Morgunblaðið - 05.04.2019, Page 24

Morgunblaðið - 05.04.2019, Page 24
24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. APRÍL 2019 ✝ Gunnar Hall-dórsson fæddist í Reykjavík 6. sept- ember 1950. Hann lést að heimili sínu í Reykjavík 24. mars 2019. Foreldrar Gunn- ars voru hjónin Hall- dór Ágúst Gunn- arsson húsamálari, f. 1.3. 1921, d. 23.1. 1997, og Bryndís Helgadóttir húsmóðir, f. 16.2. 1918, d. 5.9. 1980. Gunnar var ókvæntur og barnlaus. Systkini Gunnars: 1) Auður Gunnur, f. 21.8. 1940, d. 29.5. 2017 , 2) Helga, f. 15.9. 1942, 3) Hugrún, f. 24.3. 1945, 4) Halla, f. 5.11. 1947, 5) Sig- rún, f. 23.8. 1949, 6) Sævar, f. 12.8. 1952., 7) Svavar Örn Hösk- uldsson hálfbróðir, sammæðra, f. 3.2. 1938, d. 8.11. 1991. Útför Gunnars fer fram frá Seljakirkju í dag, 5. apríl 2019, klukkan 15. Til þín elsku bróðir. Fegurðin er frá þér barst, fullvel þótti sanna, að yndið okkar allra varst, engill meðal manna. Hlutverk þitt í heimi hér, þú hafðir leyst af hendi. Af þeim sökum eftir þér, Guð englahópa sendi. Sú besta gjöf er gafst þú mér, var gleðisólin bjarta, sem skína skal til heiðurs þér, skært í mínu hjarta. (BH) Þú gast lýst upp hvaða dimma stað sem til var með þeirri per- sónu sem þú varst. Þakka fyrir allar þær stundir sem ég hef átt með þér, og mun varðveita þær að eilífu. Þín systir, Sigrún. Það er mér ljúft í dag að líta um öxl og minnast liðinnar tíðar og samferðar okkar Gunnars mágs míns. Maður á ekki að segja allt sem maður veit, en maður á að vita hvað maður segir, voru setningar sem Gunnar Halldórs- son mágur minn sagði oft er við hittumst. Gunnar spurði mig stundum: „Hilmar, finnst þér ég vera eitthvað skrítinn?“ „Nei, nei, Gunnar minn, þú ert bara dálítið sjaldgæfur,“ sem í raun var alveg satt. Hann batt ekki bagga sína sömu hnútum og samferðamenn hans. Hann leysti málin á sinn hátt. Gunnar var forn í hugsun. Gunnar var algjör reglumaður. Hann var mjög glaðvær og hress og hrókur alls fagnaðar. Hann var vinamargur og hafði gaman af því að ræða málin. Gunnar var einstaklega hjálp- samur og mátti ekkert aumt sjá. Hann kom oft í heimsókn til okkar í Fjörðinn og alltaf hafði hann í farteskinu einhvern glaðning. Gunnar var mjög árrisull maður, kominn á röltið fyrir all- ar aldir, það fyrsta sem hann gerði yfirleitt daglega var að ganga frá heimili sínu í Bríet- artúninu vestur á Granda, fá sér kaffi og spjall með góðum vinum á Kaffivagninum. Hann fór allra sinna ferða fót- gangandi eða í strætó, hann var yfirleitt á röltinu vítt og breitt um Reykjavík og nágrenni alla daga, það verður sjónarsviptir að honum á þeim slóðum. Hann var alltaf eitthvað að prakkarast, en gætti þess vel að særa engan. Hann hafði mikla frásagnarþörf og er það eitt af því sem gerði þennan yndislega mann að sér- stökum karakter. Hann var allt- af jákvæður og skorti hann aldr- ei umræðuefni. Gunnar hefði orðið sáttur við það að vera líkt við dæmigerðan verkamann. Hann elskaði fjöl- skyldu sína og stóð við það sem hann tók að sér. Hann hafði ekki þörf fyrir að láta á sér bera, en hafði miklar skoðanir á lífinu, réttlæti og heiðarleika. Hann var var góður sagna- maður, grúskari, samfélagsrýn- ir, sem sá í gegnum hin ýmsu mál. Frásögn hans var hnyttin en boðskapurinn ekki auðskilinn í fyrstu. Hann sagði frá löngu liðnum atburðum eins og um líð- andi stund væri að ræða. Gunnar var mjög tryggur og fjölskyldurækinn. Gunnar hafði það að leiðarljósi hve mikilvægt er að fyrirgefa og vera ekki með hatur í farteskinu. Hvers