Morgunblaðið - 05.04.2019, Side 17
Nýlega losnuðu
kjarasamningar 21 að-
ildarfélags BHM við
ríki og sveitarfélög.
Félögin munu í við-
ræðum við þessa aðila
gera kröfu um hækkað
framlag til Styrkt-
arsjóðs bandalagsins.
Hlutverk sjóðsins er
m.a. að styrkja sjóð-
félaga og koma til
móts við tekjutap
vegna ólaunaðrar fjar-
veru frá vinnu sökum
veikinda og slysa,
styðja forvarnir o.fl.
Sjóðurinn greiðir sjóð-
félögum sjúkra-
dagpeninga þegar
réttur til launa í veik-
indum er fullnýttur
hjá vinnuveitanda.
Umsóknum um
sjúkradagpeninga hef-
ur fjölgað gríðarlega á
undanförnum misserum. Það er mik-
ið áhyggjuefni. Vegna þessa neyddist
sjóðurinn nýlega til þess að skerða
heimildir til og fjárhæðir ýmissa
styrkja.
Hækka verður
iðgjald í Styrktarsjóð BHM
Því miður bendir ekkert til þess að
álag á Styrktarsjóð BHM fari minnk-
andi, þvert á móti. Þessi þróun helst í
hendur við mikla fjölgun félags-
manna aðildarfélaga BHM sem leita
til VIRK starfsendurhæfingarsjóðs.
Styrktarsjóður BHM þarf að vera í
stakk búinn að styrkja forvarnir sem
og að greiða út sjúkradagpeninga
þegar þörf krefur. Ljóst er að hann
getur ekki sinnt hlutverki sínu nema
iðgjald verði hækkað.
Sumir opinberir
vinnuveitendur eru treg-
ir að taka á móti starfs-
manni aftur til vinnu eft-
ir veikindafjarveru
nema fyrir liggi staðfest-
ing á því að veikindi
hans taki sig ekki upp
aftur. Er þetta tengt
túlkun á ákvæðum
kjarasamninga um
ávinnslu veikindaréttar í
kjölfar leyfis. Frá sjón-
arhóli starfsmannsins er
þetta algjörlega óvið-
unandi staða og undir-
strikar þörfina á því að
krafa aðildarfélaga
BHM um hækkun ið-
gjalds í Styrktarsjóðs
verði tekin til greina.
Skattfrelsi styrkja
Í yfirlýsingu sem rík-
isstjórn Íslands gaf út í
febrúar 2008 sagði m.a.
orðrétt: „Ríkisstjórnin
mun í tengslum við þetta
beita sér fyrir lagabreytingum sem
tryggi að greiðslur úr Endurhæfing-
arsjóði, sjúkra- og fræðslusjóðum
stéttarfélaga sem ganga til greiðslu
kostnaðar við endurhæfingu, heil-
brigðisþjónustu og tiltekna þjónustu
fagaðila ásamt starfsmenntun og
fullorðinsfræðslunámskeiðum sem
staðfest hafa verið af menntamála-
ráðuneytinu teljist ekki til skatt-
skyldra tekna.“ BHM skorar á nú-
verandi ríkisstjórn að efna þetta
fyrirheit þannig að styrkir úr
Styrktarsjóði BHM og Sjúkrasjóði
BHM verði skattfrjálsir.
Það er brjálað
að gera
Eftir Ernu
Guðmundsdóttur
Erna Guðmundsdóttir
» Styrktarsjóð-
ur BHM
þarf að vera í
stakk búinn að
styrkja forvarnir
sem og að greiða
út sjúkradag-
peninga þegar
þörf krefur.
Höfundur er framkvæmdastjóri
BHM.
erna@bhm.is
UMRÆÐAN 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. APRÍL 2019
Við gyllinæð
og annarri ertingu og
óþægindum í endaþarmi
Krem
Þríþætt verkun - verndar, gefur raka og græðir
Byggir á náttúrulegum innihaldsefnum
Inniheldur ekki stera
Hreinsifroða
Froðan hreinsar, róar og frískar óþægindasvæðið
Byggir á náttúrulegum innihaldsefnum
Fyrir hámarksárangur er mælt með notkun á Procto-ezeTM Hreinsi áður en Procto-ezeTM Krem er notað.
Fæst í næsta apóteki.
Opið:
8-18 virka daga
10-14 laugardaga
Sími 588 8000
slippfelagid.is
Blár vinur í stofunni,
yndislegur litur sem nýtur
sín vel í flestum rýmum.
Skoðaðu litaúrvalið
okkar á slippfelagid.is
Notalegur
Þegar rætt er um
landssöfnun Lions-
hreyfingarinnar
„Rauðu fjöðrina“ kem-
ur iðulega upp í hug-
ann sagan um fjöðrina
sem varð að heilli
hænu. Því að svo sann-
arlega getur ein rauð
fjöður sem þú lesandi
góður kaupir orðið að
myndarlegri gullhænu
þegar saman leggjast framlög allra
sem málefnið styðja. En ólíkt sög-
unni sem snýst um hvernig sögu-
sagnir geta magnast upp þá er salan
á rauðu fjöðrinni áþreifanlegt sam-
félagsverkefni sem kemur öllum til
góða.
