Morgunblaðið - 13.03.2019, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 13.03.2019, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. MARS 2019 Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170 20% afsláttur af CHANEL vörum kynningardagana Við kynnum nýjungar í Chanel þar á meðal Rouge Coco Flash varalitina, mjög rakagefandi og nærandi varalitir sem koma í 24 fallegum litatónum. Gréta Boða verður á staðnum og veitir faglega ráðgjöf. SNYRTIVÖRU- VERSLUNINNI GLÆSIBÆ 13.-15 mars kynning í Í YFIRRÉTTI (E. HIGH COURT OF JUSTICE) CR-2018-008350 FYRIRTÆKJA- OG EIGNADÓMSTÓLAR (E. BUSINESS AND PROPERTY COURTS) ENGLANDS OGWALES FYRIRTÆKJADÓMSTÓLL (E. COMPANIES COURT) VARÐANDI TRAVELERS CASUALTY AND SURETY COMPANY OF EUROPE LIMITED og VARÐANDI TRAVELERS INSURANCE COMPANY LIMITED og VARÐANDI BRESK LÖG FRÁ ÁRINU 2000 UM FJÁRMÁLAÞJÓNUSTU OG -MARKAÐI (E. FINANCIAL SERVICES ANDMARKETS ACT 2000) HÉR MEÐ TILKYNNIST að Travelers Casualty and Surety Company of Europe Limited (framseljandi) og Travelers Insurance Company Limited (framsalshafi) lögðu fram beiðni til fyrirtækja- og fasteignadómstóla Englands ofWales, fyrirtækjadómstólnum í London (e. Business and Property Courts of England andWales, Companies Court), (umsóknin) skv.VII. kafla laga umármálaþjónustu og -markaði frá árinu 2000 (e. Financial Services and Markets Act 2000) (FSMA), um úrskurði: (1) samkvæmt 111. gr. laganna, sem heimilar áætlun (áætlunin) um framsal til framsalshafa á allri vátryggingastarfsemi framseljanda (þ.m.t. vátryggingum sem veittar voru undir fyrra nafni hans, Gulf Insurance Company UK Limited) (framsalið); og (2) sem mæla fyrir um viðbótarákvæði í tengslum við áætlunina skv. 112. gr. og 112. gr. A í lögunum. Umsóknin fór fyrir fr. Falk, dómara, hinn 18. febrúar 2019, sem kvað upp úrskurði til staðfestingar á áætluninni, með viðbótarákvæðum í tengslum við áætlunina. Samkvæmt úrskurði fr. Falk dómara tók áætlunin gildi kl. 23:59 GMT hinn 28. febrúar 2019. Auk hvers kyns réttar til ógildingar sem kveðið er á um í skilmálum vátrygginga sem falla undir framsalið kunna lög í viðkomandi EES-ríki að veita þér rétt til að ógilda vátryggingu þína á grundvelli áætlunarinnar, ef vátryggingin heyrir undir framsalið með beinum hætti og áhættan sem hún varðar er staðsett í öðru EES-ríki en Bretlandi. Eigir þú slíkan rétt verður þú að nýta hann innan 30 daga frá dagsetningu þessarar tilkynningar eða (sé munur þar á) innan þess tímafrests sem lög viðkomandi EES-ríkis kveða á um. 13. mars 2019 Norton Rose Fulbright LLP 3 More London Riverside, London SE1 2AQ, Bretland Lögmenn framsalshafa Snorri Másson snorrim@mbl.is Flestir skólastjórar í grunnskólum landsins telja að foreldrar hafi of rúma heimild til þess að fá leyfi eða frí frá skóla fyrir börnin sín. Leyfisóskir hafa aukist. Um 1.000 skólabörn á Ís- landi glíma þá við það sem kallað er skólaforðun, sem felst í flótta barna frá því að sækja skólann. Ástæður fyrir því geta verið tilfinningalegir erfiðleikar eða að verið sé að forðast einhverjar aðstæður. Einnig er nefnd sem ástæða þrá barna eftir athygli frá fjölskyldu eða öðrum í umhverfi sínu eða einfaldlega að börnum þyki aðrir staðir áhugaverðari en skólinn. Siv Friðleifsdóttir, formaður Vel- ferðarvaktarinnar, sem lét Maskínu gera könnun meðal allra skólastjóra landsins, segir niðurstöður hennar senda skýr skilaboð til stjórnvalda. Annars vegar séu þau að sett verði opinber viðmið um hvenær foreldrar mega fá leyfi fyrir börnin sín, t.d. með viðmiðum um fjölda frídaga, eða þá að skólastjórnendur fái heimild til að hafna slíkum óskum um leyfi. Hins vegar eru skilaboðin þau að fjar- vistaskráning barna verði samræmd um land allt, svo að náð verði utan um umfang skólaforðunarvandans. „Maður hefur ekki haft nógu skýra mynd af vandanum hingað til en samt heyrt út undan sér í nokkurn tíma, að skólastjórnendur og kennarar hafi áhyggjur af auknum fríum barna á skólatíma,“ segir Siv í samtali við Morgunblaðið. „Þarna teiknast upp mjög skýr mynd, hins vegar.