Morgunblaðið - 13.03.2019, Síða 7

Morgunblaðið - 13.03.2019, Síða 7
FRÉTTIR 7Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. MARS 2019 Katrín Jakobsdóttir forsætisráð- herra átti fund með António Guterres, aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, í tengslum við kvennanefndarfund Samein- uðu þjóðanna sem stendur yfir í New York. Á fundinum var rætt um áskor- anir í jafnréttismálum og vakti Katrín sérstaklega athygli á ár- angri Norðurlandanna á því sviði en Ísland fer nú með formennsku í Norrænu ráðherranefndinni. Þá ræddu forsætisráðherra og framkvæmdastjórinn um aðgerðir í loftslagsmálum og komandi loftslagsfund í haust og mikil- vægi þess að öll ríki leggi sitt af mörkum við lausn loftslagsvand- ans, að því er fram kemur í til- kynningu frá forsætisráðuneyt- inu. Haft er eftir Katrínu Jakobs- dóttur að fundurinn hafi verið góður og hreinskiptinn. Guterres sé afar reynslumikill á sviði alþjóðamála, og þá ekki síst mannréttindamála. „Ég veit að hann er með djúpa sannfæringu fyrir því að hægt sé að byggja réttlátari og sjálfbær- ari heim. Það er gott að vita af slíkri leiðsögn innan Sameinuðu þjóðanna á þessum tímum sem við lifum.“ Rætt um jafnréttismál Forsætisráðherra átti einnig tvíhliða fundi með Mörtu Ram- irez, varaforseta Kólumbíu, Julie Anne Genter, ráðherra jafnrétt- ismála á Nýja-Sjálandi og Nathal- iu Kanem, framkvæmdastjóra mannfjöldasjóðs Sameinuðu þjóð- anna. Þá tók hún jafnframt þátt í viðburði á vegum EPIC, Equal Pay International Coalition, þar sem fjallað var um jafnlaunamál og jafnrétti á vinnumarkaði. Í umræðum var því velt upp hvort ásættanlegt geti talist að launajafnrétti kynjanna nái ekki fram að ganga fyrr en eftir rúm- ar tvær aldir en það er sá tími sem Alþjóðaefnahagsráðið hefur áætlað. Í innleggi sínu fjallaði forsætis- ráðherra meðal annars um jafn- launavottun en lög um hana tóku gildi á Íslandi í fyrra. Segir gott að vita af leiðsögn Guterres Ljósmynd/Forsætisráðuneytið Sameinuðu þjóðirnar Katrín Jak- obsdóttir ásamt António Guterres.  Katrín Jakobsdóttir á kvenna- nefndarfundi Sameinuðu þjóðanna Á MORGUN FIMMTUDAGINN 14.MARS OPNUM VIÐÁ NÝ EFTIR BREYTINGAR Velkomin í stærri og betri Vínbúð í Skeifunni Við tökum vel á móti ykkur! Nærri 100 bænd- ur óskuðu eftir að bæta við sig mjólkurkvóta, samtals um 9,5 milljónum lítra, á innlausnardegi fyrir greiðslu- mark í mjólk í byrjun þessa mánaðar. Hins vegar voru að- eins 60 þúsund lítrar í boði þar sem tveir framleiðendur óskuðu eftir að selja. Komu aðeins um 300 lítrar í hlut þeirra sem ekki teljast til for- gangshópa. Helmingur þess lítrafjölda sem Matvælastofnun innleysti fyrir hönd ríkisins var seldur forgangs- hópum, samkvæmt gildandi reglum, það er að segja nýliðum og þeim sem framleitt höfðu meira en 10% umfram kvóta á viðmiðunar- tímanum. Hinn helmingurinn, um 30 þúsund lítrar, skiptist á milli allra 99 framleiðendanna sem ósk- uðu eftir að bæta við sig. Verðið er ákveðið fyrirfram og verður 100 krónur á lítra allt árið 2019. helgi@mbl.is Gátu bætt við sig 300 lítra kvóta Kýr Lítið kemur í hlut hvers bónda. Hið árlega Guðlaugssund, sem er 6 km, var synt í 35. sinn í Sundlaug Vestmannaeyja. Sundið er synt til þess að minna á öryggismál sjómanna og til þess að minnast þrekvirkis Guðlaugs Frið- þórssonar sem synti 5,7 km leið til lands eftir að Hellisey VE 503 sökk austan við Heimaey. Guðlaugur komst einn af og horfði á eftir fjór- um skipsfélögum sínum í hafið. Upphafsmaður sundsins var Ás- mundur Friðriksson og syntu nem- endur Stýrimannaskólans í Vest- mannaeyjum sundið fyrstu árin. Alan Friðrik Allison, sem heldur ut- an um sundið í dag, segir að sjö manns hafi synt á mánudaginn 11. mars og átta manns í gær. „Þrír einstaklingar syntu heilt sund, 6 km, sem eru 240 ferðir yfir laugina. Aðrir skiptu á milli sín einni ferð,“ segir Alan og bendir á að elsti þátttakandinn í Guðlaugs- sundinu í ár hafi verið Bjarni Jón- asson sem er rúmlega áttræður. Morgunblaðið/Óskar Pétur Öryggi Guðlaugssundinu er ætlað að minna á öryggismál sjómanna. Guðlaugssundið í Eyjum í 35. sinn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.