Morgunblaðið - 05.04.2019, Side 16
16 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. APRÍL 2019
Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi
Sími 535 4300 · axis.is
Vandaðar íslenskar innréttingar
Um komandi helgi
mun Lionsfólk á Ís-
landi standa fyrir söfn-
un undir heitinu Rauða
fjöðrin eins og gert
hefur verið á þriggja
til fimm ára fresti frá
árinu 1972. Allt söfn-
unarfé rennur óskert
til þess verkefnis sem
verið er að styðja
hverju sinni.
Nú skal safnað fyrir
augnbotnamyndavélum sem nýtast
munu sykursjúkum, blindum og
sjónskertum. Með velvilja og stuðn-
ingi landsmanna hefur Lions í gegn-
um Rauða fjöður gefið til góðra
verka þar sem þörfin hefur verið
hverju sinni. Ágóði fyrstu söfnunar-
innar fór í stofnun augndeildar
Landakotsspítala en síðan hefur
verið gefið til kaupa á línuhraðli á
krabbameinsdeild Landspítalans, til
byggingar vistheimilisins Hleinar á
Reykjalundi, til kaupa og reksturs
bifreiða fyrir langveik börn, til rann-
sókna á gigtarsjúkdómum og öldr-
unarsjúkdómum, til kaupa á lækn-
ingatækjum á háls-, nef- og
eyrnadeild Landspítala, til kaupa á
tannlækningatæki fyrir fólk með
þroskaskerðingu, til smíði á íslensk-
um talgervli Blindrafélagsins og til
kaupa á leiðsöguhundum fyrir
blindra og sjónskertra einstaklinga.
En hvað er Lions? Lionshreyf-
ingin var stofnuð í Chi-
cago árið 1917, hún er
stærst alþjóðlegra
hjálparsamtaka og inn-
an hennar starfa nú
tæplega 1,5 milljónir
manna í öllum heims-
álfum. Hreyfingin er
mannræktarhreyfing
sem stuðlar að eflingu
félaganna og þjónustu
þeirra við nærsamfélag
sitt. Auk þess starf-
rækir hreyfingin al-
þjóðlegan hjálparsjóð
sem veitir styrki til
margra verkefna um heim allan.
Sjóðurinn hefur getað komið að góð-
um málum, s.s. neyðarhjálp, kaup-
um á lækningatækjum auk margra
fleiri verkefna í samvinnu við Lions-
klúbba á viðkomandi svæðum.
Hreyfingin var karlavígi fram til
ársins 1987 þegar konum var fyrst
heimiluð þátttaka. Síðan hefur veg-
ur kvenna aukist innan hreyfing-
arinnar og er hlutfall íslenskra
kvenna með því hæsta sem gerist í
heiminum eða um 30%.
Lions á Íslandi
Á Íslandi eru 80 Lionsklúbbar
víðsvegar um landið með um 2.200
félaga. Ísland er öflugt Lionsland
m.t.t. höfðatölu, líklega eitt það
sterkasta í heiminum. Íslenskir
Lionsfélagar koma að margvíslegum
málum helst í sinni heimabyggð en
sameinast á nokkurra ára fresti með
landssöfnunum, auk þess að koma
að hjálparstarfi erlendis í samvinnu
við Lions á Norðurlöndunum og í
gegnum Alþjóða hjálparsjóð Lions.
Öflugasti leiðtogi Lions á Íslandi
er Guðrún Björt Yngvadóttir. Hún
hefur gegnt starfi í alþjóðastjórn
Lions og fjölmörgum störfum fyrir
Lionshreyfinguna hér heima og er-
lendis. Í störfum sínum hefur hún
verið slík fyrirmynd og foringi að
hún var valin til þess að gegna starfi
alþjóðaforseta hreyfingarinnar
2018-2019, fyrst kvenna í 101 árs
sögu Lions. Á sama tíma eru þrír
æðstu yfirmenn Lions á Íslandi kon-
ur, í fyrsta sinn í íslenskri Lionssögu
og í fyrsta sinn í heiminum.
Lions fyrir þig?
Lionsklúbbar starfa í anda vin-
áttu og kærleika að því markmiði að
allir nái að njóta sín, vaxa og eflast.
Það er ómetanlegt að vinna í góðra
vina hópi að góðum málefnum í sínu
samfélagi. Hafir þú áhuga á að
starfa með Lions kíktu þá á
www.lions.is og finndu Lionsklúbb í
þínu nágrenni, við tökum vel á móti
þér.
Með vináttu leggjum við lið!
Lions og Rauða fjöðrin
Eftir Björgu Báru
Halldórsdóttur » Lions stendur fyrir
fjársöfnun til góðra
verka undir nafninu
Rauða fjöðrin.
