Morgunblaðið - 12.03.2019, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 12.03.2019, Qupperneq 33
MENNING 33 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. MARS 2019 Svo til uppselt (sætavísa gizk-aði á 95% nýtingu) var áfyrstu uppfærslu Íslenzkuóperunnar síðan 2008 á e.t.v. vinsælustu óperu allra tíma, La trav- iata [„Hinni afvegaleiddu“], er Guis- eppe Verdi samdi 1849 upp úr leikriti Alexandres Dumas yngri, Kam- ellíudömunni 1848 (kenndri við blóm er táknar samhygð og vináttu). Þótt tónsetningin ,flaskaði‘ (< ít. fiasco) á frumsýningu í Feneyjum 1853, sló hún heldur betur í gegn síðar og festi Verdi varanlega í sessi sem fremsta fulltrúa ítalskrar óperu. Skyldi engan undra – þó aðeins væri fyrir þann sæg eftirminnilegra eyrnaorma sem þar má finna og raula ósjálfrátt fyrir munni sér enn í dag. Svo ekki sé minnzt á grúa ,yfir- breiðna‘ í djassi og poppi síðari ára. Því melódísk auðlegð Verdis stendur enn óhögguð fyrir sínu – til hvetjandi fyrirmyndar á okkar laglausu skálm- öld. Altítt er í óperuuppfærslum seinni áratuga að færa upphaflegt sögusvið nær nútíma. Eflaust í vitund um æ söguskertari innlifunarhæfni hlust- enda, og tekst það misvel eins og gengur. Í þessu tilviki virtist þannig mega tímasetja umgjörðina út frá búningum og (furðu vel heppnaðri) sviðsmynd við ca. 1940-60. En ein- hverra hluta vegna (»guði sé lof!« myndu kannski sumir segja) stóð þó á nútíma rétttrúnaðarnálgun á aðstöðu aðalpersónunnar Violettu, byggðri á raunverulegri manneskju er lézt að- eins 23 ára úr tæringu 1847. Þetta skal aðeins sagt í ljósi nýj- ustu umræðu um kjör hérlendra vændiskvenna. Því þótt Kamellíu- frúin hafi tilheyrt efstu stétt þáver- andi „escort“-fljóða (á við geisjur Japana og hetærur Forngrikkja) og verið dáð og eftirsótt af helztu andans stórmennum Frakklands, þá mætti eflaust búast við allt annarri útreið í skæðustu túlkun nútíma femínista. Hvað sem því líður var mikil ánægja að tónlistarflutningi kvölds- ins. Og þó að framlag flestra ein- söngvara, ásamt eldhressum söng Óperukórsins (að ógleymdum sveifl- andi dansi), stæði í mörgu upp úr, ber ekki sízt að nefna sérlega hnitmið- aðan leik hljómsveitar, jafnt að styrk- rænu samvægi sem hrynrænni skerpu, er hlaut að upphefja flest á sviði í sannfærandi heildarupplifun. Bjarni Frímann hljómsveitarstjóri var þar, með orðum Bjarna Fel., vægast sagt betri en enginn. Satt að segja var næsta erfitt að bregða putta á neinn verulega veikan punkt. Einsöngvarar hinna þriggja aðalhlutverka Violettu, Alfredos og föður hans Giorgios stóðu sig oftast afburðavel og náðu að draga fram persónueinkenni sín af tilhöfðandi fjölbreytni. Og þó að undirrituðum fyndist raddbeiting Herdísar á há- værustu köflum svolítið skjögrandi í titri, þá sýndi hún á veikari stöðum hins vegar heillandi og að sama skapi sannfærandi innlifun í túlkun. Aukahlutverkin voru auðheyran- lega einnig í góðum höndum á þeim tiltölulega stuttu augnablikum sem þeim gáfust í verkinu, er virðast al- mennt skemmri en í mörgum öðrum óperum ítalska meistarans. Sem fyrr nefnt var sviðsskreyt- ingin – í nánast tímalausum nútíma- stíl ef svo mætti kalla – furðuvel til þess fallin að hæna ólíkar kynslóðir að klassísku 175 ára gömlu