Morgunblaðið - 19.02.2019, Page 33

Morgunblaðið - 19.02.2019, Page 33
MENNING 33 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRÚAR 2019 Ármúla 26 | 108 Reykjavík | Sími 578 4400 | heimilioghugmyndir.is Bandarísk samtök höfunda hand- rita að kvikmyndum og sjónvarps- þáttum veittu sín verðlaun í fyrra- dag og komu úrslitin nokkuð á óvart. Tvær kvikmyndir sem held- ur litla athygli hafa fengið hlutu verðlaunin, táningamyndin Eigth Grade fyrir besta frumsamda hand- rit og svarta kómedían Can You Ever Forgive Me? fyrir besta hand- rit sem byggist á áður útgefnu efni. Þykja þetta tíðindi þar sem fyrr- nefnda myndin er ekki meðal til- nefndra til Óskarsverðlauna fyrir besta handrit og Can You Ever For- give Me? þykir, eða þótti, ekki mjög líkleg til að hljóta Óskarsverðlaun í sínum flokki. Í flokki sjónvarps- þátta var það The Americans sem hlaut verðlaun fyrir besta handrit dramatískra þátta og The Marvelo- us Mrs Maisel hlaut verðlaunin í flokki gamanþátta. Óvænt Úr kvikmyndinni Eigth Grade. Óvænt verðlaun handritshöfunda Margrét Jónsdóttir, leirlistarkona heldur þriðjudagsfyrirlestur í Listasafninu á Akureyri, Ketilhúsi, í dag kl. 17. Hann ber yfirskriftina Innvortis náttúra og mun Margrét fjalla um samnefnda innsetningu sína sem er hluti af sýningu þeirra Kristínar Gunnlaugsdóttur, Super- Black, sem nú stendur yfir í safn- inu. „Grunntónn verkanna á Super- Black er svartur. Hugmyndin er fengin frá nýuppgötvuðum svörtum lit, Vantablack, sem lýsir algjöru tómi. Í þessu tómi velkjast tilvistar- spurningar nútímamannsins: Hvar við stöndum gagnvart náttúrunni og okkur sjálfum? Svört leirverk Margrétar Jóns- dóttur minna á svarta sanda og hraunbreiður Íslands. Þau velta upp spurningunni um hvort við fær- um betur með náttúruna ef við sæj- um hana sem mannslíkama; með líf- færi eins og okkar eigin,“ segir um sýninguna í tilkynningu. Fyrirlesari Margrét á vinnustofunni. Margrét fjallar um innsetningu sína Þá er Franskri kvikmynda-hátíð því miður lokið og aðeins ein kvikmyndahennar áfram sýnd, Að synda eða sökkva eða Le grand bain eins og hún heitir á frummálinu en vonandi verða fleiri sýndar áfram og þá sérstaklega sú sem hér verður gagnrýnd. Með forsjá fer heitir hún á íslensku, Jusqu’à la garde á frum- málinu, kvikmynd sem tekur á taug- arnr og ætti að halda áhorfendum föngnum. Ég var í það minnsta orð- inn órólegur um miðbik hennar enda spennan listilega upp byggð þó ekki sé um eiginlega spennumynd að ræða heldur fjölskyldudrama. Andrúmsloftið er rafmagnað allt frágrípandi byrjun myndarinnar til enda. Tvær konur ganga rösklega í átt að skrifstofu í dómshúsi, hlaðnar pappírum. Myndavélin fer í humátt á eftir þeim, greinilegt að eitthvað alvarlegt er á ferð. Inni á skrifstof- unni fer dómari yfir mál hjónanna Miriam (Drucker) og Antoine (Ménochet) sem eiga í forræðis- deilu. Miriam vill fá fullt forræði yf- ir ellefu ára syni þeirra, Julien (Gioria) og dóttur, Joséphine (Aune- veux), sem er að verða 18 ára og því sjálfráð, ræður því hvort hún um- gengst föður sinni eða ekki. Atriðið er langt, yfir tíu mínútur og krefst einbeitingar áhorfenda, lögmenn og dómari tala hratt og vitnisburður Julien er lesinn upp en í honum kemur fram að drengurinn óttast föður sinn sem hann kallar „l’autre“, þ.e. „hinn“ eða „hitt“ og á þar vænt- anlega við hitt foreldrið. Dreng- urinn óttast greinilega um móður sína og lögmaður hennar segir An- toine hafa beitt fjölskylduna ofbeldi, dóttir þeirra hafi m.a. þurft að leita til hjúkrunarkonu í skólanum sínum eftir misþyrmingar föðurins. Vand- inn er að engar sannanir eru til fyrir þessum brotum. Antoine neitar allri sök, segir móðurina hafa fengið börnin upp á móti honum og sagt þeim að ljúga upp á hann sakir. Dómarinn, kona yfir miðjum aldri, er því í erfiðri stöðu og segist eiga erfitt með að meta hvort hafi rétt fyrir sér. „Hvort ykkar er meiri lygari?