Morgunblaðið - 12.03.2019, Síða 21

Morgunblaðið - 12.03.2019, Síða 21
Mannkostir Sigurðar voru öll- um sem kynntust honum ljósir. Leitun er að hjartahlýrri manni. Hann var greindur, vel lesinn og var lagið að segja frá og kenna, enda valdi hann sér kennarastarf- ið í byrjun. Hann vildi öllum vel, var viðmótsþýður, greiðvikinn, út- sjónarsamur og handlaginn. Hann lét sér ekki nægja að kenna, held- ur bætti sífellt við sig námi. Hann varð prestur, góður prestur, rúm- lega fimmtugur og um sjötugt doktor í menntunarfræðum. Ég held að skilyrðislaus ást sé fremur fátíð, utan ást foreldra á börnum sínum, en ást Didda á konu sinni var skilyrðislaus. Hann dáði hana og hampaði og var ólatur að tjá henni og þeim sem heyra vildu hvað hann mat hana mikils og var þakklátur fyrir lífsgöngu þeirra saman. Þau héldust þétt í hendur í blíðu og stríðu. Strítt var lífið við og eftir fráfall elsku Ágú. Blítt var þeim hins vegar að sjá Möggu Stínu blómstra í tónlistinni, við að umvefja og styðja endalaust dótt- ursynina þrjá, sem áttu hjá þeim ástríkt skjól, síðar fá og dá yngri barnabörnin tvö og fylgjast með öllum dafna. Ævi öðlingsins Sigurðar Páls- sonar er á enda, en elska okkar til hans, okkar sem fengum að vera honum samferða, tekur ekki enda. Guð hefur tekið á móti einum af sínum bestu þjónum og sameinað föður og dóttur á ný. Það huggar og gleður. Ég þakka meira en sex- tíu ára samfylgd og bið Guð að vernda elsku Jóhönnu systur, Möggu Stínu, tengdason, barna- börnin og fjölskyldur þeirra. Megi gleði og þakklæti fyrir einstakan eiginmann, föður og afa ná að sefa söknuðinn og að lokum verða sorginni yfirsterkari. Helga Möller. Í Biblíunni er dregin upp ein- stök mynd af kærleikanum, sem fellur aldrei úr gildi. Sigurður Pálsson bar kærleikanum fagurt vitni með lífi sínu og framgöngu. Sú umhyggja og virðing sem hann sýndi nemendum sínum og öðru samferðafólki er til eftirbreytni. Hann var einstakur kennari og vinur. Frá honum streymdi kær- leikur og hlýja. Áhugi hans á kennslugreininni kristin fræði, siðfræði og trúar- bragðafræði var mikill og eftir- tektarverður og með faglegri nálgun sinni náði hann vel til nem- enda sinna. Þegar ég hóf nám í Kennarahá- skóla Íslands naut ég leiðsagnar Sigurðar. Ég sat og hlustaði á þennan speking útskýra hið óút- skýranlega á svo fallegan og sann- færandi hátt að ég ákvað að vel ígrunduðu máli að helga mig þess- ari námsgrein, sem nú ber heitið trúarbragðafræði. Áhugi minn á greininni gladdi Sigurð og átti ég ávallt stuðning hans vísan um hvaðeina er varðaði fagið. Síðar áttum við eftir að starfa saman á ýmsum vettvangi að framgangi greinarinnar. Sigurður var einstakt prúð- menni. Hann gekk ávallt vel til fara í jakkafötum og með bindi. Í hvert sinn sem hann gekk inn í kennslustofuna fór hann úr jakk- anum, braut hann saman á sinn sérstaka hátt og lagði á stólbak. Fyrr gat kennslan ekki hafist. Árið 1998 var stofnað fagfélag kennara í kristnum fræðum, sið- fræði og trúarbragðafræðum, FÉKKST. Sigurður var aðal- hvatamaður að stofnun þess. Hann bar hag greinarinnar