Morgunblaðið - 26.02.2019, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 26.02.2019, Qupperneq 31
MENNING 31 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. FEBRÚAR 2019 Sjöttu og síðustu tónleikarKammermúsíkklúbbsins áþessum vetri fóru fram ípurpurablálýstum Norður- ljósasal Hörpu við fjölmenna að- sókn. Sáust sem endranær fáir inn- an við fimmtugt, og er óneitanlega sláandi hve gæði virðast nú þoka meir en nokkru sinni fyrir rusli í tónneyzlu yngri hlustenda. Vonandi tekst að snúa þeirri öfugþróun við í tæka tíð áður en flestir fara á borgaralaun og gerast „gentlemen of leisure“, enda að sönnu átakanlegur vitnisburður um algert sambandsleysi í miðri tækni- byltingu tjáskipta, þar sem aldrei áður hefur verið jafn auðvelt að nálgast klassíska gimsteina og nú (t.d. á „YouTube“) fyrir hvern sem nennir að bera sig eftir þeim. Er nema von þótt maður spyrji hvað hafi brugðizt? Því nöturlegri var fjarvera erf- ingja landsins, þar eð dagskráin var ekki aðeins sérlega fjölbreytt held- ur í ofanálag flutt af viðtækum glæsibrag. T.a.m. – svo aðeins ein hlið sé nefnd – að styrkleikablæ; einn af mörgum ,parametrum‘ sem hurfu í rafmengun rokkvæðingar. Hugsanlega fremsti strokkvartett landsmanna í dag, „Siggi“, lék sér nefnilega ósjaldan að því að laða fram jafnt dulúð sem kímni með því að gæla við fíngerðustu styrkbrigði þá tilefni gafst – t.d. í „kammer- útgáfu“ Stravinskíjs af Vorblótinu er minnt gat á næturdaður í dyngju hefðarkonu á frumsteinöld. Annað var eftir því. Síðrómant- ískt kryddseiðandi æskuverk Web- erns kom ýmsum á óvart er þekkja hann aðeins af stuttaralegum tólf- tónastíl seinni ára. Þar sem víðar birtist fáguð spilamennska Sigg- verja fram í fingurgóma. Þó skorti hvorki kraft né rögg þegar með þurfti. Né heldur lét samtaka hrynskerpa á sér standa og gegndi það mestu í lokaatriðinu Op. 130, þó svo að sumt hefði kannski mátt ,sitja‘ pinku betur með ívið ríflegri rúbatóum, t.d. í þýzka dansinum (Alla tedesca, III) er hefði mátt þeyta meir pilsum í Ländler- sveiflu. Vitanlega var meistaraverk Beethovens frá 1826, ekki sízt hrynrænt séð, kröfuharðasti bitinn á tónseðli dagsins og ekki að sök- um að spyrja þótt varla væri þar allt í óaðfinnanlegu toppstandi frekar en hjá jafnvel nafntoguðustu strengjafereykjum heimsins. Mestu skipti þó að leikið var af smitandi gleði og innlifun, enda leyndi ánægja hlustenda sér ekki að leiks- lokum. Strokkvartettinn Siggi „Hugsanlega fremsti strokkvartett landsmanna í dag, „Siggi“, lék sér nefnilega ósjaldan að því