Morgunblaðið - 05.03.2019, Qupperneq 29
DÆGRADVÖL 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. MARS 2019
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Fólk laðast að þér og nú er rétti tíminn
til að taka höndum saman og vinna góð verk.
Þú kemst að einhverju sem fær þig til að efast
um vissa persónu.
20. apríl - 20. maí
Naut Þér bjóðast góðir fjárfestingarmögu-
leikar næsta mánuðinn og þér á eftir að reyn-
ast auðvelt að fá lánað fé. Samband þitt við
ástvin verður betra ef jákvæðni er með í för
21. maí - 20. júní
Tvíburar Reyndu að komast hjá því í dag að
taka mikilvægar ákvarðanir. Ekki er allt komið
á hreint. Stundum verður maður að standa á
sínu og setja öðru fólki mörk.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú ert svolítill einfari og getur skemmt
þér vel bara ein/n. Þú átt erfitt með að stand-
ast freistingar sem verða á vegi þínum í dag.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Forðastu allar skyndiákvarðanir í fjár-
málum og gættu þess að hafa þá með í ráðum
sem máli skipta. Einhver sér sóma sinn í því að
biðja þig afsökunar.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú hefur í hendi þér að gera breytingar
í samskiptum við aðra. Velgengni þín ætti ekki
að stíga þér til höfuðs nema í stutta stund.
Ástarsamband fer út um þúfur.
23. sept. - 22. okt.
Vog Leiðindamál leysist af sjálfu sér þegar nýj-
ar staðreyndir koma fram í dagsljósið. Treystu
innsæi þínu þegar þú átt samtöl við aðra, ekki
síst systkini.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú ættir að taka þér tíma til þess
að fara í gegnum eitt og annað sem hefur
komið þér á óvart í samskiptum þínum og vina
þinna. Þér verður trúað fyrir leyndarmáli.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Gefðu þér tíma til að sinna sjálfum
þér þótt aðrir kalli á athygli þína. Viss aðili er
ekki dauður úr öllum æðum enn.Forðastu að
lifa um efni fram.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Eitthvað mun örugglega koma þér á
óvart í dag. Sinntu starfi þínu af kostgæfni því
það kemur að viðurkenningu, þótt síðar verði.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Spennandi ferðaáætlanir liggja
fyrir. En hlustaðu á sjálfa/n þig og þá muntu
velja það sem þér er fyrir bestu. Þú talar fyrir
daufum eyrum heima fyrir hvað varðar heim-
ilishaldið.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Láttu það eftir þér að njóta dagsins og
gerðu eitthvað ánægjulegt fyrir sjálfa/n þig.
Kannski er komið að því að aðrir hugsi um þig
til tilbreytingar.
Sigurlín Hermannsdóttir segirfrá því á Leir að á mið-
vikudagskvöld hafi Kvæðamanna-
félagið Iðunn haft kvæðakvöld á
Sólon. – „Þar komu fram margir
góðir kvæðamenn og -konur og
meðal annars kvað Bára Gríms-
dóttir Gróusögur mínar. Ég man
ekki hvort ég hef birt þær áður, en
einhvern tímann áttaði ég mig á því
að allt athæfi Gróu bar keim af
starfa hannyrðakvenna.
Gróa upp á ýmiss konar efni fitjar.
Teygir lopa er vina vitjar,
víst hún þæfir mál sem nytjar.
Iðin við að auka hratt í allt sem vefur
fráleitt utan af því skefur
ýmislegt á prjónum hefur.
Grönnum sínum saumar að þá sveitir
kembir
tvinnar saman sögu og dembir
af sveitarslúðri upp sig þembir.
Sögð er vera þrúðug þegar þræði
spinnur
jafnan umtalsefni finnur
enginn mátar slíkar kvinnur.
Hér er vel kveðið. Braghendan er
alltaf skemmtileg og ég get ekki
stillt mig um að bæta við tveim sem
ég orti í Menntaskólanum á Akur-
eyri:
Mér er orðin mikil þörf á meynni þýðu.
Verst er að þurfa að standa í stríðu
við stúlkurnar um þeirra blíðu.
Ungri sætu ef ég mæti úti á stræti
og ástin bregður fyrir fæti
fyndi ég mér eftirlæti.
Eins og við mátti búast hefur
sönglagakeppnin orðið hagyrð-
ingum á Leir að yrkisefni. Gústi M.
yrkir:
Sönglagakeppni með sóma var háð
með söngvum og hljóðfærastrokum.
Ástin af hógværð og hlýju var tjáð
en hatrið þó sigraði að lokum.
Ármann Þorgrímsson talar um
„umdeildar aðferðir við kosningar í
Söngvakeppninni. Sögð dæmi um
10 atkvæði úr sama númeri.