mjög fyrir brjósti og var dyggur stuðn- ingsmaður félagsins. Hann reynd- ist óþreytandi að miðla fróðleik og visku til stjórnarmeðlima þegar eftir því var leitað. Sigurður var kennari af Guðs náð. Það var honum eðlilegt að uppfræða og honum var annt um nemendur sína. Sigurður, eins og aðrir mátti heyja sínar glímur í líf- inu. Þegar sorgin knúði dyra hjá honum og fjölskyldunni þá miðlaði hann reynslu sinni til okkar nem- endanna og helgaði nokkrar kennslustundir viðfangsefninu. Sigurður Pálsson var allt í senn, prestur, kennari, samstarfs- maður og traustur vinur. Í minn- ingunni um hann eru margar ánægjulegar og innihaldsríkar stundir. Síðasta haust hittumst við á förnum vegi. Hann hafði séð mig álengdar og gekk til móts við mig með útbreiddan faðminn. Hann umfaðmaði mig með kærleika sinn í hjarta. Minningin um þessa sér- stöku stund er mér dýrmæt og mun ávallt fylgja mér. Nú skilja leiðir. Ég votta Jó- hönnu eiginkonu Sigurðar og fjöl- skyldunni mína einlægustu samúð og bið almáttugan Guð að styrkja þau í sorg sinni. Birgitta Thorsteinson. Bernskuminning úr guðsþjón- ustu í Neskirkju: Mér varð star- sýnt á Jóhönnu og Sigurð sem sungu sálmana fullum hálsi, í sam- keppni við kirkjukórinn! Það var óvanalegt. Nokkrum árum síðar urðu þau hluti af lífi mínu og ég þeirra. Sig- urður talaði oft á KSS-fundum og kom á flest kristileg skólamót. Þá var Jóhanna iðulega með í för. Þau urðu eins konar trúarlegir stuðn- ingsforeldrar margra KSS-inga og heimili þeirra stóð okkur opið. Það nýtti ég mér óspart hluta ung- lingsáranna. Auk þess stjórnaði hann Æsku- lýðskór KFUM og KFUK. Það var góður tími og dýrmætt sam- félag, trúarlegt, tónlistarlegt og félagslegt nesti út í lífið. Diddi og Hanna leiddu stóran hóp framhaldsskólaunglinga á norrænt kristilegt framhalds- skólamót (SUM) í Noregi sumarið 1977. Eftir mótið fór meirihluti hópsins í fimm daga rútuferð og endaði svo á nokkurra daga dvöl í Ósló, sem þá var enn kölluð stærsta sveitaþorp í heimi. Þessi fyrsta utanlandsferð mín var góð og eftirminnileg enda hópurinn í öruggum höndum þeirra hjónanna. Allan tímann var eins og Diddi fyndi á sér ef einhverjum leið illa, hann var alltaf næmur á líðan annarra. Um þetta leyti var ég í stjórn KSS en hann var lengi „eldri fulltrúi“ í þeirri stjórn. Nokkrum árum síðar var ég kosinn í stjórn KFUM í Reykjavík þar sem Sig- urður var formaður. Þar, sem annars staðar, var hann sam- viskusamur og ábyrgur, nákvæm- ur og vandvirkur. Í mótun starfs- ins var hann í senn íhaldssamur á gömul gildi og opinn fyrir ný- breytni í starfsháttum. Helst háði honum sem leiðtoga hve viðkvæmur hann var og hætti til að efast um sjálfan sig og stöðu sína, algerlega að ástæðulausu. Mér reyndist hann ætíð umburð- arlyndur og vinsamlegur. Um- hyggjan var föðurleg. Hanna og Diddi komust ekki í brúðkaup okkar Þóru svo við buð- um þeim heim í kvöldkaffi nokkru síðar. Þau svældu í sig kökuna sem ég hafði bakað og reyndu að hrósa henni. Eftir á kom nefnilega í ljós að ég hafði farið baukavillt og sett negul í staðinn fyrir natron. En vinir