Morgunblaðið - 05.03.2019, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 05.03.2019, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. MARS 2019 Veður víða um heim 4.3., kl. 18.00 Reykjavík 0 léttskýjað Hólar í Dýrafirði -1 snjókoma Akureyri -1 skýjað Egilsstaðir 0 snjókoma Vatnsskarðshólar 2 skýjað Nuuk -3 snjóél Þórshöfn 3 skúrir Ósló 1 rigning Kaupmannahöfn 5 rigning Stokkhólmur 0 rigning Helsinki -2 skýjað Lúxemborg 6 rigning Brussel 8 rigning Dublin 4 léttskýjað Glasgow 7 skúrir London 8 skúrir París 8 rigning Amsterdam 8 rigning Hamborg 6 skúrir Berlín 12 skúrir Vín 15 heiðskírt Moskva 0 snjókoma Algarve 16 rigning Madríd 15 léttskýjað Barcelona 17 léttskýjað Mallorca 20 heiðskírt Róm 14 léttskýjað Aþena 13 heiðskírt Winnipeg -14 snjókoma Montreal -3 snjókoma New York 1 rigning Chicago -15 heiðskírt Orlando 26 rigning  5. mars Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 8:22 18:57 ÍSAFJÖRÐUR 8:31 18:58 SIGLUFJÖRÐUR 8:14 18:41 DJÚPIVOGUR 7:53 18:26 VEÐUR KL. 12 Í DAG Á miðvikudag Norðaustan 3-10 m/s. Léttskýjað á SV- og V-landi, en snjókoma A-lands og stöku él ann- ars staðar. Frost 0 til 8 stig. Á fimmtudag Áfram kalt í veðri. Hæg norðlæg eða breytileg átt og bjart með köflum, en él á stöku stað. Hiti um eða yfir frost- marki sunnan heiða að deginum en 0 til 7 stiga frost annars staðar. Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Atvinnuveganefnd Alþingis er þessa dagana í heimsókn í Björg- vin í Noregi. Allir nefndarmenn- irnir eru með í för auk ritara at- vinnuveganefndar og er tilgangur ferðarinnar að kynna sér málefni fiskeldis í Noregi að sögn Lilju Rafneyjar Magnúsdóttur, for- manns nefndarinnar. „Við höfum unnið að því að fara í kynnisferð til Bergen til að kynna okkur umfang fiskeldis í Noregi og stöðu þess,“ segir hún. Þingmennirnir fóru utan í gær og stendur heimsóknin yfir fram á næsta föstudag, 8. mars. Sækja sjávarútvegssýningu Lilja Rafney segir að dagskráin sé þétt næstu þrjá daga. Í ferðinni ætla þingmennirnir líka að sækja sjávarútvegssýningu en sjáv- arútvegsráðstefnan North Atlantic Seafood Forum er haldin dagana 5.-7. mars í Björgvin. „Það kom til tals í fyrra þegar [fiskveldisfrumvarpið ] kom fram að nauðsynlegt væri að kynna sér hvernig þetta hefði gengið í Nor- egi, hvað væri vel gert og hvað þyrfti að varast. Við höfum verið með þetta í pípunum og frumvarp ráðherra er á leiðinni inn í þingið svo það er gott að nota tímann áð- ur en það kemur fram,“ segir Lilja Rafney. Kynna sér fiskeldi í Noregi Björgvin Alþingismenn í atvinnuveganefnd Alþingis eru þessa dagana í heimsókn í Noregi til að kynna sér reynslu Norðmanna af fiskeldi.  Atvinnuveganefnd í Björgvin í Noregi Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Sleitulaus fundahöld fara fram frá morgni til kvölds undir stjórn ríkis- sáttasemjara í deilu Samtaka at- vinnulífsins og Starfsgreinasam- bandsins, samflots iðnaðarmanna og Landssambands íslenskra verslun- armanna. Boðaðir eru daglegir fund- ir fram á föstudag en að sögn Bryn- dísar Hlöðversdóttur ríkissátta- semjara eru vikulokin engin enda- stöð á viðræðunum heldur verður þeim haldið áfram eins og þörf kref- ur. Samningar á almenna vinnumark- aðinum hafa nú verið lausir í níu vik- ur. Ríkissáttasemjari hefur heimild í vinnulöggjöfinni til að leggja fram miðlunartillögu til lausnar vinnu- deilna hafi sáttaumleitanir ekki borið árangur. Skilyrði þess er þó að við- ræður hafi ekki borið árangur og að þeim tíma sem ætlaður var til við- ræðna sé lokið. Ef sáttasemjari gríp- ur til þessa ráðs ber forystumönnum félaganna að leggja miðlunartillög- una beint undir atkvæði félagsmanna til samþykktar eða synjunar eins og um kjarasamning væri að ræða. Spurð hvort framlagning miðlun- artillögu komi til álita segir Bryndís: „Það er mjög langt frá því að farið sé að hugsa það eitthvað núna en það er alltaf úrræði sem ég hef úr að spila og beiti ef ég sé flöt á því að það muni leysa málið. En það hefur ekkert slíkt komið til tals núna,“ segir