Morgunblaðið - 13.03.2019, Side 29
DÆGRADVÖL 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. MARS 2019
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú gætir þurft að gera breytingar
á langtímaáætlunum þínum. Komdu fólki
kurteislega í skilning um að það eigi að
sinna eigin málum; þú sjáir um þín.
20. apríl - 20. maí
Naut Það er ekki stórmannlegt að geta
ekki beðist afsökunar á mistökum sínum.
Leggðu inn í gleðibankann, það er allt of
langt síðan þú lyftir þér upp.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Reyndu að hrekjast ekki til þess
að taka ákvarðanir áður en þú hefur
hugsað málin til hlítar. Þú færð símtal
sem á eftir að draga ýmislegt fram í
dagsljósið sem áður var hulið.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú óttast að þig skorti úthald en
þér mun vaxa fiskur um hrygg þegar á
reynir. Vertu samstarfsfús og lipur svo
verk strandi ekki á þér.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú þarft að sýna sveigjanleika til
þess að geta leyst það mál sem þyngst
hvílir á þér. Hristu af þér slenið og
gakktu glöð/glaður til starfa á nýjum
degi.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Það eru líklegt að þú lendir í nýju
ástarævintýri eða að það færist aukin
ástríða í ástarsamband. Ekki vera kæru-
laus.
23. sept. - 22. okt.
Vog Leyfðu sköpunargáfu þinni að fá út-
rás. Reyndu að gera velgengi þína að
leiðarljósi fyrir aðra.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Ýmsir nýir möguleikar opnast
þér en þú þarft að sýna mikinn sveigj-
anleika til þess að nýta þér þá til fulls.
Það er margt að gerast í félagslífi þínu.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú er rómantísk manneskja
og í dag verður þessi eiginleiki þinn áber-
andi. Leitaðu ráða hjá hlutlausum aðila
hvað varðar álitamál sem snýr að stór-
fjölskyldunni.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú þarft ekki að vera með
neitt samviskubit yfir því að þér hafi tek-
ist betur upp en samstarfsmönnum þín-
um. Mundu að góð vinátta er gulli betri.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Ekki setja þig á háan hest
nema þú vitir nákvæmlega hver staðan
er. Þér er alveg óhætt að hafa meiri trú á
samstarfsmönnum þínum.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þér er það kappsmál að segja
öðrum þína hlið á málunum. Hafðu augun
hjá þér – tækifærin bíða á hverju horni.
Björn Ingólfsson skrifar á Leir:„Ég geri aldrei nokkurn tíma
hringhendur af því að formið ber oft-
ast innihaldið ofurliði. Ég kann þess
vegna engar skýringar á þessari.
Ætli hún sé ekki bara sólinni að
kenna. En sólin er ekkert betri við
þetta en ég. Seinni parturinn er svo
sem í lagi en hitt er bara hnoð fyrir
framan:
Burt er hríðin, betri tíð
bætir kvíða og trega,
sólin fríða björt og blíð
brosir gríðarlega.
Filli, – Friðrik Steingrímsson –
svaraði: „Þessi er þá í svipuðum dúr“:
Berst mér hingað braga þing
brátt skal kynngi magna,
Bjössi Ing. má brosa’ í hring
bögu slyngri fagna.
Sigmundur Benediktsson lét nú í
sér heyra: „Sælir drengir! Odd-
hendan er svo hljómmikil og falleg
að hún kveikir alltaf hjá mér ein-
hvern neista. Vonandi telst það ekki
framhleypni þó að ég sleppi einni hér
með ykkar til gamans“:
Létt óþvinguð hleypur hring
hugans yngir fögnuð,
bagan slyng er þarfaþing
þjál og kynngimögnuð.
Og nú gat Ingólfur Ómar ekki á
sér setið: „Frábært! Oddhendan er
skemmtileg og hljómar vel að
vanda“:
Varma strjálar bragabál
bugar sálardrungann.
skerpir stálið meitlað mál
mælir þjála tungan.
Pétur Stefánsson lét ekki sitt eftir
liggja:
Íslensk þjóð er forn og fróð
er forðum stóð í brýnu.
Að yrkja ljóð er iðja góð,
það yljar blóði mínu.
Nú blandaði Sigrún Haraldsdóttir
sér í málið og orti langhendu oddh-
enda með athugasemdinni: „Þetta er
nú meira bullið“:
Nú ég hlassa niður rassi,
nóru af hassi fékk mér treint,
loks er hlassi lyft af skassi
líf er klassi alveg hreint.
