Morgunblaðið - 26.02.2019, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 26.02.2019, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. FEBRÚAR 2019 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Smiðjuvegur 68, Kópavogi | S. 587 1350 | bifreidaverkstaedi.is Höfum sérhæft okkur í Toyota viðgerðum síðan 1995 Fljót, örugg og persónuleg þjónusta Allar almennar bílaviðgerðir Jóns Þrastar enn leitað  Upptökur úr þremur öryggismyndavélum sýndar í sjón- varpsþættinum Crimecall í gær  Biðlað til almennings Davíð Karl og Daníel Örn Wium, bræður Jóns Þrastar Jónssonar sem hefur verið saknað síðan laugardag- inn 9. febrúar síðastliðinn er hann yfirgaf hótelherbergi sitt í Dublin á Írlandi, komu fram í sjónvarps- þættinum Crimecall á írsku sjón- varpsstöðinni RTÉ í gærkvöldi. Í þættinum er fjallað um óleyst saka- mál af ýmsu tagi þar sem þátta- stjórnandinn Sharon Ní Bheoláin biðlar til almennings um að hjálpa til við lausn þeirra. Sýndar eru upptök- ur úr öryggismyndavélum og tekið er við ábendingum í þættinum. Bræðurnir hafa dvalið í Dublin í tæpar tvær vikur, ásamt talsverðum fjölda vina og vandamanna Jóns Þrastar og hafa þar skipulagt leit að honum. Í samtali við mbl.is í gær, áð- ur en þátturinn var sýndur, sagðist Davíð Karl binda miklar vonir við þáttinn. „Hann er með rosalega mik- ið áhorf og hefur oft skilað góðum ár- angri þegar kemur að óleystum sakamálum,“ sagði hann. Bræðurnir notuðu gærdaginn til að búa sig undir þáttinn, m.a. með því að fara á fund lögreglunnar og skipuleggja næstu daga. „Það er ekkert farar- snið á okkur fyrr en þetta er leyst,“ sagði Davíð Karl. Guðlaugur Þór Þórðarson utan- ríkisráðherra hitti í gær Simon Coveney, utanríkisráðherra Írlands, á fundi mannréttindaráðs Samein- uðu þjóðanna og tók þar upp við hann mál Jóns Þrastar. Guðlaugur Þór þakkaði starfsbróður sínum vel- vild írsku þjóðarinnar, en fjölmargir heimamenn tóku þátt í leit að Jóni Þresti um síðustu helgi. Í þættinum voru sýnd myndskeið úr þremur öryggismyndavélum sem sýndu ferðir Jóns Þrastar, það síð- asta var tímasett tæpum þremur mínútum eftir að hann yfirgaf Bonn- ington-hótelið þar sem hann dvaldi. Ljósmynd/lögreglan í Dublin Jón Þröstur Ekkert hefur til hans spurst síðan 9. febrúar. Sérfræðingahópi um endurskoðun tekjuskatts og bótakerfa var ekki fal- ið að skoða áhrif og útfærslu hátekju- skattþreps við endurskoðun skatt- kerfisins. „Okkur voru ekki lagðar línur um það og það gerði það einfald- lega að verkum að við horfum ekki til útfærslu þess,“ sagði Axel Hall, for- maður sérfræðingahópsins, í samtali við mbl.is í gær. Skýrsla hópsins var í heild sinni kynnt í gær, en í síðustu viku kynnti Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, til- lögur hópsins. Axel sagði að hópurinn hefði haft það að leiðarljósi að tillögurnar myndu skila ávinningi til þeirra sem hafa lágar tekjur með þeim fjár- munum sem eru til ráðstöfunar án þess þó að öðrum væri íþyngt. „Enda fólst ekki í okkar umboði að hækka skatta og það verður að horfa á tillögur sérfræðingahóps- ins í því ljósi,“ sagði Axel. ASÍ og BSRB hafa farið fram á að komið verði á hátekjuskatti og telur BSRB tillögur stjórnvalda að breyt- ingum á skattkerfinu ekki ganga nægilega langt í átt að jöfnuði. ASÍ leggur til að tekið verði upp fjögurra þrepa skattkerfi þar sem fjórða skattþrepið verði eins konar hátekju- skattur. Axel segir að yfirstandandi kjara- viðræður hafi óneitanlega haft áhrif á vinnu sérfræðingahópsins. Markmið- ið hafi hins vegar alltaf verið það sama; að minnka álögur og auka jöfn- uð. Í skýrslunni má finna umfangs- mikla greiningu á tekjuskattskerfinu og áhrifum þróunar þess á ólíka hópa, samnýtingu þrepa og skattlagningu launatekna þeirra sem stunda sjálf- stæðan atvinnurekstur. Þá er um- fjöllun um húsnæðisstuðnings- og barnabótakerfi