Morgunblaðið - 12.03.2019, Blaðsíða 27
York, til að læra á nýjan búnað og
tækni en þá stóð yfir umfangsmikil
endurnýjun innviða hér á landi, verk-
efni sem kostað var af Atlantshafs-
bandalaginu. Hjá Ratsjárstofnun var
ég nemi, tæknimaður, deildarstjóri
tæknideildar, rekstarstjóri ratsjár-
stöðvanna og síðast rekstrarstjóri
hugbúnaðarsviðs.“
Þegar Varnarmálastofnun var sett
á stofn í maí 2008 var Jón ráðinn
sviðsstjóri loftrýmiseftirlitssviðs og
síðar framkvæmdastjóri. Verkefni
Varnarmálastofnunar voru færð til
Landhelgisgæslu Íslands 2011 en
þar er hann framkvæmastjóri
varnarmálasvið með ábyrgð á dag-
legri framkvæmd varnartengdra
verkefna samanber varnarmálalög
og samning við utanríkisráðuneytið.
Árið 2006 var Jón í starfshópi und-
ir forystu Jóns E. Böðvarssonar, fv.
forstjóra Ratsjárstofnunar, en verk-
efnið var að taka við Keflavíkur-
flugvelli af Bandaríkjaher og tryggja
að flugvöllurinn yrði starfhæfur frá
og með 1.10. það ár. Sama ár var Jón
skipaður í nefnd á vegum utanrík-
isráðuneytisins til að eiga viðræður
við Bandaríkin og NATO um framtíð
íslenska loftvarnarkerfisins.
Í umboði utanríkisráðuneytisins
er Jón fullrúi Íslands í stjórnum Inn-
kaupa- og þjónustustofnunar NATO
í Lúxemborg og Fjarskipta- og upp-
lýsingatæknistofnunar NATO í
Haag, Hollandi.
Jón var á tímabili félagi í Björg-
unarsveitinni Stakkur í Keflavík,
hann er félagi í Rótarýklúbbi Kefla-
víkur og hefur verið formaður
stjórnar Verðlauna- og og styrkt-
arsjóðs Rótarý á Íslandi frá árinu
2013 en sjóðurinn veitir árlega við-
urkenningar fyrir framúrskarandi
eða nýstárlegt framtak, sem unnið er
hér á landi á sviði mennta, lista, vís-
inda eða atvinnumála, og styður
samfélagsverkefni.
„Ég er einnig félagi í Golfklúbbi
Suðurnesja og á ég þar mínar bestu
stundir með eiginkonu og börnum.
Ég nota golfið sem hreyfingu og hef
það eina markmið að fjölga gæða-
stundum með fjölskyldunni, allt ann-
að er aukaatriði. Ég er mikið á ferð-
inni vegna vinnunnar, hef komið
mjög víða og vil því helst eyða frítím-
anum heima. Nýjasta áhugamálið er
að sjálfsögðu fyrsta barnabarnið,
afastrákurinn hann Manúel Nói.“
Fjölskylda
Eiginkona Jóns frá 2.8. 1998 er
Hulda Oddsdóttir, f. 2.8. 1959, bóka-
safns- og upplýsingafræðingur,
skjalastjóri hjá lögreglustjóranum á
Suðurnesjum. Foreldrar Huldu:
Oddur Jónsson, f. 9.3. 1927, d. 31.3.
2010, vaktmaður í Sædýrasafninu í
Hafnarfirði, og Laufey Guðlaugs-
dóttir, f. 6.7. 1937, starfsmaður í eld-
húsinu í álverinu í Straumsvík, bú-
sett í Hafnarfirði.
Börn Jóns og Huldu eru 1) Guðni
Oddur Jónsson, f. 25.3. 1989, BS í
verkfræði, starfsmaður verkfræði-
deildar Icelandair, sambýliskona:
Jóhanna Ósk Kristinsdóttir, BA í
sálfræði, leiðbeinandi í sérdeildinni
Ösp í Njarðvíkurskóla, barn: Manúel
Nói Guðnason, f. 31.7. 2016; 2)
Laufey Jóna Jónsdóttir, f. 14.5. 1998,
nemi í verkfræði við Technical Uni-
versity of Denmark (DTU), bús. í
Lyngby.
