Morgunblaðið - 05.04.2019, Síða 6

Morgunblaðið - 05.04.2019, Síða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. APRÍL 2019 Lífskjarasamningar Lífskjarasamningarnir verða kynnt- ir á vettvangi stéttarfélaganna á næstunni. Efling hefur boðað til kynningarfunda að Guðrúnartúni 1, 4. hæð. Þann 9. apríl verður fundur á íslensku, þann 10. apríl á ensku og þann 11. apríl á pólsku. Fundunum verður streymt á Facebook-síðu Efl- ingar. VR verður með kynningar- fund 8. apríl á Hilton Nordica og verður honum streymt á Mínum síð- um á vr.is. Kjörstjórn Starfsgreinasam- bandsins (SGS) hittist í gær og í dag verður fundur formanna 19 aðildar- félaga SGS til að ræða kynningu samninganna og atkvæðagreiðslu. Flosi Eiríksson, framkvæmdastjóri SGS, sagði miðað við að atkvæða- greiðslan verði rafræn. Öll SGS-fé- lögin ætla að standa sameiginlega að henni. Kosningu á að vera lokið 24. apríl, samkvæmt kjarasamningum. Samningatörnin sem lauk með undirritun lífskjarasamninganna í fyrrakvöld var löng og strembin, að sögn Bryndísar Hlöðversdóttur rík- issáttasemjara. „Okkur telst til að fundirnir frá því í byrjun mars hafi tekið vel á fimmta hundrað vinnu- stundir. Fyrir utan það var öll vinn- an við undirbúning fundanna,“ sagði Bryndís. Hún sagði að bæði Starfs- greinasambandið og samflot Efling- ar, VR, VLFA og fleiri félaga, sem voru að semja við Samtök atvinnu- lífsins hefðu lagt mikla og góða vinnu í samningaviðræðurnar. „Vinna þeirra skilaði sér inn í kjarasamning- inn,“ sagði Bryndís. Kjaradeila Mjólkurfræðinga- félags Íslands við Samtök atvinnu- lífsins (SA) er hjá ríkissáttasemjara. Samflot iðnaðarmanna og SA funduðu hjá ríkissáttasemjara í gær. Næsti viðræðufundur þeirra var ákveðinn 10. apríl klukkan 10.00. gudni@mbl.is Lífskjarasamningar 2019-2022 Taxtahækkun launa Hækkun barnabóta (einstætt foreldri m. 2 börn, annað yngra en 7 ára) Lægri vextir (m.v. 20 mkr. lán og 1% lækkun vaxta) Lægri skattar (ígildi launahækkunar fyrir skatt) Ábati skattkerfi sbreytinga á ráðstöfunartekjur tekjulága hópa Áður kynntar skattkerfis- breytingar: upptaka nýs lægsta þreps tekjuskatts lækkar skatta um 7.636 krónur á mánuði Aðrar breytingar 2.364 10.000 7.636 kr. hækkun 10.000 kr. skattalækkun er ígildi 15.900 kr. launahækk-unar fyrir skatt 9.500 kr. hækkun 300.000 kr. mánaðartekjur 500.000 kr. mánaðartekjur 600.000 kr. mánaðartekjur 1.000.000 kr. mánaðartekjur 14.000 kr. hækkun8.900 kr. hækkun 7.800 kr. hækkun Hækkun barnabóta og hærri skerðingarmörk 14.000 kr. hækkun barnabóta er ígildi 22.000 kr. launahækkunar fyrir skatt 9.500 kr. hækkun barnabóta er ígildi 15.000 kr. launahækkunar fyrir skatt Einstætt foreldri með 2 börn, annað yngra en 7 ára Foreldrar í sambúð með 2 börn, annað yngra en 7 ára Taxtahækkun launa og hagvaxtartengdur launaauki á samningsímanum Samningsbundin taxtahækkun hagvaxtarauki 2019 2020 2021 2022 17.000 kr. hækkun 24.000 kr. hækkun 3.000 24.000 kr. hækkun 3.000 25.000 kr. hækkun 3.000 27.000 17.000 27.000 28.000 99.000 kr. samanlögð hækkun á samningsímanum Miðað við 1% hagvöxt á mann* 8.000 8.000 8.000 2019 2020 2021 2022 32.000 17.000 32.000 33.000 17.000 kr. hækkun 24.000 kr. hækkun 24.000 kr. hækkun 25.000 kr. hækkun 114.000 kr. samanlögð hækkun á samningsímanum Miðað við 2% hagvöxt á mann* Styttri vinnudagur Vinnutímastytting