Morgunblaðið - 05.03.2019, Síða 6

Morgunblaðið - 05.03.2019, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. MARS 2019 Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is „Leiðtogi í æskulýðsstarfinu flutti hugvekju sem hann kallaði Þú færð seint aftur annað líf, í tölvu- leikjamessu á sunnudaginn og lagði út frá því að aðeins í tölvuleikjum hafi þátttakendur færi á fleiri lífum en einu,“ segir Guðmundur Örn Jónsson, sóknarprestur í Landa- kirkju í Vestmannaeyjum. Hann segir að vel hafi tekist til með tölvu- leikjamessuna sem er þriðja messan af fjórum í þemamessum. „Með þemamessunum fáum við fram ný sjónarhorn og náum fleira og fjölbreyttara fólki í kirkjuna,“ segir Guðmundur sem segir jákvætt að kirkjusókn í almennar messur hafi aukist milli ára þrátt fyrir að fermingarhópurinn sé óvenju lítill í ár og jafnvel sá minnsti ef mark sé tekið á því sem elstu menn muna. Kirkjusókn hafi aðeins minnkað á hátíðardögum kirkjunnar milli ára. Að sögn Guðmundar flutti fulltrúi frá Gídeon ávarp í Gídeonmessunni sem var fyrsta þemamessan. Þar á eftir kom prjónamessa þar sem Við- ar Stefánsson prestur, sem að mati Guðmundar hefur komið með fersk- an blæ inn í safnaðarstarfið, prjónaði saman og flutti predikun á meðan konur prjónuðu bleikar borðtuskur sem seldar voru til styrktar Krabba- vörn í Vestmannaeyjum. „Í tölvuleikjamessunni var flutt tölvuleikjamúsík. Krakkar og ung- lingar þekktu flest lögin en fullorðna fólkið kannaðist við fátt eða ekkert. Messan opnaði augu fólks fyrir þeirri miklu tónlist sem er í tölvu- leikjum,“ segir Guðmundur og bætir við að um tónlistarstjórn í þema- messu sjái Gísli Stefánsson æsku- lýðsfulltrúi. „Ég á von á ljósafjöri og að allir mæti í glimmergalla til að hlusta á diskótónlist í diskómessunni 7. apríl. En það er eitt þema sem mig hefur dreymt um frá því að ég hóf störf sem prestur í Eyjum og það er pönkmessa,“ segir Guðmundur sem á í fórum sínum pönkútsetningar á fjórum sálmum. Hann segir að það hugnist ekki öllum að halda pönk- messu en sem gamall pönkari muni hann ekki gefast upp. Guðmundur segir að íbúum af er- lendu bergi brotnum hafi fjölgað töluvert í Eyjum og kirkjan komi til móts þann hóp. „Í hverjum mánuði kemur kaþ- ólskur prestur úr Reykjavík og sér um kaþólska messu. Fjölmenning- armessa var haldin í fyrra og stefnt er að því að svo verði árlega. Í fjöl- menningarmessu er talað og sungið á mörgum tungumálum. Eftir messu er boðið til samveru þar sem matur frá ýmsum löndum er borinn fram,“ segir Guðmundur og bætir við að ÍBV-messan sé á sínum stað. Skólamessur eru á haustin og end- urvekja eigi starfstengdar messur þar sem kirkjugestir fá að kynnast starfsgreinum eða fyrirtækjum. Hjálpsemi Kirkjugestir í prjónamessu í Landakirkju prjóna til styrktar Krabbavörn í Vestmannaeyjum á meðan þeir njóta tals og tóna. Prjóna- og tölvuleikja- messur í Landakirku  Almenn messusókn hefur aukist  Presturinn vill pönk Eitt líf Ásgeir Þorvaldsson flytur áhugaverða hugvekju í tölvuleikjamessu. Guðni Einarsson gudni@mbl.is Tiltölulega fámennar þjóðir eru að verða heilbrigðastar allra þjóða, samkvæmt grein sem Bloomberg- fréttastofan birti nýverið. Þegar þjóðum er raðað eftir tölum um heil- brigði, efnahag og hamingju eru fjöl- mennustu þjóðir heimsins og með öflug hagkerfi að færast aftar í röð- ina. Samkvæmt heilbrigðisvísitölu Bloomberg eru Spánverjar nú heil- brigðasta þjóð í heimi með 92,8 stig, Ítalir í öðru sæti með 91,6 stig og Ís- lendingar í því