Morgunblaðið - 05.03.2019, Síða 12

Morgunblaðið - 05.03.2019, Síða 12
Táhirih, f. 1814 í Íran, var drepin fyrir baráttu sína. ir alla, ártalið verður að vera þegar kosningaréttur fékkst til jafns við karla,“ segir Silja og bætir við að henni finnist myndirnar í bókinni virkilega skemmtilegar. „Þær eru væmnislausar og skýrar, þannig að sjö ára barn getur haft gaman af að skoða þær og lesa úr þeim. Þær eru fyndnar en ná líka virkilega utan um aðalatriðin. Bókin er ekki með miklum texta, en nær samt að segja söguna með ótrúlega fáum orðum og sterkum myndum. Þessi bók er afar aðgengileg fyrir fólk á öllum aldri, börn og fullorðna. Ég ætla sannarlega að vona að þessi bók rati í marga fermingargjafa- pakka í vor, hún á heima þar.“ Hélt ég kæmist allt sem ég vildi Silja er rúmlega sjötug og hefur eðli málsins samkvæmt sjálf upplifað heilmikla breytingar á stöðu kvenna á sinni ævi. „En mér fannst alltaf að ég væri frekar vel sett, miðað við meðaltalið, af því ég átti góða að, meðal annars góðan pabba sem hafði alla tíð rosalega trú á mér. Þegar rauðsokkurnar byrjuðu að berjast fannst mér að ég þyrfti ekkert að taka þátt í þeirri baráttu með þeim, því ég kæmist allt sem ég vildi án þeirra. En sem betur fór áttaði ég mig á því að það var alls ekki þannig, þó ég hafi ekki rekið mig harkalega á sjálf, á þeim árum. Ég sá að við konur þurftum að standa saman.“ indum samkynhneigðra og trans- fólks. Þarna er líka farið til Austur- landa og langt aftur í tímann, allt til Saffó sem dó 570 fyrir Krist,“ segir Silja Aðalsteinsdóttir sem sá um að þýða nýútkomna bók, Áfram konur! en þar segir frá 150 ára baráttu fyrir frelsi, jafnrétti og stystralagi. Þetta er myndasögubók eftir tvær ungar norskar konur, rithöfundinn Mörtu Breen og teiknarann Jenny Jordahl. „Ég fann líka virkilega fyrir því í þessari bók hvað einstaklingarnir skipta svakalega miklu máli, það er ekki hægt að líta framhjá því að kvennabaráttan hnitast um ein- staklinga sem þora, geta og vilja. Það þarf einhver að standa upp svo eitt- hvað breytist, og margar þessara kvenna fórnuðu lífi sínu fyrir barátt- una, það sjáum við í bókinni.“ Bríet teiknuð inn eftir á Silja segir að ein kona hafi verið sérteiknuð fyrir íslensku útgáf- una, íslenska konan í peysuföt- unum, eða hún Bríet okkar, sem stendur í röð annarra kvenna sem halda á skilti með ártali síns heima- lands þegar konur fengu kosningarétt, án tak- markana, og því er ís- lenska ártalið 1920 en ekki 1915. „Við báð- um um að okkar íslenska kona fengi að vera með, en Stella Soffía og fleiri konur á Forlag- inu voru svolítið leið- ar yfir að þurfa að hafa ártalið 1920 en ekki 1915, því okk- ur finnst við hafa fengið kosninga- réttinn þá, en það verður að gilda það sama fyr- Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is „Það var margt sem kom mér á óvart í þessari bók. Ég komst að ýmsu sem ég ekki vissi, en ég taldi mig sann- arlega vita allt sem væri ástæða til að vita um þessa baráttu. Ég vissi til dæmis ekki að ensku súffragetturnar hefðu verið svona rosalega harðar, kveikjandi í heilu húsunum. Eins voru mörg smáat- riði í kvennabar- áttunni sem komu mér á óvart þarna, sem og stærri atriði eins og tengsl kvennabaráttunnar og baráttunnar gegn þrælahaldinu. Fyrir vikið er þetta ekki aðeins saga jafnréttisbar- áttu hvítra kvenna á Vesturlöndum, heldur er hún líka um baráttu svartra kvenna og baráttu fyrir rétt- Ung Malala Yousafzai fæddist 1997 í Afganistan og barðist fyrir rétti stúlkna til menntunar. 2012 var hún skotin í augað en lifði. Kvennabarátta gegn þrælahaldi Hin þeldökka Harriet Tubman, f. 1822, flúði úr þrældómi og frelsaði fjölda þræla. Hnitast um einstaklinga sem þora „Mér fannst alltaf að ég væri frekar vel sett, miðað við meðaltalið, af því ég átti góða að, meðal annars góðan pabba sem hafði alla tíð rosalega trú á mér,“ segir Silja Aðalsteinsdóttir sem komst að ýmsu sem hún ekki vissi þegar hún þýddi nýja bók um kvennabaráttuna. 12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. MARS 2019 Fyrir rúmri öld var mikill munur á lífi og rétt- indum karla og kvenna. Konur höfðu hvorki kosn- ingarétt né ýmis önnur réttindi sem karlmenn nutu. Þær höfðu heldur ekki fullt forræði yfir eig- in líkama. En svo fóru þær að taka saman hönd- um og berjast fyrir réttindum sínum og þá breytt- ist líf þeirra og kjör smám saman þótt þröskuldarnir væru margir. Í bókinni rekja tvær norskar konur, rithöfundurinn Marta Breen og teiknarinn Jenny Jordahl, sögu kvennabaráttu um heim allan í máli og myndum og segja frá frumkvöðlum og fyrirmyndum sem lögðu allt í sölurnar til að berjast fyrir réttindum kvenna, kvenfrelsi og systralagi. Sumar lögðu allt í sölurnar 150 ÁRA BARÁTTA FYRIR FRELSI, JAFNRÉTTI OG SYSTRALAGI Ylströndin Nauthólsvík Sími: 411 5000 • www.itr.is Mánudagar – Föstudagar 11-14 og 17-20 Laugardagar 11-16 Lengri afgreiðslutími á ylströnd Verið velkomin í Nauthólsvík Meðfætt? Allt til loka 19. aldar voru konur útilokaðar frá flestum skólum og störfum. Heimilið var sagt þeirra staður. Súffragettur Húsmóðirin Emmeline Pankhurst, fædd 1858, beitti herskáum aðferðum í jafnréttisbaráttunni og stofnaði samtök súffragetta í Bretlandi. Silja Aðalsteinsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.