Morgunblaðið - 05.03.2019, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 05.03.2019, Blaðsíða 26
26 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. MARS 2019 SÆNSKAR GÆÐASAGIR GOTT ÚRVAL Bogasög/Kjötsög - verð 3.960 Sög - verð 3.980 Með japönsku sniði gúmíhandfang. Ahliða hágæða sög - verð 3.860 Með teflon húðuðu blaði Greinasög - verð 3.980 Sög sem leggst saman eins og vasahnífur Ryoba sög - verð 6.780 Með japönsku sniði; tennt beggja vegna, þverskera og langskera Dozuki sög - verð 6.590 Með japönsku sniði, frábær í fínvinnu t.d. geirneglingu Greinasög verð 2.650 með harðviðarskefti Laugavegi 29 | sími 552 4320 | www.brynja.is | verslun@brynja.is Opið virka daga frá 9- 18 lau fr á 10-1 6 - , Vefverslun brynja.is Fagmennska í 100 ár Bakkasög - verð 3.390 Bakkasög - verð 3.350 Ég er bara rúmliggjandi, fékk mér nýtt hné í afmælisgjöf,“ segirSigurður Valur Sveinsson, fyrrverandi handboltakappi sem á60 ára afmæli í dag. „Ég verð samt að fara eitthvað á hækj- unum á afmælisdaginn, maður skreppur í vinnuna og fær vini og ætt- ingja í heimsókn um kvöldið. Það er mjög gott að hafa fengið að fara í aðgerðina í febrúar, þá verður maður tilbúinn í golfið og veiðina í vor. Það hefði verið ferlegt ef ég hefði þurft að fara í aðgerðina í vor. Ég hangi í 15 í forgjöf í golfinu og býst ekki við að forgjöfin lækki, en maður veit aldrei. Ég væri örugglega með lægri forgjöf ef ég fengi að henda boltanum.“ Í veiðimennskunni hefur Sigurður mest gaman af því að fara upp á heiðar Íslands og veiða silung. „Ég fer mikið á Arnarvatnsheiði og Skagaheiði, tjalda eða gisti í kofa á heiðinni, það svíkur aldrei neinn. Er búinn að stunda það með félögunum í meira en 30 ár.“ Sigurður var mikil markamaskína á sínum handboltaferli og náði m.a. að verða markakóngur í Þýskalandi þegar hann lék þar sem at- vinnumaður. Hann var í sigurliði Íslands á B-keppninni fyrir 30 árum. „Við strákarnir erum að fara að hittast á föstudaginn í tilefni af því og það verður gaman að sjá hve margir fleiri eru komnir með uppfærslu á hnénu.“ Sigurður vinnur hjá TM og hefur gert í meira en 30 ár og sinnir fyrirtækjaráðgjöf. Eiginkona hans er Sigríður Héðinsdóttir, starfs- mannastjóri hjá Dögun, og börn þeirra eru Auður 32 ára heilsuráð- gjafi og rekur líkamsræktarstöð í Osló í Noregi og býr þar ásamt tveimur börnum sínum, og Styrmir 27 ára sem vinnur hjá Dögun. Vinstrihandarskyttan Siggi Sveins er einn sá skotfastasti frá upphafi. Fékk sér nýtt hné í afmælisgjöf Sigurður Sveinsson er sextugur í dag Ó ttar Magnús Geir Yngvason fæddist í Reykjavík 5. mars 1939 og ólst upp á Njálsgöt- unni rétt ofan Snorra- brautar. Fjölskyldan flutti síðan 1947 upp í Hlíðar og þar bjó hann næstu 20 árin. „Í Hlíðunum komst ég í nágrenni við gamla golfvöllinn við Öskjuhlíð, þar sem nú er Verslunarskólinn og Borgarleikhúsið. Við nokkrir strákar úr Hlíðunum byrjuðum að fikta við golfið, og gekk ég í Golfklúbb Reykjavíkur 1953. Ég