nýtt á hverjum degi. Hver vinnudagur styttist um tæpan klukkutíma. Styttri vinnuvika Vinnutímastytting nýtt í lok hverrar viku með því að ljúka störfum um hádegi á föstudegi. Frí annan hvern föstudag Vinnutímastytting nýtt í lok annarrar hverrar viku með því að taka frí annan hvern föstudag. Dæmi um mögulegar útfærslur 17.000 15.000 10.750 24.000 10.750 5.300 24.000 5.300 25.000 5.300 266.735 2018 2019 2020 2021 2022 309.485 349.535 378.835 409.135 Heildaráhrif á kjör Mánaðarlaun, almennt verkafólk, launaflokkur 4 Stytting vinnutíma Kjarasamningurinn gefur starfsfólki á einstökum vinnustöðum möguleika á styttingu vinnuviku með gerð samkomulags þar um. Starfsmenn geta farið fram á viðræður um vinnutímastyttingu í 36 virkar vinnustundir á viku að jafnaði samhliða upptöku virks vinnutíma. Stjórnendur fyrirtækja geta einnig óskað eftir sams konar viðræðum. FÖSTUDAGUR APRÍL Hagvöxtur á mann og hagvaxtarauki 1%: 3.000 kr. 1,5%: 5.500 kr. 2%: 8.000 kr. 2,5%: 10.500 kr. 3%: 13.000 kr. *Hagvöxtur á mann er reiknaður sem hagvöxtur í prósentum að frádreginni fjölgun íbúa í prósentum Að auki 26.000 kr. orlofsuppbótarauki sem greiðist til allra fyrir 2. maí 2019 Heildarhækkun tekur ekki tillit til hagvaxtar- tengds launaauka HEIM KL. 12: ) Rafræn atkvæðagreiðsla hjá SGS  Lífskjarasamningar kynntir  Löng og strembin samningatörn að baki  Vinnan skilaði sér Flosi Eiríksson Bryndís Hlöðversdóttir Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is „Ég hef ekki haft tækifæri til þess að fara í gegnum samningana. Mér líst alveg ágætlega á aðferðafræð- ina þar sem áherslan er lögð á lægstu launin og tengingu við hag- vöxt komandi ára sem er ný nálgun sem er spennandi að sjá hvernig gengur,“ segir Árni Stefán Jónsson, formaður Sameykis, stéttarfélags í almannaþágu. Hann segir vinnu- tímastyttinguna jákvæða en bíður með að fagna þar til hann sér út- færsluna á henni. Sé styttingin fengin með sölu á kaffitímum lítist honum ekki á blikuna. Einnig sé það dýrt og flókið að stytta vinnu- tíma í vaktavinnukerfi. Árni fagnar launaþróunartrygg- ingu sem hann telur vera að festa sig í sessi en slíkt hafi opinberir starfsmenn haft frá 2015. Margt jákvætt í samningunum „Ég held að þetta séu fínir samn- ingar fyrir hópana sem skrifuðu undir í fyrradag. Ég hef ekki séð samningana en miðað við kynning- una á þeim er margt í þeim sem iðn- aðarmenn og fleiri hafa unnið að með ríkisstjórninni,“ segir Kristján Þórður Snæbjarnarson, formaður Rafiðnaðarsambandsins. Hann seg- ir margt jákvætt í samningunum og verðmæti sem nýtist iðnaðarmönn- um. „Vinnutímastyttingin er ákvæði sem mér heyrist að hafi endað inni í samningunum og það er jákvætt en ég á eftir að sjá út- færsluna á henni áður en ég get fagnað,“ segir Kristján. Iðnaðar- menn hafi lagt áherslu á blandaða leið krónutölu- og prósentuhækk- anna. Þeir loki ekki fyrir neitt en reyni að þokast lengra með sín áherslumál. Vilja bíða og sjá út- færslu styttri vinnutíma  Ný og spennandi nálgun að mati Sameykis  Verðmæti Vínlandsleið 16 Grafarholti urdarapotek.is Sími 577 1770 Opið virka daga kl. 09.00-18.30 og laugardaga kl. 12.00-16.00 Hugsaðu vel um húðina þína – alltaf Bjóðum fjölbreytt úrval húðvara, jafnt fyrir andlitið, hendurnar, fæturna og kroppinn allan.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.