Morgunblaðið - 05.03.2019, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 05.03.2019, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. MARS 2019 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Ég rölti þarna um í [gær]morgun og skoðaði ástandið. Það var þó nokkuð af lausum stæðum,“ segir Ingólfur Þórisson, framkvæmda- stjóri rekstrarsviðs Landspítalans. Á föstudag var gjaldskyldum stæð- um við spítalann fjölgað umtals- vert. Með því vilja stjórnendur auð- velda aðgengi þeirra sem heim- sækja spítalann. Sem kunnugt er standa yfir framkvæmdir við bygg- ingu nýs Landspítala og af þeim sökum hefur verið þrengt að að- gengi gesta. „Við tvöfölduðum þann fjölda stæða sem ætluð eru gestkomandi við spítalann. Þessi stæði eru næst inngöngum spítalans. Þau eru á gjaldsvæði 4 hjá Bílastæðasjóði, sem er ódýrasti flokkurinn. Þetta er eina leiðin til að hafa stæðin laus. Þeir sem stoppa lengur leggja þá fjær,“ segir Ingólfur. Hann áætlar að um 1.100 bíla- stæði séu við Landspítalann og nú séu gjaldskyld stæði nálægt 200. Stæðin sem færð voru undir gjald- skyldu voru fram að þessu ókeypis. Morgunblaðið hefur haft spurnir af fólki sem lent hefur í vandræðum með að komast að Landspítalanum. Dæmi eru um að fólk hafi hætt við heimsóknir þangað. Þá er hermt að þess séu dæmi að fólk hafi lagt bíl sínum við BSÍ og tekið leigubíl að inngangi spítalans til að sækja þangað þjónustu. Ingólfur kveðst ekki kannast við slík tilfelli en játar að fjölgun gjaldskyldra stæða sé viðleitni til að bregðast við óvið- unandi ástandi. „Þetta hefur staðið til síðan í haust en þetta er langt ferli. Það þarf að samþykkja svona ráðstöfun í ráðum hjá borginni og svo að aug- lýsa þetta í Lögbirtingablaðinu. Við vonum að þetta lagi ástandið og fylgjumst grannt með því. Ef þetta dugar ekki þá erum við tilbúin í næsta skref, að fjölga gjaldskyld- um stæðum enn frekar.“ Ingólfur segir að þetta sé ekki gert til að afla tekna, spítalinn fái minnst af þessum tekjum. Mark- miðið sé fyrst og fremst að sjá til þess að nóg sé af lausum stæðum. Tvöfalda fjölda gjaldskyldra stæða  Stjórnendur Landspítalans reyna að bæta aðgengi að spítalanum, en það hefur verið skert vegna framkvæmda við nýjan spítala  Gjaldskyld stæði nú um 200  Hefur verið í undirbúningi síðan í haust Morgunblaðið/Eggert Gjaldskylda Nú eru um 200 gjaldskyld stæði við innganga Landspítalans. Þrengsli Þessi fann sér ekki löglegt stæði í gær og uppskar sektarmiða. „Við höfum fengið tilkynningar frá fólki og komum þeim á framfæri við viðkomandi sveitarfélög eða Vega- gerðina. Okkar tilfinning er að fólk sé meðvitaðra en áður um að til- kynna um holur á vegum,“ segir Runólfur Ólafsson, framkvæmda- stjóri Félags íslenskra bifreiðaeig- enda. Nú er runninn upp sá árstími þeg- ar holur koma í ljós í malbiki á veg- um, bæði í þéttbýli og á þjóðvegum landsins. Þetta gerist jafnan þegar þíða kemur í kjölfar frosts og kulda. Holur sem þessar geta haft mikla hættu í för með sér. „Þetta skapar auðvitað verulega hættu. Annars vegar á tjóni en einnig að fólk missi stjórn á ökutækjunum og ógni þar með öryggi í umferðinni,“ segir Runólfur. Hann segir að sem betur fer sé ástandið nú ekki eins slæmt og síðustu 2-3 ár og að það megi rekja til betri tíðar og þess að fyrr sé brugðist við ábendingum um holur en áður. „Viðbrögð fulltrúa sveitarfélag- anna og Vegagerðarinnar hafa í flestum tilvikum verið jákvæð. Menn vilja vera á tánum enda er það öllum í hag að grípa fljótt inn í.“ hdm@mbl.is Morgunblaðið/Eggert Hætta Þessi hola í malbikinu á Bústaðavegi skapar hættu í umferðinni og þurfa ökumenn að gæta að sér. Holur skapa verulega hættu í umferðinni Dagurinn í dag er líklega uppáhaldsdagur margra Ís- lendinga; sprengidagur sem margir halda upp á með því að borða saltkjöt og baunir. Forsjálir tryggðu sér góðgætið tímanlega, eins og sjá mátti þegar ljósmynd- ara Morgunblaðsins bar að garði í verslun Nóatúns í gær. Sprengidagur er alltaf á þriðjudegi sjö vikum fyr- ir páska og á rætur sínar að rekja til mikillar kjöthátíð- ar á undan páskaföstu í kaþólskum sið. Morgunblaðið/Eggert Saltkjöt og baunir – túkall! Björgunarleiðangur var gerður út á Urriðakotsvatn í gær til að bjarga álft sem hætt var að nærast vegna þess að hún hafði fest dós í goggi sínum. Vel gekk að ná álftinni og var hún flutt í Húsdýragarðinn þar sem hún verður í góðum höndum á með- an hún er að ná sér. Hún var með sár. Að sögn Ólafs Karls Nielsen, fuglafræðings hjá Náttúrufræði- stofnun, var álftin aðframkomin og hafði lagst niður til að deyja þegar björgunarmenn komu að henni á báti. Ekki hafi mátt tæpara standa. Ólafur telur að álftin nái góðum bata í Húsdýragarðinum. Þar var hún farin að skoða sig um í búrinu skömmu eftir komuna. Álftin hafði verið með dósina fasta í gogginum í að minnsta kosti tvær vikur og hafa íbúar í hverfinu haft áhyggjur af henni. Álftin með dósina komin í Húsdýragarðinn Morgunblaðið/Eggert Björgun Björgunarmaður á leið með fuglinn í Húsdýragarðinn. Brjóstmynd af Ólafi Ragnari Grímssyni, fyrr- verandi forseta Íslands, var afhjúpuð á Bessa- stöðum í gærkvöldi. Katrín Jakobsdóttir for- sætisráðherra afhjúpaði myndina og flutti ávarp af þessu tilefni og það gerðu einnig Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, Ólafur Ragnar og Helgi Gíslason, sem er höfundur verksins. Myndinni verður komið fyrir á efri hæð Bessastaðastofu þar sem fyrir eru brjóstmynd- ir af öðrum fyrrverandi forsetum lýðveldisins. Ólafur Ragnar kominn aftur á Bessastaði Ljósmynd/Gunnar G. Vigfússon

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.