Morgunblaðið - 05.03.2019, Síða 16

Morgunblaðið - 05.03.2019, Síða 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. MARS 2019 5. mars 2019 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 119.2 119.76 119.48 Sterlingspund 157.82 158.58 158.2 Kanadadalur 90.66 91.2 90.93 Dönsk króna 18.161 18.267 18.214 Norsk króna 13.922 14.004 13.963 Sænsk króna 12.918 12.994 12.956 Svissn. franki 119.3 119.96 119.63 Japanskt jen 1.0651 1.0713 1.0682 SDR 166.11 167.09 166.6 Evra 135.52 136.28 135.9 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 166.301 Hrávöruverð Gull 1309.95 ($/únsa) Ál 1890.0 ($/tonn) LME Hráolía 66.38 ($/fatið) Brent Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á ● Bréf Icelandair Group hækkuðu um 6,35% í Kaup- höll Íslands í gær í 104 milljóna króna viðskiptum. Mun minni hreyfing reyndist á bréfum annarra félaga í viðskiptum gær- dagsins. Næstmest hækkuðu bréf Ar- ion banka eða um 0,97% í 292 milljóna króna viðskiptum. Mest lækkuðu bréf Regins um 1,59% í 43 milljóna við- skiptum. Þá lækkuðu bréf í Festi um 0,93% í 26 milljóna króna viðskiptum. Langmest var veltan með bréf Marels. Þau hækkuðu um 0,4% í 491 milljónar króna viðskiptum. Í viðskiptum gærdagsins hækkaði úrvalsvísitala Kauphallarinnar um 0,31%. Það sem af er þessu ári hefur úrvalsvísitalan hækkað um 15%. Sé horft 12 mánuði aftur í tímann nemur hækkunin 4,06%. Enn hækka bréf Ice- landair í Kauphöll STUTT BAKSVIÐ Pétur Hreinsson peturhreins@mbl.is Viðskiptaafgangur á 4. fjórðungi ársins 2018 nam 300 milljónum króna. Vöru- skiptahallinn var 37 milljarðar króna en halli á rekstrarframlögum var 6,3 milljarðar. Á móti vó 33,4 milljarða króna afgangur af þjónustuviðskiptum og 10,1 milljarðs króna afgangur af frumþáttatekjum. Þetta kemur fram í bráðabirgðatölum Seðlabankans um greiðslujöfnuð við útlönd. Að sögn Ernu Bjargar Sverrisdóttir, sér- fræðings hjá greiningardeild Arion banka, var viðskiptaafgangur nokkuð óvæntur. „Við reiknuðum ekki með því,“ seg- ir Erna Björg í samtali við Morgun- blaðið. „Við vissum fyrirfram að vöru- og þjónustujöfnuður var neikvæður og það var nokkuð gefið að rekstrarfram- lögin yrðu neikvæð. Þar skipta pen- ingasendingar á milli landa aðallega máli en þær hafa aukist eftir því sem erlendu vinnuafli hefur fjölgað,“ segir Erna Björg. Hún segir frumþáttatekjurnar vera meginástæðuna fyrir viðskiptaafgang- inum. Til þeirra teljast laun, fjárfest- ingatekjur á borð við vexti eða arð- greiðslur, og aðrar frumþáttatekjur. 10 milljarða afgangur var á frumþátta- tekjum sem þýðir að erlendir aðilar hafi greitt sem því nemur meira en inn- lendir aðilar greiddu úr landi. „Frumþáttatekjurnar eru aðal- ástæðan fyrir því að við erum að sjá viðskiptaafgang á fjórða ársfjórðungi. Það er dálítið áhugavert að sjá að það er í rauninni ekki þróttur í utanríkis- verslun landsins, eða aukin tekjusköp- un erlendra eigna sem Íslendingar eiga sem skýrir þetta, heldur virðist sem innlend fyrirtæki í erlendri eigu hafi skilað tapi,“ segir Erna og heldur áfram: „Tekjuhlið frumþáttatekna breyttist lítið sem ekkert á milli ára en gjöldin minnkuðu, sem má túlka sem svo að innlendir aðilar hafi verið að greiða minna til erlendra aðila. Það er fyrst og fremst vegna þess að innlend fyrir- tæki, í eigu erlendra aðila, virðast hafa skilað tapi,“ segir Erna og bendir á að í fyrra hafi það