Morgunblaðið - 05.03.2019, Síða 10

Morgunblaðið - 05.03.2019, Síða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. MARS 2019 Erla María Markúsdóttir erla@mbl.is Sérstaða Reykjavíkurborgar býður upp á lausnir í kjaraviðræðum, að mati Eyþórs Laxdal Arnalds, oddvita Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Flokkurinn mun leggja fram tillögu í fjórum liðum á borgarstjórnarfundi í dag sem innlegg borgarinnar í yfir- standandi kjaraviðræður. Borgarstjórnarflokkurinn leggur til að útsvarsprósenta í Reykjavík verði lækkuð úr 14,52% í 14% á næsta ári. Með breytingunni færi útsvars- prósentan úr því að vera sú hæsta í það að vera sú fjórða hæsta yfir öll sveitarfélög á landinu. Kostnaður við útsvarslækkun 1,9 milljarðar „Þegar stærsta sveitarfélagið er með hæsta útsvarið ætti að vera svig- rúm til lækkunar,“ sagði Eyþór í sam- tali við mbl.is. Áætlaður kostnaður borgarinnar á þessu ári svo að tillag- an verði að veruleika á næsta ári er 1,9 milljarðar. Aðgerðin verður að öðru leyti fjármögnuð með bættum innkaupum borgarinnar. „Bara fjár- festingarnar á ári eru 20 milljarðar og við höfum séð að það hefur ekki verið mikið aðhald í mörgum verkefnum. Það er hægt að gera miklu betur í inn- kaupum borgarinnar, um það eru flestir sammála, og við teljum að það sé besta leiðin.“ Önnur tillagan felur í sér að lækka rekstrargjöld heimilanna, sem nemi um 36 þúsund krónum á heimili í borginni að jafnaði á ársgrundvelli. Lagt er til að aðgerðin verði fjár- mögnuð með breyttum arðgreiðslu- áformum Orkuveitu Reykjavíkur, með því að falla frá helmingi arð- greiðslna Orkuveitunnar. Til viðbótar er lagt til að borgin tryggi hagstætt húsnæði og að samið verði við ríkið um kaup á Keldna- landi og að á svæðinu verði farið í taf- arlausa uppbyggingu með áherslu á hagkvæmt húsnæði. Þá verði fallið frá sérstökum innviðagjöldum og bygg- ingarréttargjöldum stillt í hóf. Eyþór telur að borgin hafi fjárfest í lóðum á of dýrum svæðum síðustu ár og því þurfi að breyta. „Borgin þarf fyrst og fremst að hafa lóðir á hagstæðu verði. Sú áhersla sem hefur verið, að byggja upp á dýrum þéttingarsvæðum, leiðir til þess að það verða til dýrar íbúðir, en það vantar líka hagstæðar íbúðir.“ Ættu að koma að kjaraviðræðum Aðspurður hvort sveitarfélögin ættu almennt að koma með innlegg í kjaraviðræður, segir Eyþór: „Sum geta það, önnur ekki. En það skiptir langmestu máli hvað borgin gerir varðandi það að hafa ekki út- svarið hærra heldur en hinir, varð- andi það að vera ekki með skort á byggingarlandi og að Orkuveitan sé hófleg.“ Tillögurnar verða, sem fyrr segir, lagðar fram á fundi borgarstjórnar í dag. Eyþór segist bjartsýnn á að sátt náist um tillögurnar, að minnsta kosti hluta þeirra. „Þetta eru allt jákvæðar tillögur. Nú hefur borgarstjóri hafnað því að lækka útsvar en hann hefur tækifæri til að styðja hina þættina.“ Bætt innkaup fjármagni lægra útsvar Morgunblaðið/Eggert Kjarapakki Eyþór Laxdal Arnalds kynnir tillögur sjálfstæðismanna.  Borgarstjórnarhópur Sjálfstæðisflokksins leggur fram kjarapakka sem innlegg í kjaraviðræður  Tillaga um að útsvar lækki í 14%, samið verði um kaup á Keldnalandi og fallið frá innviðagjöldum Atkvæðagreiðsla um VERKFALLSBOÐUNVR VR • Kringlunni 7 • 103 Reykjavík • Sími: 510 1700 • vr@vr.is • vr.is Atkvæðagreiðslan fer framdagana 5.mars til 12.mars 2019 Allir kosningabærir félagsmenn sem starfa í ofangreindum fyrirtækjum fá send kjörgögn á næstu dögum. 