Morgunblaðið - 05.03.2019, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 05.03.2019, Qupperneq 17
FRÉTTIR 17Erlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. MARS 2019 Að minnsta kosti 23 létu lífið í tveim- ur skýstrókum í Alabama í Banda- ríkjunum í fyrradag og björgunar- starf hófst að nýju í gær eftir að hafa verið stöðvað vegna mjög hættu- legra aðstæðna. Óttast var að tala látinna myndi hækka þar sem leit var ekki lokið í Beauregard, um 95 km austan við Montgomery, höfuð- stað Alabama. „Eyðileggingin er ótrúleg,“ sagði Jay Jones, lögreglustjóri Lee-sýslu, í viðtali við CBS-sjónvarpið. „Ég minnist þess ekki að svo margir hafi látið lífið af völdum skýstróka hérna á síðustu fimmtíu árum.“ Á meðal þeirra sem fórust í óveðr- inu voru nokkur börn. Tugir manna voru fluttir á sjúkrahús og nokkrir þeirra með „mjög alvarleg meiðsl“, að sögn lögreglustjórans. Skýstrókarnir ollu eyðileggingu á slóð sem var 0,8 kílómetrar á breidd og nokkurra kílómetra löng. Banda- rískir fjölmiðlar birtu myndir af hús- um sem eyðilögðust, braki á götum og trjám sem brotnuðu í óveðrinu. Margir vegir á svæðinu voru lokaðir vegna brotinna trjáa og braks. Vind- hraðinn var að minnsta kosti um 74 m/s, að sögn bandarísku veðurstof- unnar. Rúmlega 6.000 heimili voru án raf- magns í Alabama vegna óveðursins og 16.000 í grannríkinu Georgíu. Skýstrókar myndast í þrumuveðri á hlýjum dögum Skýstrókar myndast í óstöðugu lofti Heimildir: NOAA, EncyclopaediaBritannica, NatGeo Flestir skýstrókar færast 16-32 km/klst, vindhraðinn getur orðið allt að 110 m/s Kalt loft Neðra borð skýs Hlýtt loft 1 2 3 4 5 Hlýtt, rakt vatn rís frá jörðu 1 Hlýtt loftmætir köldu lofti. Hringiða myndast og fer niður frá stormskýinu 2 Uppstreymi dregur að sér meira loft, rís og hringsnýst 4 Skýstrókur snýst á miklum hraða og skilur eftir sig slóð eyðileggingar 5 Hringiðan fer niður til jarðar 3 Skýstrókar ollu miklu manntjóni AFP Eyðilegging Mikið tjón varð í Beau- regard í Alabama vegna skýstróks. Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Líklegt er að kona verði forsætisráð- herra Eistlands í fyrsta skipti í sögu landsins eftir að frjálslyndur stjórnarandstöðuflokkur, Umbóta- flokkurinn, fór með sigur af hólmi í þingkosningum í fyrradag. Stjórn Miðflokksins og tveggja annarra flokka missti meirihluta sinn. Eist- neskur þjóðernis- flokkur, Íhalds- sami þjóðar- flokkurinn, EKRE, nær tvö- faldaði fylgi sitt, fékk 17,8% at- kvæða og er nú þriðji stærsti flokkurinn. Kaja Kallas, leiðtogi Umbótaflokksins, hafði lofað að lækka skatta fyrirtækja og gjöld þeirra í atvinnuleysistryggingasjóð til að stuðla að fjölgun starfa. Mið- flokkurinn hafði lofað að hækka líf- eyrisgreiðslur ríkisins um 8,4% og taka upp þrepaskipt skattkerfi, í stað flats 20% tekjuskatts einstaklinga og 21% fyrirtækjaskatts, til að auka tekjur ríkisins. Umbótaflokkurinn fékk 28,8% at- kvæðanna, jók fylgi sitt um 1,1 pró- sentustig, og Miðflokkurinn fékk 23%, missti 1,7 prósentustig. Tveir flokkar sem hafa verið í stjórn með Miðflokknum töpuðu fylgi, þ.e. hægriflokkurinn Isamaa og Sósíal- demókrataflokkurinn. Isamaa fékk 11,4%, missti 2,3 prósentustig, og