Morgunblaðið - 13.03.2019, Síða 30

Morgunblaðið - 13.03.2019, Síða 30
30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. MARS 2019 Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Á þessari sýningu er ég að fást við málverkið, í senn sem yfirborð og blekkingu,“ segir myndlistarkonan Steinunn Önnudóttir þegar hún er trufluð við uppsetningu sýningar sinnar sem verður opnuð í D-sal Listasafns Reykjavíkur – Hafnar- húss á morgun, fimmtudag, kl 17. Sýninguna kallar Steinunn upp á latínu Non plus ultra og í tilkynn- ingu er hún sögð eins konar kyrra- lífsmynd, bæði málverk og innsetn- ing í senn og að Steinunn fáist við málverkahefðina í víðum skilningi. Titill sýningarinnar vísar í forna heimsmynd Grikkja og Rómverja sem töldu að heimurinn endaði handan Gíbraltarsunds. Non plus ultra þýðir „ekkert handan þessa staðar“ og með titlinum vísar Stein- unn í það sem við sjáum ekki. Hún er 36. listamaðurinn sem val- in er til að taka þátt í sýningaröðinni en í henni er efnilegum listamönnum boðið að halda sína fyrstu safnasýn- ingu. Þegar blaðamaður lítur inn er Steinunn að klæða aðra sveru burð- arsúluna í salnum með málverki á striga, verki sem vísar í fornar súlur; það er marmaraáferð á hluta verks- ins en vatnslitakenndari pensil- drættir ofar. Þá hefur verið smíð- aður í salinn veggur sem klæddur er einskonar tjaldi, einnig máluðu, og þá mun Steinunn einnig klæða ann- an vegg með málverki sem enn er upprúllað en hún segir mun lífrænna og vísa meira til austrænna hug- mynda um sjónarhorn en hinna vest- rænu um fjarvídd í tvívíðu verki út frá einum einstaklingi. „Hugmyndin að tjaldinu hér á tré- veggnum sprettur af hinni fornu grísku sögu um málarann fræga Zeuxis sem fór í keppni við Parrhas- ius um það hvort gæti málað raun- verulegri mynd,“ segir hún og strýk- ur málverkið sem klæðir vegginn sem settur hefur verið í miðjan sal- inn . „Ég var að hugsa um eltingar- leik málara við að túlka raunveru- leikann,“ segir hún og að allir sem fáist við miðilinn þurfi að taka af- stöðu til blekkingarinnar sem er lyk- ill að miðlinum. „Því raunverulegri sem manni tekst að gera verkið, þeim mun meiri er blekkingin – og fjarlægist jafnframt einhvern kjarna því þá snýst kúnstin svo mikið um eitthvað yfirborð. Í mínu ferli er ég að finna mér stað og þreifa fyrir mér með málverkið. Ég er í raun mjög upptekin af málverkinu. Mér finnst samt ekkert sjálfsagt að fara að mála tvívíðan flöt, ein- hverja abstrakt mynd eða einhverja frásögn, þar finn ég fyrir fyrirstöðu og finnst ég þurfa að eiga við svo margt í málverkinu áður en ég get farið að vinda mér í það, í eftirmynd- ina. Það leitar sífellt á mig hvað mál- verkið er og ég reyni að skoða skilin á milli þrívíðs hlutar og málverks og fara með verkin þannig að þau dansi þar á einhverri línu. Einn vill mögu- lega kalla þetta skúlptúr hjá mér en annar málverk,“ segir hún. Steinunn, sem fæddist árið 1984, útskrifaðist með BA-gráðu í mynd- list frá Gerrit Rietveld-akademíinu í Amsterdam árið 2011. Hún hefur haldið einkasýningar og tekið þátt í samsýningum hér á landi og erlend- is. Árið 2014 stofnaði Steinunn sýn- ingarrýmið Harbinger og hefur starfrækt það síðan. Morgunblaðið/Einar Falur Málverk „Einn vill mögulega kalla þetta skúlptúr hjá mér en annar málverk,“ segir Steinunn um verkin í D-salnum. „Þreifa fyrir mér með málverkið“  Sýning Steinunnar Önnudóttur, Non plus ultra, verður opnuð í D-sal Hafnarhússins á morgun  „Ég reyni að skoða skilin á milli þrívíðs hlutar og málverks,“ segir myndlistarkonan um sýninguna Árni Matthíasson arnim@mbl.is Una útgáfuhús heitir nýtt bókaforlag sem gaf á dögunum út bókina Undir fána lýðveldisins eftir Hallgrím Hall- grímsson, en sú bók kom fyrst út 1941 og hefur verið ófáanleg í fjölda ára. Á vefsetri Unu kemur fram að ekki sé bara ætlunin að gefa út eldri verk, heldur sé Una útgáfuhús „rekið af hugsjón fyrir kynningu og útgáfu á merkum bók- menntaverkum og skáldskap nýrra höfunda“. Að forlaginu standa Einar Kári Jóhanns- son, Jóhannes Helgason, Krist- ín María Kristinsdóttir og Styrmir Dýrfjörð og Einar segir að þau fjögur hafi kynnst er þau unnu saman í bóka- búð Eymundsson í Austurstræti. „Við vorum lengi búin að fylgjast með bókaútgáfu og sögu og okkur fannst vanta vettvang fyrir ung- skáld, vettvang fyrir stærri verk- efni en Meðgönguljóð Partusar, og svo koma svo oft flottar bækur út á Íslandi sem klárast og koma aldrei aftur í prenti. Við vorum til dæmis með margar bækur í huga sem komu kannski út fyrir tuttugu árum eða svo og voru ófáanlegar. Við ákváðum því að stofnað forlag og að fyrsta bókin yrði Undir fána lýð- veldisins eftir Hallgrím Hallgríms- son. Hún lýsir ágætlega okkar hug- myndafræði, það er að segja að finna einhverja merkilega bók úr fortíð sem ekki allir þekkja en hefur samt mikla þýðingu.