Ekki dæma ætla mér
eða niðurstöðu ræða,
en sannleikann þó segja ber
að símafyrirtækin græða.
Við lifum á erfiðum tímum. Pétur
Stefánsson yrkir:
Því er miður, því er ver,
það er á kristaltæru
að ærið margir eru hér
úlfar í sauðagæru.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Gróa á Leiti, rómantík
og sönglagakeppni
„FARÐU VARLEGA – ÞETTA ERU
NIÐURSKURÐARÞREPIN SEM ÉG VAR AÐ
SEGJA ÞÉR FRÁ.”
„ÉG VIL EKKI VERA LENGUR Á VAKT Í
VARÐTURNINUM.”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að ganga veginn
saman.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
HÉR ER ÉG, ÞÉR ER FRJÁLST
AÐ HRÍNA AF KÆTI OG GRÁTA
GLEÐITÁRUM
GEISP! ÉG SNÝ AFTUR ÞEGAR ÞÚ
HEFUR JAFNAÐ ÞIG
ÉG VAR RÉTT Í ÞESSU AÐ KOMA ÚR FRÁBÆRU
NUDDI HJÁ NUDDKONU SEM ER GULLFALLEG
DÍS OG GETTU HVAÐ?
ENGIR VERKIR!
ÞAÐ ER ÞAÐ SEM ÞÚ HELDUR!
Víkverji skellti sér í stórafmæli útií bæ um helgina og skemmti sér
hið besta. Í miðjum klíðum stóð upp
gestur, kvaddi sér hljóðs og kynnti
sig sem æskuvinnufélaga afmæl-
isbarnsins. Mögulega var það grín,
mögulega alvara og mögulega mis-
mælti ræðumaðurinn sig bara. En
orðið er í öllu falli bráðskemmtilegt,
æskuvinnufélagi. Og alltof sjaldan
notað. Víkverji man hreinlega ekki
eftir að hafa heyrt það áður.
x x x
Eins og gengur fór Víkverji afþessu tilefni að hugsa til sinna
æskuvinnufélaga; manna sem unnu
með honum í æsku. Kom þá fyrsta
launaða vinnan, unglingavinnan eða
vinnuskólinn, eins og það var kallað í
þá daga, upp í hugann.
Einn morguninn var Víkverja,
ásamt einum æskuvinnufélaga sín-
um, úthlutað illskásta verkefninu
sem í boði var; að hafa umsjón með
hjólbörunum í garðvinnu í almenn-
ingsgarði. Morgunninn leið merki-
lega hratt á börunum fram að kaffi. Í
kaffinu skaust Víkverji aðeins frá og
þegar hann sneri aftur blasti við
honum undarleg sjón – hjólbörurnar
voru vindlausar. Hvurslax? spurði
hann æskuvinnufélagann sem stóð
þar sperrtur álengdar.
„Já,“ svaraði æskuvinnufélaginn
hróðugur. „Ég hleypti úr þeim.“
Hvers vegna í ósköpunum?
„Fattarðu það ekki, maður. Nú
fáum við örugglega frí það sem eftir
er dagsins. Hjólbörurnar eru ónot-
hæfar.“
x x x
Meðan Víkverji klóraði sér í höfð-inu birtist flokksstjórinn og
starði í forundran á börurnar. „Hvað
átti sér stað hér?“
„Hef ekki hugmynd,“ svaraði
æskuvinnufélaginn. „En megum við
ekki bara fara heim í dag?“
„Heim!“ svaraði flokksstjórinn
með þjósti. „Nei, aldeilis ekki. Þið
megið fara að reyta arfa með hinum
krökkunum.“
Það var vandræðalegur æsku-
vinnufélagi sem rölti inn í runna með
Víkverja í framhaldinu en sá síð-
arnefndi kunni honum að sjálfsögðu
litlar þakkir fyrir. vikverji@mbl.is
Víkverji
Ég hef augu mín til fjallanna, hvaðan
kemur mér hjálp? Hjálp mín kemur
frá Drottni, skapara himins og jarðar.
(Sálmarnir 121.1-2)
Vatnagörðum 22 | 104 Reykjavík | Sími 585 8300 | sala@postdreifing.is | postdreifing.is
FJÖLPÓSTUR
SEM VIRKAR
*könnun Zenter apríl 2016.
61% landsmanna lesa fjölpóst
70% kvenna lesa fjölpóst
58% neytenda taka eftir tilboðum á
vöru og þjónustu í gegnum fjölpóst*
Dreifum sex daga vikunnar inn á 80.000 heimili
MARKHÓPURINN ÞINN BÍÐUR
EFTIR TILBOÐI FRÁ ÞÉR
Hafðu samband og við gerum þér tilboð í þá þjónustu sem þér hentar