vegna að ganga með opin sár þegar fyrirgefningin getur lokað þeim. Það er svo mikilvægt að eiga frið í hjarta sínu því að ef við finnum hann ekki þar er tilgangslaust að leita hans annars staðar. Öll viljum við lifa hamingju- sömu lífi, en hvað er hamingja? Leikkonan heimsfræga, Ing- rid Bergmann, sagði: Hamingj- an er fólgin í góðri heilsu og slæmu minni, sem Gunnar sagði svo oft. Hann sagði oft í gríni að hann væri heilalaus, þess vegna væri hann svona minnislaus. Gunnar átti fáa sér líka, og er mikil eftirsjá að slíkum karakter sem hann var. Minningin um góðan vin mun lifa. Einnig minnumst við skemmtilega hrekklausa prakk- arans sem kom okkur öllum í gott skap. Hvíl í friði, kæri mágur. Hilmar Kristensson. Lífið er skrýtið, það endar á sama stað hvað okkur öll varðar en við komumst ekki hjá því að fara þessa leið. Maður spyr sig hverju við ráðum og hvaða öfl ráði innra með okkur í tilveru fólks, þar sem við höfðum ekkert um það að segja þegar við urð- um til. Jú, það mátti litlu muna þar sem lífið sjálft er gjöf sem við öll verðum að vinna úr lífinu. Gunnar Halldórsson kunni að vinna úr lífinu þótt hann hafi slasast illa og það varð til þess að hann hætti að vinna. En hann átti gleði, kærleika og vináttu margra manna sem hann átti í samræðum við í gegnum árin. Það var undarlegur föstudag- ur 22. mars, sem var í raun í síð- asta skipti sem við kaffifélagar áttum stund með Gunnari Hall- dórssyni í Kaffivagninum. Um klukkan níu þann morgun birtist Gunnar í gulu úlpunni sinni allt í einu, frekar þreyttur á svip. Ég sagði við hann: „Gunni minn, þú ert seinn núna.“ „Já, ég svaf illa í nótt og er búinn að vera að drepast í maganum í nokkra daga og held að ég sé að drep- ast.“ Við félagarnir tökum eftir þessu og Biggi sagði honum að fara til læknis þar sem við héld- um að hann væri með flensu sem var að ganga, en tókum eft- ir að hann var að verða léttvax- inn. Sama svarið sem við feng- um frá Gunnari þegar hann var spurður: „Ég er að drepast.“ Það skal tekið fram að hann var búinn að vera veiklulegur síð- ustu dagana fyrir andlátið. Þetta var maður sem gekk daginn út og inn, sjálfsagt búinn að ganga nokkrum sinnum í kringum Ís- land á sinni ævi, þrátt fyrir að hann væri með bílpróf og skír- teini á sér til að staðfesta það, þegar menn voru að spauga. Gunnar hafði unnið víðs vegar í kringum landið og var stoltur af að hafa starfað við byggingu verkamannabústaða í Breiðholt- inu fyrir láglaunafólk. Kaffi- vagninn var uppáhaldið, þar hittumst við, félagarnir, sama hvernig viðraði. Gunnar var stundvís og ætíð mættur um klukkan sjö á morgnana, auðvit- að með bunka af blöðum í tösk- unni sinni, og beið eftir að vagn- inn yrði opnaður, beið í skjóli eða í bílnum hjá mér. Við opnun var hans fyrsta verk að ná í blöðin sem lágu á sólpallinum, gerði þau klár til lestrar og sá um það til dauðadags. Gunnar og Helgi félagi hans sátu ætíð saman með fréttir dagsins og drukku kaffið sitt, auðvitað líka með jólaköku eða kleinu. Gunnar var raungóður og góðlyndur maður sem vildi öll- um vel, trúði á Strandarkirkju og styrkti hana til dauðadags. Það stóð aldrei á Gunnari að standa upp og ná í kaffibollann fyrir hann Kristján lögmann, vin sinn, Árna flugstjóra, sem færði Gunnari vini sínum gjöf sem var penni sem hann keypti á ferð sinni til Bandaríkjanna með mynd af Donald Trump, og var Gunnar stoltur að eiga penna með mynd af forseta Bandaríkj- anna. Kæri vinur, Gunnar Halldórs- son, við erum þakklátir fyrir nærveru