Morgunblaðið - 13.03.2019, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 13.03.2019, Blaðsíða 10
„Það hefur ekki verið stefna að vísa fólki burt með þessum hætti, hins vegar höfum við aukið samstarf við heilsugæslurnar á höfuðborgarsvæð- inu og Læknavaktina með það að markmiði að sem flestir sjúklingar fái rétta þjónustu á réttum stað. Þeir sem geta nýtt sér þjónustu heilsu- gæslunnar nýti sér hana frekar en að bíða eftir þjónustu á spítalanum, á bráðamótttökunni,“ segir Jón Magn- ús Kristjánsson, yfirlæknir bráða- móttöku LSH, spurður um það að sjúklingum sem hafa leitað á bráða- móttökuna hafi verið vísað frá. Upplýsingar Morgunblaðsins herma að móðir hafi ásamt unglingi leitað til bráðamóttökunnar í kjölfar þess að unglingurinn hlaut áverka á þumalfingri við iðkun íþrótta. Var grunur um að fingurinn hefði brotn- að, en síðar kom í ljós að svo var ekki. „Auðvitað getur verið að mat hjúkr- unarfræðings sé rangt og að sjúklingi sem þarf myndatöku sé ráðlagt að leita fyrst á heilsugæslu,“ segir Jón Magnús. „Fyrir einstaklinga sem eru með minniháttar útlimaáverka og eru ekki með brot, er heilsugæslan mjög hæf til að sinna þeim.“ Ekki vegna álags „Almenna verklagið er þetta og þetta er breyting hjá okkur. Við hóf- um þetta samstarf við heilsugæsluna fyrir tæpu ári síðan og ennþá skerpt- um við á því þegar bráðaþjónusta hjartagáttar lokaði í desember til þess að geta tryggt það að þeir sem þurfa bráða þjónustu fái hana með sem minnstum töfum. Sem betur fer hefur reynslan verið góð af þessu verklagi,“ útskýrir yfirlæknirinn. Spurður hvort aukið álag á bráða- móttöku sé skýring þess að skerpt hefur verið á þessu verklagi, segir Jón Magnús ekki svo vera. „Grunn- urinn liggur ekki í álaginu. Grunnur- inn liggur í því að við viljum tryggja þeim sem eru meira veikir eða slas- aðir sem fljótasta þjónustu og til þess að geta gert það þurfum við að leita leiða til þess að sjúklingar fá rétta þjónustu á réttum stað.“ gso@mbl.is Biðja fólk um að leita á heilsugæslu  Breytt verklag bráðamóttöku LSH Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Bráðamóttaka Fólk getur lent í því að vera vísað til heilsugæslu og Lækna- vaktarinnar svo hægt sé að tryggja sjúklingum í brýnni þörf þjónustu. 10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. MARS 2019 Ársfundur Bændasamtaka Íslands 2019 Ársfundur Bændasamtaka Íslands verður haldinn á Hótel Örk í Hveragerði föstudaginn 15. mars. Í kjölfar fundarins verður haldin opin ráðstefna þar sem rætt verður um sérstöðu íslensks landbúnaðar. Guðrún Sigríður Tryggvadóttir, formaður BÍ, setur ráðstefnuna og Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra flytur ávarp. Dagskrá föstudaginn 15. mars kl. 13.00-16.00 Ráðstefnustjóri er Sveinn Sigurmundsson, framkvæmdastjóri Búnaðarsambands Suðurlands Einstök staða íslensks landbúnaðar er varðar smitsjúkdóma og sýklalyfjaónæmi Karl G. Kristinsson, prófessor í sýklafræði við Landspítalann Hvernig tölum við um lýðheilsu ogmatvælaframleiðslu? Eiríkur Már Guðleifsson, viðskiptastjóri á auglýsingastofunni Hvíta húsinu Lífræn ræktun –Hvert er lífræn framleiðsla að stefna í heiminum? EyglóBjörkÓlafsdóttir, formaðurVOR, Verndunog ræktun – félags