Morgunblaðið - 13.03.2019, Blaðsíða 33
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
In The Dark, önnur breiðskífa
hljómsveitarinnar Vök, kom út 1.
mars og samhliða útgáfunni mynd-
band við eitt laga hennar, „Erase“.
Platan var samin og tekin upp af
hljómsveitarmeðlimunum Margréti
Rán og Einari Stef í samstarfi við
breskan upptökustjóra, James
Earp, og fóru upptökur fram bæði í
hljóðveri hans í Notting Hill í
London og hér á landi.
Strax við fyrstu hlustun er ljóst
að hér er mun poppaðri Vök á ferð-
inni en sú sem sigraði Músíktil-
raunir árið 2013 en auk Margrétar
og Einars skipar sveitina Bergur
Einar Dagbjartsson trommari. Og
platan er býsna ólík fyrstu breið-
skífunni, Figure, sem kom út árið
2017, mun léttara yfir henni en
hljómsveitin lýsir lögunum á nýju
plötunni sem poppsmellum með
angurværum og jafnvel sorglegum
undirtóni.
Sveigjanlegt starf
Blaðamaður ræddi við Margréti
Rán nokkrum dögum eftir útgáfu
plötunnar og hafði þá fyrir tilviljun
komist að því að hún starfar sem
rennismiður hjá stoðtækjaframleið-
andanum Össuri meðfram tónlist-
arstörfum sínum. Blaðamanni leik-
ur forvitni á að vita hvort hún hafi
starfað lengi sem rennismiður og
segist Margrét hafa lokið hljóð-
tækninámi fyrir tveimur árum og
upp úr því hafið störf hjá Össuri.
„Ég ætlaði bara að
vinna þar í ár en ég er
með svo góðan díl þar,
er í svo miklum þæg-
indaramma, get alltaf
fengið frí og skotist og
það eru ekki allir
vinnustaðir sem bjóða
upp á það,“ segir Mar-
grét. Slíkt starf kemur
sér vel fyrir tónlistar-
mann sem fer reglulega í tónleika-
ferðir til útlanda.
Talandi um útlönd, í hvaða lönd-
um skyldi Vök njóta mestra vin-
sælda? Margrét nefnir Þýskaland
og Pólland. „Þar er rosalega vel
mætt,“ segir hún. Vök hefur líka
hlotið mikla athygli og lof í erlend-
um fjölmiðlum, m.a. Noisey, The
Line of Best Fit, The New York
Times, Clash og Stereogum og
hljómsveitin hefur verið önnum kaf-
in við tónleikahald í Bandaríkjunum
og Evrópu á undanförnum vikum.
Og nú er komin ný plata með til-
heyrandi tónleikahaldi, útgáfu-
tónleikar í Iðnó 22. mars og degi
síðar á Græna hattinum á Akureyri
og svo er stefnan sett á Evrópu.
Fiktað og fínpússað
„Á þessari plötu erum við með
pródúser og þetta byrjar yfirleitt á
því að ég sem lag, pródúsa bít og
tek kannski upp einhvern vókal og
gítar, bara eitthvað, og það er rosa
mismunandi hversu
langt lagið er komið,“
segir Margrét um
plötugerðarferlið. „Svo
rétti ég Einari það lag
og hann fiktar svolítið
með það og við bætum
svo kannski einhverju
á það, búum til nýjar
línur eða eitthvað og
förum svo með það til pródúsersins.
Hann vill þá kannski taka upp nýj-
an vókal sem hann yfirleitt gerir.
Það sem pródúserinn gerði mikið
fyrir þessa plötu var í raun að
stjórna vókalnum mínum, hjálpa
okkur að búa til betra flæði í texta
og fínpússa ýmislegt og kannski
breyta uppröðuninni á laginu sjálfu,
staðsetningum, hvar við viljum fá
viðlag og svoleiðis,“ segir Margrét.
Bjartir tónar, myrkir textar
– Platan heitir In The Dark en
er ekki mjög myrk á að heyra.
Hvað eruð þið að fara með þessum
titli?
„Þetta var smá kaldhæðni af því
platan hljómar ekki mjög „dark“,
er í rauninni létt en það sem býr að
baki textunum er dálítið „dark“.