Systkini Jóns eru Kristín Sigríður
Guðnadóttir, f. 21.3. 1958, heima-
vinnandi í Reykjanesbæ; Ívar Pétur
Guðnason, f. 23.6. 1960, BA í ensku,
bús. í Reykjavík; Þorbjörg Margrét
Guðnadóttir, f. 14.12. 1965, leikskóla-
kennari í Reykjanesbæ.
Foreldrar Jóns eru hjónin Guðni
Jónsson, f. 14.6. 1936, fv. forstjóri
starfsmannahalds Varnarliðsins á
Keflavíkurflugvelli, og Berta Björg-
vinsdóttir, f. 1.10. 1939, fv. starfs-
maður Póstsins í Reykjanesbæ. Þau
eru búsett í Garðabæ.
Jón Björgvin Guðnason
Una Stefanía Stefánsdóttir
húsfreyja í Neskaupstað
Pétur Pétursson
smiður, verkamaður
og póstur í Vallanesi,
Vallahr., S-Múl.
Þorgerður Pétursdóttir
húsfreyja á Djúpavogi
Berta Björgvinsdóttir
húsfreyja og starfsmaður hjá Póstinum í Keflavík
Halldór Björgvin Ívarsson
sjóm. og netagerðarmaður á Djúpavogi
Anna Margrét Jónasdóttir
húsfreyja á Djúpavogi
Ívar Halldórsson
trésmiður og járnsmiður á Djúpavogi
María Jónsdóttir fv.
verslunarstj. ÁTVR
í Reykjanesbæ
Einar Jónsson
lögmaður í Reykjavík
Skarphéðinn Jónsson
sérfr. hjá sveitarfélaginu
Garðabæ
Halldóra Guðbjörg
Jónsdóttir
húsfreyja í
Hafnarfirði
Þorlákur Marteinsson
framkvæmdastj.
Verkfærasölunnar
Jón Marteinsson
vélvirki í Hafnarfirði
Ólöf Marteinsdóttir
dagmóðir í Reykjanesbæ
Fjóla
Björgvinsdóttir
bóndi í
Kálfsárkoti í
Ólafsfirði
Anna Rós Jóhannesdóttir
yfirfélagsráðgjafi hjá
Landspítalanum
Hugrún Jóhannesdóttir
mannauðssérfr. hjá
Vinnumálastofnun
Jóhannes Jóhannesson
starfsmaður Bring Frigo
í Stavanger, Noregi
Einar Einarsson
klæðskerameistari í Hafnarfirði
Einar Einvarðsson
bóndi í Snæfellsnes-
og Mýrasýslu, síðar í
Hafnarfirði
Guðbjörg Árnadóttir
húsfreyja í Hafnarfirði
Kristín Sigríður Einarsdóttir
húsfreyja í Hafnarfirði
Jón Guðnason
steinsmiður og forstjóri í Hafnarfirði
Hólmfríður Þórðardóttir
húsfreyja í Nýjabæ
Guðni Jónsson
bóndi í Reykjavík, Pálshúsum og Nýjabæ á Álftanesi
Úr frændgarði Jóns Björgvins Guðnasonar
Guðni Jónsson
starfsmannastjóri
í Keflavík
ÍSLENDINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. MARS 2019
95 ára
Hermann Jónsson
90 ára
Eggert Kristmundsson
Jónína Ingólfsdóttir
85 ára
Guðrún Georgsdóttir
Jörundur Albert Jónsson
80 ára
Arnar Geir Hinriksson
Elísabet Hauksdóttir
75 ára
Erla Sveinbjörnsdóttir
Glúmur Gylfason
Guðríður Kolbrún Karlsd.