og samspil þeirra við skattkerfið þar sem greind voru áhrif stuðningskerfanna á ólíka hópa í samfélaginu. erlamaria@mbl.is Sérfræðingahópi var ekki falið að skoða hátekjuþrep  Tillögurnar eiga að skila ávinningi til lágtekjufólks Axel Hall VR og Almenna leigufélagið til- kynntu í gær að leigufélagið hefði samþykkt að hætta við fyrirhugaða hækkun á leigu, sem átti að koma til framkvæmda á næstu þremur mán- uðum en Ragnar Þór Ingólfsson, for- maður VR, hafði gagnrýnt þau áform harðlega. Í sameiginlegri yfirlýsingu beggja félaga segir að Almenna leigufélagið muni auk þess að hætta við hækk- anirnar vinna að breytingum á leigu- samningum sínum með það „að markmiði að bjóða samninga til lengri tíma en þekkst hefur á al- menna markaðnum, þar sem tryggt er húsnæðisöryggi og stöðugra leiguverð“. Verða lengri leigusamn- ingar kynntir sérstaklega í byrjun næsta mánaðar. Í tilkynningunni segir einnig að ljóst sé að breytinga sé þörf, þar sem háir vextir þrýsti á leiguverð, hvort sem er í félagslega kerfinu eða á hin- um almenna markaði. „Þegar við bætist óstöðugt lóðaframboð og hár kostnaður við byggingaframkvæmd- ir dregur úr leiguframboði á við- ráðanlegu verði fyrir hinn almenna launamann.“ Þá segir að þátttaka lífeyrissjóða og annarra langtímafjárfesta í fjár- mögnun leigufélaga gæti skapað „grundvöll fyrir lægri leigu, stöð- ugra leiguumhverfi og aukið hús- næðisöryggi leigjenda“. Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, sagði í samtali við Morgunblaðið að samkomulagið væri gott innlegg í kjaramál. „Þarna höfum við verið að hugsa út fyrir boxið með leigufélög- unum og ætlum okkur að vinna með þeim að því að tryggja fólki lengri samninga, búsetuöryggi og síðan framfærsluöryggi til að reyna að leggja okkar af mörkum til að vinna gegn vaxtastigi og bjóða hagkvæm- ari fjármögnun til að lækka hér kostnað við að lifa.“ sgs@mbl.is Hætta við að hækka leigu  VR og Almenna leigufélagið semja Ljósmynd/VR Samkomulag Forsvarsmenn VR og Almenna leigufélagsins í gær. Sex stúdentar létu ljós sitt skína í Stúdentakjallar- anum í gærkvöldi á fyrra undankvöldi uppistands- keppninnar Fyndnasti háskólaneminn 2019. Þau Árni Þór Þorgeirsson hátæknifræðinemi og Áslaug Ýr Hjartardóttir viðskiptafræðinemi fóru áfram í lokakeppnina. Bergur Ebbi Benediktsson, meðlimur í Mið-Íslandi og einn dómara, segir að kvöldið hafi verið vel heppnað og gaman að sjá hversu góð uppistandsmenning sé að skapast hér- lendis. Uppistand í kjallaranum Morgunblaðið/Árni Sæberg Fyndnasti háskólaneminn 2019 Björgunarsveitir, lögregla og Land- helgisgæslan tóku þátt í umfangs- mikilli leit við Ölfusárbrú í gær- kvöldi, en talið var að bifreið hefði farið í ána fyrir ofan Selfosskirkju. Oddur Árnason, yfirlögregluþjónn á Selfossi, staðfesti við mbl.is í gær- kvöldi að vísbendingar væru um að bílnum hefði verið ekið í ána af ásettu ráði. Talið er að einn hafi ver- ið í bílnum. Leitin stóð enn yfir þegar Morgunblaðið fór í prentun á tólfta tímanum í gær. Óskað var eftir aðstoð þyrlu Land- helgisgæslunnar og fór þyrlan í loft- ið kl. 22.41, samkvæmt upplýsingum frá gæslunni. Neyðarlínan gat ekki gefið frekari upplýsingar að svo stöddu en heimildir mbl.is í gær- kvöldi hermdu að um það bil sex eða sjö lögreglubílar væru við leitina. Mikill viðbún- aður var við ána og var búið að lýsa hluta af henni upp við brúna. Davíð Már Bjarnason, upp- lýsingafulltrúi Landsbjargar, sagði í samtali við mbl.is í gær að allar björgunarsveitir í Árnessýslu hefðu verið kallaðar út og leituðu fyrstu viðbragðsaðilar að bílnum á bátum á ánni. Þá var einnig óskað eftir aðstoð frá björgunar- sveitum í Reykjavík og búnaði á borð við dróna, hitamyndavélar og ljósa- búnað. Umfangsmikil leit að bíl í Ölfusá  Ökumaðurinn talinn einn á ferð

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.