5. mars 2019 KjörstjórnVR Fosshótel Reykjavík ehf. - kt. 6912094740 Íslandshótel hf. - kt. 6301692919 Flugleiðahótel ehf. - kt. 6212976949 Cabin ehf. - kt. 7012022280 Hótel Saga ehf. - kt. 4610150340 Miðbæjarhótel/Centerhotels ehf. - kt. 4509051430 Hótel Klettur ehf. - kt. 4703110450 Örkin Veitingar ehf. - kt. 7103982919 Keahótel ehf. - kt. 6012997049 Hótel Frón ehf. - kt. 4204983229 Hótel 1919 ehf. - kt. 4604050920 Hótel Óðinsvé hf. - kt. 6705140640 Hótel Leifur Eiríksson ehf. - kt. 5902993759 Hótel Smári ehf. - kt. 6312150680 Fjörukráin ehf. (Hotel Viking) - kt. 6304901119 Hótel Holt Hausti ehf. - kt. 4205025910 Hótelkeðjan ehf. - kt. 4712042340 CapitalHotels ehf. - kt. 6902080320 Kex Hostel - kt. 6210100500 101 (einn núll einn) hótel ehf. - kt. 5807972299 Ákveðið hefur verið að viðhafa rafræna atkvæðagreiðslu um verkfallsboðun félagsmannaVR hjá hópbifreiðafyrirtækjum á félagssvæði VR og félagsmönnumVR hjá eftirfarandi fyrirtækjum: Nánari upplýsingar verða birtar áwww.vr.is Veldu Panodil® sem hentar þér! Verkjastillandi og hitalækkandi Panodil filmuhúðaðar töflur, Panodil Zapp filmuhúðaðar töflur, Panodil Junior mixtúra, dreifa, Panodil Hot mixtúruduft, lausn til inntöku, Panodil Brus freyðitöflur. Inniheldur paracetamól. Við vægum verkjum. Hitalækkandi. Til inntöku. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is. Aðstæður eru þannig á höfuðborgar- svæðinu að bílarnir þyrla upp ryki og útblástur þeirra fýkur ekki burt. Eru umtalsverðar líkur á því að loft- mengun fari yfir heilsuverndarmörk á næstu dögum. Almenningur var í gær hvattur til þess að draga úr notkun einkabíla við þessar að- stæður, nýta sér frekar almenn- ingssamgöngur, sameinast í bíla eða nota aðra vistvæna sam- göngumáta. Gert er ráð fyr- ir hægvirði og þurru veðri og jafnvel frosti næstu daga. Þegar þéttbýlið kemur undan vetri við þessar aðstæður er líklegt að styrkur köfnunarefnisdíoxíðs sem stafar af útblæstri ökutækja og svif- ryki af götunum verði mikill. Svava S. Steinarsdóttir, heilbrigð- isfulltrúi hjá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, segir að stærstu topp- arnir í mengun mælist við helstu um- ferðaræðar borgarinnar, þar sem hraðinn er mestur, eins og Miklu- braut og Sundabraut enda fari þar líka stór og þung ökutæki. Ryk sé þó við allar götur. Ekki lá fyrir undir kvöld í gær, þegar rætt var við Svövu, hvort mengunin færi yfir heilsuverndar- mörk því mæla þarf heilan sólar- hring. Svava taldi þó líklegt að það myndi gerast í að minnsta kosti einni mælistöð. Það er stöðin við Grens- ásveg sem er mengaðasti punktur höfuðborgarsvæðisins og þar er meðal annars mæld mengun frá Miklubraut. Hvort sem mengunin færi yfir heilsuverndarmörk eða ekki ráðlagði Svava þeim sem eru viðkvæmir fyrir að vera ekki úti við nálægt helstu umferðaræðum. Gráir dagar í Reykjavík Strætó, Heilbrigðiseftirlit Reykja- víkur, Umhverfisstofnun, umhverfis- ráðuneytið, Veðurstofan og sveitar- félög á höfuðborgarsvæðinu hvöttu í gær íbúa til að sýna samstöðu og ýta undir notkun vistvænna samgöngu- máta á svokölluðum Gráum dögum þar sem líkur séu á að loftmengun fari yfir heilsuverndarmörk. helgi@mbl.is Loftmengun við umferðaræðar  Fólk hvatt til að spara bílana Mengun frá bíl- um safnast upp.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.