hún. SA, Efling, VR, VLFA og VLFG boðuð til fundar á fimmtudag Að sögn Bryndísar hafa viðræð- urnar sem nú standa yfir hjá embætt- inu að öllu leyti gengið samkvæmt áætlun. Í allan gærdag voru samn- ingamenn LÍV og SA á fundum og aðrir viðsemjendur voru einnig að vinna í samningamálum í einstökum hópum. Bryndís ákvað svo í gær að boða deilendur í deilu SA og verka- lýðsfélaganna fjögurra sem slitu við- ræðum á dögunum og undirbúa nú at- kvæðagreiðslur um vinnustöðvanir, til sáttafundar kl. 10 á fimmtudaginn. Búist er við dómi Félagsdóms í máli SA á hendur Eflingar næstkom- andi miðvikudag en SA krefjast þess að boðað verkfall næstkomandi föstu- dag verði dæmt ólögmætt. Kæran var tekin fyrir í Félagsdómi í gær. Ríkissáttasemjari tilnefndi fyrr í vetur hóp aðstoðarsáttasemjara til aðstoðar við lausn vinnudeilna og hafa Elísabet S. Ólafsdóttir og Ást- ráður Haraldsson þegar verið kölluð til og fleiri verða líkast til fengnir að borðinu innan skamms þegar verk- efnin þyngjast í húsnæði sáttasemj- ara. Bryndís segir aðstoðarsátta- semjarana alla vera í annarri vinnu og þeir því kallaðir til eftir því sem þeir hafa tök á og eftir þörfum sáttasemj- ara. „Núna þegar þetta fer að þyngj- ast geri ég ráð fyrir að fleiri komi inn,“ segir hún og bendir á að það styttist í að opinberu félögin kunni að banka upp á því rúmlega 150 samn- ingar þeirra losna í lok þessa mán- aðar. Efling, VR og Verkalýðsfélag Akraness eru þessa dagana að und- irbúa sig fyrir atkvæðagreiðslur um boðun verkfalla og reiknað er með að í kvöld muni stjórn Verkalýðsfélags Grindavíkur ákveða aðgerðaáætlun vegna vinnustöðvana á félagssvæði þess. Reyna að ná saman á stífum fundum  Ekki komið til tals að leggja fram miðlunartillögu að sögn Bryndísar Hlöðversdóttur ríkissáttasemjara  ,,Það er alltaf úrræði sem ég hef úr að spila og beiti ef ég sé flöt á því að það muni leysa málið“ Vinnudeilur » Níu vikur eru liðnar frá því að kjarasamningar á almenn- um markaði runnu út » Málflutningur hófst í gær í Félagsdómi í máli SA gegn Efl- ingu vegna boðaðs verkfalls 8. mars. » VR boðar til opins upplýs- ingafundar fyrir félagsmenn í kvöld til að ræða stöðu kjara- viðræðna og fyrirhugaðar verk- fallsaðgerðir. Morgunblaðið/Hari Dómsalur Kæra Samtaka atvinnulífsins á hendur Eflingu vegna verkfallsboðunar var tekin fyrir í Félagsdómi í gær. „Mér fannst rétt að skoða þetta fyr- irkomulag aðeins og kynnti ríkis- stjórninni það,“ segir Sigríður Á. Andersen dómsmálaráðherra. Á rík- isstjórnarfundi í gær kynnti hún fyr- irkomulag öryggiseftirlits á Kefla- víkurflugvelli. Í október síðastliðnum voru tekn- ar upp á Keflavíkurflugvelli auknar öryggisráðstafanir fyrir farþega á leið til Bandaríkjanna. Eru þær gerðar að kröfu bandarískra stjórn- valda. Þessar kröfur fela það í sér að farþegar eru teknir í stutt viðtöl á meðan þeir bíða eftir að innrita far- angur sinn eða áður en þeir fara í gegnum öryggishlið. Þá eru vega- bréf farþega skönnuð. Framkvæmd þessa eftirlits er í höndum verktaka á vegum flugfélaganna. „Bandarísk yfirvöld gera ríkari kröfur til flugrekstraraðila sem fljúga þangað um að viðhafa tiltekið eftirlit við innritun í flug. Mér skilst að þetta séu spurningar í líkingu við þær sem fólk fær þegar það kemur til Bandaríkjanna en að svörin séu ekki skráð neins staðar. Þetta eftirlit er ekki á vegum íslenskra stjórn- valda en það hefur verið í um- ræðunni og því lét ég skoða það,“ segir Sigríður Á. Andersen. Svör frá Icelandair um fram- kvæmd þessa eftirlits bárust ekki frá fyrirtækinu fyrir dagslok í gær. Þeg- ar þetta aukna eftirlit var tekið upp sagði þáverandi upplýsingafulltrúi fyrirtækisins að það ætti ekki að hafa mikil áhrif á innritunartíma far- þega. Sagði hann jafnframt að flug- félögin bæru kostnaðinn við eftirlit- ið. hdm@mbl.is Ræddi öryggiseft- irlit í ríkisstjórn  Nýtt fyrirkomulag Bandaríkjaflugs GÆÐI – ÞEKKING – ÞJÓNUSTA Ertu klár fyrir veturinn? Við hreinsum úlpur, dúnúlpur, kápur og frakka

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.