Morgunblaðið - 13.03.2019, Síða 23

Morgunblaðið - 13.03.2019, Síða 23
MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. MARS 2019 ✝ Tryggvi Val-steinsson fæddist á Þórsnesi við Eyjafjörð 28. nóvember 1930. Hann lést 1. mars 2019. Hann var sonur hjónanna Ólafar Tryggvadóttur og Valsteins Jóns- sonar. Hann er áttundi í röð 10 systkina. Eftirlifandi systir hans er Jenný Ólöf. Tryggvi var kvæntur Gísl- ínu Margréti Óskarsdóttur, f. 18.10. 1928, d. 3.10. 2012. Börn Tryggva og Gíslínu 16.7. 1981, eiginkona hans er Halldóra Lóa og börn þeirra eru Skírnir Ingi, Helga Lauf- ey og Steinar Orri. Jóhanna Kristín, f. 1.4. 1960, hún er gift Rainer Lorenz; börn þeirra eru Jan Eric, f. 30.6. 1988, unnusta hans er Máney Sveinsdóttir, börn þeirra eru Steinunn Vala, Jóhann Fann- ar og Sævar Máni; Lars Óli, f. 14.8. 1990, unnusta hans er Árný, Sandra María, f. 18.1. 1995. Óskar Valsteinn, f. 19.8. 1961. Júlíus Þór, f. 22.10. 1966, hann er giftur Gyðu Jónu, börn þeirra eru Davíð Hólm, f. 21.12. 1984, unnusta hans er Þorgerður Anna; Arnór Páll, f. 19.7. 1994, Kristófer Valsteinn, f. 28.11. 1996; Sigyn Sara, f. 11.3. 2002. Útför Tryggva fer fram frá Glerárkirkju í dag, 13. mars 2019, klukkan 13.30. eru: Agnea, f. 30.1. 1957, sonur hennar er Tryggvi Freyr, f. 3.3. 1979, unnusta hans er Elísabet og dætur þeirra Lína Agnea og Alma Björk. Ólöf, f. 3.6. 1958, hún er gift Her- manni Skírni Daðasyni, börn þeirra eru Mar- grét Ósk, f. 10.2. 1977, unnusti hennar er Gísli Gunnar og börn þeirra eru Oddgeir Logi, Klara Sjöfn og Móeiður Alma; Valgerður Jóna, f. 11.10. 1978, d. 27.2. 1992, Hermann Daði, f. Elsku afi og langafi Tryggvi. Núna þegar þú ert farinn yfir móðuna miklu minnumst við afa- börnin og langafabörnin þín með hlýju og þakklæti fyrir að hafa átt þig að. Þú varst góður maður í alla staði, traustur og yfirvegaður. Á sama tíma varstu hlédrægur og lést lítið fyrir þér fara. Þú varst sjómaður í húð og hár og sagðir okkur fjölmargar skemmtilegar sögur af sjónum. Sem dæmi má nefna að nýlega sagðir þú sögu úr námi þínu í Stýrimannaskólanum, en eftir að einn kennari þinn hafði drukkið talsvert af öli eitt kvöldið villtist hann á leið sinni á klósettið sem endaði með því að hann pissaði á rúmið þitt. Alltaf varstu klár með nýjar sögur sem tengdust á einhvern hátt umræðuefninu og það gladdi þig að rifja upp góðar minningar, enda ferðaðist þú víða í sjómennskunni og hefur upplifað ýmislegt. Eins voru sögurnar þínar af því hvernig jólasveinarnir komu niður úr fjöllunum alveg frábærar og myndu eflaust rokseljast ef þær væru gefnar út á prenti. Margar af þessum góðu sögum lifa nú áfram með okkur. Það var alveg sérstaklega skemmtilegt að fara með þér í veiðiferðir á trillunni þinni, Svani Þór, um Eyjafjörðinn á árum áður. Þú kenndir þeim sem fóru með þér á tækin um borð, leyfðir okkur að stýra þeg- ar það var óhætt og kenndir okkur bæði að veiða og verka fisk. Þrátt fyrir hinn hlédræga persónuleika þinn leyndu sjó- mannseinkennin sér ekki; þú áttir það til að blóta ótæpilega þegar efni stóðu til og fannst ekkert athugavert við það að prumpa eða ropa hressilega í viðurvist annarra – jafnvel fólks sem þú þekktir ekki vel. Þú þurftir alltaf að hafa eitt- hvað fyrir stafni og varst dug- legur að finna þér allskonar verkefni til að stytta þér stundir eftir að þú hættir að vinna. Þá varstu mikill göngugarpur og fannst mjög gaman að fara í göngutúra, sama hvernig viðr- aði. Þér þótti alltaf afar vænt um ættarjörðina okkar á Þórs- nesi og hugsaðir mjög vel um svæðið; slóst grasið, hugsaðir um trén og sinntir öðrum störf- um til að halda svæðinu fallegu. Það