Morgunblaðið - 05.04.2019, Page 20

Morgunblaðið - 05.04.2019, Page 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. APRÍL 2019 ✝ Erla HermínaÞorsteinsdóttir húsmóðir, Lamb- astekk 1, fæddist í Reykjavík 31. ágúst 1929. Hún lést 26. mars 2019. Hún var dóttir hjónanna Söru Her- mannsdóttur, f. 4. apríl 1899 á Ketils- eyri við Dýrafjörð, d. 18. október 1978, og Þorsteins Halldórssonar prentara, f. 26. september 1900 á Vörðufelli í Lundarreykjadal, d. 1. nóvember 1976. Systir Erlu er Margrét Þorsteinsdóttir, f. 5. september 1947. Erla giftist 6. mars 1954 Þor- steini Sigurðssyni, f. 26. mars 1931, d. 12 janúar 2019. For- eldrar hans voru Lilja Marteins- dóttir, f. 12. maí 1894, og Sig- urður Þorsteinsson kaupmaður, f. 5. september 1888, Freyjugötu 11a. 1965. Börn þeirra eru a) Anna Katrín, sambýlismaður Marijn van der Woude, b) Erla Steina, sambýlismaður Einar Gauti Ólafsson, c) Styrmir Steinn, d) Grímur Garri. Erla Hermína ólst upp á Grímsstaðaholti og lauk barna- skólaprófi frá Landakotsskóla árið 1943. Eftir gagnfræðapróf stundaði hún nám við Tónlistar- skólann í Reykjavík á árunum 1946-1950 og útskrifaðist þaðan sem píanókennari. Erla starfaði á Endurskoð- unarskrifstofu N. Manscher og co. frá 1950 til 1955. Árið 1980 hóf hún störf á Tannlækn- ingastofunni Óðinsgötu 4 þar sem hún starfaði í tæp 20 ár. Erla var í Sinawik-klúbbnum Heklu í Reykjavík og gegndi þar ýmsum störfum. Hún sat meðal annars í stjórn klúbbsins og var gjaldkeri árið 1985 til 1986 og formaður félagsins 2003 til 2004. Einnig var hún virkur meðlimur í Kvenfélagi Breiðholts frá stofn- un þess árið 1970. Hún var gjald- keri í nokkur ár og var formaður félagsins 1996 til 2000. Útför Erlu fer fram frá Bú- staðakirkju í dag, 5. apríl 2019, klukkan 13. Börn Erlu og Þorsteins eru 1) Sara Bertha, f. 31.12. 1955, maki Kristinn Hilmars- son, f. 24.10. 1955. Börn þeirra eru a) Hilmar, sambýlis- kona Erla Rut Káradóttir, saman eiga þau tvö börn, b) Hildigunnur, maki Rafn Markús Vilbergsson, saman eiga þau þrjár dætur. 2) Sigríður Hall- dóra, f. 21.3. 1958, maki Páll Ás- geir Pálsson, f. 9.12. 1955. Börn þeirra eru a) Erla, b) Þorsteinn, maki Þórhildur Jónsdóttir, sam- an eiga þau þrjár dætur, c) Ása Lind, sambýlismaður Ísak Gunn- arsson, saman eiga þau eina dóttur, d) Lilja Rós. 3) Sigurður, f. 18.11. 1965, maki Caroline Ta- yar, f. 3.1. 1966. Dóttir þeirra er Nóa Tayar. 4) Lilja, f. 22.5. 1967, maki Sverrir Ágústsson, f. 22.5. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (Valdimar Briem) Nú þegar foreldrar mínir hafa kvatt með stuttu millibili er það einmitt þakklætið sem er mér efst í huga. Þakklæti fyrir að hafa átt góða foreldra, sem alltaf hvöttu okkur systkinin, stóðu við bakið á okkur og við áttum skjól hjá. Þakklæti fyrir að þau fengu að eldast saman og halda heimili í næstum sjö áratugi og þakklæti til allra sem önnuðust þau síðustu mánuðina. Kenndu mér klökkum að gráta, kynntu mér lífið í svip. Færðu mér friðsæld í huga, finndu mér leiðir á ný. Gefðu mér gullin í svefni, gættu að óskum og þrám. Minntu á máttinn í sálu, minning er fegurri en tár. Og sjáðu hvar heiður himinn handan við þyngstu ský er dagur sem