“ Skólastjórar mega ekki synja for- eldrum um leyfi fyrir börnin Um 47% skólastjórnenda telja að fjarvera nemenda úr skóla vegna leyf- istöku ýmissar komi mjög eða fremur mikið niður á námi þeirra. Um 79% þeirra segja þá að leyfisóskir frá for- eldrum eða forsjáraðilum hafi aukist. Siv segir að skólastjórnendur hafi ekki skýra heimild til þess að synja for- eldrum um leyfi fyrir börnin. „Þeir upplifa sig valdalitla til að hafna leyfis- óskum foreldra,“ segir hún. Þó ríki hér skólaskylda og því sé mikilvægt að börn mæti sem best í skólann. Siv seg- ir að til sé bréf, sem er túlkun mennta- málaráðuneytisins á lögunum, sem skólastjórnendur vísa oft til í þessu sambandi. Bréfið er að sögn Sivjar ekki að skilja öðruvísi en svo, að for- eldrar ráði hvort börnin þeirra fari í leyfi eða ekki og beri þannig ábyrgð á námi barna sinna. „Í ýmsum ná- grannalöndum okkar eru skýrari regl- ur um skólasókn barna heldur en hér virðast vera,“ segir Siv. Um 79% skólastjórnenda eru þann- ig mjög eða fremur hlynnt því að sett verði opinber viðmið, t.d. um fjölda daga, um leyfisveitingar vegna fría á skólatíma. Siv segist hafa skilning á þessu enda sé um að ræða mikla aukn- ingu í fríum sem verði að bregðast við, því hún bitni í mörgum tilvikum á námi barnanna, skv. upplýsingum frá skóla- stjórnendum. Skólaforðun rakin til kvíða og þunglyndis hjá börnum 995 börn í íslenskum grunnskólum glíma við skólaforðun, er áætlað í könnuninni. Skólastjórarnir sem tóku þátt í könnuninni, 135 talsins (78% að- spurðra), voru beðnir um að nefna ástæðuna fyrir skólaforðun í sínum skólum. 76% þeirra nefndu andlega vanlíðan, eins og kvíða og þunglyndi. 29% nefndu erfiðar aðstæður á heimili. Ýmislegt annað var nefnt. Siv segir að- spurð að einhver þessara barna gætu verið eineltisfórnarlömb. „Það kemur vel til greina innan þessara hópa. Ekki kemur þó á óvart að skólastjórnendur nefni andlega vanlíðan, enda er það í samræmi við nýlegar rannsóknir um líðan barna,“ segir Siv. Langflestir skólarnir hafa viðmið um verklag sem gripið er til af hálfu skólans þegar börn forðast skólann. Þá er unnið eftir því í samstarfi við for- eldra, barnið sjálft og svo ýmsar stofn- anir eins og barnavernd, heilsugæsl- una, BUGL og félagsþjónustuna almennt. Hins vegar er ýmislegt á huldu um hvert umfang skólaforð- unarvandans nákvæmlega er og 70% skólastjórnenda töldu mjög eða frem- ur mikilvægt að samræma fjarvist- arskráningu um allt land svo hægt sé að festa betur fingur á umfanginu. „Við leggjum til að settur verði á laggirnar formlegur starfshópur,“ seg- ir Siv. „Farsæl skólaganga bætir líf fólks í öllum skilningi. Þess vegna höf- um við skólaskyldu hér.“ Ef börn missi mikið úr skóla vegna fría sem for- eldrar velji að taka á skólatíma, sé þörf á að bregðast við því. „Það skiptir höf- uðmáli að börn geti stundað sitt nám af krafti og að foreldrar ýti undir það og virði það. Æskilegra væri að þeir beini fríum sínum á tíma þegar skólinn er ekki starfandi,“ segir Siv. Málþing um skólasókn verður hald- ið 20. maí á Grand hóteli á vegum Sambands íslenskra sveitarfélaga í samstarfi við Velferðarvaktina og Um- boðsmann barna. Siv hvetur fólk til að mæta. Of mikið um leyfi grunnskólabarna  Kvíði og þunglyndi meðal ástæðna  Skólar mega ekki hafna leyfisóskum Skólasókn í grunnskólum Heimild: Velferðarvaktin 78,6% skólastjórnenda segja leyfisósk-um hafa fjölgað undanfarin ár 32,3% skólastjórnenda telja að frí eða fjarvera nemenda á skólatíma sé mikið/mjög mikið vandamál 78,8% skólastjórnenda eru hlynntir því að sett verði opinber viðmið um fjölda frídaga 74,4% skólastjórnenda telja að foreldrar hafi of rúmar heimildir til að fá frí fyrir börnin sín 46,7% skólastjórnenda telja að frí nem- enda komi niður á námi þeirra Morgunblaðið/Eggert Skólasókn ábótavant Skólastjórnendur telja að þörf sé hertrar reglugerðar um hversu mikið frí börn ættu að fá. Siv Friðleifsdóttir Lögreglan á Suðurnesjum hefur á síðustu dögum haft afskipti af og tekið úr umferð ökumenn vegna gruns um vímuefnaakstur. Öku- maður sem velti bifreið sinni á Sandgerðisvegi kvaðst vera skutl- ari, segir í dagbók lögreglu. Viðkomandi skutlari, kona, var grunuð um fíkniefnaakstur og sýndu sýnatökur jákvæða svörun varðandi það. Hún var flutt á Heil- brigðisstofnun Suðurnesja til að- hlynningar. Annar ökumaður sem hafði ekið bifreið sinni út í skurð var meðvit- undarlaus af áfengisneyslu þegar lögregla kom á vettvang. Viðkom- andi viðurkenndi áfengisneyslu þegar hann komst til meðvitundar. Skutlari í vímu velti bíl á Sandgerðisvegi Þarftu að láta gera við? FINNA.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.