Morgunblaðið - 05.03.2019, Side 33

Morgunblaðið - 05.03.2019, Side 33
Kvikmyndin Girl, eðaStúlka, hlaut fjölda verð-launa og tilnefninga ífyrra, m.a. fern verðlaun á kvikmyndahátíðinni í Cannes, tvenn á kvikmyndahátíðinni í San Se- bastián og ein á Evrópsku kvik- myndaverðlaununum sem haldin voru í Sevilla í desember og fjallað var ítarlega um í Morgunblaðinu. Að- alleikari myndarinnar, hinn ungi og efnilegi Victor Polster, var þar til- nefndur sem besti leikari en þau verðlaun féllu í skaut Marcello Fonte fyrir Dogman sem er sýnd á Stock- fish, eins og Girl. Polster er einkar sannfærandi í hlutverki 15 ára stúlku að nafni Lara sem fædd er í líkama drengs og þráir ekkert heitar en að ljúka kyn- skiptaaðgerð og verða atvinnuball- erína. Hún kemst inn í vandaðan ballettskóla og þarf að leggja sér- staklega hart að sér í náminu því lík- ami hennar lætur illa að stjórn, er töluvert stórgerðari en hinna stúlkn- anna enda ennþá líkami drengs. Líf Löru er enginn dans á rósum og hún forðast að fara í sturtu með hinum stúlkunum því hún er búin að líma niður á sér kynfærin með sterku íþróttalímbandi og átakanleg eru þau atriði þar sem Lara þarf að rífa af sér límbandið en allt harkar hún af sér, jafnt andlegan sársauka sem lík- amlegan og mætir miklu mótstreymi af hugrekki og æðruleysi. Lara nýtur stuðnings fjölskyldu sinnar, umhyggjusams og skilnings- kríks föður og yngri bróður en þegar hún fær þær fréttir að fresta þurfi frekar skurðaðgerð þar sem kynfær- um hennar verður breytt bregst hún illa við og andlegri heilsu hennar fer hrakandi. Þó skal tekið fram að hún er í hormónameðferð og líkist meira stúlku en stráki en hinar stúlkurnar í ballettskólanum átta sig þó fljótlega á því hvers kyns er og niðurlægja Löru í átakanlegu atriði. Girl er áhrifamikil kvikmynd og byggð á sannri sögu. Leikstjóri myndarinnar og annar tveggja hand- ritshöfunda, Belginn Lukas Dhont, hefur sagt frá því að hugmyndina hafi hann fengið eftir að hafa lesið viðtal við stúlku sem fæddist í líkama drengs, stúlku sem dreymdi um að verða atvinnuballerína. Þetta vakti áhuga Dhont og veitti innblástur og þótti honum áhugavert að segja sögu ungrar konu í þessari mjög svo erf- iðu stöðu, ungrar konu undir miklu líkamlegu og andlegu álagi. Dhont hafði því samband við stúlkuna og hóf í framhaldinu að leggja drög að handriti. Dhont lýsir þessari krísu Löru vel en hefði þó mátt finna fleira jákvætt í lífi hennar. Þá er hegðun skólasystra hennar dálítið einkennileg á köflum, þær sýna furðulítinn skilning á þján- ingum Löru og verða einum of ill- kvittnar. Einnig fannst mér bláendir sögunnar bera keim af því að hand- ritshöfundar hafi ekki vitað hvernig ætti að ljúka henni og ákveðið að skrúfa dramatíkina algjörlega í botn. En þetta er samt sem áður vönduð kvikmynd og afar vel leikin. Einnig ber að lofa kvikmyndatökuna þar sem oftast er einblínt á líkama Löru, fókusinn er alltaf á honum enda Lara í hverju einasta atriði myndarinnar. Hinn líkamlegi sársauki er áþreif- anlegur bæði í opnum sárum og svip- brigðum og hreyfingum Löru og endurspeglar einnig það sem hún þarf að takast á innra með sér. Polster er í dansnámi og það sést greinilega í vel mynduðum dansatrið- unum. Hvort Girl er raunsæ eða nákvæm í lýsingum sínum á þeim áskorunum sem transfólk þarf að takast á ég erf- itt með að meta. En áhrifamikil er hún og hreyfir við manni. Fangi í eigin líkama Bíó Paradís Girl bbbbn Leikstjórn: Lukas Dhont. Handrit: Lukas Dhont og Angelo Tijssens. Aðalleikarar: Victor Polster, Arieh Worthalter og Olier Bodart. Belgía og Holland, 2018. 