Sósíaldemókrataflokkurinn fékk 9,8%, 5,4 prósentustigum minna en í kosningum fyrir fjórum árum. 101 sæti er á þingi Eistlands og Umbótaflokkurinn, sem fékk 34 þeirra, getur myndað meirihluta- stjórn með Miðflokknum sem fékk 26 þingsæti. Leiðtogi Miðflokksins, Jüri Ratas, fráfarandi forsætisráðherra, léði máls á stjórnarsamstarfi við Um- bótaflokkinn. Kallas sagði hins vegar að „mikill ágreiningur“ væri milli flokkanna í skattamálum, málefnum rússneska minnihlutans í landinu og menntamálum. Umbótaflokkurinn getur einnig myndað meirihlutastjórn með Isamaa, sem fékk 12 sæti, og Sósíal- demókrataflokknum sem fékk tíu. Kallas sagði að Umbótaflokkurinn hygðist ekki mynda stjórn með Íhaldssama þjóðarflokknum. Leið- togi síðarnefnda flokksins kveðst vilja stjórnarsamstarf við Miðflokkinn og Isamaa. Óánægja í dreifbýlinu Umbótaflokkurinn og Miðflokkur- inn hafa skipst á um að stjórna land- inu frá því að það fékk sjálfstæði árið 1991 þegar Sovétríkin liðu undir lok. Báðir flokkarnir hafa verið hlynntir aðhaldsstefnu í ríkisfjármálum og hún hefur orðið til þess að skuldir Eistlands eru nú minni en nokkurs annars evrulands. Stjórnmálaskýrendur telja að auk- ið fylgi Íhaldssama þjóðarflokksins megi að miklu leyti rekja til óánægju kjósenda í dreifbýlinu sem telji byggðarlög sín hafa verið látin sitja á hakanum vegna aðhaldsstefnunnar. Flokkurinn hefur verið mjög gagn- rýninn á Evrópusambandið og vill að efnt verði til þjóðaratkvæðagreiðslu um útgöngu Eistlands úr samband- inu. Mikill meirihluti Eistlendinga er þó hlynntur aðild landsins að ESB. Frjálslyndur flokk- ur fékk mest fylgi  Stjórn Eistlands féll  Fylgi þjóðernisflokks tvöfaldaðist AFP Sigri fagnað Kaja Kallas, leiðtogi Umbótaflokksins, fagnar sigri í þing- kosningum með flokkssystkinum sínum í Tallinn, höfuðborg landsins. Kaja Kallas Deilt um skólakerfið » Íbúar Eistlands eru rúmlega 1,3 milljónir og um 25% þeirra eru Rússar. Réttindi rússneska minnihlutans voru ofarlega á baugi í kosningabaráttunni, auk skatta- og efnahagsmála. » Miðflokkurinn vill halda nú- verandi skólakerfi, sem byggist á kennslu á eistnesku og rúss- nesku, en Umbótaflokkurinn og Íhaldssami þjóðarflokkurinn vilja leggja það niður. Klang. AFP. | Fimm konur, klæddar plastsporði sem skreyttur er með glitrandi efni, synda í sundlaug skóla í Malasíu fyrir fólk sem vill læra hvernig á að synda eins og hafmey. Hann er í bænum Klang og á meðal nokkurra skóla sem stofn- aðir hafa verið í heiminum á síðustu árum vegna vaxandi vinsælda haf- meyjarsunds. Nemendurnir syntu í hringi og steyptu sér kollhnís með augun op- in. „Þetta er allerfitt,“ sagði Koh Yi Xuen, 27 ára kona sem hefur æft hafmeyjarsund í um þrjú ár. „Við þurfum að vera með augun opin í vatninu og með fæturna fasta sam- an.“ Lee Boon Leong stofnaði skólann eftir að fyrirtæki bað hann um að finna leikara, sem gæti synt eins og hafmey, í auglýsingu. Í skólanum eru nú fimm kennarar og þeir hafa kennt um 500 konum að synda eins og hafmeyjar sem þekkjast í þjóðtrú margra landa. AFP Ný sundgrein Konur æfa hafmeyjarsund í skóla í bænum Klang í Malasíu. Læra að synda eins og hafmey

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.