Morgunblaðið - 05.04.2019, Side 15

Morgunblaðið - 05.04.2019, Side 15
15 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. APRÍL 2019 Fagnað Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, faðmast í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu í fyrrakvöld þegar nýir kjarasamningar voru kynntir. Hari Þess er minnst um þessar mundir að 4. apríl 2019 voru 70 ár liðin frá því að utanrík- isráðherrar 12 landa komu saman í Wash- ington og rituðu undir Atlantshafssáttmál- ann, stofnskrá Norður- Atlantshafsbandalags- ins (NATO). Utanríkisráðherra Íslands, Bjarni Bene- diktsson, var meðal ráðherranna 12. Að baki ákvörðuninni um aðild Ís- lands stóðu þingmenn úr Alþýðu- flokki, Framsóknarflokki og Sjálf- stæðisflokki. Kommúnistar og fleiri andstæðingar NATO-aðildarinnar réðust á Alþingishúsið 30. mars 1949 í von um að hindra að þingmenn gætu afgreitt aðildartillöguna. Fyrir atbeina lögreglu með liðstyrk vara- liðs almennra borgara tókst að hrinda árásinni. Íslendingar gengu í NATO án skuldbindinga um að stofna eigin her eða að erlendur her yrði í landi þeirra á friðartímum. Þróun al- þjóðastjórnmála varð á þann veg að í maí 1951 var gerður tvíhliða varn- arsamningur Íslendinga og Banda- ríkjamanna innan ramma NATO- aðildarinnar. Samningurinn er enn í fullu gildi. Í krafti hans voru banda- rískir hermenn í varnarstöðinni á Keflavíkurflugvelli, Keflavíkurstöð- inni, frá maí 1951 til 30. september 2006. Miklir umbrotatímar Þetta voru miklir umbrotatímar á alþjóðavettvangi og hart tekist á um hugmyndafræðileg málefni. Sókn kommúnista til ítaka og áhrifa í lýð- ræðislöndunum var markviss og vel skipulögð. Þetta átti jafnt við um Ísland og önnur lýðfrjáls ríki eins og fræðimenn hafa lýst. Markmiðið var að sannfæra almenning um að sósíalísk þjóð- félagsskipan stæði kap- ítalismanum framar. Vekur undrun hve margir menntamenn létu blekkjast af sósíal- ískri stefnu fátæktar og kúgunar sem lagði tugi ef ekki hundruð milljónir manna að velli. Átökin um aðildina að NATO og varnarsamninginn við Bandaríkin voru lengi hörð hér á landi. Í raun var þetta átakaás stjórnmálanna allt fram til ársins 1974 þegar efnt var til undirskriftasöfnunar undir kjörorð- inu Varið land. Þar var andmælt áformum þáverandi vinstri stjórnar um að segja upp varnarsamn- ingnum. Alls söfnuðust 55.522 gildar undirskriftir kosningabærra manna, eða 49% þeirra sem atkvæði greiddu í alþingiskosningum sama ár. Söfn- unin var gerð að frumkvæði 14 ein- staklinga, stóð hún í rúman mánuð frá 15. janúar til 20. febrúar. Eftir þetta var allur vindur úr andstöðunni við varnarliðið en dvöl þess var jafnan meira átakamál á þessum árum en aðildin að NATO þótt meiri samstaða hafi verið á al- þingi árið 1951 um varnarsamning- inn en Atlantshafssáttmálann árið 1949. NATO eflist Kommúnistar, sósíalistar, alþýðu- bandalagsmenn og nú arftakar þessa hóps meðal vinstri grænna (VG) hafa jafnan haft horn í síðu NATO. Andstaðan er meiri í orði en á borði. Ef marka má greinargerð með nýrri tillögu nokkurra þing- manna VG um þjóðaratkvæða- greiðslu um NATO-aðildina snýst málið nú um að rétta hlut þeirra sem urðu undir í átökunum á Austurvelli fyrir 70 árum. Með rökum af þessu tagi er árétt- uð hollusta við málstað kommúnista og Sovétvina sem mótaði mjög bar- áttuna gegn NATO á þessum árum. Að andstaða við bandalagið sé skýrð á þennan hátt eftir allt það sem gerst hefur í sögu þess og al- þjóðastjórnmála í 70 ár er stór- undarlegt. Velgengni alþjóðastofnana verður best mæld með áhuga þjóða á þátt- töku í starfi þeirra. Þegar Ísland varð stofnríki NATO voru 12 ríki í hópnum nú 70 árum síðar eru þau 29 með alls um einn milljarð íbúa. Ríkin sem lutu sovéskri einræð- isstjórn kommúnista höfðu ekki fyrr hlotið sjálfstæði í