Morgunblaðið - 26.02.2019, Side 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. FEBRÚAR 2019
ÁRSFUNDUR 2019
Silfurberg, Hörpu
Fimmtudagur 28. febrúar kl. 14.00
Í landi endurnýjan-
legrar orku
• Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir ferðamála-, iðnaðar-
og nýsköpunarráðherra
Ávarp
• Jónas Þór Guðmundsson stjórnarformaður
Ávarp
• Hörður Arnarson forstjóri
Á réttri leið
• Ragna Árnadóttir aðstoðarforstjóri
Loftslagsmál eru orkumál
• Björk Guðmundsdóttir verkefnisstjóri
Ný sýn á landslag og mannvirki
• Stefán Kári Sveinbjörnsson verkefnisstjóri
Endurhannaður vindmyllugarður fyrir ofan Búrfell
• Ólöf Rós Káradóttir verkefnisstjóri
Ný ásýnd Hvammsvirkjunar
• Rafnar Lárusson fjármálastjóri
Fjármál á tímamótum
• Stefanía Guðrún Halldórsdóttir framkvæmdastjóri
markaðs- og viðskiptaþróunar
Endurnýjanleg orka er verðmætari
• Fundarstjóri
Gerður Björk Kjærnested
Aukinni áherslu á loftslagsmál fylgja áskoranir og
tækifæri. Hvert er hlutverk okkar í þessum málum
og hvernig nýtum við betur tækifærin sem felast í
endurnýjanlegri raforku? Hvernig getur fyrirtækið
staðið undir væntingum um arðgreiðslur í
framtíðinni?
Verið öll velkomin
Skráning á www.landsvirkjun.is
Bein útsending verður á youtube.com/landsvirkjun
Umhverfisstofnun áformar að loka
svæðinu við Fjaðrárgljúfur frá og
með morgundeginum, en stefnt er
að því að meta aðstæður á svæðinu
aftur innan tveggja vikna. Svæð-
inu var einnig lokað tímabundið í
um tvær vikur í janúar vegna
vætutíðar og ágangs.
Á heimasíðu stofnunarinnar seg-
ir að núverandi gönguslóði og um-
hverfi hans sé mjög illa farið
vegna mikils fjölda ferðamanna
samhliða snöggum veðrabreyt-
ingum, hlýindum og mikilli vætu.
Um skyndilokun er að ræða af ör-
yggisástæðum og til að vernda
gróður umhverfis göngustíga og
þurfa athugasemdir að berast fyrir
kl. 14 í dag, þriðjudaginn 26. febr-
úar.
Á laugardag lokaði Umhverfis-
stofnun svæði á Skógaheiði, en
mikill fjöldi ferðamanna heim-
sækir náttúruvættið Skógafoss dag
hvern og gengur stór hluti þeirra
upp á Skógaheiði, segir á vef ust.is
Álag á umhverfið
„Vegna umferðar gesta, hlýinda
og mikilla leysinga í kjölfar lang-
varandi frostakafla, hefur skapast
gríðarlegt álag á gönguslóða og
umhverfi hans á Skógaheiði ofan
Fosstorfufoss. Umrætt svæði er
gamall kindaslóði, hluti af göngu-
leið um Fimmvörðuháls sem hefur
ekki verið lagaður að auknum
fjölda ferðamanna,“ segir enn
fremur á vefnum.
Lokunin nær upp frá Foss-
torfufossi, um 650 metra ofan við
útsýnispall Skógafoss og mun
standa uns bót verður á. Stefnt er
að endurskoðun lokunar eigi síðar
en innan tveggja vikna eða fyrr ef
ástand breytist til batnaðar.
Loka svæðum við
Fjaðrárgljúfur
og á Skógaheiði
Morgunblaðið/Gísli Sigurðsson
Náttúruperla Svæðið við Fjaðrárgljúfur á Síðu hefur látið á sjá vegna ágangs ferðafólks síðustu ár.