dugar á ný. (Sigmundur Ernir) Sara Bertha. Elsku mamma mín, besta blóm. Þetta fór ekki alveg eins og við héldum og vonuðum. Hins vegar vitum við sem þekktum pabba að hann var snöggur að hlutunum. Hefur sjálfsagt verið tilbúinn með allt sem við ræddum um þegar hann kvaddi okkur síð- astliðinn janúar og vildi ekki eyða afmælisdeginum einn í fína kotinu. Þið hjálpist að með gleym-mér-eina í garðinum. Mamma mín, þú varst engri lík, ein sú fordómalausasta manneskja sem ég hef kynnst. Þegar aðrir fussuðu sást þú það góða og bjarta. Ég man þegar Anna Katrín, þá unglingur, fékk sér sporðdreka á öxlina og sumir höfðu sterkar skoðanir á því, þá sagðir þú „mik- ið er þetta sætur sporðdreki“. Þegar sumum fannst Erla Steina fyrirferðarmikil og hávær sem krakki, þá sagðir þú „hún Erla Steina er svo lífleg og skemmti- leg“. Þegar Styrmir Steinn, þá fjögurra ára, vildi vera Lína Langsokkur á öskudaginn og sumir hneyksluðust þá sagðir þú „hann er flott Lína, það er svo mikilvægt að fá að vera eins og maður vill“ og ávallt sagðir þú „hann Grímsi minn er alveg ynd- islegur“. Alltaf svo ánægð með afleggjara þína og sást allt það góða í þeim. Það fallega var að þú varst óspör að segja það og sá þannig fræjum sem létu þeim sem þig umgengust líða vel. Þið pabbi voruð einstaklega samrýnd hjón og raunsæjar manneskjur. Voruð ánægð hvort með annað, höfðuð lag á að vera fljót að hugsa og taka ákvarðanir, stóðuð við þær og lituð aldrei til baka með eftirsjá, alltaf sátt við ykkar hlutskipti og lífið. Flink að lifa í núvitund. Við sögðum oft að þú hefðir níu líf eins og kötturinn, lentir í ófáum hindrunum í gegnum tíð- ina, sérstaklega á efri árum, og alltaf komstu þér aftur á fætur. Ein sú þrautseigasta og minnst kvartsára manneskja sem ég þekki. Ef þú ætlaðir þér eitthvað gerðir þú það á þínum hraða. Góð varstu við alla og reyndist öllum vel, sýndir fólki einlægan áhuga og velvilja. Þetta viðmót skilaði sér margfalt til baka því öllum sem þig þekktu og þér kynntust þótti umsvifalaust vænt um þig. Nú verða ekki fleiri kúru- stundir hjá okkur í bili en þær höfum við átt ófáar síðustu árin og þá sérstaklega síðasta ár. Minning þín er ljóslifandi í hjört- um okkar. Á síðustu dögum höf- um við rifjað upp óteljandi atvik og sögur með sorg en líka gleði í hjarta. Elsku mamma mín, ég elska þig, farðu vel með þig og kysstu pabba frá mér. Þú ert ætíð Erla mín, yndislétt í geði. Oft ég sting mér inn til þín, alltaf mér til gleði. Þér ég óska öll þín jól, yndislegra stunda, gleði, heilsu gæfusól, góðra vina funda. (Þorsteinn Halldórsson) Þín dóttir Lilja. Ljósheimar Ef dægurstritið setjast vill að sál, þá svífum upp til ljóssins björtu heima og gleðjumst þar við guðlegt listabál, á gullinskýjum látum okkur dreyma. Já, þar er andinn orðinn loksins frjáls frá öllum gömlum vanans hleypidómum. Vér berum engin bönd um arm né háls, en bjartir strengir leika gleðihljómum. Og þar er ástin eilíf, helg og hrein og himneskt vor og dýrðleg rósa-angan. Þar svífa fuglar léttir grein af grein með gleðikvaki sumardaginn langan. Og er vér fáum fundið slíkan heim, þá finunm vér, það er vor bezta stundin er andinn flýgur frjáls um víðan geim með fögrum