Morgunblaðið - 12.03.2019, Blaðsíða 29
DÆGRADVÖL 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. MARS 2019
Baldvin Ómar Magnússon
Lögg. Fasteignasali
Sími: 585 0101 – Gsm: 898 1177
baldvin@huseign.is
Suðurlandsbraut 20, 2 hæð, Reykjavík | Sími: 585 0100 | www.huseign.is
Við getum boðið margar gerðir stálgrindarhúsa
með fullmáluðum einangruðum samlokueining-
um, gluggum, glerveggjum og fleira en þetta er
líklegasti ódýrasti byggingarmátinn í dag.
Nú getum við boðið stálgrindarhús frá ýmsum
fyrirtækjum í Evrópu og Asíu á mjög hagstæðu
verði sem uppfylla öll
evrópsk skilyrði.
Við vinnum með kaupanda/arkitekti eða yfir-
verktaka frá fyrstu hugmynd til verkloka. Þannig
verður ódýrasti byggingarmátinn staðreynd.
Hugmyndir af stálgrindarhúsum:
Íþróttahús, verslunarmiðstöðvar, knattspyrnuhús,
skrifstofubyggingar, verksmiðjuhús, gripahús,
íþróttastúkur, brýr og ýmislegt fleira.
Nánari upplýsingar veitir Helgi Snorrason
í síma 615 2426.
Stálgrindarhús
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þótt þú sért ekki hlynntur því sem
ættingi þinn er að gera skaltu láta það af-
skiptalaust. Freistingarnar liggja í loftinu.
Prófaðu nú einu sinni að standast þær.
20. apríl - 20. maí
Naut Það getur aldeilis tekið í að þurfa stöð-
ugt að vera á tánum út af öllum hlutum.
Gefðu þér góðan tíma til þess að kynnast
málum af eigin raun og myndaðu þér svo
skoðun sem er þín.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Bara af því að þú getur gert eitt-
hvað þýðir ekki að þú ættir að gera það. Ein-
beittu þér að vinnunni því það er fylgst með
þér.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Að reyna að breyta hegðun annarra
er næstum því erfiðara en að losa sig við
slæman ávana. Gerðu það sem þú getur til
að hjálpa þeim sem þurfa hjálp.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Láttu ekki eyðslusegginn í þér ná yf-
irhöndinni. Ef ástvinur hagar sér eins og
hann sé fórnarlamb, ekki taka þátt í þeim
leik.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú þarft ekkert að blása í lúðra til
þess að koma málstað þínum á framfæri.
Gefðu þér tíma til að spjalla. Þér hættir til að
hafa of miklar áhyggjur.
23. sept. - 22. okt.
Vog Enginn staða er svo vonlaus að hana
megi ekki bæta með réttum aðgerðum. Það
er ýmislegt sem vekur áhuga þinn þessa
dagana, sérstaklega það sem snýr að
menntun.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þótt ýmsar áhyggjur sæki að
þér skaltu ekki láta þær draga úr þér kjark-
inn. Þú ættir að skella þér á námskeið sem
þig hefur alltaf dreymt um að gera.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þér hefur tekist að koma fjármál-
unum í rétt horf og hefur því efni á að verð-
launa þig lítillega. Þú höndlar erfiðar að-
stæður með glans.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú þarft að vinna í því að ná tök-
um á tilfinningum þínum. Leggðu áherslu á
það að líta björtum augum á tilveruna. Bjart-
sýni fleytir þér langt.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Láttu öll lögfræðileg mál bíða
betri tíma og láttu önnur og mikilvægari mál
ganga fyrir. Leggðu fyrir og safnaðu fyrir
hlutunum.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Einhver sýnir óþolinmæði og fljót-
færni í dag og vill æða umhugsunarlaust
áfram. Ekki bera þig saman við aðra.
Guðmundur Arnfinnsson yrkir áBoðnarmiði:
Er frúin var háttuð í holunni,
við hlið á eiginmanns rolunni,
hún meydóminn treindi,
hve mjög sem hann reyndi,
þar til hann geispaði golunni.
Hjálmar Freysteinsson yrkir um
„Sigfinn heitinn“ á fésbókarsíðu
sinni:
Hrekkjóttur Sigfinnur heitinn var;
er hringt var í björgunarsveitirnar
og þær voru að
þrusa af stað,
þá var hann kominn í leitirnar.
– Og aldrei keypti hann flugelda!
Jónas Friðrik Guðnason bætti
við:
Á afrekum hans var enginn stans.
og alla tíð reddaði sér með glans.
Er í kistu hann lá
og fólk kíkja vild’á
var hann auðvitað kominn til
andskotans.
