Morgunblaðið - 05.04.2019, Side 4

Morgunblaðið - 05.04.2019, Side 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. APRÍL 2019 FALLEG OG VÖNDUÐ LEIKFÖNG úr náttúrulegum efnivið, tré og silki ERUM FLUTT ! á Nýbýlaveg 8 – Portið Nýbýlavegi 8 – Portið, sími 847 1660, www.bambus.is, bambus@bambus.is bambus.is bambus.is • Opið mánudaga og fimmtudaga frá kl. 10-14 Veður víða um heim 4.4., kl. 18.00 Reykjavík 4 skýjað Hólar í Dýrafirði 3 léttskýjað Akureyri 8 léttskýjað Egilsstaðir 4 heiðskírt Vatnsskarðshólar 5 skýjað Nuuk 1 skýjað Þórshöfn 7 skýjað Ósló 12 heiðskírt Kaupmannahöfn 12 léttskýjað Stokkhólmur 9 heiðskírt Helsinki 9 heiðskírt Lúxemborg 7 heiðskírt Brussel 10 skúrir Dublin 3 rigning Glasgow 7 skýjað London 7 skúrir París 11 heiðskírt Amsterdam 9 léttskýjað Hamborg 11 léttskýjað Berlín 20 heiðskírt Vín 17 heiðskírt Moskva 8 heiðskírt Algarve 16 léttskýjað Madríd 13 heiðskírt Barcelona 13 léttskýjað Mallorca 14 léttskýjað Róm 12 rigning Aþena 15 léttskýjað Winnipeg 0 alskýjað Montreal 0 léttskýjað New York 5 heiðskírt Chicago 7 rigning Orlando 24 skýjað  5. apríl Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 6:32 20:30 ÍSAFJÖRÐUR 6:31 20:40 SIGLUFJÖRÐUR 6:14 20:24 DJÚPIVOGUR 6:00 20:01 VEÐUR KL. 12 Í DAG Á laugardag Hæg austanátt, en 8-13 m/s við suðurströndina. Léttskýjað vestan til, annars skýjað og stöku slydduél suðaustanlands. Hiti 1 til 6 stig að deginum, en í kringum frostmark norðaustanlands. Norðaustan 1-8 m/s. Skýjað norðan til á landinu og sums staðar lítils háttar slydda eða snjó- koma en bjartviðri syðra. Hiti 1 til 7 stig. Lífskjarasamningar Höskuldur Daði Magnússon Guðrún Erlingsdóttir „Við teljum það mjög mikilvægt að félagsmenn okkar fái réttar og ná- kvæmar upplýsingar. Framsetning á kynningu þessa var þess eðlis að hún gat boðið heim mistúlkun. Stað- reyndin er sú að starfsmenn þurfa að færa ákveðnar fórnir fyrir styttingu vinnuvikunnar. Þeir þurfa að gefa frá sér launaða kaffitíma,“ segir Við- ar Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Eflingar. Vísar hann þar til sveigj- anlegri og styttri vinnudags launa- fólks, sem kynntur var sem hluti af kjarasamningi Samtaka atvinnulífs- ins við aðildarfélög Starfsgreina- sambandsins. Efling sendi frá sér tilkynningu í gær þar sem því var komið á fram- færi að ekki fælust neinar trygging- ar fyrir styttingu vinnutímans hjá al- mennu verkafólki í nýkynntum „lífskjarasamningi“. Í samningnum fælist heimild til afmarkaðra vinnu- tímabreytinga sem þegar hafi verið til staðar í 5. kafla kjarasamnings við SA. Sú heimild snúist í raun um vinnustaðabundnar viðræður og framkvæmd á raunstyttingu vinnu- tíma gegn því að launaðir kaffitímar verði einnig afnumdir að hluta eða í heild. Segir að þessi heimild muni „ekki hafa áhrif á nema á einstaka vinnustöðum þar sem samkomulag um slíkt næst“. Viðar fellst á að þarna sé kominn hvati til að stytta vinnuvikuna og það sé í sjálfu sér jákvætt. Hann segir þó að snúið geti verið að finna útfærslur þar á. Ekki geti allir aukið afköst svo þeir komist fyrr heim. Víða sé fastur vinnutaktur vegna véla eða færi- banda og öryggisvörður hjá Securi- tas geti ekki unnið hraðar en áður. „Við erum hlynnt styttingu vinnu- tímans og erum ekki að lýsa óánægju með að þetta sé í samningnum en við hvetjum til að rætt sé um þetta á jarðbundinn hátt.