gyðjum inn í helga lundinn. (Þorsteinn Halldórsson) Elsku mamma, þín verður sárt saknað, en ég veit að pabbi hefur tekið vel á móti þér og boðið þér í afmæliskaffi. Þín dóttir Sigríður Halldóra (Sigga Dóra). Erla tengdamóðir mín er látin á sínu 90. aldursári. Erla missti Steina sinn 12. janúar síðastlið- inn, en hann var þá ekki tilbúinn að fara og skilja Erlu sína eftir. Erla bað hann þá að fara á undan og finna góðan stað fyrir þau, hún myndi koma bráðlega. Þannig var Erla, full af æðruleysi og sterk þegar þess þurfti með. Erla hafði hugsað sér að fá að sjá barnið hennar Erlu nöfnu sinnar í júní og halda upp á ní- ræðisafmælið sitt í ágúst með fjölskyldu sinni áður en hún færi til Steina síns. En enginn veit sína ævi fyrr en öll er og kannski var henni ekki erfitt að gefast upp fyrir veikindum sínum í þeirri vissu að tekið yrði vel á móti henni. Erla veit að amma hennar mun vaka yfir barninu hennar og fjöl- skyldan mun halda upp á afmælið hennar í ágúst. Erla átti góða ævi og fjöl- skyldu sem hún unni og þótti vænt um. Þær voru ófáar veisl- urnar sem hún og Steini héldu fyrir hana á Lambastekk og lifa minningar frá þeim hjá öllum. Erla var hógvær og alltaf blíð og góð en við vitum að hún gat verið ákveðin og best að hlýða henni ef þannig stóð á. Tengda- pabbi vissi að þegar hann heyrði „Steini minn, viltu ekki …“ þá var best að klára það sem þurfti að gera. En nú er Erla komin til Steina síns til að vera saman í litla hús- inu sem hann valdi fyrir þau með- an hann beið hennar og þar munu þau taka á móti fjölskyldu og vin- um. Blessuð sé minning þeirra beggja. Páll Ásgeir Pálsson. Elsku Erla mín, nú ertu farin okkur frá og komin til Friðheima og mikið mun ég sakna þín. Nær- vera þín var svo hlý, svo einstök, þolinmóð og þú gerðir hlutina með þínu lagi af yfirvegun. Mér finnst svo stutt síðan við sátum við borðstofuborðið uppi á Eir og ræddum lands- og heimsmálin og borðuðum kræsingar. Við, mín kæra tengdamóðir, kynntumst fyrst þegar við Lilja vorum unglingar og minnist ég þess að fljótlega eftir þau kynni áttuð þið pabbi Steini 33 ára brúðkaupsafmæli. Ég hafði aldrei heyrt um slíkar tölur en 6. mars sl. hefðuð þið Steini fagnað 65 ára brúðkaups- afmæli. Þú og Steini voruð alltaf okkar akkeri og ég mun aldrei gleyma því, og fyrir það vil ég þakka. Þið voruð svo umhyggjusöm um ykk- ar fólk og hugsuðuð um það af nærgætni. Takk fyrir að standa ætíð vörð um krakkana okkar og hlýjuna í þeirra garð. Erla mín, góða Erla, hvíldu fallega og ég veit að við hittumst á ný og á meðan bið ég að heilsa pabba Steina. Þinn Sverrir. Það er ótrúlega óraunverulegt að sitja hérna og skrifa nokkur orð til þín, elsku amma. Þegar við kvöddum afa fyrr á árinu varst þú svo sterk og barst þig svo vel. Þú varst grjóthörð þótt þú værir samt pínulítil og við héldum, líkt og mamma segir alltaf, að þú værir raunverulega kötturinn með „tíu“ lífin. Að koma á Lambó var alltaf svo notalegt, þú og afi bjugguð til svo gott heimili sem alltaf var gott að koma á. Það var alltaf einhver hrollur í þér og allir ofnar voru vel heitir sem kom ekki að sök því afi gekk bara um í stuttermabol og allir sem komu í heimsókn vissu af þessu