Morgunblaðið - 19.02.2019, Page 27

Morgunblaðið - 19.02.2019, Page 27
af mínum starfsferli á Keflavíkur- flugvelli.“ Undir stjórn Annels eru landamæraverðir og lögregluþjón- ar, alls 70 manns. Golfið á hug hans allan, en Annel er með 8,3 í forgjöf og er í Golf- klúbbi Sandgerðis. Helstu golfafrek hans eru Íslandsmeistaratitill í öðr- um flokki 1989 og sigurvegari á BMW móti og fór hann í kjölfarið á lokamót sem haldið var í Suður- Afríku 2010. Annel er þekktur fyrir að vera einn af fáum hundtryggum stuðningsmönnum Wolves í enska fótboltanum. Hann hefur gaman af samveru fjölskyldunnar og mætti segja að afabörnin séu með karlinn í vasanum. Hann hefur látið mál- efni samfélagsins sig varða og bauð sig fram í síðustu bæjarstjórnar- kosningum til þess að láta gott af sér leiða. Hann var í barnaverndar- nefnd og hafnarnefnd í Keflavík fyrir Miðflokkinn en sagði sig úr flokknum í kjölfar Klausturs- málsins. Fjölskylda Eiginkona Annels er Dóra Fann- ey Gunnarsdóttir, f. 28. janúar 1962, heimavinnandi. Foreldrar hennar voru hjónin Gunnar Einar Líkafrónsson, f. 28. september 1934, d. 4. júní 2004, netagerða- maður og sjómaður, og Ásthildur Ása Jónsdóttir, f. 23. júlí 1936, d. 27. júní 1993, húsmóðir. Þau voru búsett í Keflavík. Börn: 1) Bjarney S. Annelsdóttir, f. 14. júní 1979, aðstoðaryfirlög- regluþjónn, búsett í Keflavík, maki: Sigurður Kári Guðnason, lögreglu- maður. Barnabörn: Natalía Fann- ey, f. 2010 og Annel Teitur, f. 2017; 2) Gunnar Einar Annelsson, f. 3. október 1981, tollsérfræðingur, búsettur í Hafnarfirði, maki: Bryn- dís Marteinsdóttir, markaðs- fræðingur. Barnabörn: Hilmir Ingi, f. 2009 og Garðar Atli, f. 2013; 3) Atli Þór Annelsson, f. 30. desember 1984, tollvörður, búsettur í Njarð- vík, maki: Auður Benjamínsdóttir innheimtufulltrúi; 4) Annel Fannar Annelsson, f. 18. febrúar 1996, skólaliði, búsettur í Keflavík. Systkini: Guðmundur Sigurvins- son, f. 12. maí 1948, skrifstofu- maður, búsettur í Reykjavík; Agn- ar Breiðfjörð Þorkelsson, f. 5. janúar 1953, starfsmaður Isavia, búsettur í Keflavík; Halldór Rúnar Þorkelsson, f. 12. febrúar 1954, starfsmaður Isavia, búsettur í Keflavík; Aðalsteinn Þorkelsson, f. 26. janúar 1955, starfsmaður Reykjavíkurborgar, búsettur í Reykjavík; Jón Ásgeir Þorkelsson, f. 16. janúar 1956, starfsmaður íþróttamiðstöðvar, búsettur í Njarðvík; Hansborg Þorkelsdóttir, f. 22. maí 1957, heimavinnandi, bú- sett í Njarðvík, Guðlaug Ágústa Þorkelsdóttir, f. 18. maí 1960, d. 25. júní 2015, starfaði við ýmis þjón- ustustörf; Steinunn Þorkelsdóttir, f. 1. júní 1962, starfsmaður Húsa- smiðjunnar, búsett í Hafnarfirði; Björg Þorkelsdóttir, f. 30. apríl 1964, heimavinnandi, búsett á Stokkseyri Foreldrar Annels voru hjónin Þorkell Guðmundsson, f. 24. júní 1926, d. 16. júlí 1996, sjómaður, og Anna Ólína Unnur Annelsdóttir, f. 31. október 1931, d. 21. desember 