Kolbrún Vilbergsdóttir
Sigríður Stefánsdóttir
Sigurjón Ingvason
Þorkell Snævar Árnason
70 ára
Einar Benediktsson
Guðmunda K. Sigurðard.
Hrafnhildur Ingólfsdóttir
Margrét Lilja Valdimarsd.
Steinunn Helga Lárusdóttir
Valgeir Benediktsson
60 ára
Ásthildur Magnúsdóttir
Edda Jóhannsdóttir
Elsa Guðmundsdóttir
Eyjólfur M. Eyjólfsson
Hermann Smárason
Ingibjörg Salóme Egilsd.
Jón Björgvin Guðnason
Lucia van Vorstenbosch
Matthildur Gunnarsdóttir
Ólafur Ingi Jóhannesson
Sigurður G. Arnórsson
Sigþrúður Hilmarsdóttir
50 ára
Gunnar Bjarnason
Ingólfur Haraldsson
Jay Allen Silvernail
Joseph Varon Mamailao
Jóhann Sigurjón Sigmarss.
Karl Emilsson
Kristín Ágústa Gunnarsd.
Kristján Bjarnason
Kristveig Atladóttir
Olga Vasilisa Vasilenko
Ólafur Rafn Ólafsson
Sólrún Þorsteinsdóttir
Zdzislaw Kozikowski
40 ára
Andri Steinn Guðjónsson
Atli Gunnar Arnórsson
Ásmundur Jónsson
Björn Zakarias Flohr
Davíð Jónsson
Davíð Sigurðsson
Drífa Hrönn Stefánsdóttir
Elías Freyr Guðmundsson
Helena Rós Óskarsdóttir
Helgi Páll Gíslason
Jovanka Vujisic
Jóhannes Freyr Þorleifsson
Jón Albert Harðarson
Ólafur Magnússon
Slavoljub Aleksic
Zenonas Gilaitis
Þórmundur Blöndal
30 ára
Aleksandra Maria Krawczyk
Alice Hrncírová
Alicja Jolanta Karkowska
Guðrún Ósk Maríasdóttir
Helga Sigrún Ómarsdóttir
Julija Haragezova
Kristrún Linda Kristinsd.
Maria Andreea Iacob
Natalia Jonasz-Stasieluk
Oddrún Ragna Elísabetard.
Pawel Siwek
Piotr Zdunczyk
Þorgerður Þórhallsdóttir
40 ára Þórhildur er Reyk-
víkingur en býr í Kópa-
vogi. Hún er menntaður
félagsfræðingur og er
deildarstjóri á leikskól-
anum Aðalþingi.
Börn: Sara Nadía, f.
2005, og Steindór Örn, f.
2007.
Foreldrar: Örn Stefáns-
son, f. 1954, viðskipta-
fræðingur, og Ragnheiður
Þórólfsdóttir, f. 1959,
skrifstofumaður hjá Land-
helgisgæslunni.
Þórhildur Ýr
Arnardóttir
30 ára Pétur er Garðbæ-
ingur en býr í Kópavogi.
Hann er grafískur hönn-
uður að mennt og er staf-
rænn hönnuður hjá
Advania.
Maki: Ástrós Óladóttir, f.
1987, vinnur í Bláa lóninu
og samhliða að klára
meistaragráðu í stjórnun
og stefnumótun við HÍ.
Dóttir: Laufey, f. 2016.
Foreldrar: Pétur Pálsson,
f. 1956, og Ásdís Braga-
dóttir, f. 1959.
Pétur Örn
Pétursson
30 ára Gunnhildur er úr
Garðinum en býr á
Blönduósi. Hún er hjúkr-
unarfr. á sjúkrahúsinu þar.
Maki: Finnur Hrafnsson,
f. 1982, hótelstjóri á Hótel
Blöndu.
Börn: Tanja Birna, f.
2009, og Alda Kristín, f.
2017.
