Morgunblaðið - 05.04.2019, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 05.04.2019, Blaðsíða 1
Ekki leið langur tími í Karphúsinu í gær þar til næsta samningalota hófst. Nú voru það fulltrúar iðnaðarmanna og Samtaka atvinnulífsins sem settust að samningaborðinu. Fundurinn stóð í um tvo klukkutíma og var næsti fundur boðaður miðvikudaginn 10. apríl næstkomandi. »6 Morgunblaðið/Eggert Stutt á milli stríða í Karphúsinu – iðnaðarmenn næstir Morgunblaðið/RAX Landeyjahöfn Illa hefur gengið að halda höfn- inni opinni að undanförnu, Eyjamönnum til ama. „Þolinmæðin er á þrotum,“ segir í fundargerð bæjarráðs Vestmannaeyja og er vísað þar til vandræða í samgöngum milli Landeyjahafnar og Eyja. Telur bæjarráðið að illa hafi gengið að dýpka Landeyjahöfn og vill að Vegagerðin taki fastar á málinu, auk þess sem raunhæf áætlun verði lögð fram um hve fljótt verði hægt að opna höfnina. „Það er einhuga afstaða bæjarráðs að ekki sé hægt að búa við þá stöðu sem uppi er vegna ástandsins í Landeyjahöfn. Heilt samfélag líður fyrir það hvernig ákvörðunum við dýpkun Land- eyjahafnar hefur verið háttað. Ljóst er að bæta þarf við þann tækjakost sem sinnt hefur dýpkun í mars til þess að efla afkastagetuna,“ segir m.a. í fundargerð bæjarráðs. Eitt dýpkunarskip frá Björgun ehf. hefur verið að störfum í höfninni. Njáll Ragnarsson, formað- ur bæjarráðs, segir Björgun ekki hafa tækin í verkefnið. Lokun hafnarinnar hafi mikil áhrif á bæinn. „Ferðaþjónustan finnur til dæmis mjög mikið fyrir því þegar þessi höfn er lokuð svona langt fram á vorin. Það er mikið um afbókanir á hótelum, kynnisferðum, útsýnisferðum og öðru,“ segir Njáll. Magnús Bragason, hótelstjóri í Eyjum, stað- festir að mikið hafi verið um afbókanir. Það sé slæmt því jafnan hafi straumur ferðamanna til Eyja byrjað í kringum mánaðamótin mars apríl. „Þegar ekki er siglt í Landeyjahöfn þá afbóka þeir gestir sem eiga bókaða gistingu hjá okkur,“ segir Magnús. Lárus Dagur Pálsson, fram- kvæmdastjóri Björgunar, segir fyrirtækið vera með tæki og flota sem geti við góðar aðstæður af- kastað meiru en aðrir. Björgun sé með tæki sem hafi staðist útboðskröfur Vegagerðarinnar. »14 Þolinmæði Eyjamanna á þrotum  Bæjarráð Vestmannaeyja vill raunhæfa áætlun um dýpkun Landeyjahafnar F Ö S T U D A G U R 5. A P R Í L 2 0 1 9 Stofnað 1913  81. tölublað  107. árgangur  BRÚÐKAUP 48 SÍÐUR A ct av is 91 10 13 91 10 13 Omeprazol Actavis 20mg, 14 og 28 stk. Magasýruþolin hörð hylki ætluð fullorðnum til skammtímameðferðar við einkennum bakflæðis (t.d. brjóstsviða og nábít). Gleypið hylkin í heilu lagi með hálfu glasi af vatni fyrir mat eða á fastandi maga. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og auka- verkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is Fyrstu viðbrögð blendin  Seðlabankastjóri telur ákvæði nýrra samninga um vaxtastig vera óheppilegt  Hagfræðingur telur launahækkanir geta skert samkeppnishæfni Íslands samningunum hafi komið í veg fyr- ir að Seðlabankinn hafi skoðað vaxtalækkun. Þá geti endurskoð- unarákvæðið truflað og jafnvel skert svigrúm til lækkunar vaxta. Guðríður Arnardóttir, formaður Félags framhaldsskólakennara, segir félagið nálgast sínar viðræð- ur á öðrum forsendum en í lífs- kjarasamningunum svonefndu. „Við viljum að menntun sé metin til launa.“ Yngvi Harðarson hagfræðingur telur boðaðar launahækkanir geta skert samkeppnishæfni Íslands. Með frekari hækkunum geti skap- ast þrýstingur á gengislækkun til að auka samkeppnishæfnina. Ingibjörg Ólafsdóttir, hótelstjóri á Sögu, fagnar samningunum. Óró- leikinn síðasta mánuðinn hafi kost- að hótelið tugi milljóna króna. Almenn ánægja er ríkjandi meðal þeirra aðila sem stóðu að kjara- samningi um 30 stéttarfélaga og Samtaka atvinnulífsins, sem und- irritaður var í Karphúsinu í fyrra- kvöld. Fyrstu viðbrögð annarra eru hins vegar blendin. Már Guðmundsson seðlabanka- stjóri segir endurskoðunarákvæði í samningunum um vaxtastig vera óheppilegt og að hluta byggt á mis- skilningi. Óvissan sem tengdist Strembin lota » Bryndís Hlöðversdóttir ríkis- sáttasemjari segir samn- ingalotuna hafa verið langa og stranga. » Fundir deiluaðila síðan í byrjun mars tóku vel á fimmta hundrað vinnustundir. MKjarasamningar »4, 6, 10, 14 - 15 Hópur í kringum Skúla Mogensen hefur uppi áform um að endurreisa flugfélagið WOW úr rústum og byggja á lággjaldamódeli eins og upphaflegar áætlanir félagsins stóðu til að gert yrði. Hópurinn leitar nú að 40 milljóna dollara innspýtingu í félagið í formi nýs hlutafjár en fjárfestar sem reiðubúnir eru að leggja þá fjárhæð til félagsins munu skv. fjárfesta- kynningu sem nú er til kynningar eignast 49% hlut í félaginu á móti Skúla, lykilstjórnendum WOW og þeim sem nefndir eru „aðrir stofn- endur“ félagsins. Forsvarsmenn nýja félagsins, sem ber vinnuheitið NewCo, hyggjast kaupa „allar mikil- vægar eignir“ út úr þrotabúi WOW air, þar á meðal vörumerkið. Heimildir Morgunblaðsins herma að lykilstjórnendur Arctica Finance, sem unnu náið með Skúla við fjár- mögnun WOW air á sínum tíma, hafi í fyrrakvöld fundað með Sveini Andra Sveinssyni, öðrum tveggja skiptastjóra félagsins. Í nýjum áætlunum NewCo er gert ráð fyrir mun hraðari vexti en í til- felli WOW á sínum tíma. Stefnt er að því að félagið hafi 7 vélar í rekstri strax á næsta ári en þeim fjölda náði WOW ekki fyrr en á fimmta rekstr- arári sínu, 2016. ses@mbl.is »12 Vilja kaupa eignir úr búi WOW  Hafa fundað með skiptastjóra búsins Morgunblaðið/RAX Endurreisn Skúli Mogensen hyggst endurreisa flugfélagið WOW air.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.