2013, heimavinnandi. Þau voru lengst af búsett í Keflavík. Annel Jón Þorkelsson Anna Guðmundsdóttir húsfreyja, frá Holti, Snæf. Helgi Daníelsson bóndi í Helludal í Búðasókn, Snæf. Annel Jón Helgason bóndi á Hellissandi Hansborg Jónsdóttir húsfreyja á Hellissandi Anna Ólína Unnur Annelsdóttir húsfreyja í Keflavík Ásgerður Vigfúsdóttir húsfreyja, fædd á Arnarstapa Jón Ólafsson bóndi og skáld í Hofgörðum í Staðarsveit og Einarslóni Sigríður Jónsdóttir vinnukona í Kjós og á Ströndum, frá Reykjarfirði, Árnessókn Hjálmar Guðmundsson sjómaður lengst af á Gjögri Steinunn Hjálmarsdóttir húsfreyja á Gjögri Guðmundur Guðmundsson sjómaður á Gjögri Björk Þorkelsdóttir húsfreyja, fædd í Ófeigsfirði Guðmundur Guðmundsson bóndi á Bæ í Víkursveit á Ströndum Úr frændgarði Annels Jóns Þorkelssonar Þorkell Guðmundsson sjómaður í Keflavík Golfarinn Annel á Kirkjubólsvelli, velli Golfklúbbs Sandgerðis. ÍSLENDINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRÚAR 2019 Páll Ásgeir Tryggvason fæddistí Reykjavík 19. febrúar 1922. Móðir hans var Herdís Ás- geirsdóttir, húsmóðir og félagsmála- frömuður, f. 1895 d. 1982. Faðir hans var Tryggvi Ófeigsson útgerðar- maður, f. 1896, d. 1987. Páll Ásgeir lauk cand. juris-prófi frá HÍ 1942 og öðlaðist réttindi sem hæstaréttarlögmaður 1957. Starfsferill Páls var í utanríkis- ráðuneytinu allt frá 1948-1992. Hann gegndi embættum sendiherra í Osló, Moskvu og Bonn. Hann var í varnar- málanefnd í 17 ár og þar af formaður á tímabilinu 1968-1978 er hann stýrði varnarmáladeild utanríkis- ráðuneytisins. Um fjögurra ára skeið var Páll prótókollstjóri ráðu- neytisins og síðar formaður bygg- ingarnefndar Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar. Alla tíð var Páll virkur í félags- málum. Hann starfaði í stjórnum Nemendasambands MR, Stúdenta- félagsins, Félagsheimilis stúdenta og Stéttarfélags Stjórnarráðsins. Hann var einn stofnenda Lions- klúbbs Reykjavíkur og gegndi emb- ættum í Frímúrarareglunni. Páll var í stjórn Golfklúbbs Reykjavíkur í nokkur ár og formaður Golf- sambands Íslands 1970-1980; stofn- andi og fyrsti formaður Einherja. Sem formaður stjórnar útgerðar- félaganna Júpiters hf. og Marz hf. frá 1945 til loka og síðar Pólarminks hf. kom hann að uppbyggingu í atvinnumálum. Páll Ásgeir hlaut fjölmargar við- urkenningar fyrir störf sín en vænst þótti honum um hetjuverðlaun Carnegies fyrir að bjarga tveimur drengjum frá drukknun og stórridd- arakross íslensku fálkaorðunnar. Þann 4. janúar 1947 gekk Páll Ás- geir að eiga Björgu Ásgeirsdóttur, f. 22.2. 1925, d. 7.8. 