Morgunblaðið - 05.04.2019, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. APRÍL 2019
Ljósmyndir Rutar og Silju
Skipholti 31 • 105 Reykjavík • Sími 568 0150
Opið virka daga 10-17 • www.rut.is • Ljósmyndir Rutar og Silju
Fyrir ökuskírteinið,
passann, ferilskrána o.fl.
Góð passamynd
skiptir máli
Engar tímapantanir
Skjót
og hröð
þjónusta
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Utanríkisráðherrar aðildarríkja At-
lantshafsbandalagsins (NATO) hitt-
ust í Washington D.C. í gær í til-
efni af því að 70 ár voru liðin frá
því að stofnsáttmáli bandalagsins
var undirritaður þar 4. apríl 1949.
Guðlaugur Þór Þórðarson utanrík-
isráðherra sat fundina.
„Það eru engin ellimerki á At-
lantshafsbandalaginu. Það er og
verður varnarbandalag og ekki
hugmyndir um neitt annað,“ sagði
Guðlaugur Þór. „Það var mikið
heillaspor fyrir Ísland að gerast
stofnaðili að bandalaginu fyrir 70
árum.“ Hann segir að Atlantshafs-
bandalagið hafi náð mjög góðum
árangri sem sjáist m.a. af því að
kalda stríðið leið undir lok án þess
að til stríðsátaka kæmi.
Guðlaugur Þór sagði að sam-
skiptin við Rússland hefðu verið of-
arlega á baugi á fundunum í Wash-
ington D.C. Bæði staða INF-
samningsins um meðaldrægar
kjarnaflaugar sem var sagt upp eft-
ir ítrekuð brot Rússlands og staðan
í Úkraínu og við Svartahaf. Ein-
hugur var um að styðja áfram við
Georgíu og Úkraínu. „Baráttan
gegn hryðjuverkum og staðan í
Afganistan var einnig rædd, þar
með taldar friðarumleitanir í land-
inu. Farið var yfir áframhaldandi
stuðning við uppbyggingarverkefni
í Írak, Jórdaníu og Túnis og þátt-
töku í fjölþjóðlegu bandalagi gegn
ISIS,“ sagði Guðlaugur Þór.
Aukin þátttaka Íslands
Einnig var rætt um jafnari skipt-
ingu framlaga landa til Atlants-
hafsbandalagsins. Guðlaugur Þór
sagði að Ísland hefði sérstöðu sem
herlaus þjóð en stofnaðild Íslands
að bandalaginu væri mikils metin
líkt og þátttaka okkar í verkefnum
bandalagsins. Hann nefndi
sprengjuleitarsveit Landhelgis-
gæslunnar, aðkomu að upplýsinga-
málum, jafnréttismálum, flug-
umferðarstjórn og öðrum
borgaralegum verkefnum.
„Við tökum nú þátt í fleiri borg-
aralegum verkefnum en áður. Þetta
er allt mikils metið,“ sagði Guð-
laugur Þór.
Norður-Makedónía vill aðild
Aðildarríki Atlantshafsbanda-
lagsins eru 29 talsins, þ.e. Albanía,
Bandaríkin, Belgía, Búlgaría, Dan-
mörk, Eistland, Frakkland, Grikk-
land, Holland, Ísland, Ítalía, Kan-
ada, Króatía, Lettland, Litháen,
Lúxemborg, Noregur, Pólland,
Portúgal, Rúmenía, Slóvakía, Slóv-
enía, Spánn, Stóra-Bretland, Svart-
fjallaland, Tékkland, Þýskaland,
Tyrkland og Ungverjaland. Þrítug-
asta ríkið, Norður-Makedónía, er
nú í fullgildingarferli í aðildarríkj-
unum. Guðlaugur Þór átti fund
með Nikola Dimitrov, utanríkis-
ráðherra Norður-Makedóníu, af því
tilefni.
Einnig átti hann fund með
Chrystia Freeland, utanríkis-
ráðherra Kanada, og ræddu þau
m.a. um öryggismál og fríversl-
unarmál.
Þátttaka Íslands í
NATO mikils metin
Engin ellimerki á Atlantshafsbandalaginu sem hélt upp
á 70 ára afmæli sitt í gær Er og verður varnarbandalag
Ljósmynd/NATO
NATO Utanríkisráðherra Bandaríkjanna tók á móti kollegum sínum í Washington í gær, á 70 ára afmæli NATO.
Þingflokkur Flokks fólksins hefur
ráðið sér lögfræðimenntaðan aðstoð-
armann. Fyrir hafði þingflokkurinn
einn aðstoðarmann. Guðmundur
Ingi Kristinsson, formaður þing-
flokksins, sagði að auk þess hefði
Inga Sæland, formaður flokksins,
aðstoðarmann líkt og aðrir flokks-
formenn auk þess sem hún er lög-
blind. Guðmundur Ingi sagði mikinn
styrk að því að fá lögfræðimennt-
aðan aðstoðarmann til starfa.
Ákveðið var á liðnu hausti að
fjölga aðstoðarmönnum þingmanna
og er þessi viðbót tilkomin í fram-
haldi af því. Í þingflokknum eru þau
Inga Sæland og Guðmundur Ingi.