“ Flosi Eiríksson, framkvæmda- stjóri Starfsgreinasambandsins, sagði í samtali við Morgunblaðið að ekki væri um einstaklingsbundna samninga að ræða. Semja ætti við alla starfsmenn á hverjum vinnu- stað. „Starfsmenn eiga nú rétt á að fá samtal um þetta og atvinnurekendur eiga líka sama rétt. Starfsmenn ræða þessi mál með aðkomu stéttar- félags og svo eru greidd um það at- kvæði með leynilegri atkvæða- greiðslu hvernig menn vilja hafa þetta.“ Hann leggur á það ríka áherslu að samið verði um útfærsluna með formlegum hætti. „Og með aðkomu stéttarfélags sem um leið fylgist með því að ekki sé verið að ganga á önnur réttindi starfsmanna. Þetta verði ekki umgengist af neinni léttúð, ekk- ert spjall á kaffistofunni.“ Flosi segir að rætt hafi verið í kjarasamningsgerðinni að skipta stærri vinnustöðum upp við slíka ákvarðanatöku. Það eigi sérstaklega við hjá fyrirtækjum sem eru með margs konar starfsemi. „Engin ríkislausn fyrir alla“ Hannes G. Sigurðsson, aðstoðar- framkvæmdastjóri Samtaka at- vinnulífsins, segir að samkvæmt samningnum verði ekki gerðar breytingar á vinnutíma nema að far- ið sé í gegnum ákveðið ferli á hverj- um vinnustað. Fyrst fari fram at- kvæðagreiðsla um hvort eigi að fara í viðræður. Síðan sé farið í viðræður og niðurstöður úr þeim verði settar í aðra atkvæðagreiðslu. Viðræður geti farið fram með aðstoð utanaðkom- andi ráðgjafa og fulltrúar stéttar- félaga geti tekið þátt í þeim. „Það er ekkert fyrirframgefið hver niðurstaða slíkra viðræðna get- ur orðið en þær gefi færi á að nýta vinnudaginn betur, m.a. með breyt- ingum á fyrirkomulagi neysluhléa ef samstaða næst um það,“ segir hann. Hannes segir jafnframt að skoða þurfi málið á hverjum vinnustað fyr- ir sig. „Það er engin ríkislausn sem gildir fyrir alla. Aðstæður eru mis- munandi.“ Samtök atvinnulífsins lögðu áherslu á sveigjanlegri vinnutíma og lengingu dagvinnutímabils í 11 klukkustundir. Þær áherslur rötuðu ekki inn í samninginn. „Nei, það er ekki í þessum samn- ingum. SA óskuðu eftir því að dag- vinnutímabil yrði samræmt í 11 klst. á öllum vinnumarkaðnum, en það er svo í mörgum samningum, t.d. samn- ingum iðnaðarmanna. Að vinnustað- ir séu með jafnlangt dagvinnutíma- bil, óháð stéttarfélagi. Starfsfólk geti svo unnið mislanga daga eða mis- langar vikur ef það kýs svo. Slíkt sveigjanlegt fyrirkomulag yrði háð samkomulagi milli starfsmanns og stjórnenda. En það varð ekki niður- staðan. Hins vegar er möguleiki að semja um hagkvæmar lausnir fyrir báða aðila í gegnum fyrirtækjaþátt samninganna. Til að mynda um lengra dagvinnutímabil ef starfsfólk telur það betur henta.