Morgunblaðið - 26.02.2019, Page 4

Morgunblaðið - 26.02.2019, Page 4
4 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. FEBRÚAR 2019 Veður víða um heim 25.2., kl. 18.00 Reykjavík 7 skýjað Hólar í Dýrafirði 4 rigning Akureyri 7 alskýjað Egilsstaðir 7 skýjað Vatnsskarðshólar 7 rigning Nuuk -7 snjókoma Þórshöfn 7 skýjað Ósló 3 heiðskírt Kaupmannahöfn 7 léttskýjað Stokkhólmur 6 heiðskírt Helsinki 5 heiðskírt Lúxemborg 16 heiðskírt Brussel 16 heiðskírt Dublin 13 skýjað Glasgow 13 skýjað London 17 heiðskírt París 16 heiðskírt Amsterdam 14 heiðskírt Hamborg 13 heiðskírt Berlín 12 heiðskírt Vín 12 heiðskírt Moskva 1 snjókoma Algarve 18 heiðskírt Madríd 18 heiðskírt Barcelona 16 heiðskírt Mallorca 15 léttskýjað Róm 15 heiðskírt Aþena 4 skýjað Winnipeg -27 heiðskírt Montreal -3 snjókoma New York 3 alskýjað Chicago -11 alskýjað Orlando 19 heiðskírt  26. febrúar Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 8:47 18:36 ÍSAFJÖRÐUR 8:58 18:34 SIGLUFJÖRÐUR 8:41 18:17 DJÚPIVOGUR 8:18 18:04 VEÐUR KL. 12 Í DAG Á miðvikudag Suðaustlæg átt, 8-13 m/s og dálítil væta S- og V-lands, en annars hægari og bjartviðri. Hiti yfirleitt 1 til 6 stig, en vægt frost í innsveitum á N- og A-landi. Dregur smám saman úr vindi og úrkomu síðdegis, en áfram stormur eða rok A-lands fram á kvöldið. Kólnar N-til í kvöld og víða dálítil slydda eða snjókoma þar. Baldur Arnarson Gunnlaugur Snær Ólafsson „Verðbólga gæti farið yfir fjögur pró- sentustig á síðari helmingi ársins ef allir hópar með lausa samninga fá verulegar launahækkanir.“ Þetta segir Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfræðingur Íslandsbanka. Tilefnið er samtal við Vilhjálm Eg- ilsson, fv. framkvæmdastjóra Sam- taka atvinnulífsins, hér í blaðinu í gær. Telur Vilhjálmur að ný forysta verkalýðshreyfingarinnar hafi lagt markmið um stöðugleika til hliðar. Jón Bjarki segir aðspurður að stöðugleikinn hafi fengið takmarkað vægi í umræðunni. Gamalkunn víxlverkun „Það er áhyggjuefni hversu lítið er gert með áhrif umfangsmikilla launa- hækkana á stöðugleika og hættuna á því að við förum í gamalkunna víxl- verkun óhóflegra launahækkana, verðbólguþrýstings og gengisveik- ingar. Ef það verður ekki sátt um að umfangsmestu launahækkanirnar miðist við þá sem lægst hafa launin verður verðbólga væntanlega talsvert meiri en við erum að spá. Þ.e.a.s. ef laun myndu almennt hækka í ein- hverjum viðlíka takti og lægstu laun- in, eins og dæmi eru um úr fyrri kjarasamningum,“ segir Jón Bjarki. Hann segir aðspurður að Greining Íslandsbanka reikni með því í verð- bólguspá sinni að laun hækki hlut- fallslega mest hjá þeim sem lægst hafa launin. Það sé innbyggt í spána að ekki verði verulegar launahækk- anir hjá þeim sem eru hærra í launa- stiganum. Gert sé ráð fyrir 5,5-6% nafnlaunahækkun í ár. Samkvæmt spánni verði verðbólgan um 3,5% frá miðju þessu ári og fram á næsta ár. Fjarlægjast verðbólgumarkmið „Um leið og það verða meiri launa- hækkanir á línuna aukast líkur á að verðbólgan verði yfir 4% þegar líður á árið. Með því fjarlægjumst við [2,5%] verðbólgumarkmið Seðla- bankans,“ segir Jón Bjarki. Ásamt því að þrýsta á vaxtahækkanir geti sú þróun kallað fram gengisveikingu. „Ef samningarnir verða ekki að- eins framhlaðnir, heldur fela í sér miklar almennar launahækkanir ár eftir ár næstu árin, skapar það launa- kostnað og verðlagsþrýsting umfram það sem hagkerfið ræður við með góðu móti. Til að endurheimta sam- keppnishæfnina þyrfti gengið þá að gefa eftir,“ segir Jón Bjarki. Ný hugmyndafræði Meginmarkmið við gerð kjara- samninga