109 mín. Sýnd á Stockfish. HELGI SNÆR SIGURÐSSON KVIKMYNDIR Ballettmeyjar Lara, leikin af Victor Polster, með nokkrum skólasystrum sínum. Sýnd í Bíó Paradís 8. mars kl. 17.40 og 10. mars kl. 22.20. MENNING 33 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. MARS 2019 Keith Flint, söngvari hljómsveitar- innar The Prodigy, er látinn, 49 ára að aldri. Samkvæmt frétt dagblaðs- ins Guardian svipti hann sig lífi. Flint fannst látinn á heimili sínu í Essex í gær og sendu félagar hans í hljómsveitinni nokkru síðar frá sér yfirlýsingu og sögðust harmi slegnir yfir andláti hans. Flint hefði verið frumkvöðull og goðsögn og yrði ævinlega saknað. Liam Howlett, sem stofnaði hljómsveitina árið 1990, staðfesti að um sjálfsvíg væri að ræða. Hann skrifaði á Instagram og sagðist vart geta trúað því að Flint hefði svipt sig lífi um nýliðna helgi. Howlett sagðist vera í uppnámi, reiður, ringlaður og bugaður af sorg. The Prodigy naut gífurlegra vin- sælda á tíunda áratugnum og þeim fyrsta á þessari öld og hélt sex sin- um tónleika hér á landi. Flint var hvað mest áberandi af liðsmönnum sveitarinnar með pönkaralegt hár sitt og ógnandi augnaráð. Hann gekk til liðs við The Prodigy sem dansari og varð síðar söngvari sveit- arinnar, söng við hlið rapparans Maxim. The Prodigy hefur gefið út sjö hljóðversskífur og kom sú síð- asta út í fyrra. Af helstu lagasmell- um má nefna „Firestarter“, „Breathe“ og „Smack My Bitch Up“. Morgunblaðið/Einar Falur Magnaður Keith Flint á tónleikum The Prodigy á útihátíðinni Uxa árið 1995. Keith Flint, söngvari Prodigy, svipti sig lífi Bandaríski leik- arinn Rami Mal- ek mun fara með hlutverk ill- mennisins í næstu kvikmynd um James Bond, ef marka má frétt dagblaðs- ins The Guardi- an sem vísar í vefinn Collider. Malek hlaut Óskarsverðlaun fyrir rúmri viku sem besti leikari í aðalhlutverki, fyrir túlkun sína á söngvaranum Freddie Mercury í Bohemian Rhapsody. Næst mun hann takast á við Daniel Craig í hlutverki njósnarans fræga og er sagður eiga í lokasamningaviðræðum við framleiðendur myndarinnar. Mal- ek mun hafa komið til greina í hlutverkið í allnokkurn tíma og Óskarsverðlaunin virðast hafa gert útslagið. Þá herma fregnir einnig að Óskars- verðlaunaleikkonan Lupita Nyong’o sé í sigtinu hvað varðar hlutverk í myndinni, sem mun fá heitið Shatterhand, skv. nýjustu fréttum. Engar yfirlýsingar hafa þó borist hvað þessar Bond-fréttir varðar en myndin verður frum- sýnd á næsta ári. Malek illmennið í næstu Bond-mynd Rami Malek Bandaríska leikkonan Kat- herine Helmond er látin, 89 ára að aldri. Hel- mond var eink- um þekkt fyrir leik sinn í grín- þáttunum Soap, eða Löður eins og þeir hétu þegar RÚV sýndi þá á sínum tíma, og gam- anþáttunum Who’s the Boss? sem nutu, líkt og Soap, mikilla vin- sælda. Helmond var með Alz- heimer-sjúkdóminn og lést af völdum hans, skv. frétt vefjarins Deadline, í Los Angeles. Hel- mond var fjórum sinnum til- nefnd til Emmy-verðlauna og hlaut Golden Globe-verðlaunin tvisvar. Leikkonan Kather- ine Helmond látin Katherine Helmond

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.