Morgunblaðið - 19.02.2019, Síða 31

Morgunblaðið - 19.02.2019, Síða 31
MENNING 31 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRÚAR 2019 að það á ekkert að fá í staðinn.“ Spurð hver hennar leið inn í leik- ritið verði segir Brynhildur að því verði ekki umbylt með sambæri- legum hætti og í aðlögun þeirra Hrafnhildar Hagalín á Ríkharði III. þar sem lögð var áhersla á átök titil- persónunnar við konur verksins, en þess má geta að Hrafnhildur verður dramatúrg í Vanja frænda. „Það verður ekki um neina slíka umbylt- ingu að ræða. Tsjekhov fyrir mér býr í ritunartímanum. Þegar reynt er að fara með leikrit hans inn í nútímann þarf að umbylta þeim alveg. Ég hef hins vegar mun meiri áhuga á að skoða leikritið í sögulega samhenginu þar sem aðstæður og möguleikar per- sónanna voru allt aðrir en í dag, með- al annars þegar kemur að stöðu kynjanna og stétta. Persónurnar verða því fastar í tímabilum, en við skoðum þær utan frá,“ segir Bryn- hildur og tekur fram að sig langi til að setja persónur verksins inni í fiska- búr eins og skrautfiska. „Enda er þetta fólk sem kemst ekki út úr sínum aðstæðum, að Ast- rov lækni undanskildum, og í því felst angist þeirra,“ segir Brynhildur og áréttar að lestur hennar á verkinu mótist óhjákvæmilega af kyni henn- ar. „Það eru fjórar mjög áhugaverðar konur í þessu verki. Eðlilega hef ég því mikinn áhuga á því hver Jelena í verkinu sé og hvers vegna þessi unga kona giftist gamla prófessornum. María, móðir Vanja og fyrri konu prófessorsins, er líka mjög áhuga- verð sem passífur femínisti,“ segir Brynhildur sem er aðeins þriðja kon- an sem leikstýrir Tsjekhov á atvinnu- leiksviði hérlendis, en samkvæmt upplýsingum frá Borgarleikhúsinu hafa 17 uppfærslur verka hans ratað á svið hérlendis á síðustu 70 árum. Vanja frændi var síðast settur upp hérlendis í Borgarleikhúsinu árið 1992. Södd sem leikkona Spurð hvort hún hyggist alfarið snúa sér að leikstjórn eða leikstýra og leika jöfnum höndum svarar Brynhildur: „Sannleikurinn er sá að ég er orðin afskaplega södd leikkona. Ég hef verið afar lánsöm sem leikari og mér hefur verið treyst fyrir frá- bærum verkefnum, en finn núna að mig langar í auknum mæli að halda utan um formið og leikstýra meira. Ég vil ekki leika samhliða leikstjórn- arverkefnum, til að geta sett allan minn fókus á leikstjórnarverkefnið hverju sinni, því í þessu fagi hættir maður ekkert í vinnunni þegar maður kemur heim til sín enda utanumhald og ábyrgð leikstjórans mikil,“ segir Brynhildur og tekur fram að hún gæti ekki verið ánægðari með vinnu- veitendur. „Það er gulls ígildi að eiga vinnuveitanda sem sér mann fyrir það sem maður er.“ Aðspurð segir Brynhildur að það gagnist sér sem leikstjóra að hafa mikið leikið á Stóra sviði Borgarleikhússins. „Þó að þetta sé risastórt svið er hægt að búa til smáar myndir. Stærsta áskorunin er að láta talað mál berast aftur á aft- asta bekk og þess vegna höfum við í auknum mæli verið að nota míkró- fóna til að þurfa ekki að æpa textann með tilheyrandi gamaldags leikstíl.“ Morgunblaðið/Eggert Leikstjóri Brynhildur Guðjónsdóttir hlakk- ar til að takast á við rússneska klassík. 