að laða fram jafnt dulúð sem kímni með því að gæla við fíngerðustu styrkbrigði þá tilefni gafst – t.d. í „kammer- útgáfu“ Stravinskíjs af Vorblótinu er minnt gat á næturdaður í dyngju hefðarkonu á frumsteinöld,“ skrifar rýnir. Norðurljósum í Hörpu Kammertónleikarbbbbn Mozart: Dívertímentó í F, K138. Webern: Langsamer Satz (1905). Stravinskíj: 3 stykki fyrir strengjakvartett (1914). Beethoven: Kvartett nr. 13 í B Op. 130. Strokkvartettinn Siggi (Una Sveinbjarn- ardóttir & Helga Þóra Björgvinsdóttir fiðla, Þórunn Ósk Marínósdóttir víóla og Sigurður Bjarki Gunnarsson selló. Sunnudaginn 24.2. kl. 16. RÍKARÐUR Ö. PÁLSSON TÓNLIST Steinaldardaður Ronja Ræningjadóttir (Stóra sviðið) Sun 3/3 kl. 13:00 44.sýn Sun 31/3 kl. 13:00 Auka Sun 5/5 kl. 13:00 56.sýn Sun 3/3 kl. 16:00 45.sýn Sun 31/3 kl. 16:00 49.sýn Sun 5/5 kl. 16:00 57.sýn Sun 10/3 kl. 13:00 46.sýn Sun 7/4 kl. 13:00 50.sýn Sun 12/5 kl. 13:00 58.sýn Sun 10/3 kl. 16:00 47.sýn Sun 7/4 kl. 16:00 51.sýn Sun 12/5 kl. 16:00 59.sýn Sun 17/3 kl. 13:00 Aukas. Sun 14/4 kl. 13:00 52.sýn Sun 19/5 kl. 13:00 Auka Sun 17/3 kl. 16:00 48.sýn Sun 14/4 kl. 16:00 53.sýn Sun 19/5 kl. 16:00 Auka Sun 24/3 kl. 13:00 Auka Sun 28/4 kl. 13:00 54.sýn Sun 24/3 kl. 16:00 Auka Sun 28/4 kl. 16:00 55.sýn Stórskemmtilegur og æsispennandi söngleikur fyrir alla fjölskylduna! Einræðisherrann (Stóra Sviðið) Lau 2/3 kl. 19:30 15.sýn Lau 9/3 kl. 19:30 17.sýn Fös 29/3 kl. 19:30 19.sýn Fös 8/3 kl. 19:30 16.sýn Lau 23/3 kl. 19:39 18.sýn Fös 5/4 kl. 19:30 20.sýn Siggi Sigurjóns mætir Charlie Chaplin! Jónsmessunæturdraumur (Stóra sviðið) Mið 27/2 kl. 19:30 Fors. Fös 15/3 kl. 19:30 3.sýn Lau 6/4 kl. 19:30 7.sýn Fim 28/2 kl. 19:30 Fors. Lau 16/3 kl. 19:30 4.sýn Fös 12/4 kl. 19:30 8.sýn Fös 1/3 kl. 19:30 Frums Fös 22/3 kl. 19:30 5.sýn Fim 7/3 kl. 19:30 2.sýn Lau 30/3 kl. 19:30 6.sýn Fyndinn og erótískur gamanleikur Þitt eigið leikrit (Kúlan) Fös 1/3 kl. 18:00 11.sýn Lau 9/3 kl. 17:00 Auka Sun 24/3 kl. 17:00 20.sýn Lau 2/3 kl. 15:00 12.sýn Sun 17/3 kl. 15:00 15.sýn Lau 30/3 kl. 15:00 21.sýn Lau 2/3 kl. 17:00 Auka Sun 17/3 kl. 17:00 16.sýn Sun 31/3 kl. 15:00 22.sýn Fim 7/3 kl. 18:00 Auka Lau 23/3 kl. 15:00 17.sýn Sun 31/3 kl. 17:00 23.sýn Fös 8/3 kl. 18:00 13.sýn Lau 23/3 kl. 17:00 18.sýn Lau 6/4 kl. 15:00 24.sýn Lau 9/3 kl. 15:00 14.sýn Sun 24/3 kl. 15:00 19.sýn Sun 7/4 kl. 15:00 25.sýn Það er þitt að ákveða hvað gerist næst! Súper - þar sem kjöt snýst um fólk (Kassinn) Lau 16/3 kl. 19:30 Frums. Fim 28/3 kl. 19:30 6.sýn Mið 10/4 kl. 19:30 Aukas. Mið 20/3 kl. 