Morgunblaðið - 13.03.2019, Qupperneq 21
UMRÆÐAN 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. MARS 2019
Í Danmörku var gerð
rannsókn á ofbeldi,
áreiti og hótunum nem-
enda gagnvart kenn-
urum. Fimmti hver
kennari hefur orðið fyr-
ir ofbeldi og fjórða
hverjum hefur verið
hótað. Greinarhöfundi
kæmi ekki á óvart að
tölurnar væru svipaðar
hér á landi.
Rannsókninni varpar
ljósi á málaflokkinn og hyggst
Menntamálaráðuneytinu setja í gang
aðgerðaráætlun hjá. Um var að ræða
megind- og eigindleg rannsókn. Þátt-
takendur voru 1.198 frá 18 skólum.
Svarhlutfall var 53%, sem rannsak-
endur telja nóg til að varpa ljósi á
ástand mála.
Í skýrslunni kemur fram að grunn-
skólakennarar eru sá hópur sem
verður hvað oftast fyrir áreiti, hót-
unum og ofbeldi. Í rannsókn sem
gerð var í Árósum í Danmörku kem-
ur fram að algengasta hótun nem-
enda er niðurlægjandi orðnotkun á
ógnandi hátt en algengasta ofbeldið
er spörk í eða á eftir kennara. Tvær
evrópskar rannsóknir sýna að 42%
kennara í Þýskalandi hafa tilkynnt
munnlegt ofbeldi af hálfu nemenda
og 7% hafa orðið fyrir eignatjóni.
Rannsókn frá Lúxemborg sýndi að
24% hefðu orðið fyrir munnlegu of-
beldi.
Ofbeldið hefur áhrif á starfs-
ánægju kennara og heilsu þeirra
samkvæmt rannsóknum. Helstu ein-
kenni eru streita, kvíði, svefntruflanir
og örmögnun. Í kanadískri rannsókn
komu fram einkenni eins og ergelsi,
reiði, ótti, dapurleiki, þreyta, höfuð-
verkur og pirringur. Eftir því sem
kennari verður oftar fyrir ofbeldi
gera fleiri einkenni vart við sig. Í
skýrslunni kemur fram að ekki sé
hægt að henda reiður á hvað veldur
ofbeldinu en það virðist eiga sér stað
þegar nemendum eru sett mörk eða
kröfur gerðar til þeirra.
Ein spurningin er: Hve oft hefur
kennarinn, á síðasta ári, upplifað ein-
hvers konar áreitni í skólanum? Af
þeim 53% sem svöruðu sögðust 7,4%
verða fyrir slíku daglega. 14,6% sögð-
ust verða fyrir því vikulega og 12%
mánaðarlega. 36,2% urðu sjaldnar
fyrir því og þeir sem aldrei upplifðu
áreitni voru 29,8%. Þetta eru sláandi
niðurstöður og greinarhöfundur er
nokkuð viss um að útkoma hér á landi
yrði svipuð.
Áreitnin er aðallega munnleg þar
sem niðrandi og ljót orð er sögð um
kennarann fyrir framan nemenda-
hópinn og kennsla trufluð þar sem
hjákátlegum orðum er beint til kenn-
arans. Vel yfir 20% upplifa hótun um
ofbeldi einu sinni í mánuði. Um þriðj-
ungur upplifir það sjaldnar og um
45% upplifa það aldrei. Ofbeldið er
ógnandi hótun. Um 15%
af kennurum upplifa
einu sinni í mánuði það
sem má túlka ofbeldi.
Um þriðjungur upplifir
það sjaldnar, en tæpur
helmingur hefur aldrei
upplifað ofbeldi. Birt-
ingarmyndin er að þeim
sé ýtt, slegnir, sparkað,
rifið í, klórað og hlutum
hent í kennara.
Lesa má hvernig
kennarar upplifa stuðn-
ing eftir ofbeldið af
hálfu nemenda sem og á
hvern hátt stjórnendur fræða starfs-
menn sína um ofbeldi og viðbrögð við
því og hvert ferlið er ef slíka uppá-
koma á sér stað. Tilkynningum um
ofbeldi er ábótavant. Engin tilkynn-
ing barst í um 46% tilfella og rúmum
53% tilfella þegar hótun um ofbeldi
átti sér stað. Þetta er vissulega um-
hugsunarvert. Hvort staðan er sam-
bærileg hér á landi skal ósagt látið,
þó að grunur sé um slíkt.
Fyrir marga kennara er hegðun
nemenda af þessum toga íþyngjandi
og þeir kjósa að yfirgefa grunnskól-
ann. Sé ekkert að gert og kennarar
búa við slíkt ofbeldi veldur það álagi
sem getur endað með ósköpum fyrir
einstaka kennara.
Aðstoð við kennara eftir ofbeldið
er misjöfn. Á sumum stöðum eru
verkferlar til staðar og kennara veitt
aðstoð í formi samtals. Sumir skólar
gefa kennara svigrúm til að finna út
hvort ofbeldið hafi þau áhrif að hann
þurfi fleiri daga til að jafna sig eða
viðbótar stuðning. Til þess er
öryggistrúnaðarmaður sendur í
bekkinn daginn eftir atburð. Áhuga-
vert væri að heyra hvernig fyrir-
komulagið sé í íslenskum skólum.