á tímum þjóðarsáttarsamn- inganna var að viðhalda stöðugleika, sérstaklega að halda aftur af verð- lagsþróun og þess vegna var farið fram á hófstilltar kauphækkanir, segir Gylfi Dalmann Aðalsteinsson, dósent hjá viðskiptafræðideild Há- skóla Íslands, spurður hvort breyting hafi orðið á áherslum verkalýðsfélag- anna. Hann segir jafnframt breyting- arnar ekki endilega stafa af því að forystan sé ný og bendir meðal ann- ars á að Vilhjálmur Birgisson, for- maður VLFA, Drífa Snædal, forseti ASÍ, og Ragnar Þór Ingólfsson, for- maður VR, hafi tekið þátt í starfi verkalýðshreyfingarinnar um nokk- urt skeið. Aðeins formaður Eflingar, Sólveig Anna Jónsdóttir, sé ný. „Þannig að maður þarf kannski að spyrja hvort eitthvað sé öðruvísi í umhverfinu sem verkalýðshreyfingin er að benda á sem var kannski ekki eftir þjóðarsáttarsamningana og þeim verður tíðrætt um leigumark- aðinn og húsnæðismarkaðinn,“ segir Gylfi. Á þessum grunni megi vissu- lega segja að verið sé að víkja frá þjóðarsáttarhugmyndafræðinni, segir hann. Spurður um hættu á höfrunga- hlaupi vísar hann til þess að í næsta mánuði verða samningar opinberra starfsmanna lausir og hafa þeir kraf- ist þess að menntun verði metin til launa. „Þetta er bara lögmálið um höfrungahlaupið, að þegar maður lyftir grunninum þá fer það upp þrepin. Nema það sé hægt að gera einhverskonar þjóðarsátt um það að lyfta þessum sem eru með allra lægstu launin.“ Verðbólgan gæti farið yfir 4% í lok árs  Keðjuverkun launahækkana  Áherslan ekki lengur á stöðugleika Jón Bjarki Bentsson Gylfi Dalmann Aðalsteinsson Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Stjórn VR kom saman í gær og ræddi næstu skref í kjarasamning- um auk atkvæðagreiðslu um boðun verkfalls. Aðgerðaáætlun félagsins var þar lögð fyrir stjórnina og sam- þykkt einróma, en hún var útfærð um helgina. Verður sú áætlun kynnt með formlegum hætti á föstudaginn, auk þess sem auglýst verður rafræn atkvæðagreiðsla um aðgerðir. Fyrstu aðgerðir VR munu beinast að stórum fyrirtækjum í ferðaþjón- ustu, og var haft eftir Ragnari Þór Ingólfssyni, formanni VR, í gær að þær myndu fara gegn „breiðu bök- unum“ þar. Ragnar Þór segir í sam- tali við Morgunblaðið að næstu að- gerðir verði gegn fyrirtækjum í öðrum atvinnugreinum. „Þetta verða allt staðbundnar aðgerðir, þannig að þær ná bara til þeirra félagsmanna í kosningu sem aðgerðirnar ná yfir.“ Spurður um gagnrýni frá Samtök- um ferðaþjónustunnar á þá leið að verkföll þar gætu bitnað víðar en á þeim sem teljast til „breiðu bak- anna“ segir Ragnar að ekki sé farið í aðgerðirnar af léttúð. Í hótelgeiran- um sé staðan til að mynda sú að þar séu starfsmenn í VR sem fái ekki laun sem dugi fyrir framfærslu. „Að- gerðirnar þurfa að bíta, og við teljum að sú áætlun sem við kynnum á föstudag muni svo sannarlega vera áhrifarík.“ Verkföll engin óskastaða Ragnar segir kjarna málsins vera að markmiðið með aðgerðunum sé fyrst og fremst að ná samningum. „Ég vona svo sannarlega að þetta verði á endanum til þess að við fáum samningsaðila að borðinu af mun meiri alvöru en verið hefur,“ segir Ragnar Þór og bætir við að verka- lýðsfélögin hafi reynt í allt of langan tíma að fá áheyrn og skilning, en þegar til kastanna hafi komið hafi móttilboði þeirra ekki einu sinni ver- ið svarað. „Þá spyr maður sig, hvar liggur ábyrgðin á stöðunni? Ég kalla eftir því að samningsaðilar okkar fari að hugsa í lausnum, en ekki í til- boðum sem þeir vita að okkar fé- lagsmenn munu hafna. Þetta er hægt, þetta er leysanlegt,“ segir Ragnar og vísar meðal annars