“ spyr hún eftirminnilega og hvessir augun á þau bæði. Ekkert svar fæst við þeirri spurningu, eðlilega og dómar- inn gefur sér nokkra daga í að kveða upp úrskurð sinn. Hann reyn- ist svo móðurinni mikið áfall því fað- irinn fær umgengnisrétt við soninn, leyfi til að hitta hann aðra hverja helgi. Í fyrstu er ekki ljóst hvaða mann Antoine hefur að geyma og áhorf- endur geta framan af allt eins trú- að því að hann sé saklaus. Hið sanna kemur í ljós þegar hann sækir drenginn og verður fljótlega ógnandi í tali og tilburðum, þó á yfirborðinu þykist hann vera ást- ríkur faðir. Miriam heldur því leyndu fyrir honum hvert hún er flutt með börnin og hann getur alls ekki sætt sig við það, eins og kem- ur í ljós þegar hann sækir Julien til ömmu sinnar og afa í móðurætt. Miriam vill ekki tala við hann, hef- ur skipt um símanúmer og Antoine verður reiðari og ágengari því lengur sem hún heldur honum fjarri sér. Þegar hann kemst svo að því hvar Miriam og börnin búa, fyrir óheppilega tilviljun, fer virki- lega að taka á taugar áhorfenda sem vita samt sem áður ekki á hverju er von. Missir Antoine stjórn á skapi sínu og með hvaða afleiðingum þá? Hann hefur ekki enn beitt ofbeldi í myndinni en hversu lengi mun það ástand vara? Ekkert er fyrirsjáanlegt í þessu raunsæisverki þó vissulega megi finna ákveðna fyrirboða og loka- atriðið reynir virkilega á taug- arnar, svo ekki sé meira sagt. Með forsjá fer er fyrsta kvik- mynd leikstjórans og handritshöf- undarins Xavier Legrand í fullri lengd sem er merkilegt þegar litið er til þess hversu vönduð og áhrifa- mikil hún er. Legrand hlaut verð- laun fyrir bestu leikstjórn á kvik- myndahátíðinni í Feneyjum árið 2017 og myndin hefur hlotið fjölda verðlauna og tilnefninga víða um lönd frá því hún var frumsýnd. Helsti styrkur hennar eru leikar- arnir sem standa sig allir frábær- lega og erfitt að hampa einum um- fram annan, nema ef vera skyldi hinum barnunga Gioria sem er ákaflaega sannfærandi í hlutverki hins óttaslegna Julien sem reynir allt hvað hann getur að veita föður sínum mótspyrnu. Drucker og Mé- nochet eru líka óaðfinnanleg í hlut- verkum foreldranna, Miriam og An- toine, hlutverkum sem eru flókin og krefjandi. Ménochet er mikill maður vexti, nautslegur og með ógnandi nærveru og óttinn býr í hverri taug Drucker sem er bæði sterk og brot- hætt í senn og hreyfist varla eða blikkar augum á meðan ergilegur dómari les yfir þeim hjónum. Engin tónlist er notuð í myndinni nema í einu atriði þar sem dóttir þeirra hjóna syngur í afmælisveislu sinni lagið „Rolling on the river“ sem fer hægt og rólega af stað og magnast svo upp í mikið rokkstuð. Þetta atriði er langt og meistara- lega notað til að byggja upp spennu þar sem ógnin er nærri en þó óáþreifanleg og aðeins greinanleg í látbragði gesta sem ekkert heyrist í fyrir tónlistinni. Myndatakan í kvik- myndinni er líka eftirtektarverð, mikið um nærmyndir af aðalleik- urunum sem þurfa að tjá margs konar tilfinningar með svipbrigð- unum einum. Þar stendur hinn ungi Gioria sig ótrúlega vel, að öðrum ólöstuðum. Vonandi verður þessi eftirminni- lega kvikmynd sýnd áfram. Fyrsta flokks kvikmynd eftir leikstjóra sem mun eflaust láta frekar að sér kveða í framtíðinni. Hvort er meiri lygari? Frábær Thomas Gioria hugrakkur en óttasleginn í hlutverki Julien sem þarf tilneyddur að umgangast föður sinn. Háskólabíó Með forsjá fer/Jusqu‘à la garde bbbbm Leikstjórn og handrit: Xavier Legrand. Aðalleikarar: Léa Drucker, Denis Méno- chet, Thomas Gioria og Mathilde Aune- veux. Frakkland, 2017. 93 mínútur. Sýnd á Franskri kvikmyndahátíð. HELGI SNÆR SIGURÐSSON KVIKMYNDIR Hinn kunni sviss- neski leikari Bruno Ganz er látinn, 77 ára að aldri. Ganz var einn virtasti kvikmyndaleik- arinn í Evrópu undanfarna ára- tugi en hann var einnig vinsæll sviðsleikari í hinum þýskumælandi heimi og til marks um stöðu hans þar þá var Ganz frá árinu 1996 og til dauðadags handhafi svokallaðs Iffl- and-hrings, sem gengur milli þeirra sem valnefnd telur bestu sviðsleik- ara á þýsku. Meðal þekktra kvikmyndahlut- verka Ganz má nefna rómaða túlkun á Adolf Hitler í Der Untergang (2004) og leik í The American Friend (1977), Nosferatu the Vamp- yre (1979), The Boys from Brazil (1978) The Manchurian Candidate (2004), The Reader (2008), Unknown (2011) og Remember (2015) og The Party (2017). Eitt af frægustu hlut- verkum hans er engillinn í Himinn- inn yfir Berlín (1987) en einnig lék hann engil í Börnum náttúrunnar eftir Friðrik Þór Friðriksson. Leikarinn Bruno Ganz látinn Bruno Ganz Sagafilm hefur tryggt sér rétt til að þróa leikna sjónvarpsþátta- röð byggða á skáldsögunni Hilmu eftir Ósk- ar Guðmunds- son. Hilma kom fyrst út árið 2015 og fékk góðar móttökur. Sagan hlaut Blóð- dropann árið 2016 sem besta ís- lenska glæpasagan og var í fram- haldinu framlag til Íslands til Glerlykilsins sem besta glæpasag- an á Norðurlöndunum. Hilma fjallar um samnefnda lög- reglukonu sem fær sjálfsvíg til rannsóknar. Málið tekur óvænta stefnu þegar Hilma tengir það þremur eldri dauðsföllum sem hafa verið afgreidd sem slys eða sjálfs- víg. Þróa þáttaröð eftir sögu Hilmu Óskar Guðmundsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.