þína. Við félagarnir í Kaffivagninum söknum þín, nú eru tveir félagar okkar farnir og hafa tekið flugið en tveir ungir drengir bættust í hópinn okkar á laugardaginn. Megi minning þín lífa um aldir alda. Við kaffifélag- ar í Kaffivagninum vottum syst- kinum þínum, börnum og fjöl- skyldu ykkar samúð. Jóhann Páll Símonarson. Gunnar Halldórsson ✝ Guðmunda Sig-urborg Einars- dóttir fæddist 1. mars 1926 í Bol- ungarvík. Hún lést 18. mars á Hrafn- istu í Hafnarfirði. Foreldrar henn- ar voru Sigríður Ingimundardóttir og Einar Teitsson. Alsystkin hennar voru Guðný, f. 1918, d. 1939, Daníel, f. 1921, d. 2007, og Kristján, f. 1924, d. 1995. Hálfbróðir hennar sam- mæðra er Ingimundur, f. 1939. Fjölskyldan flutti til Siglu- fjarðar 1929 þegar hún var þriggja ára. Faðir Guðmundu lést 1932 þegar hann varð úti í stórhríð á Siglufjarðarskarði á heimleið til Siglufjarðar. Móðir hennar lést 1989 og var hún þá 93 ára. Árið 1942 giftist Guðmunda Sigurbirni M. Sigmarssyni, þá aðeins 16 ára, en hann var 20 ára. Þau unnu ýmis sveitastörf fyrstu árin, byrjuðu að búa í Enni í Unadal 1948, 1951 réðust þau í að byggja nýbýlið Ráðhildi Sigurðardóttur, dóttir þeirra er Guðmunda, f. 1971, hún er gift Morten Troest, þau eiga þrjú börn. 3) Björn, f. 1953. 4) Sigríður, f. 1954, gift Ólafi Guðjónssyni, börn þeirra eru Guðjón, f. 1975, d. 1977; Guðjón, f. 1978, í sambúð með Þorgerði Árnadóttur og eiga þau tvo syni; Kristín, f. 1979, gift Gunn- ari Þorsteinssyni og eiga þau þrjú börn; Laufey, f. 1981, hún á tvo syni, hún er í sambúð með Geir Rúnari Birgissyni, hann á þrjú börn. 5) Sigurbjörn Arnar, f. 1958, giftur Helgu Ósk- arsdóttur, börn þeirra eru: Tómas, f. 1981, í sambúð með Sigþrúði Birtu Jónsdóttur og eiga þau fjögur börn; Garðar, f. 1982, og á hann þrjú börn; Sigurbjörn, f. 1983, hann er giftur Kristbjörgu Sölvadóttur og eiga þau fjögur börn; Björg- vin, f. 1983, hann er giftur Ing- unni Höskuldsdóttur og eiga þau þrjú börn; Heiðar, f. 1987, hann er giftur Ruth Ingólfs- dóttur og eiga þau tvær dætur; Andrea, f. 1994, er í sambúð með Sólveigu Daðadóttur. 6) Kristjana, f. 1966, er í sambúð með Þorvarði Jónssyni, dætur þeirra eru Vigdís, f. 1992; Sig- ríður og Sólveig, f. 1998; og Guðmunda, f. 2003. Útförin fer fram frá Hafnar- fjarðarkirkju í dag, 5. apríl 2019, klukkan 11. Stekkjarból í Una- dal og fluttu þang- að 1952. Árið 1966 fluttu þau að Gröf á Höfðaströnd og bjuggu þar til árs- ins 1975 en brugðu þá búi og fluttu til Hafnarfjarðar. Þau keyptu íbúð við Suðurgötu 31 og árið 1977 fluttu þau í Háukinn 3 þar sem þau bjuggu í 38 ár. Sig- urbjörn lést 2015 á Sólvangi en stuttu áður hafði Guðmunda flutt á Hrafnistu, þar sem hún dvaldi sín síðustu ár. Börn Guðmundu og Sigur- björns eru: 1) Sigmar, f. 1945, giftur Helgu Hansdóttur, dætur þeirra eru: Ingibjörg, f. 1968, hún á fjögur börn og þrjú barnabörn, hún er gift Sigur- geir Ingimundarsyni, hann á fimm börn; Ragnheiður, f. 1971, hún á tvær dætur, hún er gift Gísla Steingrímssyni, hann á eina dóttur; Fanney, f. 1985, í sambúð með Kjartani Björns- syni, þau eiga eina dóttur. 