Björg Bára
Halldórsdóttir
Höfundur er fjölumdæmisstjóri
Lions á Íslandi.
Á sínum tíma tók
lögregla mann nokk-
urn vegna gruns um
umferðalagabrot,
hann var ákærður fyr-
ir akstur undir áhrif-
um vímuefna, dæmd-
ur í héraði í réttmæta
refsingu, sem áfrýjað
var til Landsréttar,
þar sem dómur hér-
aðsdóms var stað-
festur. Dómur Landsréttar var síð-
an staðfestur í Hæstarétti.
Einn dómara Landsréttar í mál-
inu hafði ekki verið tilnefndur af til-
nefningarnefnd heldur verið til-
nefndur af ráðherra, ráðningin
staðfest af Alþingi og Forseta lýð-
veldisins. Fjórir af fimmtán dóm-
urum réttarins voru ráðnir með
þessum hætti. Hinir ellefu voru
valdir samkvæmt tillögu tilnefning-
arnefndar. Eitthvert lagaþvarg
varð um þessa aðferðafræði sem
Hæstiréttur fann að en ágallana
taldi rétturinn það óverulega að
ekki tæki því að gera rekistefnu út
af þeim.
Málið virtist allt vera fremur
augljóst og réttmætt að hinn
ákærði fengi eðlilega refsingu fyrir
brot sitt lögum samkvæmt. Verj-
andi dómþola áfrýjar málinu hins
vegar til Mannréttindadómstóls
Evrópu, þar sem æskuvinur og fé-
lagi verjandans er einn dómenda.
Sá dómur klofnaði og komst meiri-
hlutinn að þeirri niðurstöðu að hér
hefði verið um svívirðilegt mann-
réttindabrot að ræða, Landsdómur
hefði ekki verið skipaður lögum
samkvæmt og Alþingi ekki greitt
atkvæði um málið með réttum
hætti.
Þessi dómur hefur valdið fjaðra-
foki á hinu ísa kalda landi, dóms-
málaráðherrann alsaklaus hefur
neyðst til að segja af sér til að
þvælast ekki fyrir, dómþoli fær ekki
réttmæta refsingu fyrir afbrot sitt,
lögspekingar margir við að fara á
límingunum, réttarkerfi landsins er
í uppnámi, stjórnvöld vita ekki sitt
rjúkandi ráð og telja sig þurfa að
athuga vel hvað til bragðs skuli
taka. Stjórnarandstaðan reynir eftir
mætti að klekkja á stjórninni eins
og venjulega og allt stefnir þetta
dæmalaust ómerkilega mál í að
valda þjóðarbúinu hundraða millj-
óna króna óþörfum kostnaði í pen-
ingum, sem sárlega vantar í annað.
Helzt græða þeir sem hafa atvinnu
af því að stunda orðhengilshátt og
deila um tittlingaskít eða annað fá-
nýti.
Það ætti að vera hverjum heilvita
manni ljóst, jafnvel lögspekingum,
að hér hefur ekki verið framið neitt
svívirðilegt mannrétt-
indabrot. Á hinn bóg-
inn má vel færa sterk
rök fyrir því að dómur
Mannréttinda-
dómstólsins sé svívirði-
leg aðför að fullveldi
réttarríkisins Íslands,
sem frekar er þekkt
fyrir að sýna sakborn-
ingum í dómsmálum
umburðarlyndi en dóm-
hörku. Ágallar í máls-
meðferð eru óverulegir,
tillaga ráðherrans er lögum sam-
kvæmt og vel rökstudd, þótt öðru
sé haldið fram. Röksemdafærsla til-
nefningarnefndarinnar fyrir vali
sínu á hinum fimmtán dómara-
efnum er hins vegar í skötulíki og
virðist á ýmsan hátt vera illa útfærð
og illa rökstudd.
Hér virðist hafa verið sett á svið
einhvers konar lögfræðingaspil sem
þjónar engum tilgangi og er þeim
sem að því standa til háðungar. Við-
komandi lögmenn ættu að skamm-
ast sín fyrir að standa í óþarfa
stússi og málavafstri. Ættu þeir
frekar að snúa sér af heilindum að
því að vinna fyrir land og þjóð í stað
þess að skara eld að eigin köku.
Sem betur fer er Ísland ekki
bundið af niðurstöðum Mannrétt-
indadómstóls Evrópu. Engin
ástæða er því til að una þessum
freklegu afskiptum af innanríkis-
málefnum landsins. Þennan fráleita
dóm er sjálfsagt að hundsa. Jafn-
sjálfsagt er að áfrýja honum ekki
vegna óvissu sem því fylgir. Von-
andi þurfa stjórnvöld ekki að
humma lengi yfir málinu. Sjálfsagt
er að taka afleiðingum af þessum
ákvörðunum. Hér er um að ræða
baráttu fyrir fullveldi lands og þjóð-
ar og sú barátta mun halda áfram.