Sem kunnugt er voru þeir Karl
Gauti Hjaltason og Ólafur Ísleifsson,
sem kjörnir voru á þing fyrir Flokk
fólksins, reknir í framhaldi af
Klaustursmálinu. Síðar gengu þeir í
Miðflokkinn.
gudni@mbl.is
Tveir þingmenn –
þrír aðstoðarmenn
Flokkur fólksins fær aukna aðstoð
Inga
Sæland
Guðmundur Ingi
Kristinsson
Guðni Einarsson
Erla María Markúsdóttir
Gunnlaugur Snær Ólafsson
Illa farið þak á Hlemmi er meðal
ástæðna þess að framkvæmdir við
Hlemm mathöll fóru fram úr áætlun,
sem og að auka þurfti getu hússins
m.t.t. rafmagns vegna starfsemi
leigutaka í húsinu. Þetta er meðal
þess sem kemur fram í skýrslu Innri
endurskoðunar Reykjavíkurborgar
um verklegar framkvæmdir og inn-
kaupamál borgarinnar sem kynnt
var í borgarráði í gær. Rýnt er í fjór-
ar verklegar framkvæmdir; Sundhöll
Reykjavíkur, Hlemm mathöll, við-
byggingu við Vesturbæjarskóla og
framkvæmdir við Grensásveg.
Í bága við sveitarstjórnarlög
Borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðis-
flokksins segir nauðsynlegt að gerð
verði úttekt á öðrum verkefnum en
þeim fjórum sem fjallað er um í
skýrslunni.
„Í vandaðri skýrslu innri endur-
skoðunar koma fram ellefu ábend-
ingar um það sem betur má fara í
fjórum framkvæmdum á vegum
borgarinnar. Ein þeirra er merkt á
rauðu áhættustigi sem lýtur að gerð
kostnaðaráætlana. Þá eru mikil frá-
vik frá upphaflegum fjárhagsáætlun-
um, en þær liggja til grundvallar
ákvörðunum um verklegar fram-
kvæmdir. Frávik frá frumkostnaðar-
áætlunum eru 79% í þessum fjórum
verkefnum, samtals 1.372 milljónir
króna. Frávikið er mest 193% í Mat-
höll við Hlemm en þar fór kostnaður
auk þess fram úr samþykktum fjár-
heimildum, sem er óheimilt sam-
kvæmt sveitarstjórnarlögum,“ segir í
fréttatilkynningu.
Bragginn var frávik
„Við erum í heilmiklu umbótaferli
og þessi skýrsla nýtist við það, en
það sem þessi skýrsla ber með sér er
að hún undirstrikar að Bragginn var
frávik,“ segir Dagur B. Eggertsson
borgarstjóri um skýrsluna.
„Þetta er frumkvæðisathugun þar
sem voru tekin fyrir fjögur verkefni
sem falla líklega undir það að vera
flókin og meginniðurstaðan er að
þrjú af fjórum voru innan marka
þegar bornar eru saman kostnaðar-
áætlanir og raunkostnaður,“ segir
Dagur. „Það er í raun bara Hlemm-
ur mathöll sem fer út fyrir þau
mörk. Það hefur verið þekkt um
nokkurt skeið að þar reyndist þak og
ýmislegt í verra ástandi en búist var
við, þannig að það var umfangsmikið
umbótaverk og viðhald sem bættist
við.“
Í skýrslunni kemur fram að fram-
úrkeyrslan við Hlemm mathöll sé
minni en fyrri fréttir gáfu til kynna
þar sem hluti framkvæmdanna var
ekki bókfærður á viðhald eins og
heimild var fyrir. Þess vegna er
kostnaður umfram upphaflega áætl-
un á Hlemmi ekki 102% heldur 79%.
Í skýrslunni eru ábendingar um
atriði sem betur mættu fara í
tengslum við verklegar framkvæmd-
ir og innkaupamál hjá borginni. Þá
hefur Innri endurskoðun farið yfir
ábendingar í skýrslunni með stjórn-
endum og tengiliðum. Það er mat
Innri endurskoðunar að viðbrögð
stjórnenda séu við hæfi og myndi
ágætan grunn að aðgerðaáætlun til
þess að bæta úr því sem bent var á.
Borgarráð samþykkti að vísa
ábendingum til meðferðar í vinnu
sem stendur yfir við stjórnkerfis-
breytingar. Nýju innkaupa- og fram-
kvæmdaráði verði falið að fylgja
þeim eftir. Þar til innkaupa- og fram-
kvæmdaráð tekur til starfa 1. júní
nk. hefur borgarráð yfirsýn yfir
kostnaðaráætlanir samþykktra út-
boða á verklegum framkvæmdum.
Hlemmur mat-
höll fór langt
fram úr áætlun
Innri endurskoðun rýndi í fjórar
framkvæmdir hjá Reykjavíkurborg
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hlemmur mathöll Viðgerð á þaki
og rafmagni jók kostnaðinn.
Ferjan Særún strandaði á skeri á
Breiðafirði undir hádegi í gær en
losnaði síðan af sjálfsdáðum nokkr-
um tímum síðar þegar nægur sjór
hafði fallið undir skipið.
Særún gat siglt fyrir eigin vélar-
afli til hafnar í Stykkishólmi, þótt
örlítill leki hefði komið á skipið og
olía seytlaði úr tanki þess, að því er
fram kom í tilkynningu frá Land-
helgisgæslunni. Neyðarkall barst
frá Særúnu kl. 11:39 og fljótlega
tókst að koma öllum sex skipverj-
unum í land. Engan sakaði.
Ljósmynd/Landsbjörg
Strand Særún á Breiðafirði í gær.
Særún strandaði
á skeri en losnaði