Ákveðið hefur verið að verja
söfnunarfénu að þessu sinni til
kaupa á augnbotnamyndavélum
(OCT) fyrir Þjónustu- og þekking-
armiðstöðina fyrir blinda, sjón-
skerta og einstaklinga með sam-
þætta sjón- og heyrnarskerðingu,
sem í daglegu tali er kölluð Mið-
stöðin, og fyrir innkirtladeild Land-
spítala – Háskólasjúkrahúss en þar
mun tækið nýtast við að fylgjast
með breytingum í augnbotnum syk-
ursjúkra.
Hlutverk Miðstöðvarinnar er að
auka möguleika þeirra sem eru
blindir, sjónskertir eða með sam-
þætta sjón- og heyrnarskerðingu til
að vera virkir þátttakendur á öllum
sviðum samfélagsins til jafns við
aðra. Starfssvið hennar felst í ráð-
gjöf, hæfingu og endurhæfingu með
sérstaka áherslu á stuðning til
náms, sjálfstæðis við heimilishald og
virkra tómstunda og atvinnuþátt-
töku. Miðstöðin sinnir einnig
fræðslu, ráðgjöf og stuðningi við að-
standendur, skóla og
aðrar þjónustu-
stofnanir.
Miðstöðinni er einn-
ig ætlað að hafa yfirsýn
yfir aðstæður þeirra
sem eru blindir eða
sjónskertir og gegna
samhæfingarhlutverki
gagnvart öðrum sem
veita umræddum not-
endum þjónustu.
Þeir sem eiga rétt á
að njóta þjónustu hjá
Miðstöðinni eru:
Sjónskertir, þar
sem læknisfræðileg greining sýnir
að sjón er minni en 30% á betra
auga, með venjulegum sjónglerjum,
og sjónsvið innan við 20 gráður, eða
ef starfrænt mat sýnir erfiðleika
vegna sjónskerðingar, t.d. með lest-
ur 10 punkta leturs með venjulegum
sjónglerjum.
Blindir, þar sem læknisfræðileg
greining sýnir að sjón er minni en
5%, með venjulegum sjónglerjum,
og innan við 10 gráðu sjónsvið.
Fólk með samþætta sjón- og
heyrnarskerðingu, þar sem saman
fer sjón- og heyrnarskerðing sem
takmarkar athafnasemi og hamlar
þátttöku í samfélaginu í slíkum mæli
að þörf er á sértækri þjónustu, laga
þarf umhverfi að þörfum viðkom-
andi eða nýta sérstakan tæknibúnað
til að mæta þörfum hans.
Það má öllum ljóst vera að tilvera
og góður aðbúnaður Miðstöðvar-
innar er afar mikilvæg okkur öllum
sem njótum þjónustu hennar. Það er
því Blindrafélaginu mikið ánægju-
efni að Lionshreyfingin hefur ákveð-
ið að efla tækjakost Miðstöðv-
arinnar með því að kaupa
OCT-myndavél fyrir söfnunarféð
sem fæst með sölu á rauðu fjöðrinni
í ár.
OCT (optical coherence tomo-
graphy) er tæki til myndgreiningar
á augnbotnum, sjónhimnu og
sjóntaugum. Það mun nýtast við
greiningar og eftirlit á augn-
sjúkdómum sem og við fræðslu fyrir
notendur Miðstöðvarinnar. Mynd-
rannsóknin tekur bæði til yfirborðs
ásamt því að sýna dýpri lög, eins
konar sneiðmyndataka af sjónhimnu
og sjóntaug, og veitir því mun ít-
arlegri upplýsingar en hefðbundin
augnbotnamyndataka.
OCT þykir í dag og er til fram-
tíðar nauðsynlegt tæki við eftirlit á
t.d. hrörnun í augnbotnum, sem er
algengasti augnsjúkdómur meðal
eldra fólks, en yfir 70% af notendum
Miðstöðvar eru 70 ára og eldri. Tæk-
ið nýtist einnig við eftirlit með öðr-
um hrörnunarsjúkdómum í augn-
botnum eins og til dæmis RP sem er
algengasta ástæða sjónmissis hjá
fólki á virkum vinnualdri. Jafnframt
mun tækið nýtast Miðstöðinni vel
við flókna mátun á sérhæfðum lins-
um og fleira.
Það er mikið ánægjuefni að
Lionshreyfingin styður með svo
myndarlegum hætti við starfsemi
Þjónustu- og þekkingarmiðstöðv-
arinnar fyrir blinda, sjónskerta og
fólk með samþætta sjón- og heyrn-
arskerðingu. Blindrafélagið hvetur
því landsmenn alla til að taka hönd-
um saman og styðja við þetta mál-
efni með því að kaupa rauðu fjöðrina
af Lionsmönnum um komandi helgi.
Margt smátt gerir eitt stórt og sam-
an getum við svo sannarlega breytt
lítilli rauðri fjöður í myndarlega
hænu.
Rauða fjöðrin – öllum til góða
Eftir Sigþór
Unnstein
Hallfreðsson
» Blindrafélagið hvet-
ur landsmenn til að
taka höndum saman og
kaupa rauðu fjöðrina til
stuðnings góðu málefni.
Sigþór Unnsteinn
Hallfreðsson
Höfundur er formaður Blindrafélags-
ins, samtaka blindra og sjónskertra á
Íslandi.
suh@