Morgunblaðið - 12.03.2019, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 12.03.2019, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. MARS 2019 Veður víða um heim 11.3., kl. 18.00 Reykjavík 4 alskýjað Hólar í Dýrafirði 2 skýjað Akureyri 2 skýjað Egilsstaðir 2 skýjað Vatnsskarðshólar 3 rigning Nuuk -4 skúrir Þórshöfn 4 heiðskírt Ósló 1 rigning Kaupmannahöfn 3 heiðskírt Stokkhólmur 0 léttskýjað Helsinki -4 snjóél Lúxemborg 5 léttskýjað Brussel 7 rigning Dublin 8 rigning Glasgow 7 skýjað London 10 heiðskírt París 9 heiðskírt Amsterdam 7 rigning Hamborg 4 skúrir Berlín 5 léttskýjað Vín 4 skýjað Moskva 2 léttskýjað Algarve 22 heiðskírt Madríd 18 léttskýjað Barcelona 15 léttskýjað Mallorca 17 léttskýjað Róm 15 léttskýjað Aþena 17 heiðskírt Winnipeg -13 heiðskírt Montreal 2 rigning New York 8 rigning Chicago 0 alskýjað Orlando 27 heiðskírt  12. mars Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 7:58 19:19 ÍSAFJÖRÐUR 8:04 19:22 SIGLUFJÖRÐUR 7:47 19:04 DJÚPIVOGUR 7:28 18:48 VEÐUR KL. 12 Í DAG Á miðvikudag Hægt vaxandi suðaustanátt og úr- komulítið, 8-15 m/s síðdegis og byrjar að rigna eða slydda sunnan- og vestantil. Hiti um og undir frost- marki, en upp í 4 stig með suðurströndinni. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Austan og norðaustan 6-18 m/s. Snjókoma norðanlands, talsverð rigning eða slydda með austurströndinni og léttir til um landið suðvestanvert. Norðan 5-15 m/s í kvöld. Sindragata 12c | Ísafirði | Sími 456 1300 | smidjan@velsmidjan.is FYRIR BÍLINN FJARLÆGIR MENGUN ÁHRIF AUKA SKILVIRKNI HEMLUNAR KREFST EKKI AÐ TAKA Í SUNDUR BREMSU HREINSIEFNI FYRIR BÍLA Líney Sigurðardóttir Þórshöfn Engisprettufaraldur er ekki það fyrsta sem upp í hugann kemur í mars, allra síst á Norðurlandi þar sem snjór þekur jörð eins og á Þórs- höfn. Varla er þó um faraldur að ræða en sprelllifandi engispretta af stærstu tegund kom þó í heimsókn í grunnskólann við mikinn fögnuð nemenda, að sögn náttúrufræði- kennarans Almars Marinóssonar. „Þetta mun vera rákaspretta sem er ein stærsta engisprettuteg- undin,“ sagði Almar sem þegar hafði haft samband við Erling Ólafsson, skordýrafræðing hjá Náttúrufræðistofnun. Engisprettan kemur frá hlýrri heimshluta, væntanlega frá Ítalíu því hún hefur trúlega verið laumu- farþegi í varahlutasendingu sem kom á verkstæði Ísfélagsins á Þórs- höfn frá Ítalíu. Vakin af værum blundi „Þessi tegund af engisprettu liggur venjulega í dvala á þessum árstíma á sínum heimaslóðum en hefur nú verið vakin hastarlega af værum blundi,“ sagði Almar og bætti við að áhugi nemenda á nátt- úrufræði og skordýrum hafi verið mikill og sem kennari nýtti hann tækifærið vel og allir bekkir fengu að sjá þennan framandlega gest. Engisprettan var sett í plast- box með loki og fóðruð á spínat- blöðum sem hún virtist kunna ágætlega að meta og var búin að kroppa töluvert í. Hún sýndi stökk- kraft sinn og stökk upp í lokið á fangelsinu sínu svo buldi í og var þá sett farg ofan á lokið til öryggis. Nemendurnir í skólanum óska þess að hægt verði að halda lífi í engi- sprettunni, sem er hin sprækasta ennþá. Rákaspretta á Þórshöfn Engispretta Rákasprettan hefst við í plastboxi og fær spínat að borða.  Kom líklega sem laumufarþegi í varahlutasendingu  Rákasprettan er ein af stærstu engisprettutegundunum Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is „Það er stór biti að kyngja að þurfa að greiða 55.800 kr. til viðbótar við flugfargjaldið fyrir súrefni sem eig- inmaðurinn þarf á að halda í flugi frá Billund til Keflavíkur og aftur til baka,“ segir Nanna Arthursdóttir sem flýgur til Íslands í júlí. Hún seg- ir eiginmanninn þurfa að nota súr- efnisþjöppu og er mjög ósátt við að Icelandair meini eiginmanni hennar að nota þjöppuna sem er af gerðinni Inogen One í fluginu frá Billund. „Ég ferðast mikið en kýs að kaupa mér súrefnisþjónustu Icelandir þrátt fyrir kostnað. Það fer betur með mig að fá súrefni úr kút þar sem súrefnisþjappan mín á erfiðara með að ná í súrefni þegar flogið er í 30.000 feta hæð,“ segir Kjartan Mo- gensen, formaður Samtaka lungna- sjúklinga. Hann segir að það bjóði ekki öll flugfélög upp á súrefnisþjón- ustu og fæst