þriðja með 91,4 stig. Útreikningur vísitölunnar byggist á greiningu á tölum frá Alþjóðaheil- brigðismálastofnuninni (WHO). Bloomberg reiknar vísitöluna út fyrir 169 hagkerfi um allan heim. Við útreikningana eru teknir til greina þeir þættir sem stuðla að auknu heil- brigði. Spánverjar voru í sjötta sæti þegar vísitalan var reiknuð út árið 2017 og tóku því stórt stökk í ár. Auk Spánverja, Ítala og Íslend- inga voru þrjár aðar Evrópuþjóðir í tíu efstu sætum listans. Þær voru Svisslendingar í 5. sæti, Svíar í 6. sæti og Norðmenn í 9. sæti. Japanir töldust vera heilbrigðastir Asíuþjóða samkvæmt vísitölunni og 4. heil- brigðasta þjóð í heimi. Ástralía og Ísrael komust einnig inn á topp tíu listann. Lífslíkur eru eitt þeirra atriða sem koma þjóðum til góða við útreikning vísitölunnar en tóbaksnotkun og of- fita draga þjóðir niður. Einnig eru teknir til greina umhverfisþættir eins og aðgangur að hreinu vatni og hreinlætismál og fleira. Langlífir Spánverjar Spánskir nýburar eiga mestar lífs- líkur nýbura í Evrópusambandinu og fylgja nýburum í Japan og Sviss fast eftir á heimsvísu, samkvæmt töl- um Sameinuðu þjóðanna. Því er spáð að árið 2040 lifi Spánverjar lengst allra þjóða og nái nærri 86 ára aldri að meðaltali, samkvæmt niðurstöð- um stofnunar um heilbrigðistölfræði við Washington-háskóla. Samkvæmt skýrslu evrópskrar stofnunar um heilbrigðismál og stefnu í heilbrigðismálum á Spáni 2018 veittu opinberar stofnanir þar í landi, sérfróðir heilsugæslulæknar og hjúkrunarfræðingar, megnið af frumheilbrigðisþjónustu við börn, konur og aldraða sjúklinga auk bráðaþjónustu og langtímaþjónustu. Dregið hafði úr tíðni hjarta- og æða- sjúkdóma og dauðsföllum vegna krabbameina. Vísindamenn segja að matarvenj- ur geti skýrt góða útkomu Spánverja og Ítala. Miðjarðarhafsmataræðið eigi þar þátt og neysla á jómfrúar ólífuolíu eða hnetum dragi meira úr hættu á hjarta- og æðasjúkdómum en neysla fituskerts fæðis, sam- kvæmt rannsókn sem gerð var við læknadeild Navarra-háskóla á Spáni. Íslendingar verma 3. sætið  Heilbrigðisvísitala Bloomberg birt Heilbrigðustu þjóðir í heimi Ísland 91,4 Noregur 89,1 Svíþjóð 90,2 Sviss 90,9 Bandaríkin 73 Japan 91,4 Ísrael 88,2 Singapore 89,3Spánn 92,8 Ítalía 91,6 Ástralía 89,8 Heilbrigðisvísitala Bloomberg var reiknuð út fyrir 169 þjóðir. Þjóðirnar tíu sem skoruðu hæst auk Bandaríkjanna. Heimild: Bloomberg greining á tölum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) Lægst Hæst Engar tölur Í gær var skrifað undir samning við Björgun ehf. um framkvæmdir við fyrsta áfanga við lengingu á Norð- urgarði Grundarfjarðarhafnar. Í framkvæmdunum felst dæling púða undir 130 metra lengingu garðsins, en verkið var boðið út í janúar síð- astliðnum. Í frétt á Facebook-síðu Grundar- fjarðarbæjar segir að með lenging- unni verði dýpi á stórstraumsfjöru um 10 metrar og því verði hægt að taka á móti stærri og djúpristari skipum en nú er hægt. Við framkvæmdina skapast einn- ig tæplega 5.000 m² nýtt athafna- svæði, að því er segir á Facebook- síðunni, en nú er athafnasvæðið á Norðurgarði um 4.200 m². Undirbúningur framkvæmdanna hefur staðið í hartnær tvö ár og framkvæmdatími er áætlaður um tvö ár. Gert er ráð fyrir að dýpkunar- skipið Sóley hefji dælingu í höfn- inni núna í vikunni. Umfangsmiklar hafnarframkvæmdir á Grundarfirði Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi Sími 535 4300 · axis.is Vandaðar íslenskar innréttingar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.