setja slíkt ekki fyrir sig. Síðustu 29 ár hafa verið Sigurði mjög erfið. Þrátt fyrir það gaf hann alltaf af sér, í prédikun, fræðslu og sálgæslu. Flest störf hans um ævina tengjast fræðslu með einhverjum hætti en þótt hann væri kennari í eðli sínu var hann samt enn frekar hirðir, góð- ur hlustandi og afbragðs sálusorg- ari. Umhyggja Didda fyrir mér og mínum var ósvikin. Sönn vinátta felst ekki endilega í daglegri um- gengni, miklu frekar í því að láta vita af sér þegar neyðin er stærst og þörfin mest. Í erfiðleikum er dýrmætt að eiga þá að sem hringja eða senda skilaboð með reglulegu millibili og láta sig varða líðan þess sem er rakkaður niður. Slíkur vinur var Diddi Páls. Þann stuðning og alla elsku- semi fyrr og síðar þökkum við Þóra af heilum hug. Nú hefur Sigurður öðlast lausn og frið. Guð varðveiti Jóhönnu, Möggu Stínu, alla afkomendur og fjölskyldur þeirra. Ólafur Jóhannsson. Skammt er stórra högga á milli. Enn einn vinur minn er fallinn frá. Ég kynntist Sigurði fyrir rétt tæpum þremur áratugum eða 1990. Hann var þá framkvæmda- stjóri Hins íslenska biblíufélags þegar það ásamt guðfræðistofnun Háskóla Íslands gerði með sér samning um nýja þýðingu Gamla testamentisins. Sett var á laggirn- ar þýðingarnefnd sem fara skyldi yfir nýja texta þýðenda með nýja biblíuþýðingu í huga. Ég var beðin um að sitja í þessari nefnd ásamt fjórum öðrum og var Sigurður einn þeirra. Við hittumst vikulega milli fjögur og sjö flesta mánu- daga yfir vetrarmánuðina í 17 ár í vinnuherbergi Gunnlaugs A. Jónssonar prófessors í aðalbygg- ingu HÍ. Við sátum alltaf í sömu sætum og fengum okkur alltaf kaffibolla klukkan hálfsex. Árni Bergur Sigurbjörnsson féll raun- ar frá 2005 en enginn settist í sæt- ið hans eftir það. Nefndin náði vel saman og aldrei bar skugga á vin- áttu okkar. Auðvitað komu upp ágreiningsmál en þau voru öll leyst áður en fundi var slitið. Fáeinum árum eftir að verki okkar lauk hafði Sigurður sam- band og stakk upp á að við fengj- um okkur hádegissnarl á Sögu ásamt Gunnlaugi. Þetta varð að föstum lið hjá okkur þremur vor og haust árum saman, síðustu árin í Norræna húsinu. Við ræddum allt milli himins og jarðar og nut- um þess að vera saman þessa stund og treysta vinaböndin. Nú hringir enginn Sigurður og spyr hvort ekki sé kominn tími til að hittast. Mér þótti afar gott að leita til hans og alltaf átti hann huggandi orð þegar ekki lá vel á mér. Öll eigum við okkar markaða tíma og verðum að sætta okkur við það. En ég mun samt sakna þess að sjá hann ekki koma til fundar í ljósa frakkanum sínum með fallega hattinn, brosandi út að eyrum. Ég sendi Jóhönnu og fjölskyldu þeirra Sigurðar mínar innilegustu samúðarkveðjur. Guðrún Kvaran. Þegar við hugsum til dr. Sig- urðar Pálssonar, okkar kæra vin- ar og starfsbróður, sem kvaddur er í dag, þá kemur í hug frásögn úr Talmúd, trúarriti Gyðinga, sem segir frá fræðimönnum sem komu til borgar einnar í Ísrael. Þeir gerðu boð eftir varðmönnum borgarinnar. Borgarstjórnin var sótt. Fræðimennirnir sögðu: „Þetta eru ekki varðmenn borgar- innar.