Morgunblaðið - 13.03.2019, Síða 1
M I Ð V I K U D A G U R 1 3. M A R S 2 0 1 9
Stofnað 1913 61. tölublað 107. árgangur
SKOÐAR SKILIN Á
MILLI MÁLVERKS OG
ÞRÍVÍÐS HLUTAR
VÖK RÆR
Á POPPAÐRI
MIÐ
STINNI STUÐ
LIFNAR VIÐ Á
LAUGARVATNI
NÝ BREIÐSKÍFA 33 MEÐ ALLT Á HREINU 12STEINUNN ÖNNUDÓTTIR 30
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Leit lokið Árni Friðriksson, skip Hafrann-
sóknastofnunar, hefur leitað að loðnu.
Allri formlegri leit að loðnu er lok-
ið fyrir þessa vertíð. Niðurstaðan er
sú að Hafrannsóknastofnun mun
ekki leggja til að gefnar verði út
aflaheimildir fyrir tegundina. Þetta
var ákveðið á fundi Hafrann-
sóknastofnunar, með þeim útgerð-
um sem eiga loðnukvóta, í gær.
„Þetta bitnar á öllum, ætli rík-
issjóður sé ekki að verða af ein-
hverjum fjórum til fimm millj-
örðum,“ sagði Gunnþór Ingvason,
framkvæmdastjóri Síldarvinnsl-
unnar, í samtali við mbl.is í gær, en
útflutningsverðmæti loðnu í fyrra
nam tæpum 18 milljörðum króna.
Formlegri loðnuleit
er lokið að sinni
Dómur frá Mannréttindadómstóli
Evrópu fjallar um brot á þjóðréttar-
skuldbindingum Íslands, en breytir í
engu dómum, ákvörðunum eða lögum
sem sett hafa verið hér á landi. Þetta
segir Björg Thorarensen, prófessor
við lögfræðideild Háskóla Íslands, um
mögulegar afleiðingar dóms Mann-
réttindadómstóls Evrópu í gær.
Dómstóllinn komst að þeirri niður-
stöðu að íslenska ríkið væri brotlegt í
Landsréttarmálinu svokallaða og að
dómaraskipun Sigríðar Á. Andersen
dómsmálaráðherra í réttinn hafi brotið
gegn mannréttindasáttmálanum.
Dómurinn var klofinn og töldu fimm
dómarar ríkið brotlegt en tveir skiluðu
sératkvæði og töldu ríkið ekki hafa
brotið gegn sáttmálanum. Sagði
minnihlutinn dóminn umfram tilefni
og að of mikilli hörku væri beitt við
túlkun málsatvika.
Sigríður Á. Andersen dómsmálaráð-
herra sagði í gær að verið sé að fara yf-
ir dóminn í ráðuneytinu og skoðað
verði hvort málinu verði vísað til yf-
irréttar.
Athygli vekur að dómurinn segir
ljóst að Alþingi hafi ekki tryggt rétt-
mæta þinglega meðferð þegar ákveðið
var að greiða atkvæði um skipun 15
dómara við Landsrétt í einu lagi en
ekki um hvert embætti. „Sigríður Á.
Andersen dómsmálaráðherra lagði
Dómurinn hafi engar
sjálfkrafa afleiðingar
Sigríður vildi greiða atkvæði um hvert dómaraefni fyrir sig
MEngar sjálfkrafa »2, 4, 18
málið þannig upp að hægt væri að
greiða atkvæði um hvert dómaraefni
fyrir sig,“ sagði Birgir Ármannsson,
formaður þingflokks Sjálfstæðis-
flokksins. Hann sagði að það hefði ver-
ið ákvörðun Unnar Brár Konráðsdótt-
ur, þáverandi forseta Alþingis, í
samráði við alla þingflokksformenn að
hafa þennan háttinn á. Hverjum þing-
manni hefði verið í lófa lagið að gera
athugasemd við það, sem enginn gerði.
Forseti Íslands gaf út yfirlýsingu um
að mistök hefðu ekki átt sér stað við
undirbúning og tilhögun atkvæða-
greiðslunnar um málið á Alþingi.
Icelandair tilkynnti síðdegis í gær að flugfélagið
hefði kyrrsett allar þrjár Boeing 737 MAX 8-
vélar fyrirtækisins. Á myndinni sjást tvær þeirra
í Keflavík í gær. Flugöryggisstofnun Evrópu-
sambandsins ákvað í gær að banna notkun slíkra
véla í lofthelgi aðildarlandanna í kjölfar flug-
slyssins í Eþíópíu á sunnudaginn. Bréf í Ice-
landair lækkuðu um 5% í gær í ríflega 480 millj-
óna króna viðskiptum. »16, 17 & 18
Ljósmynd/Víkurfréttir
MAX 8-þotur Icelandair kyrrsettar í Keflavík
Meirihluti
þingmanna í
neðri deild
breska þingsins
hafnaði í gær-
kvöld sam-
komulagi The-
resu May,
forsætisráðherra
Bretlands, við
Evrópusam-
bandið um útgöngu Breta úr sam-
bandinu. Þetta er í annað sinn sem
þingið hafnar samningi um út-
göngu en breytingar sem gerðar
voru þóttu ekki ganga nógu langt
til að tryggja hagsmuni Breta. 391
greiddi atkvæði gegn samningnum
en 242 voru fylgjandi honum. »17
Samningi Theresu
May var hafnað á ný
Theresa May
Félagar í VR samþykktu verkfalls-
boðun í hópbifreiðafyrirtækjum á fé-
lagssvæði VR og í gistiþjónustu á
höfuðborgarsvæðinu og í Hvera-
gerði. Alls samþykktu 52,3% þeirra
sem tóku þátt í atkvæðagreiðslunni
verkfallsaðgerðir en 45,3% voru á
móti. 2,4% tóku ekki afstöðu. Að
óbreyttu munu félagsmenn sem
verkfallsboðunin nær til leggja niður
störf í einn sólarhring föstudaginn
22. mars. Síðar taka við lengri verk-
föll og að endingu er ótímabundin
vinnustöðvun boðuð frá miðnætti 1.
maí.
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður
VR, kveðst telja að niðurstaða at-
kvæðagreiðslunnar hafi styrkt samn-
ingsstöðu VR og þrýsti á viðsemjend-
ur.
Viðmælendur í ferðaþjónustu lýsa
áhyggjum af þeim afleiðingum sem
verkföll muni hafa. „Gistinætur sem
seljast ekki núna verða ekki seldar
seinna,“ segir Sólborg Lilja Stein-
þórsdóttir, hótelstjóri Hótels Holts.
„Ég les það út úr þessari niður-
stöðu að það sé ekki mikill hugur í
almennum félagsmönnum VR að
fara í verkfall,“ segir Þórir Garðars-
son, stjórnarformaður Gray Line.
„Þessi verkföll munu lama rekstur
fyrirtækjanna,“ segir hann enn
fremur. »8, 14
Verkfall sam-
þykkt hjá VR
„Munu lama rekstur fyrirtækjanna“