og pössuðu að mæta mjög léttklæddir. Þú varst algjört krútt og svo góð við okkur og alltaf þegar maður hitti þig þá straukstu aðra kinnina á manni brosandi eftir að þú varst búin að smella á okkur kossi beint á munninn, þetta gerðir þú líka við vini okkar þeg- ar þeir komu í heimsókn með okkur. Þú varst líka alger Pollýanna og sást hlutina á þinn hátt og hafðir oft orð á því hvað þú værir sterk í fótunum því þú skíðaðir svo mikið á yngri árum en það má örugglega deila um það hversu mikil skíðadrottning þú hafir ver- ið. Þegar maður byrjar að hugsa til baka þá er margt sem kemur upp í kollinn á manni. Bílferðirn- ar með Erlu og Þorsteini á Fiat- inum upp í Breiðholtskjör að kaupa bland í poka í grænu pok- ana. Spila saman svartapétur inni í eldhúsi fyrir kvöldkaffið, biðja saman bænirnar áður en við fór- um að sofa í pössun, þar sem allir heimsins englar voru beðnir um að vernda mann. Við minnumst þess líka hlæj- andi þegar þú ætlaðir að reyna að vera svolítið nútímaleg í matar- gerð og bjóða okkur upp á la- sagne, en þetta var bara hakk og plötur. Engin sósa eða ostur, það verður að segjast að þetta er ekki það besta sem þú hefur boðið okkur upp á. Þetta lýsir þér samt svo vel að reyna að gera eitthvað sérstak- lega gott fyrir okkur. Þú varst líka svo klár að spila á píanó og ófá skiptin sem maður sat og hlustaði á þig spila. Þú kenndir Erlu að spila og fylgdist af áhuga með henni spila. Þú og afi bjugguð á Lambó í yfir 50 ár, það er fyndið að hugsa til þess núna að fyrst vildir þú ekki flytja þangað en svo elskaðir þú húsið svo mikið. Lambó var miðstöð fjölskyldunnar og við minnumst með gleði kaffisins á föstudögum, en þá hittust mamma, Magga og allir sem voru lausir, í eldhúsinu hjá ykkur og fengu sér hádegismat og spjall. Þú elskaðir afa svo mikið, hann Steina þinn, enda var hann klett- urinn í lífi þínu og gerði allt fyrir Erlu sína. Þið voruð einstaklega heppin að finna hvort annað og samband ykkar var einstakt allt fram á seinasta dag. Við vorum byrjuð að plana heljarinnar veislu í ágúst í tilefni af níræð- isafmælinu þínu og varst þú svo spennt fyrir því. En þú hefur ekki getað beðið lengur eftir að hitta afa og ekki getað hugsað þér að hann myndi eyða afmælinu sínu án þín. Ef við þekkjum ykkur rétt sitj- ið þið einhvers staðar hönd í hönd að spjalla. Við hin munum hittast á afmælinu þínu og dansa eins og planið var. Þín barnabörn, Erla, Þorsteinn, Ása Lind og Lilja Rós. Elsku amma mín, hvað það er leitt að þú sért farin en núna ertu með afa. Þú varst alltaf ein mik- ilvægasta manneskjan í lífi mínu. Ég lærði ótal margt af þér og þú varst alltaf til staðar fyrir mig. Þú varst mikil baráttukona og stóðst alltaf í fæturna þó að á móti blési og það kenndi mér að taka alltaf á vandanum sama hvað. Þú varst mikill húmoristi og hafði ég alltaf mjög gaman af því að spjalla við þig og vera með þér, svo gott að vera nálægt þér. Mér fannst eiginlega ótrúlegt að þú værir að verða níræð þar sem þú varst alltaf svo ung í anda og með alla hluti á hreinu. Elska þig amma mín, hvíldu í friði. Þinn Grímur (Grímsi). Elsku ömmusnúlla. Nú ert þú farin okkur frá og óhætt að segja að það ríki blendnar