690 Vopnafjörður var ein þriggja heimildarmynda sem tilnefndar voru til Eddunnar 2019 þegar upplýst var um tilnefningarnar 6. febrúar. Á sunnudag sendi Hlín Jóhannesdóttir, formaður stjórnar Íslensku kvik- mynda- og sjónvarpsakademíunnar (ÍKSA), frá sér yfirlýsingu þar sem fram kemur að sú breyting hafi „orð- ið á áður kynntum tilnefningum til Eddunnar 2019 í flokki heimilda- mynda, að tilnefning myndarinnar 690 Vopnafjörður fellur út og í henn- ar stað er tilnefnd myndin Litla Moskva. Stjórn Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar áttar sig á alvarleika málsins og harmar þau mistök sem áttu sér stað þegar upp- haflega var tilkynnt um tilnefningar og biður aðstandendur heimilda- myndarinnar 690 Vopnafjörður inni- lega afsökunar á þeim.“ Lýsir vantrausti á stjórn Seint í síðustu viku skrifaði Hulda Rós Guðnadóttir, sem sat í valnefnd um heimildarmyndir á vegum ÍKSA, opna færslu á Facebook þar sem hún lýsti vantrausti á stjórn ÍKSA og Eddunnar. Segir hún að vegna mis- taka hafi myndin 690 Vopnafjörður fengið undanþágu til að vera með í vali á tilnefningum sem besta heim- ildarmyndin á Edduverðlauna- hátíðinni 2019. „Var þessi undan- tekning gefin m.a. vegna áskorana þeirra sem stóðu að vali á tilnefn- ingum í fyrra og kvörtuðu undan fjarveru myndarinnar úr tilnefning- armöguleikum,“ skrifar Hulda Rós. 690 Vopnafjörður var frumsýnd á Vopnafirði í maí 2017, sýnd á Skjald- borg, hátíð íslenskra heimildar- mynda, fyrstu helgina í júní það sama ár og loks tekin til almennra sýninga í Bíó Paradís í október 2017. Erlendis var hún sýnd fyrst 2018. Í starfs- reglum Eddunnar sem birtar eru á vef ÍKSA segir að „innsend verk skulu hafa verið frumsýnd opin- berlega á tímabilinu 1. janúar til og með 31. desember árið á undan hátíð- inni“, en stefnt skal að því að „halda Edduverðlaunahátíðina í febrúar ár hvert og skal verðlaunaafhendingin bera ártal þess árs sem hún er hald- in“. Jafnframt er áréttað að „verk skulu hafa verið frumsýnd í íslensku kvikmyndahúsi eða á íslenskri kvik- myndahátíð þar sem almenningi hef- ur gefist kostur á að mæta og/eða á miðli með umtalsverða dreifingu á Ís- landi“. Á vef ÍKSA kemur fram að frestur til að senda inn verk sem frumsýnd voru á tímabilinu frá 1. janúar til 31. desember 2017 rann út 15. janúar 2018. Í samtali við Morgunblaðið staðfesti Auður Elísabet Jóhanns- dóttir, framkvæmdastjóri ÍKSA, að 690 Vopnafjörður hafi ekki verið meðal þeirra mynda sem lagðar voru fram fyrir 15. janúar 2018, en frest- urinn var m.a. auglýstur á vef og Facebook-síðu ÍKSA og í tölvupósti sem sendur sé til allra akademíu- meðlima ÍKSA. Stjórinn furðar sig á órök- studdum ásökunum Í samtali við Morgunblaðið segir formaður stjórnar ÍKSA mistökin hennar og ekki á nokkurn hátt við að- standendur 690 Vopnafjörður að sak- ast í þessu máli. „Ég veitti aðstand- endum myndarinnar undanþágu til umsóknar um Edduverðlaunin 2019 þar sem ég hafði skilið það sem svo að myndin hefði aðeins verið sýnd óopinberlega árið 2017 og ekki frum- sýnd formlega fyrr en 2018. Eftir að tilnefningar ársins í ár höfðu verið opinberaðar var mér bent á að myndin hefði sannanlega verið sýnd