byrjun tíunda ára- tugarins en þau vildu aðild að NATO. Sama máli gilti um ríkin á Balkanskaga eftir upplausn Júgó- slavíu. Þjóðir leita ekki aðeins öryggis í þessu einstaka varnarbandalagi heldur einnig gæðastimpils sem í að- ildinni felst, að ríkin séu talin gjald- geng til samstarfs við gamalgróin lýðræðisríki í bandalaginu og geti sent fulltrúa með neitunarvald að fundarborði þess. Þjóðaröryggisstefnan Hér á landi hefur samstaða stjórnmálaflokka um gildi NATO- aðildarinnar verið staðfest með þjóð- aröryggisstefnunni sem var sam- þykkt samhljóða á alþingi 13. apríl 2016. Þar segir: Að aðild Íslands að Atlantshafs- bandalaginu verði áfram lykilstoð í vörnum Íslands og meginvettvangur vestrænnar samvinnu sem Ísland tekur þátt í á borgaralegum for- sendum til að efla eigið öryggi og annarra bandalagsríkja. Að varnarsamningur Íslands og Bandaríkjanna frá 1951 tryggi áfram varnir Íslands og áfram verði unnið að þróun samstarfsins á grundvelli samningsins þar sem tek- ið verði mið af hernaðarlegum ógn- um, sem og öðrum áhættuþáttum þar sem gagnkvæmir varnar- og ör- yggishagsmunir eru ríkir. Skýrara getur það ekki verið og að framkvæmd þessarar stefnu ber þjóðaröryggisráði að vinna – nú und- ir formennsku forsætisráðherra úr VG. Sérstaða Íslands Umræður um aðildina að NATO eru allt annars eðlis hér en í nokkru öðru aðildarlandi. Meginástæðan er að íslensk stjórnvöld taka ekki ákvarðanir um útgjöld til eigin her- afla. Hér eru ekki heldur fyrir hendi neinar hefðir sem tengjast slíkum herafla. Engum upplýsingum um hernaðarleg málefni er skipulega miðlað til ríkisstjórnar eða alþingis. Áhugi og umræður taka óhjákvæmi- lega mið af þessu til dæmis á stjórn- mála- og fjölmiðlavettvangi. Í anda þessarar umræðuhefðar fer vel á því að Almenna bókafélagið hafi nú sent frá sér bókina: Til varn- ar vestrænni menningu – ræður sex rithöfunda 1950-1958. Höfundarnir eru Tómas Guðmundsson, Davíð Stefánsson, Guðmundur G. Hagalín, Gunnar Gunnarsson, Kristmann Guðmundsson og séra Sigurður Ein- arsson í Holti. Með því að lesa erindi þessara andans manna og skýringar sem dr. Hannes Hólmsteinn Gissurarson prófessor hefur tekið saman má komast í snertingu við andrúms- loftið sem ríkti þjóðlífinu, mennta- og menningarheiminum á þessum mótunarárum NATO-aðildarinnar. Þessar umræður höfðu mikil áhrif á mig. Á tíma fyrstu vinstristjórn- arinnar 21. október 1956 fór ég til dæmis 11 ára með föður mínum þeg- ar hann flutti ræðu á héraðsmóti sjálfstæðismanna á Kirkjubæj- arklaustri ásamt sr. Sigurði í Holti. Er mér í barnsminni ofsaveðrið og sandbylurinn á Mýrdalssandi og síð- an orðkynngin þegar sr. Sigurður formælti þrumandi röddu fram- göngu kommúnista og Sovétmanna en uppreisn Ungverja gegn þeim hófst tveimur dögum síðar. Í ræðu sr. Sigurðar sem flutt var við annað tilefni og birtist í ofangreindri bók segir hann: „En það er engin ný stefna [í Moskvu eftir leyniræðuna um Stal- ín], ekkert nýtt stjórnarfar, ekkert nýtt viðhorf. Það á að halda áfram að skapa hér fimmtu herdeild, það á að halda áfram í hverju landi, líka hér á Íslandi, að grafa undan þjóðfélags- stoðunum. Það á að halda áfram að láta föðurlandssvikarana innan hinna borgaralegu vestrænu menn- ingarþjóðfélaga halda áfram að vinna sigurinn fyrir þá þarna austur í Moskvu með því að skapa öngþveiti í atvinnumálum landanna, með því að grafa undan þjóðlegri menningu og fortíðarerfðum.“ Þá og þarna var hart og hiklaust barist fyrir skýrum gildum. Eftir Björn Bjarnason »Umræður um NATO-aðildina eru allt annars eðlis hér. Meginástæðan er að ís- lensk stjórnvöld taka ekki ákvarðanir um út- gjöld til eigin herafla. Björn Bjarnason Höfundur er fv. ráðherra. Samstaða um sérstöðu Íslands í NATO

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.