framleiðenda í lífrænumbúskap Ný tækifæri í landbúnaði og sölu á afurðumbænda Örn Karlsson, bóndi á Sandhóli í Meðallandi Íslenska ullin: vannýtt auðlind Hulda Brynjólfsdóttir, bóndi og eigandi smáspunaverk- smiðjunnar Uppspuna REKO á Íslandi – sala á búvörum í gegnumFacebook Oddný Anna Björnsdóttir, verkefnastjóri hjá Matarauði Íslands Pallborðsumræður fyrir kaffihlé og að erindum loknum Hver er sérstaða íslensks landbúnaðar? bondi.is Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is „Við stóðum gröfuvaktina í desem- ber þegar húsnæðið við Hafnargötu 18 var rifið. Það hafði staðið til að endurbyggja verslunarhúsin í þeirri mynd sem þau voru byggð 1924 en fyrsta húsið sem reist var á lóðinni er frá 1795. Húsin voru svo illa far- in að ekki þótti forsvaranlegt að gera þau upp,“ segir Lilja Björk Pálsdóttir, fornleifafræðingur hjá Fornleifastofnun Íslands. Hún segir Minjastofnun hafa samþykkt að leyfa niðurrif á verslunarhúsunum þegar í ljós kom að þau voru ónýt. Árið 1795 hafi lóðin við Hafnar- stræti 18 verið mæld út sem versl- unarlóð en stærð lóðarinnar hafi tekið nokkrum breytingum í gegn- um tíðina. „Þegar í ljós kom að undir hús- unum í Hafnarstræti 18 sæjust um- merki um mannvirki á svæðinu fór Minjastofnun fram á að þær minjar yrðu rannsakaðar. Það kom í ljós að heilmikið af fornminjum var undir húsinu,“ segir Lilja Björk sem ásamt fleiri fornleifafræðingum gróf upp fornminjarnar og mældi í frostinu í janúar og febrúar. „Við fundum minjar af verslunar- og pakkhúsum, salt- og kola- geymslu auk annarra mannvirkja sem ekki hafa áður sést á upp- dráttum sem til eru af Hafnarstræti 18 og húsum sem á lóðinni stóðu,“ segir Lilja Björk sem þótti mikið til koma að finna heillegt leirker. Óvenjuheillegt leirker „Það var óvenjuheillegt sem gæti hugsanlega bent til þess að kerið hafi verið í geymslu á lager í geymsluhúsnæði verslunarinnar. Oftast finnum við hluti úr leir sem hafa brotnað og brotunum verið hent á haugana,“ segir Lilja Björk og bætir við að einnig hafi fundist hluti af lampa, flöskugler, járngrip- ir og dýrabein. „Það er ekki ólíklegt að á þeim tíma sem húsin stóðu þarna hafi verið þar mannabústaðir, því kola- sund lá frá höfninni fram hjá Hafn- arstrætinu sem upphaflega hét Strandgata og upp í bæinn. Þegar gatan hét Strandgata stóð hún í sjávarkambinum, nafnið breyttist í Hafnarstræti eftir að höfnin var gerð,“ segir Lilja Björk. Að sögn hennar er nú unnið að því að vinna og afla heimilda úr þeim gögnum sem safnast hafa. Nýjungar í rannsóknum Lilja Björk segir að gerð hafi verið tilraun með því að nota laser- skanna til þess að útbúa þrívídd- armyndir til að sýna fornminjarnar sem fundust við uppgröftinn og not- aður hafi verið dróni til þess að mynda fornminjarnar. Að sögn Lilju Bjarkar má finna mörg lög af mannvistarleifum í Reykjavík. Fornminjar undir Hafn- arstræti 18  Þrívíddarskanni og dróni í fornleifa- rannsóknum  Ekki mannabústaðir Fortíðin Húsin sem stóðu við Hafnarstræti 18 voru of illa farin til þess að hægt væri að byggja þau upp að nýju. Ljósmynd/Fornleifastofnun Íslands Fornleifar Hugsanlegt verslunar- og pakkhús ásamt salt- og kolageymslu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.