Foreldrar: Hafþór Þórð-
arson, f. 1961, bús. í
Keflavík, og Hulda Birna
Blöndal, f. 1966, bús. í
Kópavogi,
Gunnhildur Haf-
þórsd. Blöndal
Til hamingju með daginn
NÝTT – Veggklæðning
Rauvisio Crystal
• Mikið úrval lita og áferða
• Auðvelt í uppsetningu og umgegni
• Framleiðum eftir óskum hvers og eins
• Hentar fyrir heimili, vinnustaði og almenningssvæði
Fanntófell hefur sérhæft sig í framleiðslu á borðplötum og sólbekkjum síðan 1987.
Fanntófell ehf. | Gylfaflöt 6-8 | 112 Reykjavík | Sími 587 6688 | fanntofell.is
Joaquín M.C. Belart hefur lokið
doktorsvörn sinni í jarðeðlisfræði við
Háskóla Íslands. Heiti doktorsritgerð-
arinnar er Afkoma íslenskra jökla,
breytileiki og tengsl við loftslag
Leiðbeinendur voru dr. Eyjólfur
Magnússon, rannsóknarsérfræðingur
við Jarðvísindastofnun Háskólans, og
dr. Etienne Berthier, prófessor við La-
boratoire d’Etudes en Géophysique et
Océanographie Spatiales, Université
de Toulouse, Frakklandi.
Viðfangsefni doktorsverkefnisins er
nýting fjarkönnunargagna við gerð
hæðarkorta af jöklum og hvernig eigi
að nýta þau til að fá sem nákvæmasta
mælingu á afkomu jökla á tímabilum
sem spanna allt frá árstíð til áratuga.
Auk þess eru vensl afkomu og veð-
urfars greind. Til að kanna notagildi
fjarkönnunargagna við rannsóknir á
árstíðabundinni afkomu jökla voru
yfirborðshæðarkort af Drangajökli
unnin eftir háupplausnarljósmyndum
frá Pléiades og WorldView-2 gervi-
tunglunum við upphaf, miðbik og lok
vetursins 2014-2015. Mælingar á eðl-
ismassa vetrarsnjós að vori voru
nýttar til að
skorða betur vetr-
arafkomu jökuls-
ins auk þess sem
niðurstöðurnar
voru bornar sam-
an við mælda snjó-
þykkt í afkomu-
mælistöðum.
Niðurstöður
rannsóknarinnar sýna ótvírætt að oft
er hægt að nýta myndir frá áðurnefnd-
um gervitunglum við mælingu vetr-
arákomu jökla í stað þess að leggja í
kostnaðarsama og erfiða mælileið-
angra. Gríðarmikið safn loftmynda er
til af íslenskum jöklum allt aftur til
ársins 1945. Síðan þá hafa þeir flestir
verið myndaðir á 5 til 20 ára fresti.
Einnig hefur verulegs magns gervi-
hnattaljósmynda sem nýtast til
vinnslu hæðarkorta af jöklum verið
aflað eftir 2000 auk hæðarkorta eftir
leysimælingum úr flugvél af flestum
jöklum landsins frá 2008 til 2013.
Þessi yfirgripsmiklu gögn gera mögu-
lega vinnslu 70 ára afkomusögu
margra jökla.
Joaquín M.C. Belart
Joaquín M.C. Belart er fæddur 1989 og ólst upp í Jaén í Andalúsíuhéraði á
Spáni. Hann stundaði B.Sc. nám í landmælingum við Háskólann í Jaén frá
2007-2011 og lauk síðan frá sama skóla M.Sc. prófi í landmælingaverkfræði
sumarið 2013. Að mastersnámi loknu vann Joaquín sem rannsóknarmaður í
jöklafræði við Jarðvísindastofnun Háskólans. Haustið 2015 hóf hann nám til
sameiginlegrar Ph.D. gráðu frá Háskóla Íslands og Háskólanum í Toulouse III –
Paul Sabatier. Verkefnið var fjármagnað af Rannsóknasjóði HÍ og kostnaður við
ferðir á milli háskólanna var fjármagnaður af Jules Verne Research Fund. Joa-
quin er núna nýdoktor við HÍ.
Doktor