Morgunblaðið - 19.02.2019, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 19.02.2019, Blaðsíða 26
26 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRÚAR 2019 Sameinar það besta í rafsuðu Smiðjuvegi 66 • Kópavogi • 580 5800 • www.landvelar.isFuruvöllum 3 • Akureyri • 461 2288 Stefán Þór Helgason, viðskiptafræðingur og ráðgjafi hjá KPMG,á 30 ára afmæli í dag. Hann hefur allan sinn starfsferil unniðmeð sprotafyrirtækjum. „Ég hef verið að vinna með sprota- fyrirtækjum af öllum stærðum og gerðum. Var að vinna hjá Icelandic Startups sem rekur meðal annars Gulleggið, Startup Reykjavík og fleiri stuðningsverkefni fyrir frumkvöðla. Þar var ég að hjálpa sprotafyrirtækjum að koma undir sig fótum og á þeim tíma, árunum eftir hrun, var sérstaklega mikil gróska í þessum geira.“ Stefán var síðan fenginn yfir til KPMG árið 2015, þar sem hann vinnur við stjórnendaráðgjöf en fyrirtækið er auk þess með sérstaka sprotafyrirtækjadeild og aðstoðar rúmlega 100 slík fyrirtæki við ýmis verkefni. „Við hjálpum þeim með bókhald og slík formlegheit en er- um einnig með alls konar ráðgjöf varðandi áætlanagerð, fjármögnun og hvernig á að byggja upp fyrirtæki til að sækja á erlenda markaði.“ Sambýliskona Stefáns er Karen María Magnúsdóttir, sérfræðingur hjá Kaptio, og sonur þeirra er Bjarki Steinn sem fæddist í byrjun árs- ins (sjá hér á sömu síðu) en fjölskyldan hélt sameiginlega nafnaveislu og þrítugsafmæli um nýliðna helgi. Foreldrar Stefáns eru Helgi Hall- dórsson, fyrrverandi skólastjóri og bæjarstjóri á Egilsstöðum, og Alberta Tulinius, deildarstjóri sérkennslu í Laugarnesskóla. „Afmælisdagurinn sjálfur verður hefðbundinn en ég á von á skíðum í afmælisgjöf og hlakka til að nota þau í þessari vetrarblíðu sem við njótum vonandi áfram. Annars eru áhugamálin aðallega samvera með fjölskyldu og vinum en við höfum líka verið dugleg við að ferðast og erum t.a.m. nýflutt heim frá Barcelona á Spáni þar sem Karen var við nám. Nú fer mestur tími fyrir utan vinnuna fram við skiptiborðið hér heima og að fylgjast með drengnum okkar vaxa og dafna." Ráðgjafinn Stefán sér um að aðstoða sprotafyrirtæki í vinnu sinni. Eyðir mestum tíma við skiptiborðið Stefán Þór Helgason er þrítugur í dag A nnel Jón Þorkelsson fæddist á Hellissandi 19. febrúar 1959, sam- kvæmt Þjóðskránni, og hann ólst upp í gamla bænum í Keflavík. „Ég er fæddur 18. febrúar, rétt fyrir miðnætti. Það varð mikið sjóslys sama kvöld, en aftakaveður varð þennan dag, og læknirinn fyllti ekki út í fæðing- arvottorðið fyrr en eftir miðnætti og skrifaði rangan fæðingardag. Ég treysti móður minni betur fyrir því hvenær ég var fæddur en sem stendur þar. Það var síðan reynt á mínum uppvaxtarárum að breyta dagsetningunni í Þjóðskrá en það var ekki hægt. Kannski er það hægt núna, ég hef ekki látið reyna á það, en dagsetningin 18. febrúar fer allavega á legsteininn.“ Annel lauk grunnskólaprófi frá Gagnfræðaskólanum í Keflavík árið 1974 og lauk lögreglumannsprófi árið 1992. Hann hefur starfað í lögreglunni í þrjátíu ár en á undan því vann hann ýmsa verkamannavinnu, mest tengda fiskvinnslu í Höfnum og í Keflavík. Hann er núna aðalvarð- stjóri flugstöðvardeildar Lögregl- unnar á Suðurnesjum. „Ég var skipaður í stöðuna í október síðast- liðnum, en var þar áður varðstjóri þar. Ég er búinn að vinna megnið Annel Jón Þorkelsson, aðalvarðstjóri flugstöðvardeildar – 60 ára Saman Annel með fjölskyldunni, f.v. Gunnar Einar, stúdentinn Annel Fannar, Bjarney, Dóra Fanney og Atli Þór. Tölvan sagði nei Úlfavaktin C-vakt Annels þegar hann var varðstjóri. „Ég sagði að þeir sem vildu fá að vera á vaktinni minni þyrftu að halda með Úlfunum.“ Kópavogur Bjarki Steinn Stefánsson fæddist á Landspítalanum 7. janúar 2019 kl. 22.59. Hann vó 3.570 g og var 52 cm að lengd. Foreldrar hans eru Karen María Magnúsdóttir og Stefán Þór Helgason. Nýr borgari Íslendingar Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.