sama verið upp á ten- ingnum en þá var aftur á móti greiddur út arður sem skilaði sér á gjaldahlið frumþáttatekna. Þjónustuafgangur dróst verulega saman á milli 2017 og 2018 á fjórða árs- fjórðungi og fór úr 51,9 milljörðum í 33,4. Skýrist það einna helst af því að mjög stórar greiðslur í tengslum við lyfjaiðnaðinn, vegna hugverkaréttinda, voru bókfærðar í heild sinni á 3. fjórð- ungi ársins 2018 í stað þess að dreifast yfir 3. og 4. ársfjórðung að sögn Ernu. Erlend staða þjóðarbúsins var já- kvæð um 276 milljarða króna og lækk- aði um 77 milljarða. Stafar það einkum af dýfu á erlendum mörkuðum á 4. fjórðungi síðasta árs. Erlendar eignir þjóðarbúsins námu 3.386 milljörðum króna og skuldir 3.110 milljörðum. Innlend fyrirtæki í erlendri eigu virðast skila tapi Morgunblaðið/Eggert Viðskiptaafgangur Afgangur á frumþáttatekjujöfnuði upp á 10,1 milljarð er aðalástæðan fyrir viðskiptaafgangi. Greiðslujöfnuður » Viðskiptaafgangur nam 300 milljónum króna. » Vöruskiptajöfnuður var neikvæður um 37 ma. króna. » Þjónustujöfnuður var já- kvæður um 33,4 ma. króna. » Frumþáttatekjur námu 10,1 ma. króna og rekstrarframlög voru neikvæð um 6,3 ma. » Hrein staða þjóðarbúsins var jákvæð um 276 ma. króna.  300 milljóna króna afgangur var á greiðslujöfnuði við útlönd á 4. ársfjórðungi Erna Björg Sverrisdóttir Seðlabanki Íslands hefur ákveðið að setja nýjar reglur um bindingu reiðufjár vegna nýs innstreymis er- lends gjaldeyris og reglur um með- ferð krónueigna sem háðar eru sér- stökum takmörkunum. Hinar nýju reglur eru settar, að sögn Seðla- bankans, vegna breytinga á lögum um gjaldeyrismál og lögum um með- ferð krónueigna sem háðar eru sér- stökum takmörkunum. Með hinum breyttu reglum lækkar bindingar- hlutfall, sem skv. eldri reglum var 20%, niður í 0%. Segir í tilkynningu frá bankanum að með breytingunum sé „sérstakur aflandskrónumarkaður ekki lengur til staðar.“ Þá segir bankinn að þau fjármagnshöft sem innleidd voru í nóvember 2008 hafi „nú nánast að öllu leyti verið losuð“. Hins vegar standi eftir takmarkanir sem m.a. feli í sér takmarkanir á afleiðuvið- skiptum sem eigi sér stað í öðrum til- gangi en þeim sem snúi beint að áhættuvörnum. Segir í tilkynningu bankans að þær takmarkanir verði hins vegar skoðaðar í tengslum við heildarendurskoðun laga um gjald- eyrismál. Afnám bindingarhlutfalls- ins felur í sér stórt skref en bankinn hefur á undanförnum misserum dregið markvisst úr áhrifum fyrr- nefndra fjármagnshafta. Þannig var bindingarhlutfallið fært niður í 20% í nóvember 2018 en það hafði frá því að það var sett á í júní 2016 staðið í 40%. Lækkun hlutfallsins, fyrst í nóvember í fyrra og svo nú, er til- komið þar sem „líkur á umtalsverðu innflæði sem leiddi til ofriss krón- unnar og alvarlegrar truflunar í miðlunarferli peningastefnunnar hafa minnkað mikið, a.m.k. um sinn“ segir í tilkynningu bankans. Reglunar sem bankinn setur verða gefnar út í dag og taka gildi á morgun. ses@mbl.is Morgunblaðið/Hari Peningamál Gjaldeyrishöftin frá 2008 heyra nú nærri því sögunni til. Fjármagnshöft nánast úr sögunni  Bindingarhlut- fall fer úr 20% í 0% Við framleiðum lausnir Sími 577 6700 / islandshus@islandshus.is / www.islandshus.is BÍLASTÆÐALAUSNIR Kantsteinarnir Langhólmi og Borgarhólmi einfalda merkingu bílastæða og afmörkun akstursleiða

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.