gladdi þig mikið þegar fjöl- skyldumeðlimir komu að sunn- an, tjölduðu á Þórsnesi og vörðu tíma þar. Nú er það okkar að taka við keflinu og sinna þeim störfum á Þórsnesi sem þú sinntir áður. Þér fannst alltaf mjög gaman að fá fólkið þitt í heimsókn, og sérstaklega krakkana. Þú pass- aðir ávallt upp á það að eiga veitingar til að bjóða þeim sem heimsóttu þig. Þá var alltaf hægt að treysta á að geta komið til þín og horft með þér á fót- bolta í sjónvarpinu. Það var ótrúlegt hvernig þú mundir alla afmælisdaga og passaðir upp á að gefa krökkunum alltaf pening þegar þau áttu afmæli. Okkur þykir líka vænt um þau föstu hlutverk sem þú varst síðustu árin farinn að fela ýms- um úr fjölskyldunni. Til dæmis komu Lars Óli og Sandra alltaf til þín á Þorláksmessu til að skreyta jólatréð. Þú varst virkilega stoltur afi og sinntir þessu hlutverki þínu af öllu hjarta. Það endurspeglast vel í því hvað okkur þótti öllum vænt um þig og hversu gaman okkur þótti að vera í kringum þig. Hvíldu í friði, elsku besti afi og langafi. Tryggvi Freyr, Lína Agnea, Alma Björk, Margrét Ósk, Oddgeir Logi, Klara Sjöfn, Móeiður Alma, Hermann Daði, Skírnir Ingi, Helga Laufey, Steinar Orri, Jan Eric, Sævar Máni, Lars Óli, Sandra María, Davíð Hólm, Arnór Páll, Kristófer Valsteinn og Sigyn Sara. Tryggvi Valsteinsson ✝ Einar BirgirEymundsson fæddist 15. maí 1935 á Flögu í Skriðdal. Hann lést 17. febrúar 2019. Einar var sonur hjónanna Eymundar Ein- arssonar bónda og Sveinbjargar Magnúsdóttur hús- freyju. Alsystir Einars var Sigríður Eymunds- dóttir og hálfbræður þeir Al- freð Eymundsson og Sigurður Stefánsson. Eftirlifandi eiginkona Ein- ars Birgis er Auður Hafdís Valdimarsdóttir, f. 2.3. 1938. Börn þeirra eru: 1) Nikulás Þór, f. 7.1. 1960, búsettur á Englandi. Eiginkona hans er Susie Veronica Einarsson og Einar bjó öll sín uppvaxtar- ár fyrir austan, hóf þar skóla- gönguna og lauk landsprófi frá Alþýðuskólanum á Eiðum. Að loknu landsprófi stóð hug- ur Einars til frekari mennta og ákvað hann því að flytjast til Reykjavíkur og hóf nám við Kennaraskóla Íslands, þaðan sem hann lauk kennaraprófi 22 ára að aldri. Samhliða náminu vann hann á sumrin við afleysingar sem tollvörður á Keflavíkurflug- velli og fann sig svo vel í þeim störfum að hann ákvað að gera tollgæsluna að sínum framtíðarstarfsvettvangi, þar sem hann starfaði starfsævina alla eða í tæpa hálfa öld, til ársins 2005. Hann var gerður að deildarstjóra og yfirtoll- verði hjá embættinu. Fyrir störf sín var hann jafnframt heiðraður fyrir störf sín í þágu Tollvarðafélags Íslands er hann hlaut gullmerki fé- lagsins árið 2010. Útför Einars Birgis fór fram hinn 1. mars 2019 í kyrrþey að eigin ósk. eiga þau eina dóttur, Isabellu Veronicu, en fyrir átti Nikulás dótt- urina Emmu Ro- semary Auði, f. 7.2. 1994. 2) Ey- mundur Sveinn, 8.11. 1966, löggilt- ur endurskoðandi, búsettur í Garða- bæ. Eiginkona Ey- mundar er Ásgerð- ur María Óskarsdóttir, f. 13.1. 1966, flugfreyja hjá Icelandair. Börn Eymundar eru Einar Al- exander, tölvunarfræðingur, f. 13.9. 1987, búsettur í Reykja- vík, sambýliskona Martyna Anna Zapart, f. 28.10. 1989, Búi Alexander, viðskipta- og tölvufræðingur, f. 24.8. 1991, búsettur í Garðabæ, og Birna Dís, f. 1.6. 