“ Styttingin háð samkomulagi  Efling segir að starfsmenn þurfi að gefa frá sér launaða kaffitíma til að stytta vinnuvikuna  Hvati til breytinga er þó jákvæður  Mismunandi aðstæður á hverjum vinnustað og ræða þarf málin, segja SA Morgunblaðið/Hari Sáttir Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA, og Björn Snæbjörnsson, formaður SGS, eftir undirritun kjarasamninga í fyrrakvöld. „Ég fagna því innilega að búið sé að semja og sáttinni sem virðist ríkja í kringum samningana bæði hjá at- vinnurekendum og launþegum,“ segir Ingibjörg Ólafs- dóttir, hótelstjóri á Hótel Sögu. Ingibjörg segist einnig fagna tengingu við hagvöxt til framtíðar og að allir fái að njóta góðs af þegar góðæri ríki. Aðkoma ríkisstjórnarinnar sé fagnaðarefni, sérstaklega í ljósi þess að aðgerðir hennar eigi að leiða til lækkunar vaxta. Lengd samningsins skapi ró á vinnu- markaði, óróleikinn síðasta mánuðinn hafi kostað Hótel Sögu tugi milljóna. Ingibjörg segist eiga eftir að fá betri kynningu á útfærslum samningsins og máta hann við áætlanir fyrirtækisins. Þar hafi verið gert ráð fyrir prósentuhækkunum. Að mati Ingibjargar er krónutöluhækkun sanngjarnari en prósentuhækk- un sem fari upp allan launastigann. Óróleikinn kostaði hótelið tugi milljóna Ingibjörg Ólafsdóttir „Ég hefði viljað fá meiri og skarpari hækkanir fyrir þá sem eru verst settir á lægstu laununum, eins og lagt var upp með í byrjun kjaraviðræðna. Það hefði líka þurft að ganga lengra í skattalækkunum og samningstíminn er langur, tæp fjögur ár,“ segir Þórður Aðalbjarnarsson, starfsmaður í Melabúðinni, sem segir erfitt að tjá sig þar sem hann hafi ekki getað kynnt sér samninginn nógu vel. Þórður hefði viljað sjá öflugra útspil frá ríkis- stjórninni, sérstaklega þar sem samningarnir séu kynnt- ir sem lífskjarasamningar. „Það er erfitt að sjá framkvæmd samningana fyrir sér þar sem dagsetningar vantar á sumar aðgerðir ríkis- stjórnarinnar, auk þess sem ég ber ekki mikið traust til hennar,“ segir Þórður. Ber ekki traust til ríkisstjórnarinnar Þórður Aðalbjarnarson „Mér líst vel á nýju kjarasamningana að svo miklu leyti sem ég hef náð að kynna mér þá,“ segir Þórdís Leiva, verkefnastjóri hjá Sjóvá, sem tekur laun samkvæmt kjarasamningi VR. Þórdís er ánægð með áhersluna á hækkun lægstu launa. Hún segir flott að aðeins sé byrjað að gefa í og meiri innspýting komi í kjölfarið. „Mér finnst flott að hafa eina hækkun yfir alla en ekki prósentuhækkun og viðbótin á orlofsuppbótina er mjög vel gerð,“ segir Þórdís sem fagnar því að verkalýðs- hreyfingin hafi ekki gefið sig og landað í kjölfarið góð- um samningi. Hún segir samninginn ekki gefa skrif- stofufólki mikla hækkun en það skipti ekki öllu máli. Baráttan fyrir þá sem mest hafi þurft á að halda hafi borið árangur. Ánægð með áhersluna á lægstu laun Þórdís Leiva Helgu Þorsteinsdóttur, starfsmanni á Kvikk on the go á Grjóthálsi, leist ágætlega á nýgerða kjarasamn- inga. „Ég er ánægð með eingreiðsluna 2. maí og fleira sem er í samningunum,“ segir Helga sem er sátt þrátt fyrir að ekki hafi tekist að ná öllum kröfum fram. Ekki sé hægt annað en að vera ánægð með niðurstöðuna miðað við ástandið í efnahagsmálunum í dag. Hvað varðar loforð ríkisstjórnarinnar segist Helga vera ánægð með þau en hún eigi erfitt með að sjá stjórnvöld standa við gefin loforð. Ánægð með eingreiðsluna 2. maí Helga Þorsteinsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.