“ Fátækur drengur verður byltingarmaður „Í framhaldinu rannsökuðum við líf og störf Hallgríms og skrifuðum langan og ítarlegan eftirmála, enda er það í takt við það sem viljum gera: finna verk og setja í nýtt samhengi, segja af hverju það er mikilvægt, hvernig það talar við samtímann og hvað er hægt að læra af því. Hallgrímur var fátækur drengur af þingeyskum ættum sem kynntist róttækni í kvöldskóla hjá Einari Ol- geirssyni, tók þátt í verkföllum ung- ur og var snemma stimplaður sem róttækur kommúnisti, sem hann náttúrlega var, og var meðal yngstu stofnenda Kommúnistaflokks Ís- lands. Hann fór svo í leynilegan skóla Komintern í Moskvu í gegnum íslenska flokkinn. Sagnfræðingar takast enn á um það hvað námið snerist um þar, en það er ljóst að Hallgrímur lærði eitthvað að fara með vopn, en óvíst að hægt sé að ganga svo langt að halda því fram að hann hafi verið þjálfaður til að gera byltingu eins og sumir vilja meina. Við fengum aðeins af gögnum frá Moskvu í gegnum Jón Ólafsson og það er ekkert sem styður þá kenn- ingu en ekki heldur neitt sem afsann- ar hana algerlega. Hallgrímur varð fyrst þekktur meðal íslenskra kommúnista þegar hann réðst á þýska skipið Eider 1933 og skar niður hakakrossfána. Hann fór svo út til Spánar að berast með lýðveldissinnum og 1938 birtust í Þjóðviljanum fyrstu greinar hans frá vígvöllum Spánar. Hann kom aftur til Íslands í desember það ár. Hall- grímur var seinna dæmdur fyrir landráð og fangelsaður fyrir aðild að hinu svokallaða „Dreifibréfsmáli“, sem var tilraun til að hvetja hermenn til stuðnings við verkalýðsbaráttu Ís- lendinga. Það er reyndar eiginlega búið að sanna það að hann tók á sig sökina ásamt félaga sínum, Eggerti Þorbjarnarsyni, í því máli til að hlífa Sósíalistaflokknum. Þeir sátu báðir inni í átta mánuði á Litla-Hrauni, sem þá var vinnuhæli, og þar hélt Hallgrímur sínu striki og hvatti til mómæla og verkfalls og var settur í einangrun í rúma fimmtíu daga.“ Líkindi með Hallgrími og Hauki – Undir fána lýðveldisins segir frá ungum manni sem heldur út í heim til að berjast fyrir hugsjónir sínar og það er ekki langt síðan mikið var fjallað um annan ungan Íslending sem hélt út í heim til að taka þátt í vopnaðri frelsisbaráttu annarrar þjóðar. „Við viljum ekki nota það sem sölupunkt, en líkindin með Hallgrími og Hauki Hilmarssyni eru mikil; þeir fara báðir í stríð án þess að láta nokkurn vita og þeir eru báðir týndir í dag, hurfu báðir 32 ára, því að Hall- grímur hvarf í sjóinn austur af Langanesi 1942 og það er ekki vitað hvað gerðist, en líklegt að báturinn hafi orðið fyrir tundurdufli eða jafn- vel verið sökkt af kafbát.“ – Þið byrjið með þessari endur- útgáfu en hvað er meira í bígerð? „Við höfum verið að skima í gegn- um bókmenntasöguna í leit að kven- höfundum sem átti betra skilið en að gleymast þegar tíðarandinn var að bækur eftir konur væru kerl- ingabókmenntir. Við erum ekki kom- in með rétt á neinu svo ég vil ekki nefna nein nöfn, en ég held að næsta verkefni getið orðið slík bók. Í maí kemur lítið safn eftir ritlist- arnema, ungskáld, ef allt gengur upp, og kannski ein þýðing. Það sem okkur langar líka til að gera er að gefa út klassískar bókmenntir sem eru til í góðum þýðingum, endur- skoða kannski þýðinguna út frá stöðlum samtímans um þýðingar en líka að gefa út þýdd verk sem ekki hafa komið út áður.“ Morgunblaðið/Hari Hugsjónafólk Einar Kári Jóhannsson, Jóhannes Helgason, Kristín María Kristinsdóttir og Styrmir Dýrfjörð. Af hugsjón fyrir bókmenntum  Útgáfuhúsið Una er rekið af hugsjón fyrir kynningu og útgáfu á merkum verkum og nýjum skáld- skap  Fyrsta útgáfan er frásögn ungs manns sem hélt út í heim til að taka þátt í frelsisbaráttu Hallgrímur Hallgrímsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.