2004. Nú hefur hann pabbi minn lagt frá sér verkfærin og gengið frá þeim „á sinn stað“ í síðasta skipti. Pabbi minn hafði mikla ánægju af öllu sem tengdist úti- vist, skóg- og garðrækt. Enda áttum við kannski okkar hljóðu en góðu stundir þegar við vorum eitthvað að stússa í garðinum eða í húsinu hjá mér. Pabbi var mikill og góður verkmaður og alltaf til að aðstoða mig þegar ég leitaði til hans með viðvik stór og smá sem tengdust viðhaldi og fram- kvæmdum. Niðurstaða hans að loknu dagsverki var alltaf vand- virkni. Fúsk og draslaraskapur hugnaðist honum ekki enda gekk hann ekki í neitt nema klára það af fullkomnum. Alltaf var lögð mikil vinna í vandasaman frá- gang verka. Snyrtimennska og að hafa hlutina í „röð og reglu“ var það sem faðir minn hafði að leið- arljósi. Ég gæti trúað að hann hefði verið „minimalisti“ á sinn hátt. Ekki vera að flækja hlutina of mikið og ekki hafa of mikið af óþarfa hlutum í kringum sig. Þetta er einn af þeim eiginleikum föður míns sem ég hef reynt að taka mér til fyrirmyndar og reynt að hafa að leiðarljósi. Fallegt samband var milli hans og barnanna minna þriggja, þeirra Einars, Búa og Birnu. Ég leitaði töluvert til foreldra minna þegar börnin mín voru lítil og var alltaf hugsað um þau af einstakri umhyggju og hlýju. Sérstakt samband var á milli þeirra nafnanna sonar míns og hans; fóru þeir í nokkrar skíðaferðir saman til útlanda og áttu góðar stundir. Föður mínum þótti enda- laust vænt um börnin mín og var alltaf til í að aðstoða með þau þegar þannig stóð á. Hann hafði endalausan áhuga á litlum sem stórum sigrum barna minna og ef okkur feðga skorti umtalsefni gat ég allavega notið þess að gorta mig af sigrum barnanna minna. Pabbi vann í Tollgæslunni á Keflavíkurflugvelli frá 1957 fram að starfslokum árið 2005, eða í tæp 50 ár. Ég man eftir ævin- týraferðum þegar ég fékk að fara í Keflavíkurrútunni frá BSÍ til Keflavíkur og heimsækja pabba í vinnuna. Hann var aðalkallinn á staðnum og maður fékk að fara á alls konar forboðna staði. Fékk að skoða inn í flugvélar sem stóðu á rampinum, fór á veitingastaði á kanasvæðinu og margt fleira. Við feðgar áttum saman góðar stundir í minni æsku þar sem við höfðum báðir mikinn áhuga á skíðamennsku. Pabbi hafði gam- an af því að fara á skíði og hafði unun af gönguferðum og útiveru. Ég á virkilega góðar minningar um ferðir með pabba á skíði. Ein falleg minning sem ég á er úr tólf ára bekk þegar ég var í Landa- kotsskóla. Lítið sem ekkert var gert fyrir krakka utan skóla- starfs í þessum skóla en ég og Denni vinur minn fengum þá hugmynd að drífa bekkinn í skíðaferð í Skálafell. Ég bað pabba að taka að sér að fara með allan hópinn sem hann gerði með glöðu geði. Eftir situr falleg minning um frábæran skíðadag í Skálafelli þar sem pabbi var allan daginn á fullu að aðstoða þá bekkjarfélaga mína sem aldrei höfðu stigið á skíði. Ég þakka föður mínum sam- fylgdina og fyrir þær góðu stund- ir sem við áttum saman. Hvíl í friði pabbi minn. Eymundur Sveinn Einarsson. Góður vinur og nágranni er fallinn frá. Við höfum búið saman hlið við hlið í Brekkuseli í Breið- holtinu í nærri þrjá áratugi og aldrei borið skugga á þá sambúð, enda var Einar einstaklega við- mótsþýður og ljúfur maður. Það vildi svo til, að við röðuðumst saman þrír sveitadrengir, Einar frá Flögu í Skriðdal í Brekkusel 8, undirritaður frá Glaumbæ á Langholti í Skagafirði í 10 og Smári Snædal frá Eiríksstöðum á Jökuldal í 12. Lágu lóðir okkar saman. Þessi sameiginlegi upp- runi hefur ef til vill að einhverju leyti mótað sambúð okkar, sem í alla staði var farsæl. Einar var þar okkur hinum fyrirmynd. Hann hugsaði afar vel um fast- eign sína, bæði hús og garð, og sinnti viðhaldi og allri umhirðu af kostgæfni. Einnig var hann alltaf reiðubúinn til að rétta hjálpar- hönd og ófá eru þau handtök sem ég fékk að njóta af hans hálfu, svo sem aðstoð við málun, lán á bún- aði o.fl. Og gjarnan bárum við saman bækur okkar eins og sann- ir sveitamenn, m.a. um slátt lóða, hvenær það væri tímabært, hversu oft skyldi slá og