til samkomulags VR og Almenna leigu- félagsins sem náðist í gær. Að lokum segist Ragnar vona inni- lega að ekki komi til verkfallsátaka og að menn reyni að lenda samning- um. „Verkföll eru dauðans alvara og það er ekki óskastaða okkar í for- ystusveit verkalýðshreyfingarinnar að fara í átök. Við erum nauðbeygð til þess út af því sem liggur fyrir, og ég skora á bæði stjórnvöld og Sam- tök atvinnulífsins, sérstaklega okkar viðsemjendur, að koma að borðinu aftur og freista þess að ná samkomu- lagi og í það minnsta að fá tilboð sem hægt er að taka afstöðu til,“ segir Ragnar Þór að lokum. Keðjan getur hæglega slitnað Jóhannes Þór Skúlason, fram- kvæmdastjóri Samtaka ferðaþjón- ustunnar, segir að erfitt sé að skil- greina „breiðu bökin“ í ferða- þjónustunni og þau séu ekki endilega svo mörg. „Það að vera með stórt fyrirtæki er ekki endilega það sama og að vera með mikinn hagnað, til dæmis töpuðu stóru hópferðafyrir- tækin öll peningum á síðasta ári, þannig að þó að menn séu með mikið umfang í rekstri þá er það ekki endi- lega gríðarlega aflögufært.“ Hann bendir á að 86,3% fyrir- tækja í ferðaþjónustu séu með tíu starfsmenn eða færri og rúmlega 11% séu með á bilinu tíu til fimmtíu starfsmenn. „Það þýðir að þau fyrir- tæki sem teljast stór á íslenskan mælikvarða, eru bara um 1,9%.“ Jóhannes segir að aðgerðir gegn stórum fyrirtækjum í ferðaþjónustu geti ekki einskorðast við þau og nefnir sem dæmi að fyrirhugað verk- fall ræstingafólks á hótelum muni hafa áhrif langt út fyrir hótelin. „Ferðaþjónustan er keðja, og þú get- ur ekki ráðist á einn hlekk í keðjunni og sagað hann í sundur án þess að keðjan slitni,“ segir Jóhannes Þór. „Og þessi keðja er svo víð og fyrir- tækin hanga svo fast saman, þannig að tjón sem verður í ferðaþjónust- unni breiðist um hana alla, sem þýðir einfaldlega að samfélagið verður fyr- ir tjóni, því þegar þú ræðst að at- vinnugrein sem skilar ríkinu um 40% af öllum gjaldeyristekjum þjóðarinn- ar, þá er ljóst að samfélagið tapar á því þegar sú grein tapar.“ Jóhannes segir að ferðaþjónustan finni þegar fyrir því að stórir erlend- ir aðilar séu farnir að spyrja hvað þeir eigi að gera við bókanir sem þeir eiga eftir að staðfesta. „Og ef þetta er viðvarandi ástand í ferðaþjónust- unni er stórhætta fyrir höndum,“ segir Jóhannes Þór og varar við því að verkföll í vor geti haft slæm áhrif á bókanir fyrir sumarið. „Það er stór ákvörðun fyrir lang- flesta að koma til Íslands, menn setja mikinn pening í það ferðalag og það gerir þolþröskuldinn mögulega lægri ef það lítur út fyrir að eitthvað muni skemma ferðalagið, þá er spurning hvort viðkomandi muni ekki skoða hvort hægt sé að fá sam- svarandi upplifun í t.d. Noregi eða Kanada og örlítið ódýrari.“ Jóhannes Þór segir að aðgerðir gegn ferðaþjónustunni muni því ganga langt umfram það að valda at- vinnurekendum tjóni. Aðgerðirnar muni líka lenda á litlum fjölskyldu- fyrirtækjum út á landi, svo dæmi séu nefnd. „Ferðamaðurinn verður ekki kyrr á hótelinu, hann fer út á land, hann gistir á litlum gististöðum og borðar á veitingastöðunum. Ef verk- föllin verða til þess að ferðamaður- inn kemur ekki hingað, þá tapa allir.“ Morgunblaðið/Hari Samtaka Fyrstu verkfallsaðgerðir VR munu beinast að ferðaþjónustu. Boða aðgerðir gegn ferðaþjónustunni  Gæti valdið umtalsverðu tjóni, segir framkvæmdastjóri SAF Dalvegi 10-14, 201 Kópavogi - Sími: 555-1212 - handverkshusid.is Opið frá kl. 8 - 18 virka daga og 12 - 16 laugardaga GÆÐA TRÉLÍM Á FRÁBÆRU VERÐI Kjaradeilur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.