ástar- drama. Svo og lýsing, dansatriði og sjónleikræn tilþrif. (Ónefndur áheyr- andi kvartaði að vísu undan viftusuði (e.t.v. frá ljóskösturum), en það trufl- aði þó ekki mig.) Undirtektir voru eftir því hlýjar. Enda ekki að sökum að spyrja. Ís- lenzka óperan lifir enn – og eftir þessu að dæma á bullandi uppleið! Tímalaus samhygð Ljósmynd/Jóhanna Ólafsdóttir „Á bullandi uppleið“ „Einsöngvarar hinna þriggja aðalhlutverka Violettu, Alfredos og föður hans Giorgios stóðu sig oftast afburðavel og náðu að draga fram persónueinkenni sín af tilhöfðandi fjölbreytni,“ skrifar rýnir. Hér eru Elmar Gilbertsson og Herdís Anna Jónasdóttir sem Alfredo og Violetta. Eldborg í Hörpu La traviata bbbbn Eftir Giuseppi Verdi. Söngrit: Francesco Maria Piave. Leikstjórn: Oriol Tomas. Leikmynd: Simon Guilbault. Búningar: Sébastien Dionné. Lýsing: Erwann Bern- ard. Danshöfundur: Lucie Vigneault. Myndbandshönnuður: Félix Fradet- Faquy. Aðalhlutverk: Violetta: Herdís Anna Jónasdóttir S; Alfredo Germont: Elmar Gilbertsson T; Giorgio Germont: Hrólfur Sæmundsson Bar. Aðrir söngv- arar: Sigríður Ósk Kristjánsdóttir, Hrafnhildur Árnadóttir, Snorri Wium, Oddur Arnþór Jónsson, Paul Carey Jon- es og Valdimar Hilmarsson. Kór (kórstj. Magnús Ragnarsson) og hljómsveit Ís- lensku óperunnar. Hljómsveitarstjóri: Bjarni Frímann Bjarnason. Íslenska óperan frumsýndi í Eldborg Hörpu laug- ardaginn 9. mars 2019 kl. 20. RÍKARÐUR Ö. PÁLSSON ÓPERA Tilkynnt hefur verið hvaða tón- listarmenn munu koma fram á tónlistarhátíðinni Bræðslunni á Borgarfirði eystra í sumar en há- tíðin vinsæla verður haldin 27. júlí næstkomandi. Auður, GDRN, Dúkkulísurnar, Dr.Spock, Jón Jónsson og Frikki Dór, Sóldögg og Jónas Sig munu stíga á svið í sumar „á Bogganum og lofa Bræðslubræður ógleym- anlegri skemmtun sem fyrr,“ seg- ir í tilkynningu frá aðstandendum skemmtunarinnar. Bræðslan hefur fyrir löngu fest sig í sessi sem einn af helstu tón- listarviðburðum ársins hér á landi og verður þetta í 15. skiptið sem hátíðin fer fram. Íbúafjöldi í þorpinu margfaldast þessa daga og sækja margir gesta í að koma aftur og aftur að upplifa líflegan tónlistarflutning í fallegu um- hverfinu. Miðasala á Bræðsluna 2019 er hafin en síðustu 13 ár hafa miðar selst upp. Auður, GDRN og fleiri á Bræðslunni Ljósmynd/iTorfa Gleði Uppselt hefur verið á Bræðsluna á Borgarfirði eystra 13 síðustu sumur. Bandaríska lista- konan Kara Wal- ker hefur verið valin til að skapa næstu stóru inn- setningu í hinn víðáttumikla Túrbínusal í Tate Modern- safninu í Lond- on. Verður sýn- ing hennar opnuð í október en sýn- ingarnar vekja alla jafna mikla athygli. Sú best sótta var Weather Project Ólafs Elíassonar en aðrar rómaðar eru Sólblómafræ Ais Wei- wei og rennibrautir Carsten Höll- ers. Kara Walker er blökkumaður og sló hún í gegn snemma á tíunda áratugnum fyrir verk sem fjölluðu um þrælahald og kynþáttaníð í Bandaríkjunum; þekktustu mynd- verk hennar eru svartar skugga- myndir á hvítum fleti sem fjalla um þá myrku sögu og sýna til að mynda hvíta menn beita svarta of- beldi. Á síðustu árum hefur Walker skapað stór opinber myndverk sem vakið hafa mikla athygli. Kara Walker næst í Túrbínusalnum Kara Walker

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.