hef stundað íþróttina alla tíð síðan og er enn virk- ur á golfvellinum. Vann Íslandsmótið í Vestmannaeyjum 1962, og í 12 ár 1961-1972 var ég aldrei neðar en í 5. sæti á landsmóti. Besti árangur minn var þó líklega árið 1972, þegar ég náði öðru sæti í einstaklingshluta Skandinavíska meistaramótsins í flokkakeppni, sem fór fram á Rungs- ted-vellinum norðan við Kaup- mannahöfn. Var síðan í stjórn GR 1962-1967 á miklum umbrotatímum eftir flutning á nýja Grafarholtsvöll- inn, sem er í heimsklassa. Á unglingsárunum tók ég tölu- verðan þátt í skátastarfi mér til mik- illar ánægju og gagns, mest í skáta- flokknum Gráhausum. Við höfum haldið hópinn fram til þessa dags og hittumst á hverju ári.“ Óttar gekk fyrst í Austurbæjar- skólann og síðan í Æfingadeild Kennaraskólans. Þá í Gagnfræða- skóla Austurbæjar og eftir 3. bekk flutti hann yfir í Verslunarskólann. Tók stúdentspróf 1959 og hélt síðan í lagadeild Háskóla Íslands og lauk kandídatsprófi 1966. Strax eftir lögfræðiprófið var Ótt- ar settur forstjóri Ferðaskrifstofu ríkisins í veikindaforföllum Þorleifs Þórðarsonar forstjóra. „Ég var í því skemmtilega starfi í rúmt ár. Ferða- skrifstofan sá um alla landkynningu, rak sjö sumarhótel í heimavistar- skólum og tvær minjagripaverslanir ásamt ferðaskrifstofu og upplýsinga- skrifstofu í Gimli við Lækjargötu. Á þessu ári setti ég nafnið Eddu hótel á sumargistinguna og er það enn notað eins og kunnugt er. Sem betur fer heilsaðist Þorleifi vel og kom hann aftur til sinna starfa eftir árs sjúkra- leyfi. Ég hafði áhuga á að stunda lög- fræðistörf og stofnaði þá mína eigin skrifstofu sem ég rak í ein 10 ár. Var þá byrjaður að fást við vinnslu og út- flutning sjávarafurða og stofnaði fyr- irtækið Íslensku útflutningsmiðstöð- ina hf. árið 1972 til að sinna útflutn- ingi, sem var á þessum tíma nánast allur í höndum fimm útflutnings- samtaka og stórfyrirtækja. Þurfti að sækja um útflutningsleyfi fyrir hverri og einni sendingu, stórri og smárri og nýir aðilar fengu aðeins út- flutningsleyfi fyrir örfáum minni háttar tegundum. Öll þessi fimm stórfyrirtæki eru nú úr sögunni. Eftir 40 ára aðkomu að veiðum, vinnslu og útflutningi hef ég fyrir nokkrum árum dregið mig í hlé frá daglegum rekstri, sem stjórnað er af Yngva syni mínum, sem reyndar kom inn í reksturinn fyrir 24 árum.“ Síðustu þrjú árin hefur Óttar snúið sér aftur að lögfræðistörfum í þágu náttúruverndar landsins. „Aðkoma mín á því sviði er í samvinnu við Óttar Yngvason, hrl. og framkvæmdastjóri – 80 ára Á golfmóti Óttar og Birna með börnum og fjölskyldum þeirra á árlegu fjölskyldugolfmóti á Kálfatjarnarvelli 2016. Í þágu náttúruverndar Hjónin Birna og Óttar. Reykjavík Halldór Jökull Elíasson fædd- ist 23. júlí 2018 kl. 4.54 heima hjá sér í Árbænum. Hann var 50 cm að lengd og 3.500 g að þyngd. For- eldrar hans eru Rósa Dögg Ómarsdóttir og Elías Þór Halldórsson. Nýr borgari Íslendingar Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.