9/13. Félags-
vist í Jónshúsi kl. 20.
Gerðuberg 3-5 Opin handavinnustofa kl. 8.30-16. Keramik málun kl.
9-12. Glervinnustofa með leiðbeinanda kl. 13-16. Leikfimi gönguhóps
kl. 10-10.30. Gönguhópur um hverfið kl. 10.30. Allir velkomnir.
Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 10 stólaleikfimi, kl. 13 handavinna, kl.
13 hreyfi- og jafnvægisæfingar, kl. 13.30 alkort, kl. 14 hreyfi- og jafn-
vægisæfingar.
Grafarvogskirkja Opið hús fyrir eldri borgara er í Grafarvogskirkju
kl. 13 til 16 alla þriðjudaga. Fyrir opna húsið er helgi- og fyrirbæna-
stund kl. 12 þar sem öllum er frjálst að mæta í og er súpa og brauð í
boði fyrir vægt gjald þar á eftir. Hér er fjölbreytt dagskrá þar sem allir
ættu að geta fundið eitthvað við hæfi.
Grensaskirkja Kyrrðarstund kl. 12. Verið velkomin.
Gullsmári Myndlistarhópur kl. 9. Botsía kl. 9.30. Málm- og silfur-
smíði / kanasta / tréskurður kl. 13.
Hraunsel K. 8-12 ganga í Kaplakrika, kl. 9 dansleikfimi, kl. 10 qi-gong,
kl. 13 brids, kl. 10.45 leikfimi Hjallabraut, kl. 13-16 fjölstofan Hjalla-
braut, kl. 9-12 handverk Sólvangsvegi, kl. 11.30 leikfimi Bjarkarhús, kl.
14.40 vatnsleikfimi Ásvallalaug.
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá kl. 8-16, blöðin og
púsl liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, útvarpsleikfimi kl. 9.45
og hádegismatur kl. 11.30. Brids í handavinnustofu kl. 13, helgistund
kl. 14 og eftirmiðdagskaffi kl. 14.30.
Korpúlfar Listmálun kl. 9 í Borgum, botsía kl. 10 og 16 í Borgum,
helgistund kl. 10.30, leikfimishópur kl. 11 undir stjórn Ársæls í Egils-
höll, sundleikfimi kl. 13.30, heimanámskennsla kl. 16.30 í Borgum.
Norðurbrún 1 Morgunleikfimi kl. 9.45, lesið upp úr blöðum kl. 10.15,
upplestur kl. 11-11.30, trésmiðja kl. 9-12, opin listasmiðja kl. 9-12/13-
16, samverustund með djákna kl. 13, bókasafnshópur kl. 14, kaffi-
húsaferð kl. 14, tölvu- og snjalltækjakennsla kl. 16.
Seltjarnarnes Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 7.10. Kaffispjall í krókn-
um kl. 10.30. Pútt í Risinu á Eiðistorgi kl. 10.30. Munið bingóið með
nemendum Mýrarhúsaskóla í salnum á Skólabraut kl. 13. Brids í
Eiðismýri 30, kl. 13.30. Karlakaffi í safnaðarheimilinu kl. 14.
Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10–16. Heitt á
könnunni frá kl. 10–11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá
kl. 11.30–12.15, panta þarf matinn daginn áður. Leikfimi kl. 13. Bóka-
bíllinn kemur kl. 13.15 og Bónusbíllinn kl. 14.40. Kaffi og meðlæti er til
sölu frá kl. 14.30–15. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er 568-2586.
Stangarhylur 4 Skák kl. 12. Aðalfundur félagsins verður haldinn í
dag, þriðjudaginn 19. febrúar kl. 16 Ásgarði Stangarhyl 4. Dagskrá
samkvæmt lögum félagsins. Félagsmenn munið félagsskírteini FEB.
Félagslíf
EDDA 6019021919 III
FUNDARBOÐ
Hér með er boðið til stofnfundar
Konrad Maurer félags á Íslandi. Allir geta
gerst stofnendur að félaginu. Stofn-
fundurinn verður haldinn 21. febrúar nk. í
fundarsal Ferðafélags Íslands, Mörkinni 6,
108 Reykjavík og hefst hann kl. 17:00.
Dagskrá:
1. Ávarp, Jóhann J. Ólafsson
2. Erindi, Maurer, Jón Árnason og þjóðsögurnar.
Vilhjálmur Bjarnason
3. Stofnun félagsins
4. Kaffihlé
5. Myndasýning, Sigurjón Pétursson
Ferðafélag Íslands hefur vinsamlega boðist til að
hýsa hið nýja félag að Mörkinni 6 og annast rekstur
þess án endurgjalds. Því verða ekki innheimt
félagsgjöld.
Ferðafélagi Íslands er innilega þakkað þetta
höfðinglega boð.
Í undirbúningsnefnd:
Jóhann J. Ólafsson, formaður
Árni Björnsson, þjóðháttafræðingur
Kristján Valur Ingólfsson, fyrrv. vígslubiskup
Ólafur Örn Haraldsson, forseti Ferðafélags Íslands
Páll Sigurðsson, fyrrv. lagaprófessor
Sigurjón Pétursson, framkvæmdastjóri og
ljósmyndari
Vantar þig
fagmann?
FINNA.is