opinberlega í Bíó Paradís og víðar árið 2017 og þá horfði málið öðruvísi við. Þá var ljóst að það hefði þurft að leggja myndina fram í fyrra og hún væri ekki gjaldgeng í ár sam- kvæmt starfsreglum,“ segir Hlín og tekur fram að hún hafi í framhaldinu haft samband við aðstandendur myndarinnar og leyst málið með þeim. „Þetta eru mín mistök, til- komin vegna míns misskilnings. Ég bið alla hlutaðeigandi afsökunar,“ segir Hlín. Að mati Huldu Rósar er það stór- hneyksli að undanþágan hafi verið dregin til baka eftir að tilnefning- arnar voru opinberaðar. „Þetta er ekki bara stórhneyskli á alþjóðlegum skala og mikil hneisa fyrir akadem- íuna og svartur blettur á íslenskri kvikmyndagerðarsenu heldur sá ófagleiki og spilling sem við erum að reyna að komast frá.“ Í yfirlýsingu sem stjórn ÍKSA sendi frá sér á sunnudag segist hún furða sig „á órökstuddum ásökunum félagsmanns um spillingu í störfum akademíunnar“ og tekur fram að allir stjórnarmeðlimir starfi „af heilindum fyrir ÍKSA og vís[i] ásökunum um spillingu alfarið á bug“. silja@mbl.is „Þetta eru mín mistök“  Stjórn ÍKSA vísar ásökunum um spillingu á bug  Stjórnarformaður segir um mannleg mistök að ræða Misskilningur Stilla úr heimildarmyndinni 690 Vopnafjörður. Ronja Ræningjadóttir (Stóra sviðið) Sun 24/2 kl. 13:00 42.sýn Sun 24/3 kl. 13:00 Auka Sun 28/4 kl. 13:00 Aukas. Sun 24/2 kl. 16:00 43.sýn Sun 24/3 kl. 16:00 Auka Sun 28/4 kl. 16:00 Aukas. Sun 3/3 kl. 13:00 44.sýn Sun 31/3 kl. 13:00 Auka Sun 5/5 kl. 13:00 Aukas. Sun 3/3 kl. 16:00 45.sýn Sun 31/3 kl. 16:00 49.sýn Sun 5/5 kl. 16:00 Aukas. Sun 10/3 kl. 13:00 46.sýn Sun 7/4 kl. 13:00 50.sýn Sun 12/5 kl. 13:00 Aukas. Sun 10/3 kl. 16:00 47.sýn Sun 7/4 kl. 16:00 51.sýn Sun 12/5 kl. 16:00 Aukas. Sun 17/3 kl. 13:00 Aukas. Sun 14/4 kl. 13:00 52.sýn Sun 17/3 kl. 16:00 48.sýn Sun 14/4 kl. 16:00 53.sýn Stórskemmtilegur og æsispennandi söngleikur fyrir alla fjölskylduna! Einræðisherrann (Stóra Sviðið) Fös 22/2 kl. 19:30 Auka Fös 8/3 kl. 19:30 16.sýn Fös 29/3 kl. 19:30 Lau 23/2 kl. 19:30 14.sýn Lau 9/3 kl. 19:30 17.sýn Lau 2/3 kl. 19:30 15.sýn Lau 23/3 kl. 19:39 Siggi Sigurjóns mætir Charlie Chaplin! Jónsmessunæturdraumur (Stóra sviðið) Mið 27/2 kl. 19:30 Fors. Fös 15/3 kl. 19:30 3.sýn Lau 6/4 kl. 19:30 7.sýn Fim 28/2 kl. 19:30 Fors. Lau 16/3 kl. 19:30 4.sýn Fös 12/4 kl. 19:30 8.sýn Fös 1/3 kl. 19:30 Frums Fös 22/3 kl. 19:30 5.sýn Fim 7/3 kl. 19:30 2.sýn Lau 30/3 kl. 19:30 6.sýn Fyndinn og erótískur gamanleikur Þitt eigið leikrit (Kúlan) Fim 21/2 kl. 18:00 9.sýn Lau 9/3 kl. 15:00 14.sýn Sun 24/3 kl. 15:00 18.sýn Lau 23/2 kl. 15:00 10.sýn Lau 9/3 kl. 17:00 Auka Sun 24/3 kl. 17:00 19.sýn Fös 1/3 kl. 18:00 11.sýn Sun 17/3 kl. 15:00 15.sýn Lau 30/3 kl. 15:00 20.sýn Lau 2/3 kl. 15:00 12.sýn Sun 17/3 kl. 17:00 Auka Sun 31/3 kl. 15:00 21.sýn Lau 2/3 kl. 17:00 Auka Lau 23/3 kl. 15:00 16.sýn Sun 31/3 kl. 17:00 22.sýn Fös 8/3 kl. 18:00 Auka Lau 23/3 kl. 17:00 17.sýn Það er þitt að ákveða hvað gerist næst! Súper - þar sem kjöt snýst um fólk (Kassinn) Lau 16/3 kl. 19:30 Frums Mið 27/3 kl. 19:30 5.sýn Fim 4/4 kl. 19:30 8.sýn Mið 20/3 kl. 19:30 2.sýn Fim 28/3 kl. 19:30 6.sýn Fim 11/4 kl. 19:30 