hvenær komið væri að síðasta slætti. Síð- ast ræddum við þetta í lok ágúst síðastliðins og vorum sammála um, að gott væri að hafa loðið fyr- ir veturinn til varnar mosamynd- un. Ef til vill smávægileg mál í hugum fólks en sýndi í mínum huga samhug og vináttu. Nú munu þessi mál, frekar en önnur, ekki lengur rædd yfir hekkið, sem skilur garðana að og ekki hljómar lengur glaðleg kveðja milli garða um góðan dag. Þess er og verður saknað. Húsin í Brekkuseli 2-18 eiga sameiginlega lóð og bílskúrar eru samstæðir og tilheyra sameign- inni. Að sjálfsögðu þarf þessi sameign umhirðu, bæði snyrt- ingu og viðhald. Þar lá Einar ekki á liði sínu. Iðulega var hann fyrst- ur á vettvang þegar boðað var til aðgerða og oft gekk hann í verk að eigin frumkvæði, þegar eitt- hvað þurfti að bæta. Honum var í mun, að lóð sameignarinnar væri snyrtileg og líkaði ekki, ef fólk kastaði frá sér sígarettustubbum og öðru rusli á lóðina. Einar var meðalmaður á hæð, grannvaxinn og kvikur í hreyf- ingum. Gekk rösklega til verka og var bæði fljótvirkur og vand- virkur. Honum samdi vel við ná- granna sína, ekki síst börnin, enda glaðvær og góðmenni til orðs og æðis. Við sinntum nágrannavörslu hver fyrir annan, höfðum lykla- völd að húsum hver annars og sáum m.a. um að hirða póst frá lúgum í fjarveru til þess að ekki væri augljóst, að hús væru mann- laus. Vissi ég, að fleiri nutu góðs af þessari aðstoð og gott að vita af lykli á góðum stað. Ég veit, að ég mæli fyrir munn allra nágranna Einars, að hans er sárt saknað og skarð hans verður vandfyllt. Við Þórdís vottum Auði, sonum, barnabörnum og öðrum aðstandendum okkar dýpstu samúð. Gunnar Gunnarsson. Einar Birgir Eymundsson HINSTA KVEÐJA Takk afi fyrir að standa alltaf við bakið á mér, alveg sama hvað bjátaði á. Þú varst mér ótrúleg fyrir- mynd, hörkuduglegur, yfir- vegaður og ljúfur. Algjör töffari. Ég er stoltur af að bera sama nafn og þú og ég vona að þú hafir verið stolt- ur af mér. Takk fyrir að trúa alltaf á mig afi, ég mun sakna þín. Einar Alexander Eymundsson. Frímann & hálfdán Útfararþjónusta Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Sími: 565 9775 www.uth.is uth@uth.is Cadillac 2017 Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, stjúpmóðir, tengdamóðir, amma og langamma, HUGRÚN KRISTJÁNSDÓTTIR frá Patreksfirði, lést á Hjúkrunarheimilinu Skjólgarði, Höfn, miðvikudaginn 6. mars. Útför hennar fer fram frá Hafnarkirkju, Höfn í Hornafirði, laugardaginn 16. mars klukkan 14. Sigfús Benediktsson Kristján Rafn Heiðarsson Hildur Helga Gísladóttir Heimir Örn Heiðarsson Konný Sóley Guðmundsdóttir Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir Hreggviður Heiðarsson Hildur Eiríksdóttir Ásrún Heiðarsdóttir Heiðrún Heiðarsdóttir Ilías Karl Moustacas Halldóra Heiðarsdóttir Halldór Grétarsson Elín Þórdís Heiðarsdóttir Ásþór Guðmundsson Guðbjörg Sigfúsdóttir Ásta Margrét Sigfúsdóttir Oddur Elfar Sveinsson barnabörn og barnabarnabörn Elskulegur fósturfaðir okkar, afi og langafi, DANÍEL SÆVAR JÓNSSON, sjómaður og bátasmiður, Mýrarholti 3, Ólafsvík, lést á sjúkrahúsi Akraness mánudaginn 25. febrúar. Útför hans fer fram frá Ólafsvíkurkirkju laugardaginn 16. mars klukkan 14. Guðmundur Jón Valgeirsson Sigurlaug Harðardóttir Hörður Þór Harðarson tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn Elskulegur eiginmaður minn, faðir og tengdafaðir, JÓN BENEDIKTSSON símsmiður, Aflagranda 40, andaðist laugardaginn 2. mars á heimili sínu. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Kristólína Ólafsdóttir Ólafur Hjörtur Jónsson Guðlaug Björg Björnsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.