Hér skaut Sigfinnur Þorleifsson
inn:
Sigfinnur aldrei sótti fast
að sofa hjá eða trúlofast …
Hjálmar brást vel við og sagði:
„Gaman að þú skulir kunna þessa
(ég man ekki alveg hvernig fram-
haldið var.) Ekki hafði ég nú hugs-
að mér að leggja þig í einelti!“
Og nú lauk Sigfinnur limrunni:
ástríða hans
þessa einstaka manns
einskorðaðist við sleggjukast
– „Minnir mig,“ sagði hann.
„Mér finnst hún góð og þær raunar
báðar, þó að ég sé ekki dauður
enn. Kærar þakkir fyrir skemmt-
unina!“
Ármann Þorgrímsson yrkir um
„ósamræmi í refsilöggjöf“:
Ef þú selur eigin skrokk
sem illa er kannski gerður
saklausra þú fyllir flokk
fórnarlamb þú verður.
En ef þú bruggar eðalvín
fer annað hljóð um salinn
þú skalt góði gæta þín
glæpamaður talinn.
Á dögunum ók Ingólfur Ómar
suður Hellisheiðina. Þá blöstu við
honum sólbrydd ský á himni enda
sú gula búin að skína glatt:
Bjarma skreytt er skýjahöll
skartið himni gefur.
Glóðardísin grund og fjöll
geislamundum vefur.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af hrekkjum og
vafasömum viðskiptum
BÖÐVAR LAGÐI ÝMISLEGT Á SIG VIÐ AÐ
KOMA SÉR UNDAN VERKUM.
„EF ÉG HÆKKA LAUNIN ÞÍN ÞARFTU AÐ
FARA AÐ HAFA ÁHYGGJUR AF ÞVÍ AÐ
FINNA SKATTASKJÓL.”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... bros sem geymir
framtíðina.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
LÍFIÐ ER HÆÐIR
OG LÆGÐIR
ÞETTA ER
„HÆÐ”
ÉG VILDI ÓSKA
ÞESS AÐ ÉG VISSI
LEYNDAMÁLIÐ UM
HVERNIG HALDA Á
FRÚNNI ÁNÆGÐRI!
ÞÚ HLÝTUR AÐ
VERA HAMINGJU-
SAMLEGA
GIFTUR!
NEIBB!
KÆRASTAN MÍN ER
GIFT KONA!ÉG VEIT
LEYNDAR-
MÁLIÐ!!
Stundum finnst Víkverja eins oglífið sé endalaus hringrás sem
snýst að mestu um að taka úr eða
setja í uppþvottavélina. Þegar slíkar
hugsanir sækja á er gott að fara út
að ganga, skella sér í sund, næla sér
í góða bók á bókasafninu eða horfa á
eitthvað almennilegt í sjónvarpinu.
x x x
Víkverji horfir einstaka sinnum áþætti um mat og matarmenn-
ingu á Netflix. Einn þessara þátta er
Chef’s Table þar sem í hverjum
þætti er tekinn fyrir einn kokkur.
Framleiðendur vita alveg hvað þeir
eru að gera því auk þess að kynnast
matargerð viðkomandi og veitinga-
húsum þeirra er jafnan sögð per-
sónuleg saga. Það getur verið saga
af einhverjum sem þurfti að hafa
fyrir því að komast á þann stað sem
hann eða hún er á í dag. Og það get-
ur líka verið hið kunnuglega stef að
það geri fólki gott að ferðast og
kynnast heiminum betur. Margir
viðmælendur virðast nefnilega eiga
það sameiginlegt að hafa sankað að
sér þekkingu á ferðum um heiminn
en ákveðið á endanum að snúa aftur
á æskustöðvarnar. Þá fyrst hafi þeir
kunnað að meta það sem þar er í
boði. Þetta er reyndar upplifun sem
margir þekkja úr eigin lífi, kokkar
sem aðrir, og fyrir vikið er þetta gott
sjónvarpsefni.
x x x
Hraðahindranir á höfuðborgar-svæðinu hafa stundum valið
Víkverja heilabrotum. Nóg er nú af
þeim svo skárra væri það. Hið
merkilega er þó hversu margar
gerðir virðast til af hraðahindr-
unum. Áhugaverðasta týpan að mati
Víkverja er hraðahindrunin sem er
tvískipt, sitt hvor kassinn á hvorri
akrein fyrir sig. Gott dæmi um þetta
er við Ánanaust í Vesturbænum.
Henni er þannig fyrir komið að þú
getur í raun keyrt á milli kassanna
tveggja án þess að draga nokkuð úr
hraðanum. Þetta gera margir þegar
enginn bíll er í nánd en svo eru þeir
sem finnst þetta svo sjálfsagt og
þægilegt að þeir renna sér á milli án
þess að pæla nokkuð í því hvort bílar
séu á akreininni við hliðina á. Það er
ekki í lagi.
vikverji@mbl.is
Víkverji
Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels, því
að hann hefur vitjað lýðs síns og búið
honum lausn.
(Lúk: 1.68)