9.sýn Fim 21/3 kl. 19:30 3.sýn Lau 30/3 kl. 19:30 7.sýn Fös 12/4 kl. 19:30 10.sýn Fös 22/3 kl. 19:30 4.sýn Mið 3/4 kl. 19:30 Aukas. Velkomin heim (Kassinn) Sun 24/2 kl. 19:30 8.sýn Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari) Mið 20/2 kl. 20:00 Mið 6/3 kl. 20:00 Mið 27/2 kl. 20:00 Mið 13/3 kl. 20:00 Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins! Mið-Ísland (Þjóðleikhúskjallarinn) Fim 21/2 kl. 19:30 Lau 23/2 kl. 19:30 Mán 25/2 kl. 22:00 Fös 22/2 kl. 19:30 Lau 23/2 kl. 22:00 Fim 28/2 kl. 19:30 Fös 22/2 kl. 22:00 Sun 24/2 kl. 21:00 Bara Góðar - Uppistandssýning (Þjóðleikhúskjallarinn) Sun 3/3 kl. 20:00 Sun 17/3 kl. 20:00 leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200 BORGARLEIKHÚSIÐ Kynntu þér nýjan tapas-matseðil Leikhúsbarsins á borgarleikhus.is Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is Matthildur (Stóra sviðið) Þri 12/3 kl. 19:00 Fors. Lau 23/3 kl. 19:00 7. s Fös 12/4 kl. 19:00 18. s Mið 13/3 kl. 19:00 Fors. Sun 24/3 kl. 19:00 8. s Lau 13/4 kl. 13:00 19. s Fim 14/3 kl. 19:00 Fors. Mið 27/3 kl. 19:00 9. s Sun 14/4 kl. 19:00 20. s Fös 15/3 kl. 19:00 Frums. Fim 28/3 kl. 19:00 10. s Þri 16/4 kl. 19:00 21. s Lau 16/3 kl. 19:00 2. s Sun 31/3 kl. 19:00 12. s Mið 24/4 kl. 19:00 22. s Sun 17/3 kl. 19:00 3. s Mið 3/4 kl. 19:00 13. s Fim 25/4 kl. 19:00 23. s Mið 20/3 kl. 19:00 4. s Fös 5/4 kl. 19:00 15. s Fös 26/4 kl. 19:00 24. s Fim 21/3 kl. 19:00 5. s Sun 7/4 kl. 19:00 16. s Sun 28/4 kl. 19:00 25. s Fös 22/3 kl. 19:00 6. s Mið 10/4 kl. 19:00 17. s Þri 30/4 kl. 19:00 26. s Miðasalan er hafin! Elly (Stóra sviðið) Fös 22/2 kl. 20:00 203. s Lau 2/3 kl. 20:00 206. s Lau 30/3 kl. 20:00 209. s Lau 23/2 kl. 20:00 204. s Fös 8/3 kl. 20:00 207. s Fös 1/3 kl. 20:00 205. s Lau 9/3 kl. 20:00 208. s Síðustu sýningar komnar í sölu. Ríkharður III (Stóra sviðið) Fim 21/2 kl. 20:00 13. s Sun 3/3 kl. 20:00 14. s 5 stjörnur - ÞT. Morgunblaðið / 5 stjörnur - SJ. Fréttablaðið Fólk, staðir og hlutir (Litla sviðið) Mið 20/2 kl. 20:00 37. s Mið 27/2 kl. 20:00 41. s Mið 6/3 kl. 20:00 45. s Fös 22/2 kl. 20:00 38. s Fim 28/2 kl. 20:00 42. s Fim 7/3 kl. 20:00 46. s Lau 23/2 kl. 20:00 39. s Fös 1/3 kl. 20:00 43. s Fös 8/3 kl. 20:00 47. s Sun 24/2 kl. 20:00 40. s Lau 2/3 kl. 20:00 44. s Athugið, takmarkaður sýningafjöldi. Kvenfólk (Nýja sviðið) Fös 22/2 kl. 20:00 37. s Fös 1/3 kl. 20:00 39. s Fös 8/3 kl. 20:00 41. s Sun 24/2 kl. 20:00 38. s Lau 2/3 kl. 20:00 40. s Lau 9/3 kl. 20:00 42. s Drepfyndin sagnfræði með söngvum. Kæra Jelena (Litla sviðið) Fös 12/4 kl. 20:00 Frums. Mið 24/4 kl. 20:00 5. s Fim 2/5 kl. 20:00 9. s Lau 13/4 kl. 20:00 2. s Fim 25/4 kl. 20:00 6. s Fös 3/5 kl. 20:00 10. s Sun 14/4 kl. 20:00 3. s Fös 26/4 kl. 20:00 7. s Sun 5/5 kl. 20:00 11. s Þri 16/4 kl. 20:00 4. s Sun 28/4 kl. 20:00 8. s Mið 8/5 kl. 20:00 12. s Kvöld sem breytir lífi þínu. Kvöldvaka með Jóni Gnarr (Litla sviðið) Lau 13/4 kl. 20:00 aukas. Aukasýning komin í sölu. Allt sem er frábært (Litla sviðið) Lau 4/5 kl. 20:00 aukas. Fim 9/5 kl. 20:00 aukas. Lau 11/5 kl. 20:00 aukas. Aukasýningar vegna mikillar eftirspurnar!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.