1996, húsfreyju. Foreldrar hennar voru hjónin Ás- geir Ásgeirsson, annar forseti Ís- lands, og Dóra Þórhallsdóttir. Börn Páls og Bjargar: Dóra, Tryggvi, Herdís, Ásgeir og Sólveig. Páll lést 1. september 2011. Merkir Íslendingar Páll Ásgeir Tryggvason 95 ára Sigrún Haraldsdóttir 90 ára Erla Guðmundsdóttir Erla Ingadóttir Guðbjörg Lilja Maríusdóttir Guðmundur Á. Ásmundars. Þórhalla Björgvinsdóttir 85 ára Baldur Kristinsson Birna Guðmundsdóttir Regína Kristinsdóttir 80 ára Einar Jónsson Hanna Guðrún Pétursdóttir Jón Rögnvaldsson 75 ára Jón Holbergsson Sævar Vilhelm Bullock 70 ára Ágúst Pétursson Ásta Hulda Markúsdóttir Ástríður Bjarnadóttir Baldvin G. Magnússon Birna Kjartansdóttir Gunnar H. Bílddal Helga Viðarsdóttir Hrafnhildur Jónsdóttir Ingibjörg Bjarnadóttir Ingibjörg Svavarsdóttir Peter Michael Leplar Sigrún Toby Herman Sólveig Ólöf Jónsdóttir Þórunn Guðmundsdóttir 60 ára Anna Matthildur Hjálmarsd. Annel Jón Þorkelsson Auðunn Gísli Árnason Áslaug Sigríður Svavarsd. Björk Breiðfjörð Helgad. Björn Björnsson Diosdado Gucom Quiamco Elín Helgadóttir Fjóla Kristjánsdóttir Guðrún Hanna Scheving Ingibjörg Ólafsdóttir Jakob Árnason Jón Hjálmarsson Ólafur Jón Guðmundsson Ólafur Sævar Magnússon Ólína Ingibjörg Jónsdóttir Sigfús Valdimarsson Stefán Karl Guðjónsson 50 ára Björk Sigurjónsdóttir Drífa Guðrún Halldórsdóttir Elsa Lilja Hermannsdóttir Guðbjörg Guðmundsdóttir Guðmundur F. Georgsson Haukur Óskarsson Helga Þóra Árnadóttir Sigríður Sif Grímsdóttir Sæmundur Ingvarsson Valdemar Valdemarsson Valgerður Lára Runólfsd. Vilhelm Gunnarsson Þórunn Svanhildur Eiðsd. 40 ára Christine Sarah Arndt Christophe Guy Lecomte Finnur Bjarnason Ingibjörg Skúladóttir Ingvi Sveinsson Jóhann Jökull Ásmundsson Sigríður Sigurðardóttir Þórdís Jóna Ólafsdóttir 30 ára Amanda Rae Jonsson Halldór Rúnarsson Stefán Þór Helgason Sunneva Smáradóttir Telma Da Silva Amado Tinna Líf Baldvinsdóttir Valborg Ólafsdóttir Valgerður Sigurðardóttir Til hamingju með daginn 30 ára Birkir er Siglfirð- ingur og er vélamaður hjá Munck Íslandi. Maki: Ólöf Gréta Hans- dóttir, f. 1984, vinnur á Dvalarheimilinu á Siglu- firði. Börn: Margrét Ólöf, f. 2014 og stjúpdóttir er Aþena Lilja, f. 2012. Foreldrar: Símon Helgi Símonarson, f. 1968, og Hrafnhildur Hreinsdóttir, f. 1972. Þau eru bús. á Akureyri. Birkir Ingi Símonarson 30 ára Gauti er Vest- mannaeyingur en býr í Hafnarfirði. Hann er með BS í sálfræði en starfar sem pípulagningamaður og er að læra þá grein. Maki: Elísabet Þorvalds- dóttir, f. 1990, förðunar- fræðingur. Börn: Emil, f. 2010, og Erik Þorvarður, f. 2014. Foreldrar: Þorvarður Vig- fús Þorvaldsson, f. 1956, d. 2015, og Guðrún Ragn- arsdóttir, f. 1959. Gauti Þorvarðarson 30 ára Linda Líf er Hafn- firðingur og er í fjarnámi í viðskiptafræði í HA. Maki: Róbert Wesley, f. 1970, tryggingaráðgjafi. Sonur: Anton Máni, f. 2005, og Alexandra Emilý, f. 2017, stjúpsonur er Aron Tristan, f. 2001. Foreldrar: Baldvin Ár- mannsson, f. 1968, og Hjördís Eleonora Þorkels- dóttir, f. 1968. Stjúpfaðir er Guðmundur Ragnars Steingrímsson, f. 1966. Linda Líf Baldvinsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.