Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.03.2019, Side 8

Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.03.2019, Side 8
VETTVANGUR 8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31.3. 2019 Happy Talk kertastjakar kr. 6.900, 9.800 og 16.000 Spiladósir kr. 6.600 Íslensk hönnun - Íslenskt handverk Vesturgötu 4, 101 Reykjavík, s. 562 8990 www.kirs.is, Kirsuberjatréð Íslensk Hönnun Opið: Mán.-fös. 10-18, lau. 10-17, sun 10-17 Ármúli 7, Reykjavík | Sími 568 0708 | www.fako.is Fermingarg jöf sem gaman er að nota Gæða raftæki, dönsk hönnun aGROOVE Þráðlaus hátalari Verð 9.995 kr. bGEM Þráðlaus heyrnatól Verð 15.995 kr. Mörgum brá í brún þegarveruleikinn að baki kjara-mála-tölfræðinni leit dagsins ljós. Það fór að gerast þegar alvaran í kjarabaráttunni náði inn í vitund þjóðarinnar. Í fréttaþáttum var nú byrjað að fjalla um aðstæður á ýmsum vinnu- stöðum þar sem kjarasamningar voru ekki virtir – eða voru þeir kannski virtir, en hinir umsömdu taxtar svo lágir að menn trúðu vart sínum eigin augum, og að það væri fyrst og fremst aðflutt verkafólk sem væri á lágmarkstöxtum? Að einnig þar, í láglaunaumhverfinu væri mismunað. Þau sem stóðu í þeirri trú að heimur þeirra Boge- sens og Sölku Völku væri löngu liðin tíð, sáu hann nú að nýju orðinn ljós- lifandi; heim þar sem verkalýður var háður húsbónda sínum með tilheyr- andi kröfum um undirgefni. Fréttir rötuðu í fjölmiðla af láglaunafólki í okurhúsnæði oft tengdu atvinnurek- anda. Þannig varð smám saman heimur húsbænda og hjúa okkur öll- um sýnilegur. Og nú vildu hjúin uppá dekk: „Óbreytt kjör, engin vinna!“ Þetta var og er krafan á kröfuspjöldunum sem oftar en ekki eru á erlendum málum. Hvers konar ósvífni! Erum við ekki á Íslandi? Er íslenska ekki okkar tunga? Hvað er að gerast hjá verkalýðshreyfingunni, hvað er að þar á bæ? Þar er akkúrat ekkert að nema síður sé. Þar er einfaldlega verið að horfast í augu við Ísland í dag. Sú mynd sem hér er dregin upp á ekki við um alla atvinnurekendur, því fer fjarri. Ekki heldur um allt launafólk, því fer einnig fjarri. En þetta á við um allt of margt fólk sem er á launum sem framfleyta því ekki, hvorki sem fjölskyldum né sem einstaklingum. Því veldur eitr- aður kokteill lágra launa og hás hús- næðiskostnaðar og verst af öllu verður þessi blanda fyrir þann ein- stakling sem hefur ótryggja stöðu farandverkamannsins. Á sama tíma og sjálftökuhópar samfélagsins, sem raða sér í öll við- skiptaráðin, skammta sér milljónir í mánaðartekjur er Láglauna-Íslandi ætlað brotabrot af þessum upp- hæðum, þannig er bankastjóri með á mánuði hverjum tíföld laun banka- gjaldkerans. Þetta er það góða við verkalýðs- baráttu síðustu daga, vikna og mán- aða. Láglauna-Ísland er vaknað og er farið að vekja þjóðina alla til vit- undar um hvers konar samfélag hér hefur verið að þróast. Eða öllu held- ur, hvers konar þjóðfélag íslenskir kapítalistar hafa verið að þróa hér með offorsi, tilætlunarsemi, frekju og takmarkalausri græðgi. Og þeir eru ekki hættir. Ég hvet fólk til að fylgjast með því sem er að gerast í orkuiðnaðinum. Gammar hnita yfir Íslandi. Þeir vita að á döfinni er að markaðsvæða og síðan einkavæða orkuna. Haft er fyrir satt að í kaup- hallarkreðsum vestan hafs og austan sé talað um fjárfestingu í íslenskri orku sem álitlegastan kost um þess- ar mundir. Róttæk verkalýðshreyfing hefur með baráttu sinni minnt okkur á þær tvíburasystur ásælni og mis- rétti. Ekki veit ég hvenær samið verður. Hitt veit ég að sigur hefur þegar verið unninn. Baráttan hefur hreyft við þjóðfélaginu og ég hef trú á því að það eigi eftir að verða til góðs. Ég vona að sjálfsögðu að með launabreytingum við undirskrift samninga og jafnframt nauðsynlegu framlagi stjórnvalda, einkum rétt- látara almannatrygginga- og skatta- kerfi og fjármagni til húsnæðismála, þá hilli undir lausnir sem bæti hag láglaunafólks svo um muni. Þetta er ekki spurning um gjafir úr ríkissjóði heldur réttlátari skipti sem löngu eru tímabær. En svo er einnig á hitt að líta að árangurinn af verkalýðsbaráttunni hefur sjaldnast skilað sér allur við undirskrift samninga. Hann gerir það vissulega samhliða baráttunni en einnig í kjölfar hennar. Það er inn í framtíðina sem baráttan og árang- urinn af henni skilar sér, ef til vill fyrst og fremst. Það sem máli skiptir nú er að búið er að vekja Ísland. Baráttan fyrir jöfnuði mun halda áfram löngu eftir að þessum átökum lýkur. Í því verð- ur sigurinn fólginn, að breyta þanka- ganginum hjá Íslandi öllu. Láglauna-Ísland orðið sýnilegt ’Og nú vildu hjúinuppá dekk: „Óbreyttkjör, engin vinna!“ Þettavar og er krafan á kröfu- spjöldunum sem oftar en ekki eru á erlendum mál- um. Hvers konar ósvífni! Erum við ekki á Íslandi? Hvað er að gerast hjá verkalýðshreyfingunni, hvað er að þar á bæ? Þar er akkúrat ekkert að nema síður sé. Þar er einfald- lega verið að horfast í augu við Ísland í dag. Pistill Ögmundur Jónasson ogmundur@ogmundur.is Morgunblaðið/Eggert

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.