tilfinningar. Mikið hrikalega sem ég sakna þín, en á sama tíma veit ég að nú fáið þið afi að halda áfram ykkar ferðalagi. Þegar ég hugsa um þig og afa og þá staðreynd að þið kveðjið þennan heim með einungis tveggja og hálfs mánaðar millibili þá blasir við mér eintóm ást. Ást- in sem alltaf var til staðar á Lambó. Ég er búinn að velta vöngum yfir því hvernig best er að koma því í orð hvernig þín dásamlega nærvera var, skemmtilegast finnst mér að segja að þú hafir verið eins og hleðslutæki ánægj- unnar. Ég hitti þig og þá var eins og mér væri stungið í samband, síðan þegar ég gekk í burtu var ég uppfullur af ást, gleði og ham- ingju. Annað sem ég virkilega elskaði við þig var það hversu gríðarlega mikill húmoristi þú varst. Alveg sama hvað það var þá gat ég ekki annað en fundið fyrir ást og gleði, nú eða hlegið mig vitlausan. Ég hef ætíð litið gríðarlega upp til þín og má það sjá á mörg- um af mínum „dellum“ í gegnum tíðina. Hvort sem það er píanóið, spilagaldrarnir sem rekja má beint til allra ólsen-ólsen-spil- anna okkar sem alltaf voru upp í 101 stig, nú eða almennt grín og glens. Að leiðarlokum er mér efst í huga hamingja, gleði og þakklæti fyrir þá ómældu ást sem þú gafst mér og öllum þeim sem þig snertu. Ég kveð elskulega ömmu og bið þér guðs blessunar. Takk fyrir ferðalagið, þinn Styrmir Steinn. Elsku besta amma okkar. Síð- ustu dagar hafa verið óraunveru- legir og trúum við því ekki að þú sért farin frá okkur. Þið afi voruð stór partur af okkar lífi og því erfitt að missa ykkur bæði á svona stuttum tíma. Stundirnar sem við áttum með ykkur eru dýrmætar og munum við halda í þær alla tíð. Lambó var okkar annað heim- ili og okkur fannst ekkert betra en að koma í huggulegheit til ömmu og afa. Þú varst ekki lengi að skella í lummur og heitt kókó. Alltaf tími til að spjalla og eiga stund með okkur. Í mörg ár komum við vikulega í píanótíma til þín. Við systur, Erla Hermína Þorsteinsdóttir Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, INGUNN GUÐBRANDSDÓTTIR, Álfhólsvegi 21, Kópavogi, lést á hjúkrunarheimilinu Droplaugarstöðum sunnudaginn 31. mars. Útför hennar fer fram frá Kópavogskirkju mánudaginn 8. apríl klukkan 13. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á að leyfa líknarfélögum að njóta þess. Ingunn S. Þorsteinsdóttir Þórhallur Ólafsson Tryggvi Þorsteinsson Erla Dögg Ingjaldsdóttir Alexandra Sif Carmen Inga og Andrea Reyn Tryggvadætur Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓN HELGASON, Seglbúðum, lést á hjúkrunarheimilinu Klausturhólum 2. apríl. Útförin verður auglýst síðar. Guðrún Þorkelsdóttir Björn Sævar Einarsson Guðrún Marta Torfadóttir Helga Dúnu Jónsdóttir Þórarinn Bjarnason Bjarni Þorkell Jónsson Gréta Rún Árnadóttir barnabörn og barnabarnabarn Elskulegi yndislegi sonur okkar, bróðir, mágur og frændi, FRIÐRIK JENS GUÐMUNDSSON, lést á heimili sínu 2. apríl. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju föstudaginn 12. apríl klukkan 13. Guðmundur Friðriksson Helga Óskarsdóttir Sigrún Áslaug Guðmundsd. Pétur Reynir Jóhannesson Rannveig Guðmundsdóttir Kári Auðun Þorsteinsson og frændsystkini

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.