lággjaldaflugfélaganna geri það. „Það er ákveðin skerðing fyrir súrefnisþega og það skýtur skökku við þegar Sjúkratryggingar taka ekki þátt í kostnaði við súrefnisnotk- un á flugi en greiða fyrir leigu á súr- efniskút þegar súrefnisþegi er lentur á erlendri grund,“ segir Kjartan sem bætir við að súrefnisþjónusta Ice- landair hafi hækkað úr 3.000 kr. í 27.900 kr. Kjartan segist ekki hafa forsendur til þess að meta hvort nýja verðið sé raunhæft en klárlega hafi 3.000 kr. engan veginn staðið undir kostnaði. Kjartan segir að þar sem hann þurfi síflæði noti hann þrjá til fjóra lítra af súrefni í 2 klst. flugferð. Samkvæmt upplýsingum frá Ísaga kostar 2 lítra gaskútur 9.497 kr. auk þess sem greiða þarf 179 kr. leigu á sólarhring fyrir hvern kút eða 46.374 kr. fyrir ársleigu á 2 lítra kút. Súrefni á kostnaðarverði „Það hefur einhver misskilningur átt sér stað, við leyfum Inogen One- súrefnisþjöppur í okkar vélar. Við bjóðum einnig farþegum sem nýta þurfa auka súrefni í flugi aðgang að þeirri þjónustu á kostnaðarverði. Frá 1. desember eru greiddar 27.900 kr. fyrir hvern fluglegg sem er kostnaðarverð súrefnis að viðbættri vinnu flugvirkja. Áður niðurgreiddi Icelandair þessa þjónustu verulega,“ segir Ásdís Pétursdóttir, upplýs- ingafulltrúi Icelandair, sem bendir á að slík þjónusta er ekki í boði hjá öll- um flugfélögum og þar sem hún sé í boði sé hún yfirleitt ekki niður- greidd. Ásdís segir að Icelandair sé að vinna að drögum að samningi við Samtök lungnasjúklinga sem gangi út á að koma til móts við þá sem þurfa á súrefni að halda í flugi. Dýrt fyrir súrefnisþega að fljúga Hjálpartæki Handhæg súrefnisþjappa til að ferðast með fyrir súrefnisþega.  Súrefnisþegar greiða 27.900 kr. fyrir súrefni í flugi  Farþegi fékk ekki leyfi til að nota súrefnis- þjöppu vegna misskilnings  Sjúkratryggingar greiða fyrir súrefni erlendis en ekki í flugferðum Súrefni í flugi » Icelandair upplýsir á heima- síðu hvað viðskiptavinur með súrefnisþjöppu þarf að upp- fylla fyrir flug. » Notkun á flestum tegundum af súrefnisþjöppum leyfð. » Heimilt að hafa tvær litíum- rafhlöður í handfarangri. » Súrefnisþjappa ekki talin með sem handfarangur og ekki greitt aukalega fyrir hana. » Notkun súrefnisþjöppu þarf að tilkynna 14 dögum fyrir flug. » Nauðsynlegt að leggja fram læknisvottorð. Guðni Einarsson gudni@mbl.is Auður (audur.is) er ný fjármálaþjón- usta Kviku banka sem tekur formlega til starfa í dag. Auður býður sparnað- arreikninga fyrir einstaklinga með 4% vöxtum. Vextirnir eru greiddir mánaðarlega. Sparnaðarreikn- ingarnir eru óbundnir og alltaf lausir til úttektar. Bankaþjónusta Auðar er alfarið á netinu og er afar einföld og þægileg í notkun, sam- kvæmt fréttatil- kynningu. Auður nýtir rafræn skilríki til auðkenningar og fara öll viðskipti fram í íslenskum krónum. Fljótlegt er að stofna reikn- ing á slóðinni audur.is og það eina sem þarf eru rafræn skilríki. Lág- marksinnistæða hvers reiknings er 250.000 krónur en heimilt er að hafa lægri innistæðu í allt að 180 daga. Ólöf Jónsdóttir, forstöðumaður Auðar, sagði að það væri nýjung hjá Kviku banka að bjóða þjónustu sem þessa fyrir einstaklinga. Hingað til hefur Kvika banki einkum þjónustað fjárfesta og sinnt eignastýringu. Hver einstaklingur getur stofnað einn sparnaðarreikning hjá Auði. Ólöf sagði að ekkert þak væri á innistæð- um á sparnaðarreikningunum. Lág- marksinnistæðan tekur mið af því að geta staðið undir föstum kostnaði Auðar við þjónustuna. „Við bjóðum upp á fjármálaþjón- ustu á netinu og með því getum við lækkað kostnað og boðið betri kjör,“ sagði Ólöf. „Hugmyndin er að vera með litla yfirbyggingu og að við- skiptavinir afgreiði sig sjálfir og fái í staðinn hærri innlánsvexti. Vextirnir eru greiddir mánaðarlega inn á sparnaðarreikninginn þannig að það myndast vaxtavextir af vöxtunum. Það tekur viðskiptavininn bara nokkrar sekúndur að millifæra aftur yfir á reikning í sínum banka.“ Í fréttatilkynningu segir Ólöf að horft hafi verið til erlendra banka sem bjóða upp á svipaða þjónustu með góðum árangri. Auður býður upp á 4% innlánsvexti  Ný fjármálaþjónusta Kviku banka Ólöf Jónsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.