Morgunblaðið - 05.03.2019, Qupperneq 1
Þ R I Ð J U D A G U R 5. M A R S 2 0 1 9
Stofnað 1913 54. tölublað 107. árgangur
SILJA ÞÝÐIR BÓK
UM KVENNA-
BARÁTTUNA
FRÖNSK
STEMNING Í
HÁDEGINU
PRJÓNAMESSA Í
LANDAKIRKJU Í
VESTMANNAEYJUM
BERGÞÓR OG ANTONÍA Í HAFNARBORG 30 ÞEMAMESSUR 6ÁFRAM KONUR! 12
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Áfram eru stíf fundahöld undir stjórn
ríkissáttasemjara í kjaradeilu Sam-
taka atvinnulífsins og Starfsgreina-
sambands Íslands, samflots iðnaðar-
manna og Landssambands íslenskra
iðnaðarmanna. Boðaðir eru daglegir
fundir fram á föstudag en að sögn
Bryndísar Hlöðversdóttur ríkis-
sáttasemjara eru vikulokin engin
endastöð í viðræðunum heldur verð-
ur þeim haldið áfram eftir þörfum.
Ríkissáttasemjari ákvað í gær að
boða samninganefndir í deilu SA og
verkalýðsfélaganna fjögurra sem
slitu viðræðum á dögunum og undir-
búa nú atkvæðagreiðslur um vinnu-
stöðvanir til sáttafundar klukkan 10
á fimmtudag. Þá verða liðnir 14 dag-
ar frá því viðræðunum var slitið en
ríkissáttasemjara ber að boða sátta-
fundi í deilum eigi sjaldnar en á fjór-
tán daga fresti.
Fyrsta verkfall Eflingar á hótelum
og gististöðum er boðað nú á föstu-
dag. Samtök atvinnulífsins telja boð-
un þess andstæða lögum. Málið var
tekið fyrir í Félagsdómi í gær og er
búist við dómi á morgun, miðviku-
dag.
Miðlunartillaga ekki rædd
Samningar á almenna vinnumark-
aðnum hafa nú verið lausir í níu vik-
ur. Ríkissáttasemjari hefur sam-
kvæmt vinnulöggjöfinni heimild til að
leggja fram miðlunartillögu til að
leysa vinnudeilur hafi sáttaumleitan-
ir ekki borið árangur. Slíka tillögu
ber að leggja beint undir atkvæði fé-
lagsmanna til samþykktar eða synj-
unar. Bryndís segir að ekki hafi kom-
ið til tals að leggja slíka tillögu fram
núna.
Fundað stíft í Karphúsi
Ekki hefur komið til tals að ríkissáttasemjari leggi fram miðlunartillögu í kjara-
deilum Búist er við dómi Félagsdóms um lögmæti verkfalls Eflingar á morgun
MReyna að ná saman »4
Kjaradeilur
» Verkfall Eflingar hjá þernum
á hótelum og gististöðum er
boðað á föstudag, frá kl. 10 til
miðnættis.
» Atkvæðagreiðsla Eflingar
um boðun verkfalla á til-
greindum hótelum og hjá fyrir-
tækjum í hópferðaakstri hófst
á hádegi í gær og stendur fram
á laugardag.
Morgunblaðið/Hari
Félagsdómur Kæra SA á hendur Eflingu stéttarfélagi vegna deilna um lögmæti verkfalls á hótelum og gististöðum var tekin fyrir í Félagsdómi í gær.
Í Reykjavíkur-
borg eru ýmis
tækifæri til að
auka kaupmátt
og létta byrðar
vegna húsnæðis.
Þannig getur
borgin komið
með innlegg í yf-
irstandandi
kjaraviðræður.
Þetta er mat Ey-
þórs Arnalds, oddvita Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjavík, en flokkurinn
hyggst leggja fram tillögu í fjórum
liðum, svokallaðan kjarapakka, á
borgarstjórnarfundi í dag.
Í pakkanum felst að útsvarið í
borginni verði lækkað úr 14,52% í
14%, rekstrargjöld heimilanna lækki
um 36 þúsund krónur að jafnaði á
ársgrundvelli, fallið verði frá sér-
stökum innviðagjöldum og hagstætt
húsnæði verði tryggt. Í því sam-
bandi er horft til Keldnalands. „Við
leggjum til að farið verði í að skipu-
leggja Keldnalandið fyrir stofnanir,
fyrirtæki og hagstætt húsnæði án
fyrirvara,“ segir Eyþór í aðsendri
grein í Morgunblaðinu í dag. „Upp-
bygging á hagstæðum svæðum í
Reykjavík myndi létta á umferð-
inni,“ segir í grein Eyþórs.