19:30 2.sýn Lau 30/3 kl. 19:30 7.sýn Fim 11/4 kl. 19:30 9.sýn Fim 21/3 kl. 19:30 3.sýn Mið 3/4 kl. 19:30 Aukas. Fös 12/4 kl. 19:30 10.sýn Fös 22/3 kl. 19:30 4.sýn Fim 4/4 kl. 19:30 8.sýn Mið 27/3 kl. 19:30 5.sýn Lau 6/4 kl. 19:30 Aukas. Nýtt og bráðfyndið leikrit, fullt af "gnarrískum" húmor Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari) Mið 27/2 kl. 20:00 Mið 20/3 kl. 20:00 Mið 10/4 kl. 20:00 Mið 6/3 kl. 20:00 Mið 27/3 kl. 20:00 Mið 13/3 kl. 20:00 Mið 3/4 kl. 20:00 Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins! Mið-Ísland (Þjóðleikhúskjallarinn) Fim 28/2 kl. 19:30 Lau 2/3 kl. 19:30 Fös 8/3 kl. 19:30 Fös 1/3 kl. 19:39 Lau 2/3 kl. 22:00 Fös 8/3 kl. 22:00 Fös 1/3 kl. 22:00 Fim 7/3 kl. 19:30 Bara Góðar - Uppistandssýning (Þjóðleikhúskjallarinn) Sun 3/3 kl. 20:00 Sun 17/3 kl. 20:00 leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200 BORGARLEIKHÚSIÐ Kynntu þér nýjan tapas-matseðil Leikhúsbarsins á borgarleikhus.is Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is Matthildur (Stóra sviðið) Þri 12/3 kl. 19:00 Fors. Lau 23/3 kl. 19:00 7. s Fös 12/4 kl. 19:00 18. s Mið 13/3 kl. 19:00 Fors. Sun 24/3 kl. 19:00 8. s Lau 13/4 kl. 13:00 19. s Fim 14/3 kl. 19:00 Fors. Mið 27/3 kl. 19:00 9. s Sun 14/4 kl. 19:00 20. s Fös 15/3 kl. 19:00 Frums. Fim 28/3 kl. 19:00 10. s Þri 16/4 kl. 19:00 21. s Lau 16/3 kl. 19:00 2. s Sun 31/3 kl. 19:00 12. s Mið 24/4 kl. 19:00 22. s Sun 17/3 kl. 19:00 3. s Mið 3/4 kl. 19:00 13. s Fim 25/4 kl. 19:00 23. s Mið 20/3 kl. 19:00 4. s Fös 5/4 kl. 19:00 15. s Fös 26/4 kl. 19:00 24. s Fim 21/3 kl. 19:00 5. s Sun 7/4 kl. 19:00 16. s Sun 28/4 kl. 19:00 25. s Fös 22/3 kl. 19:00 6. s Mið 10/4 kl. 19:00 17. s Þri 30/4 kl. 19:00 26. s Miðasalan er hafin! Elly (Stóra sviðið) Fös 1/3 kl. 20:00 205. s Fös 8/3 kl. 20:00 207. s Lau 30/3 kl. 20:00 209. s Lau 2/3 kl. 20:00 206. s Lau 9/3 kl. 20:00 208. s Síðustu sýningar komnar í sölu. Ríkharður III (Stóra sviðið) Sun 3/3 kl. 20:00 14. s Fös 29/3 kl. 20:00 auka 5 stjörnur - ÞT. Morgunblaðið / 5 stjörnur - SJ. Fréttablaðið Fólk, staðir og hlutir (Litla sviðið) Mið 27/2 kl. 20:00 41. s Mið 6/3 kl. 20:00 45. s Sun 10/3 kl. 20:00 49. s Fim 28/2 kl. 20:00 42. s Fim 7/3 kl. 20:00 46. s Mið 13/3 kl. 20:00 50. s Fös 1/3 kl. 20:00 43. s Fös 8/3 kl. 20:00 47. s Lau 2/3 kl. 20:00 44. s Lau 9/3 kl. 20:00 48. s Athugið, takmarkaður sýningafjöldi. Kvenfólk (Nýja sviðið) Fös 1/3 kl. 20:00 39. s Fös 8/3 kl. 20:00 41. s Fös 15/3 kl. 20:00 43. s Lau 2/3 kl. 20:00 40. s Lau 9/3 kl. 20:00 42. s Drepfyndin