Á hinn bóginn vekur þetta mál
ýmsar áleitnar spurningar um
hvernig embættismenn Evrópuelít-
unnar seilast æ lengra til yfirráða
yfir íslenzkum málefnum, íslenzkum
auðlindum og íslenzku atvinnulífi.
Það er full ástæða til að veita jafn-
an skýr andsvör við þessari ásælni
ef við viljum áfram standa undir
nafni sem fullvalda þjóð eftir einnar
aldar farsæla viðleitni í þeim efnum.
Hinn stóri dómur
Eftir Sverri
Ólafsson
Sverrir Ólafsson
» Það ætti að vera
hverjum heilvita
manni ljóst, jafnvel
lögspekingum, að hér
hefur ekki verið framið
neitt svívirðilegt
mannréttindabrot.
Höfundur er viðskiptafræðingur.
sverrirolafs@simnet.is
Kærleikurinn er ekki
einhver þreyttur laga-
bókstafur eða stein-
runnir stafir. Heldur sí-
ungt og ferskt hjartalag.
Hugarþel, athöfn og verk
sem spyrja ekki um end-
urgjald eða hvernig
standi á.
Kærleikurinn er ekki
þrasgjarn. Hann gefur
sig ekki út fyrir að vita
alltaf allt best og hann veður ekki yf-
ir. Hann hlustar og sýnir skilning.
Hann virðir, umvefur, uppörvar og
hvetur. Hann sér og hlustar með
hjartanu.
Litríkur með notalega nærveru
Kærleikurinn er litríkur með
sterka en notalega nærveru sem staf-
ar mildum geislum sínum yfir þá sem
þiggja vilja.
Kærleikurinn er
ekki yfirþyrmandi og
þrengir sér ekki inn.
Hann er litskrúðugur,
kristaltær svo geislar
hans endurspeglast.
Ljós í myrkri, farveg-
ur Guðs. Í honum
kunna að vera margar
vistarverur en engin
dökk skúmaskot. Lát-
um því ágreining, mis-
klíð og óvild aldrei ná
tökum á okkur svo
hatrið fái ekki að nær-
ast og verði kærleikanum yfirsterk-
ara.
Eins og lífið sigrar dauðann
Kærleikurinn sigrar allt. Hann
færir allt til betri vegar og öllu breyt-
ir til góðs. Og er kærleikur Guðs þar
sterkasta fyrirmyndin. Hans sem
þyrmdi ekki sínum eigin syni heldur
framseldi hann fyrir okkur öll. Hví
skyldi hann ekki líka gefa okkur allt
með honum. Það á nefnilega enginn
meiri kærleika en þann að leggja líf
sitt í sölurnar fyrir vini sína. Hvað þá
svo þeir fái lífi haldið og lifað um ei-
lífð. Kærleikurinn sigrar allt eins og
lífið sigrar dauðann.
Kærleikur Guðs leiðir okkur nefni-
lega inn í heim annars þyngdarafls
utan tíma og rúms þar sem við höfum
nýtt fyrir stafni. Þar sem Guð verður
sýnilegur og kærleikurinn áþreif-
anlegur.
Færir frið og framtíð
Já, kærleikurinn sigrar allt og
bænin bræðir hjörtun. Þau hug-
svölun veita, færa frið í hjarta og
framtíð bjarta.
Leyfðu kærleikanum að stilla sína
viðkvæmu strengi í þínu dýrmæta
hjarta. Svo hann fái notið sín, flögrað
um og borið birtu og yl í umhverfinu
með sínum fögru, umvefjandi og
hlýju vængjum. Og þú þannig orðið
farvegur friðar og farsældar á vegum
þínum.
Kærleikans koss í hjartað streymir
þegar við gerum það að vöggu frels-
arans. Þá upplifum við himininn
kyssa jörðina. Leyfum honum að
setjast þar að. Og þroskast og dafna
til eilífs lífs.
Með kærleiks- og friðarkveðju.
Lifi lífið!
Kærleikurinn sigrar allt
Eftir Sigurbjörn
Þorkelsson » Látum ágreining,
misklíð og óvild
aldrei ná tökum á okkur
svo hatrið fái ekki að
nærast og verði kær-
leikanum yfirsterkara.
Sigurbjörn Þorkelsson
Höfundur er ljóðskáld og rithöfundur
og aðdáandi lífsins.
Atvinna