Varðandi fjármögnun þessa er
lagt til að breyta arðgreiðsluáform-
um Orkuveitu Reykjavíkur með því
að falla frá helmingi arðgreiðslna
Orkuveitunnar og með því að bæta
innkaup borgarinnar. Þar sé hægt
að gera miklu betur og að auki hafi
skort á aðhald í mörgum verkefnum.
Spurður hvort hann telji að sveit-
arfélögin eigi almennt að koma með
innlegg í kjaraviðræðurnar, segir
Eyþór að þau hafi mismikið svigrúm
til aðgerða. Hann segist bjartsýnn á
að sátt náist um tillögurnar að hluta
eða í heild. „Þetta eru allt jákvæðar
tillögur,“ segir hann. »10 og 19
Leggja
til kjara-
pakka
Eyþór
Arnalds
Segir Reykjavík
hafa ýmis tækifæri
Læknafélag Ís-
lands telur að
ekki hafi verið
tekið mark á at-
hugasemdum
sem læknar
gerðu í desember
við tillögu heil-
brigðisráðherra
að heilbrigðis-
stefnu til 2030.
Lýsti félagið sig
reiðubúið til þess að funda með ráð-
herra um tillögur LÍ, sem eru 22
blaðsíður. Formaður félagsins segir
engan hafa haft samband við félag-
ið til þess að ræða athugasemdir
læknanna. »18
Samráðsleysi
veldur vonbrigðum
Læknar Þeir segja
samráð vera lítið.
Gjaldskyldum bílastæðum við
Landspítalann var fjölgað umtals-
vert síðastliðinn föstudag. Með því
vilja stjórnendur spítalans auðvelda
aðgengi þeirra sem heimsækja spít-
alann.
Vegna framkvæmda við bygg-
ingu nýs Landspítala hefur verið
þrengt að aðgengi að spítalanum.
Hefur fólk lent í vandræðum með
að komast að spítalanum. Dæmi er
um að fólk hafi hætt við heimsókn-
ir.
Ingólfur Þórisson, framkvæmda-
stjóri rekstrarsviðs Landspítalans,
segir að búið sé að tvöfalda þann
fjölda stæða sem ætluð eru gest-
komandi. Þau eru næst inngöngum
spítalans. „Þetta er eina leiðin til að
hafa stæðin laus. Þeir sem stoppa
lengur leggja fjær,“ segir Ingólfur
Þórisson.
Að hans sögn eru nú um 200
gjaldskyld bílastæði við Landspít-
alann af alls um 1.100 bílastæðum
þar. »2
Fleiri stæði við Landspítalann gjaldskyld
Morgunblaðið/Eggert
Landspítalinn Gestir spítalans freistast
til að leggja á grasi og gangstéttum.
Tiltölulega fámennar þjóðir eru
að verða heilbrigðastar allra þjóða,
samkvæmt grein sem Bloomberg-
fréttastofan birti nýverið. Þegar
þjóðum er raðað eftir tölum um
heilbrigði, efnahag og hamingju
eru fjölmennustu þjóðir heimsins
og með öflug hagkerfi að færast
aftar í röðina.
Samkvæmt heilbrigðisvísitölu
Bloomberg eru Spánverjar nú heil-
brigðasta þjóð í heimi með 92,8
stig, Ítalir í öðru sæti með 91,6 stig
og Íslendingar í því þriðja með 91,4
stig.
Vellíðanarvísitala heimsins (In-
digo vísitalan), sem fjárfestinga-
félagið LetterOne gaf út, setti Kan-
ada í 1. sæti en 151 þjóð var metin.
Ísland lenti í 3. sæti en Óman
vermdi 2. sætið.
Tekið var tillit til þátta eins og
hættu á sykursýki, lífslíkna, blóð-
þrýstings, offitu, þunglyndis, ham-
ingju, áfengis- og tóbaksneyslu,
hreyfingarleysis og eyðslu. »6
Íslendingar njóta heilsu og vellíðanar
GettyImages/iStockphoto
Heilsa Íslendingar eru þriðja heilbrigð-
asta þjóðin samkvæmt heilbrigðisvísitölu.