“ „Hverjir eru þá varðmenn borgarinnar?“ spurðu borgarbúar undrandi. Og fræðimennirnir sögðu: „Varðmenn borgarinnar eru þeir sem fræða hina ungu.“ Slíkur varðmaður var dr. Sig- urður. Ungur fékk hann köllun til að fræða hina ungu og var kennari af Guðs náð. Öll hans störf, hvar sem hann haslaði sér völl, á löngum og farsælum ferli sem kennari, hjá Ríkisútgáfu náms- bóka, í menntamálaráðuneytinu, Biblíufélaginu og sem prestur voru alltaf borin uppi af þeirri köllun og báru vitni um náðargáfu kennarans og kennimannsins og árvekni vökumannsins. Rödd hans var sterk, kenning hans „klár, kröftug … hrein og opin- skár, lík hvellum lúðurhljómi“ – eins og Passíusálmaskáldið brýnir Guðs kennimenn. Menntun hans var traust, þekkingin yfirgrips- mikil, starfskraftar hans, elja og atorka með ólíkindum og lífsvið- horf hans mótuð af fjölþættri reynslu. Það leyndi sér ekki held- ur að öll boðun hans og sálgæsla var borin upp af trú sem var skírð í eldi þjáninga og rauna í eigin lífi og fjölskyldunnar og því var öll yfirborðsmennska og „klissjur“ eitur í hans beinum. „Varðmaður borgarinnar“ var traustur veg- bróðir, einlægur vinur, sannur, heill og traustur. Við hjónin minn- umst með söknuði og þakklæti áratuga vináttu sem aldrei bar skugga á, samstarfs, samskipta og samfylgdar í gleði og raunum og við blessum þær góðu minningar. Við biðjum eiginkonu hans, frú Jó- hönnu Möller, dóttur þeirra og dætrabörnum og ástvinum hugg- unar Guðs og náðar. Umhyggja hans um þau lá honum ætíð innst og dýpst í hjarta. Við biðjum fyrir þeim með orðum hans: Guð, sefaðu svíðandi hjarta að sjái ég ljósið þitt bjarta og gef mér þinn græðandi frið, og gef mér þinn græðandi frið. (Sigurður Pálsson, sálmar 2013 nr. 924) Kristín og Karl Sigurbjörnsson. Góður vinur og áhrifavaldur í lífi mínu er nú horfinn inn í Sumarlandið. Í sorg og söknuði drúpi ég höfði og þakka fyrir líf hans. Didda Páls kynntist ég sem unglingur er hann var leiðtogi í kristilegu unglingastarfi. Hann hafði mikil áhrif á okkur öll sem þar vorum, trú hans sterk og ein- læg, góður hlustandi og óþreyt- andi að ræða við okkur á við- kvæmu tímaskeiði í lífi okkar. Spurningarnar voru endalausar og ég þurfti að spyrja og ræða. Þá opnuðu þau Jóhanna og Diddi heimilið sitt í Frostaskjólinu fyrir mér og varð ég þar heimagangur um margra ára skeið. Það var samræmd og ástrík fjölskylda sem ég kynntist þar. Og það var gæfa fyrir mig að fá að kynnast fallegu og góðu lífi þeirra. Við Gunnar hófum síðan bú- skap í kjallaranum í Frostaskjól- inu, vináttan styrktist, samver- urnar og samtölin urðu mörg. Þá var ég einnig svo lánsöm að vera skólasystir Didda í guðfræðinni, vinna með honum á skólarann- sóknardeild, í starfi í kirkjunni og í námskrár- og skólamálum. Alls staðar var Diddi fyrirmynd, agað- ur fagmaður, alúðlegur, skarpur og nákvæmur. Og alls staðar var hann sjálfur besta gjöfin, enda ör- látur á sig. Þá eru bréfin frá Jó- hönnu og Didda frá Uppsalaárun- um dýrmæt. Sorgin óbærilega og óskiljan- lega dundi yfir 9. apríl 1990 er Ágú lést. Og eftir það var opin und og skuggi sorgar sem