Morgunblaðið - 05.03.2019, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 05.03.2019, Qupperneq 15
FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. MARS 2019 Góð þjónusta í tæpa öld 10%afslátturfyrir 67 áraog eldri Flugvallarþjónusta BSR sér um að skutla þér út á flugvöll og aftur heim þegar þú ferð til útlanda. 5-8 manneskjur 19.500 kr. 1-4 manneskjur 15.500 kr. Verð aðra leið: Sími 555 2992 og 698 7999 • Við hárlosi • Mýkir liðina • Betri næringar- upptaka Náttúruolía sem hundar elska Við höfum notað Dog Nikita hundaolíu fyrir hundana okkar í 3 ár og við erum ekkert á því að hætta. Feldurinn á þeim er mjúkur, fallegur og hárlosið á þeim gengur fyrr yfir. Þófarnir eru mjúkir og sléttir en ekki harðir og grófir eins og þeir verða oft.Við mælum með Dog Nikita hundaolíu. Páll Ingi Haraldsson EldurÍs hundar Við mælum með Dog NIKITA hundaolíu NIKITA hundaolía - Selaolía fyrir hunda • Gott við exemi • Betri og sterkari fætur Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Loðnubrestur mun hafa mikil áhrif á afkomu fyrirtækja, íbúa, sveitar- sjóðs og hafnarsjóðs Fjarðabyggðar. Þannig er áætlað að launatekjur íbúa í Fjarðabyggð muni dragast saman um að minnsta kosti rúm 5% á þessu ári frá árinu 2018 vegna loðnubrests- ins. Nú þegar hefur 15 starfsmönn- um verið sagt upp, ekki verður ráðið í tímabundin störf og líklegt talið að til frekari fækkunar komi. Kemur þetta fram í greinargerð Snorra Styrkárssonar, fjármála- stjóra Fjarðabyggðar, um áhrif loðnubrestsins á sveitarfélagið, sem hann hefur skilað bæjarráði. Tóku við nærri helmingi aflans Hafrannsóknastofnun hefur ekki fundið næga loðnu til að gefa út loðnukvóta á vertíðinni og ekki er út- lit fyrir að af því verði. Í Fjarða- byggð eru öflug fyrirtæki í veiðum og vinnslu uppsjávartegunda og þess vegna hefur loðnubresturinn tiltölu- lega mikil áhrif þar. Nefna má Síld- arvinnsluna í Neskaupstað, Eskju á Eskifirði og Loðnuvinnsluna á Fá- skrúðsfirði. Í greinargerð fjármála- stjórans er bent á að í Fjarðabyggð var tekið á móti og unnin 47% af öll- um loðnuafla á árinu 2018. Árin á undan var hlutfallið lægra, eða á bilinu 34-37%. Útflutningsverðmæti loðnuafurða sem komu á land í Fjarðabyggð nam um 10 milljörðum króna á síðasta ári. Þessir fjármunir skila sér ekki inn í fyrirtækin eða samfélagið í ár, að óbreyttu. Laun í loðnu 1,2 milljarðar Fjármálastjórinn áætlar að launa- tekjur starfsmanna sjávarútvegsfyr- irtækja í Fjarðabyggð af veiðum og vinnslu loðnu hafi numið einum millj- arði á árinu 2018. Mun loðnubrest- urinn lækka launatekjur starfs- manna um 13%. Að auki er gert ráð fyrir að samdráttur í launatekjum starfsmanna í þjónustufyrirtækjum nemi um 250 milljónum króna. Í heild muni launatekjur íbúa í Fjarða- byggð dragast saman um að minnsta kosti 5% milli ára. Auk áhrifa á stóru sjávarútvegs- fyrirtækin hefur loðnubresturinn áhrif í flestum þjónustugreinum í samfélaginu. Er sá samdráttur áætl- aður 500-600 milljónir kr. Afleiðing- ar loðnubrestsins munu því smitast til flestra íbúa í Fjarðabyggð með beinum eða óbeinum hætti. Sveitarfélagið verður af tekjum Fjármálastjórinn segir að gera megi ráð fyrir að útsvarstekjur Fjarðabyggðar lækki um 160 millj- ónir. Þá er gert ráð fyrir að tekjur Hafnarsjóðs Fjarðabyggðar minnki um 100 milljónir kr. vegna loðnu- brestsins. Við gerð fjárhagsáætlunar bæjarins fyrir árið í ár var gert ráð fyrir óbreyttri stöðu í veiðum og vinnslu. Nú má búast við að heildar- tekjur Fjarðabyggðar og stofnana dragist saman um 260 milljónir kr. Loðnubrestur hefur áhrif á alla íbúa Morgunblaðið/Börkur Kjartansson Að veiðum Hoffellið að loðnuveiðum á síðasta ári. Lítið verður veitt í ár.  Samfélagið í Fjarðabyggð verður af 10 milljarða króna útflutningstekjum  Launatekjur dragast saman um rúm 5%  Tekjur sveitarsjóðs og hafnarsjóðs 260 milljónum minni en í fjárhagsáætlun ársins Tveir sendifulltrúar frá Rauða krossi Íslands, RKÍ, fóru utan til Gana um síðustu helgi, að því er fram kemur á vef RKÍ, til að taka þátt í uppbyggingu upplýsinga- og samskiptatæknigetu afrískra lands- félaga Rauða krossins og Rauða hálfmánans. Þetta eru þau Halldór Gíslason, starfsmaður Íslandsbanka, og Árdís Björk Jónsdóttir, starfsmaður Sýn- ar. Verkefnið, er nefnist Brúun hins stafræna bils, snýst um að gera Rauða krossinn færari um að sinna hjálparstarfi sínu á skilvirkari og ár- angursríkari hátt. Rauði krossinn og fjögur íslensk fyrirtæki hafa undir- ritað samstarfssamning um verk- efnið sem felur í sér að fyrirtækin lána Rauða krossinum starfsfólk sitt, auk þess sem þau styðja verk- efnið fjárhagslega. Tveir sendifulltrúar RKÍ farnir til Gana  Fjögur fyrirtæki í samstarfi við RKÍ Ljósmynd/RKÍ Hjálparstarf Halldór Gíslason og Árdís Björk Jónsdóttir á leið til Gana.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.