2) Einar Magnús, f. 1950, giftur Elsku amma. Það sem ég man allra best eftir eru heimsóknirnar til þín eftir skóla, ég gat komið hvenær sem var og það var alltaf tekið vel á móti mér, þú áttir smurt brauð og svo spjölluðum við og spiluðum. Þú kenndir mér mörg spil og kapla sem ég er búin að kenna börnunum mínum í dag. Þegar ég var unglingur vannst þú í kjötvinnslunni hjá Ali, ég sótti um sumarvinnu og fékk i pökk- uninni, næstu fimm sumrin unn- um við saman. Þegar ég flutti til Danmerkur og var komin í hús með börn lang- aði mig til að bjóða þér í heimsókn en það var því miður ekki hægt, þú vildir ekki fljúga. Þú hafðir prófað að fljúga frá eða til Sauð- árkróks sem ung kona og það hafði verið hræðileg lífsreynsla svo það vildirðu ekki gera aftur, þannig var það. Við náðum samt að halda sambandinu, ég kem oft til Íslands og í hvert skipti voru heimsóknirnar til þín ofarlega á listanum, hvern eða annan hvern dag var lágmark að koma í heim- sókn og börnin mín náðu að kynn- ast þér eins vel og ef við hefðum búið á Íslandi. Ég er líka þakklát fyrir að ég náði að heimsækja þig svo oft núna um jólin og öll fjöl- skyldan með. Takk fyrir allt elsku amma. Minningin um þig mun lifa um alla ævi. Guðmunda Sigurborg Einarsdóttir. Hinn 18. mars síðastliðinn lést Guðmunda Einarsdóttir, fyrrver- andi bóndi og húsfreyja á Stekkjarbóli í Unadal í Skagafirði. Guðmunda var fædd í Bolungar- vík við Ísafjarðardjúp 1. mars 1926, dóttir hjónanna Sigríðar Ingimundardóttur frá Bjarna- stöðum í Ísafirði og Einars Teits- sonar frá Bergsstöðum á Vatns- nesi, en þau hófu búskap í Bolungarvík 1917. Einar faðir Guðmundu var annar tveggja bræðra sem stofnuðu Vélsmiðju Bolungarvíkur. Foreldrar Guðmundu fluttust með börn sín árið 1929 til Siglu- fjarðar þar sem Einar vann jöfn- um höndum í járnsmíði og tré- smíði, en hann var alhliða hagleiksmaður. Einar faðir Guð- mundu lést af slysförum árið 1932. Sigríður fluttist með börn sín að Ingveldarstöðum í Hjaltadal í Skagafirði árið 1937, þá var Guð- munda 11 ára. Hún var fermd í Hóladómkirkju vorið 1939. Í Hjaltadal kynntist Guðmunda mannsefni sínu, Sigurbirni Sig- marssyni frá Hólkoti í Unadal. Þau hófu búskap í Enni á Höfða- strönd árið 1942. Þar fæddust tveir elstu synir þeirra, Sigmar Kristján og Einar Magnús. Þau Guðmunda og Sigurbjörn festu kaup á jörðinni Hólkoti í Unadal á fimmta ára- tugnum ásamt Hjálmari bróður Sigurbjörns. Í landi Hólkots byggðu þau Guðmunda og Sigurbjörn nýbýlið Stekkjarból í Unadal. Þar fædd- ust fjögur yngri börn þeirra, þau Sigríður, Björn, Arnar og Krist- jana. Þau Guðmunda og Sigurbjörn voru bæði víkingar dugleg og byggðu upp nýbýlið af miklum myndarskap. Rafmagn var ekkert í dalnum á þessum árum. Oft þurfti að sækja vatn í uppsprettu- lind í vatnsfötum. Þau Guðmunda og Sigurbjörn fluttu að Gröf á Höfðaströnd árið 1966 og til Hafnarfjarðar 1976. Þar áttu þau bæði kindur og hesta og áttu heima þar seinustu 40 ævi- árin. Sigurbjörn lést 23. apríl 2015. Seinustu æviárin sín dvaldist Guðmunda á Hrafnistu í Hafnar- firði og eru starfsfólki þar færðar alúðarþakkir fyrir góða umönnun. Það er við hæfi að ljúka þessum kveðjuorðum með vísu úr sveit- inni: Ég var sveita saklaust barn sólin skein á blóm og hjarn, veitti yndi von og dug vermdi barnsins sál og hug. (S.I.) Ég þakka Guðmundu systur minni fyrir 80 ára góða samfylgd í lífinu. Blessuð sé minning hennar. Ingimundur Magnússon. Guðmunda S. Einarsdóttir Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber- ist áður en skilafrestur rennur út. Minningargreinar Smáauglýsingar Fylgstu með á facebook Mjódd s. 774-7377 www.frusigurlaug.is Frí póstsending Sundbolir • Tankini Bikini • Strandfatnaður Undirföt • Náttföt Sloppar • Undirkjólar Inniskór • Aðhaldsföt Ný sending af náttfatnaði og sloppum Stærðir 36–58 www.frusigurlaug.is vefverslun Ýmislegt

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.