Þetta er dökk tilfinningaflóra með
léttum töktum, það var konseptið
sem við vorum að vinna með,“ svar-
ar Margrét. En semur hún text-
ana? Jú, að mestu leyti, svarar hún,
en þurfi þó hjálp frá Einari eða
upptökustjórnandanum.
Þurftu að breyta til
– Um hvað ertu að syngja?
„Í rauninni bara fyrrverandi
sambönd, fyrrverandi vináttu og
ýmislegt sem við mannfólkið upp-
lifum,“ svarar Margrét og sem
dæmi segir í tilkynningu um útgáfu
plötunnar að lagið „Erase“ fjalli um
manneskju sem hafi ýtt Margréti
að jaðrinum þar til hún vildi hrein-
lega stroka hana út úr lífi sínu.
En aftur að tónlistinni, hvernig
hefur hún breyst milli platna hjá
sveitinni? „Í rauninni hefur hljóm-
heimurinn alltaf breyst smá með
hverri EP-plötu eða plötu, við erum
búin að gefa út tvær EP og tvö al-
búm og okkur hefur alltaf fundist
mikilvægt að þróast og það sem
gerðist var í raun að okkur langaði
svolítið í „fresh start“. Við vorum
ekkert að reyna að vera poppaðri
en vorum mikið til í þetta, ég var
byrjuð að semja meira poppað
þannig að þetta var í raun það sem
við vildum gera, aðgengilegra
stöff,“ útskýrir Margrét. „Við vor-
um dálítið stöðnuð og fannst við
þurfa að breyta aðeins til og vera
djarfari.“
Margrét segir ákaflega gaman að
flytja nýju lögin á tónleikum sem
veiti sveitinni „kitl í magann“ á ný.
Það er því mikið kitl framundan,
fyrst í Reykjavík, þá Akureyri og
því næst Amsterdam. „Við tókum
Austur-Evrópu núna fyrr í mán-
uðinum þannig að við erum að færa
okkur ofar núna,“ segir Margrét.
Myrkar tilfinningar með léttum töktum
Ljósmynd/Sigga Ella
Vök rær á poppaðri mið á annarri breiðskífu sinni, In The Dark Popplög með angurværum
og jafnvel sorglegum undirtóni Þriggja vikna tónleikaferð um Evrópu framundan hjá sveitinni
Í þróun Hljómsveitin Vök
hefur þróast í poppaðri átt
á nýrri breiðskífu sinni.
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. MARS 2019
SVALALOKANIR
Svalalokanir frá Glerborg eru nýtískulegar
og falla vel að straumum og stefnum
nútímahönnunar.
Lokunin er auðveld í þrifum þar sem hún opnast inná við.
Hægt er að fá brautirnar í hvaða lit sem er.
Svalalokun verndar svalirnar fyrir regni, vindi og ryki og eykur
hljóðeinangrun og breytir notkun svala í heilsársnotkun.
Glerborg
Mörkinni 4
108 Reykjavík
565 0000
glerborg@glerborg.is
www.glerborg.is
2291árfregalgeps&nupílsrelg,raggulg,relG
FÁÐU TILBOÐ
ÞÉR AÐ
KOSTNAÐAR-LAUSU
Greg Silverman, fyrrverandi for-
stjóri hins heimskunna kvik-
myndaframleiðslufyrirtækis War-
ner Brothers, hefur tryggt sér
réttinn á því að kvikmynda glæpa-
söguna Dimmu eftir Ragnar Jón-
asson. Ætlunin er að framleiða
sjónvarpsþáttaröð eftir bókinni
sem er sú fyrsta í þríleiks Ragnars
um lögreglukonuna Huldu.
Fyrsti fjölmiðillinn sem greindi
frá kaupunum var Deadline sem
fjallar um kvikmyndir og sjón-
varpsþætti. Silverman hefur komið
að mörgum þekktum kvikmyndum
á ferli sínum, m.a. A Star is Born
og mun fyrirtæki hans, Stampede,
framleiða þáttaröðina.
Dimma kom út árið 2015 og
kom hún út í Bandaríkjunum á
dögunum og hefur verið vel tekið
þar í landi.
Silverman keypti réttinn að Dimmu
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Vinsæll Ragnar Jónasson rithöfundur.