sagnfræði með söngvum. Kæra Jelena (Litla sviðið) Fös 12/4 kl. 20:00 Frums. Mið 24/4 kl. 20:00 5. s Fim 2/5 kl. 20:00 9. s Lau 13/4 kl. 20:00 2. s Fim 25/4 kl. 20:00 6. s Fös 3/5 kl. 20:00 10. s Sun 14/4 kl. 20:00 3. s Fös 26/4 kl. 20:00 7. s Sun 5/5 kl. 20:00 11. s Þri 16/4 kl. 20:00 4. s Sun 28/4 kl. 20:00 8. s Mið 8/5 kl. 20:00 12. s Kvöld sem breytir lífi þínu. Club Romantica (Nýja sviðið) Fim 28/2 kl. 20:00 Frums. Sun 3/3 kl. 20:00 2. s Fim 7/3 kl. 20:00 3. s Hvað varð um konuna? Kvöldvaka með Jóni Gnarr (Litla sviðið) Lau 13/4 kl. 20:00 aukas. Aukasýning komin í sölu. Allt sem er frábært (Litla sviðið) Lau 4/5 kl. 20:00 aukas. Fim 9/5 kl. 20:00 aukas. Lau 11/5 kl. 20:00 aukas. Aukasýningar vegna mikillar eftirspurnar! 1962 MANFREÐ VILHJÁLMSSON Endurgerð af heima- smíðuðum traktor sem Manfreð Vilhjálmsson (1928) arkitekt smíðaði fyrir son sinn Vilhjálm og gaf honum á sex ára afmæli hans árið 1962. Á þessum tíma stóð Manfreð í byggingu fjöl- skylduheimilisins á Álftanesi og nýtti afgangs- krossvið sem fallið hafði til við byggingarvinnuna. Í tilefni af áttatíu ára afmæli Manfreðs voru gerð 80 númeruð eintök að frumkvæði Epal og er ein- tak 2/80 það sem til er í Hönnunarsafni Íslands. Endurgerðin var smíð- uð af Georg Hollander en hann var lengi þekktur fyrir handunnin þroska- leikföng úr viði sem hann hóf að gera undir nafninu Stubbur árið 1994 norður í Eyjafjarðarsveit. Manfreð var einn stofnenda húsgagnaverslunarinnar Kúlunnar, stofnuð sama ár og traktorinn var gerð- ur, en aðrir helstu stofnendur voru Magnús Pálsson og Dieter Roth. Þar voru m.a. seld einföld tréleikföng byggð á grunnformum og grunnlitum í svipuðum anda og Villa-traktor. Íslensk hönnun – Hönnunarsafn Íslands Villa-traktor úr afgöngum Ljósmynd/Hönnunarsafn Íslands/Elísabet V. Ingvarsdóttir skráði Hlutverk Hönnunarsafns Íslands er að safna og varðveita þann þátt íslenskrar menningarsögu sem lýtur að hönnun, eink- um frá aldamótunum 1900 til samtímans. Safnið á og geymir um 900 íslenska og erlenda muni, sem margir hafa mikla menningarsögulega þýðingu. Safnkosturinn fer sístækkandi, enda æ fleiri hönnuðir sem hasla sér völl og koma fram með vandaða gripi sem standast alþjóðlegan samanburð og eru hvort tveggja nytjamunir og/eða skrautmunir. Í tilefni af aldarafmæli fullveldis Íslands setti safnið upp sýninguna 100ár100hlutir á Instagram þar sem 100 færslur eru birtar á jafnmörgum dögum af hönnunargripum í eigu safnsins frá árunum 1918 til 2018.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.