Sigmundur Benediktsson þakkaði
Sigrúnu fyrir vísuna og orti:
Óðinn kjassar, ekkert trassar,
ofan krassar trega sú.
Efnið passar, yrkir hvassar,
oddhent gassalega nú.
Nú skarst Ólafur Stefánsson í leik-
inn en hafði við orð: „Já, lengi getur
versnað vont. En þetta er allt Birni
að kenna!“
Simmi getur gaurum betur
græjað letur ríms í hring.
Langan vetur Leirs við setur,
lætur feta Pegaling.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Oddhendukrans
„EÐA, ÞÚ GÆTIR SÓPAÐ ÞESSU ÖLLU
UNDIR TEPPIÐ OG SPARAÐ ÞÉR
FORMÚU.”
„ÞESS VEGNA EFTIRLÆT ÉG MÍNUM
TRAUSTA LÖGFRÆÐINGI ALLT EFTIR
MINN DAG.”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... föstudagsfiðringur
alla daga vikunnar.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
KÆRA „SPURÐU HUNDINN” . ER GELT
HUNDSINS VERRA EN BIT HANS?
JÁ!
JÁ!
JÁ!
JÁ EN BARA EF HANN ER
MEÐ FALSKAR
ERTI VISS UM AÐ
ÞÚ VILJIR GIFTAST
LÚT? HANN ER BARA
TÓNLISTARMAÐUR!
EN ÉG ELSKA HANN!
ÞAR AÐ AUKI GETUR
HANN ORÐIÐ FRÆGUR
EFTIR AÐ VIÐ
GIFTUMST!
HA! HANN VERÐUR FRÆGUR FYRIR AÐ VERA
TENGDASONUR HRÓLFS HRÆÐILEGA!
Víkverji fór skottúr út fyrir land-steinana nýverið og kom honum
á óvart að hann skyldi ekki þurfa að
sýna nein skilríki, hvorki við brottför
né heimkomu. Í Keflavík fór Vík-
verji í vél þar sem hann gat prentað
út límmiða á töskuna sína og brott-
fararspjald með því einu að slá inn
bókunarnúmer. Töskuna fór hann
síðan með á færiband og þurfti að
sýna brottfararspjaldið (sem reynd-
ar var ekki spjald heldur bréfmiði).
Þegar Víkverji fór til baka var það
sama uppi á teningnum. Víkverji sló
inn bókunarnúmer og henti síðan
töskunni á færiband án þess að
nokkur maður afgreiddi hann. Í
raun hefði hver sem er getað ferðast
á farmiða Víkverja.
x x x
Þetta er sennilega sjálfsagt ogeðlilegt og telst ekki fréttnæmt.
Víkverji heimsótti land á Schengen-
svæðinu og á því samkvæmt reglum
ekki að þurfa að framvísa skilríkj-
um. Engu að síður finnst Víkverja
furðulegt að geta valsað um flugvelli
og þvælst með flugi milli landa án
þess að þurfa að standa neinum
reikningsskil á því að hann sé hann
en ekki einhver annar.
x x x
Höfuðhögg hafa verið mikið til um-ræðu undanfarið. Áhrif þeirra í
íþróttum hafa verið vanmetin og
ljóst að hættan er ekki bara fyrir
hendi í íþróttum á borð við hnefa-
leika. Spurningar hafa jafnvel vakn-
að um hvort banna eigi að skalla
boltann í knattspyrnu, í það minnsta
í yngri flokkum. Knattspyrnu-
samband Íslands tilkynnti í fyrradag
að það hefði í samstarfi við Íþrótta-
samband Íslands unnið fræðslu-
myndbönd til að leggja áherslu á að
taka beri höfuðhögg alvarlega. Þar
er meðal annars viðtalsmyndband
við Skagamanninn Heiðrúnu Söru
Guðmundsdóttur, sem fékk tvö höf-
uðhögg í sama leiknum. Tvö ár liðu
þar til hún gat leikið á ný. Í mynd-
bandinu harmar hún að hafa ekki
tekið höfuðhöggin alvarlegar. Með
því að bregðast rétt við hefði hún
náð sér mun fyrr. Tilmæli KKÍ eru
að ekki eigi að harka af sér höfuð-
högg. Það er hárrétt.
vikverji@mbl.is
Víkverji
Andi Drottins fyllir alla heimsbyggð-
ina, hann heldur öllu í skorðum og
nemur hvert hljóð.
(Speki Salómons 1.7)