Standa stjórnendum með sínu fólki í
svona málum eða upplifa kennarar
sig án stuðnings?
Hinir ólíku gagnagrunnar benda til
að algengi ofbeldis og hótana um of-
beldi sé tiltölulega hátt í grunnskól-
unum í Danmörku, segir í skýrslunni.
Því miður er ekki til slíkur gagna-
grunnur eftir því sem best er vitað en
vissulega er þörf á að koma honum
upp.
Í samhengi við ofbeldið vill
greinarhöfundur benda á orð
menntamálaráðherra. Hún kvaðst
hafa orðið fyrir grófu ofbeldi af hálfu
nokkurra samstarfsmanna. Grunn-
skólakennarar upplifa slíkt hið sama
af hálfu nemenda. Ráðherra mennta-
mála kvaðst þurfa tíma til að vinna úr
því ofbeldi og má vissuleg spyrja
hvort kennarar þurfi ekki slíkt hið
sama. Kannski vekur þetta ráð-
herrann af vondum draumi sem gefur
henni tilefni til að skoða vinnuað-
stæður grunnskólakennara þegar
kemur að ofbeldi, hótunum og áreiti.
Greinarhöfundur hefur ekki heyrt
af neinum rannsóknum um ofbeldi
eða hótunum nemenda gagnvart
grunnskólakennurum hér á landi. Má
vera að málefnið höfði ekki til rann-
sóknaraðila þó að full þörf sé á því.
Innan stéttarinnar heyrist af ofbeldi
og hótunum. Hafa skólar tilkynning-
arskyldu um slíkt? Er það tilkynnt
barnaverndaryfirvöldum þegar nem-
andi gengur í skrokk á kennara sín-
um eða er málum af þessum toga sóp-
að undir teppi?
Grunnskólakennarar kalla eftir
vitundarvakningu um þetta vanda-
mál sem finnst í íslenskum skólum.
Viðurkenna þarf vandamálið.
Grunnskólakennarar beittir
ofbeldi, áreittir og þeim hótað
Eftir Helgu Dögg
Sverrisdóttur » Fimmti hver kennari
hefur orðið fyrir of-
beldi og fjórða hverjum
verið hótað. Ofbeldið
hefur áhrif á starfs-
ánægju og heilsu sam-
kvæmt rannsóknum.
Helga Dögg
Sverrisdóttir
Höfundur er M.Ed. M.Sc., grunn-
skólakennari og situr í Vinnuum-
hverfisnefnd KÍ fyrir hönd grunn-
skólakennara.
VANDAÐUR VEISLUBÚNAÐUR FYRIR
FERMINGAR
fastus.is
Hnífar, bretti, leirtau, glös, hitapottar, lampar, fatnaður, hitaborð,
hitakassar og trillur o.fl.
Verið velkomin í verslun okkar
Opið virka daga kl. 8:30–17:00
Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is
SKRIFSTOFUHÚSGÖGN
Síðumúli 35 | 108 Reykjavík | S. 568 2828 | www.holmris.is
Bjóðum uppá húsgögn
eftir marga fræga
húsgagnahönnuði.
Mörg vörumerki.
Prestakall er þjón-
ustusvæði prests. Á
kirkjuþingi, sem
heitið gæti alþingi
þjóðkirkju Íslands,
og í kirkjuráði, sem
þá má kalla ríkis-
stjórn kirkjunnar,
eru nú uppi áform
um yfirgripsmikla
sameiningu presta-
kalla í landinu.
Tilgangurinn mun vera sá að
vinna bug á meintri einsemd og
umkomuleysi kennimanna í
gömlu einmenningsprestaköll-
unum. Yfirskriftin er prestamið-
stöð.
Þrátt fyrir að mörg prestaköll
tengist þannig saman svo úr verði
eitt, er svo til ætlað, að söfn-
uðirnir njóti áfram starfa klerk-
anna sem áður þjónuðu brauð-
unum hverju fyrir sig. Á þessu er
þó ein merkileg undantekning:
Embætti sóknarprestsins í Saur-
bæjarprestakalli í Vestur-
landsprófastsdæmi mun
eiga að leggja niður.
Prestssetrið er mjög
lasið af raka og myglu.
Kirkjustjórnin ætti því
að vinda að því bráðan
bug að reisa nýjan
embættisbústað í
Saurbæ. Það má enda
heita hastarleg gerð að
taka af prestssetur
Passíusálmaskáldsins
síra Hallgríms Péturs-
sonar, þess manns, sem mestur
hefur verið snillingur allra Íslend-
inga fyrr og síðar.
Furðuleg
framkvæmd
Eftir Gunnar
Björnsson
» Það er vond gerð að
taka af prestssetur
Passíusálmaskáldsins
sr. Hallgríms, þess
manns, sem mestur
hefur verið snillingur
allra Íslendinga.
Gunnar Björnsson
Höfundur er pastor emeritus.