hvíldi þungt. Ég er svo þakklát fyrir stund með Didda og Jóhönnu á spítalan- um þar sem ég fékk að kveðja Didda. Þar voru tár og bros. Hann talaði um sorgina þungu, glímu sína við Guð og hvað hann elskaði fólkið sitt. Hann vildi blunda, lagð- ist á koddann og sagði mér frá bæninni sem hann bæði samfellt í SJÁ SÍÐU 22 MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. MARS 2019 Ástkær eiginmaður, faðir, sonur, bróðir og frændi, PÉTUR EIRÍKSSON básúnuleikari, lést á Spáni föstudaginn 8. mars. Minningarstund verður haldin í Seljakirkju 14. mars klukkan 16. Amy Schimmelman Jakob Máni, Ísak Már, Evan Ari Péturssynir Eiríkur Haraldsson Haraldur Eiríksson og fjölskylda Guðrún Eiríksdóttir og fjölskylda Okkar ástkæri bróðir, mágur og frændi, ÞORFINNUR PÉTURSSON, Njálsgötu 65, Reykjavík, er látinn. Útför verður auglýst síðar. Sveinn Tómasson Guðlaug Pálsdóttir Andri Sveinsson Andrea Baldursdóttir Tómas Sveinsson Þórdís V. Þórhallsdóttir Eva Guðrún Sveinsdóttir Ágúst Sverrir Daníelsson Erna Svanhvít Sveinsdóttir Guðgeir Sturluson Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÞÓRUNN SIGURÐARDÓTTIR, Sóltúni, lést á Landspítalanum fimmtudaginn 7. mars. Útförin verður auglýst síðar. Erna Einarsdóttir Sigurður Einarsson Arndís Björnsdóttir Einar Þór Daníelsson Hildigunnur Daníelsdóttir Árni Garðarsson Þóra Jensdóttir Helga Þórunn Óttarsdóttir Gústav Arnar Davíðsson Þórunn Sigurðardóttir Björn Sigurðsson og barnabarnabörn Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma, ÁSTA EIRÍKSDÓTTIR WATHNE, áður til heimilis á Háaleitisbraut 40, Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Eir, miðvikudaginn 6. mars. Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 14. mars klukkan 13. Lára Wathne Kristján Friðriksson Jóhann Wathne Díana Liz Franksdóttir Eiríkur Jón Wathne Ásta Hrönn, Almar Örn, Maríanna, Friðrik Frank, María Fema Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÁSBJÖRN ÞÓRARINSSON rakari, Víkurbraut 30, Höfn í Hornafirði, lést á hjúkrunarheimilinu Skjólgarði föstudaginn 8. mars. Útförin fer fram frá Hafnarkirkju laugardaginn 16. mars klukkan 10.30. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á gjafa- og minningarsjóð Skjólgarðs. Vigdís Halldóra Vigfúsdóttir Sonja Guðrún Ásbjörnsdóttir Ingi Þór Sigurgeirsson Vigfús Þórarinn Ásbjörnsson Fjóla Hrafnkelsdóttir Birnir Vilhelm Ásbjörnsson Silja Gylfadóttir barnabörn og barnabarnabörn Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir, frænka, amma, langamma og langalangamma, GUÐBJÖRG ÁMUNDADÓTTIR, Minna-Núpi, Skeiða- og Gnúpverjahreppi, sem lést á dvalarheimilinu Ási, Hveragerði, mánudaginn 4. mars, verður jarðsungin frá Stóra-Núpskirkju laugardaginn 16. mars klukkan 11. Guðrún Ingólfsdóttir Auðunn Gestsson Herdís Kristjánsdóttir Trausti Sveinbjörnsson Ámundi Kristjánsson Viðar Ingólfsson Nína Björg Borgarsdóttir Guðbjörg Emma Ingólfsd. Gunnlaugur Óttarsson Snorri Arnarson Erla Gunnarsdóttir Erla Arnardóttir Ingi Björnsson langömmu- og langalangömmubörn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.